Morgunblaðið - 12.10.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Tónlist, vísindi og tækni mætast á
tölvu- og raftónlistarhátíðinni Erki-
Tíð, sem hefst kl. 11 í fyrramálið,
laugardag, og stendur langt fram
eftir kvöldi í Norðurljósum í Hörpu.
Auk þess sem boðið er upp á sex
ólíka tónleika verður börnum ekki í
kot vísað, heldur þvert á móti í opnar
vinnustofur í norðurhluta tónleika-
hússins, þar sem jafnframt verður
haldin fyrir þau sérstök sýning.
„Markmiðið er að sjálfsögðu að
kynna það allra nýjasta í tónsköpun
með nýrri tækni,“ segir Kjartan
Ólafsson, listrænn stjórnandi og
skipuleggjandi hátíðarinnar. Þann
starfa hafði hann líka þegar fyrsta
ErkiTíð var haldin árið 1994 og
næstu sex árin, eða þangað til hátíð-
in var lögð niður árið 2000 og hann,
sem nýr formaður Tónskáldafélags-
ins, fenginn til að stjórna Myrkum
músíkdögum og Norrænum músík-
dögum.
Ný tækni og gamlar hefðir
„ErkiTíð 1994 var sú fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi og gaman að end-
urvekja hana. Hátíðin núna byggist
á svipuðum grunni því við höfum
alltaf reynt að tengja saman fortíð,
nútíð og framtíð. Í því felst að nýta
nýja tækni til tónlistarsköpunar og
-flutnings en byggja jafnframt á
gömlum hefðum. ErkiTíð opnar sýn
inn í framtíðina með sterkri við-
spyrnu í verkum frumherja íslenskr-
ar tölvu- og raftónlistar. Tónskáld
og tónlistarmenn í fremstu röð bjóða
upp á raftónlistarverk sem spanna
síðastliðna hálfa öld, frumflutt verða
fjölmörg íslensk og erlend verk, auk
þess sem kynntar verða nýjustu
rannsóknir á gervigreind í tón-
sköpun og tónlistarflutningi,“ segir
Kjartan.
Undirbúningur hátíðarinnar hef-
ur staðið í rúmt ár, enda verður að
sögn Kjartans öllu tjaldað til. Hann
hefur ekki tölu á öllu tónlistarfólkinu
sem að hátíðinni kemur, en giskar á
hátt í eitt hundrað manns að með-
töldum um 40 söngvurum Hamra-
hlíðarkórsins. „Kórinn undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur kemur
fram á tónleikunum Í nálægri fortíð
til heiðurs Atla Heimi Sveinssyni
tónskáldi áttræðum. Flutt verða
verk eftir Atla Heimi, sem mörg
hver eru orðin þjóðinni afar hjart-
fólgin,“ segir Kjartan og minnir á
Kvæðið um fuglana, sem margir
þekki frekar sem Snert hörpu mína,
himinborna dís.
Útkoma óráðin
Fyrstu tónleikarnir á dagskrá há-
tíðarinnar, Útkoma óráðin, eru um
margt nýstárlegir. „Það getur allt
gerst, útkoman er í raun algjörlega
óráðin því áhorfendur taka þátt og
semja í raun tónlistina með tónlist-
arflytjendum og aðstoð gervigreind-
ar,“ útskýrir Kjartan og heldur
áfram: „Á lokatónleikunum, Frá for-
tíð til framtíðar, verða svo frumflutt
verk nokkurra ungra tónskálda, sem
segja má að séu uppljómuð af tónlist
Atla Heimis.“
Ókeypis aðgangur er á þrenna
tónleika hátíðarinnar; Útkoma óráð-
in og yfirlitstónleikana Íslensk raf-
tónlist í 100 ár, sem fluttir verða í
tvennu lagi, kl. 14 og 20. Einnig á
vinnustofu barnanna þar sem kynnt
verður nýtt smáforrit í tónlistar-
kennslu.
Aðgangseyrir er 2.900 á hina tón-
leikana, þ.á m Front-Line Contem-
porary Works, þar sem CAPUT-
kammerhópurinn flytur erlend verk.
ErkiTíð að ári?
Kjartan segir að meiningin sé að
halda aðra ErkiTíð að ári. „Við
stefnum á að halda hátíðina í Hörpu,
en höfum eins og fleiri tónleikahald-
arar áhyggjur af hversu dýrt það er
orðið. Margar hátíðir hafa þurft að
yfirgefa húsið af þeim sökum, sem er
dapurlegt í ljósi þess að tónlistar-
menn börðust fyrir því í tæp 100 ár.
Í ljósi þess að töluverður ágrein-
ingur virðist vera á milli eigenda
hússins um hvernig eigi að reka það
myndum við vilja opna umræðu um
fyrirkomulagið í þessu húsi, sem var
byggt sérstaklega fyrir tónlist.“
Tölvu- og raftónlistarhá-
tíðin ErkiTíð endurvakin
Sérstakir tónleikar til heiðurs Atla Heimi Sveinssyni
Morgunblaðið/Eggert
Skipuleggjandinn Kjartan Ólafsson
Morgunblaðið/Kristinn
Tónskáldið Atli Heimir Sveinsson
Venom
Nýjasta myndin úr smiðju Marvel. Í
henni segir af blaðamanni sem
kemst í snertingu við dularfullt efni
utan úr geimnum. Það tekur sér
bólfestu í líkama hans og veldur því
að hann getur breytt sér í ófrýni-
legt og mannskætt ofurskrímsli að
nafni Venom. Leikstjóri er Ruben
Fleischer og með aðalhlutverk fara
Tom Hardy og Michelle Williams.
Metacritic: 38/100
First Man
Nýjasta kvikmynd Óskars-
verðlaunaleikstjórans Damien Cha-
zelle. First Man er sannsöguleg og
fjallar um bandaríska geimfarann
Neil Armstrong sem fyrstur steig
fæti á tunglið. Myndin segir af und-
irbúningi geimferðarinnar á ár-
unum 1961-1969 og þeim hættum
sem blöstu við geimförunum. Með
aðalhlutverk fara Ryan Gosling,
Claire Foy og Kyle Chandler.
Metacritic: 84/100
Undir halastjörnu
Kvikmynd Ara Alexanders Ergis
Magnússonar sem byggð er á lík-
fundarmálinu. Kafari fann fyrir til-
viljun sundurskorið lík af manni
sem hafði verið sökkt í höfnina í
Neskaupstað. Með aðalhlutverk
fara m.a. Tómas Lemarquis, Pääru
Oja og Atli Rafn Sigurðsson.
Grami göldrótti
Teiknimynd með íslensku tali. Ung-
lingurinn Trausti er fyrir töfra
fluttur yfir í ævintýraheim þar sem
hann þarf að bjarga prinsessu og
stöðva hinn göldrótta Grama sem
hafði ákveðið að banna alla ham-
ingju.
Mandy
Nýjasta kvikmynd leikstjórans Pa-
nos Cosmatos með tónlist eftir Jó-
hann Jóhannsson. Skógarhöggs-
maðurinn Red býr í kofa úti í skógi
með kærustu sinni Mandy. Dag einn
vekur Mandy athygli sturlaðs leið-
toga sértrúasöfnuðar sem vekur
upp hóp mótorhjóladjöfla til að
ræna henni. Þungvopnaður heldur
Red af stað til að bjarga Mandy og
hefst þá mikið blóðbað. Með aðal-
hlutverk fara Nicolas Cage og
Andrea Riseborough.
Metacritic: 81/100
Kler
Pólsk kvikmynd sem sýnd verður í
Bíó Paradís en uppselt er á allar
fyrstu sýningar og ekki verður
fleirum bætt við, samkvæmt til-
kynningu. Myndin hefur vakið
fjaðrafok í Póllandi þar sem kaþ-
ólska prestastéttin kallar eftir því
að hún verði bönnuð. Í henni segir
af þremur kaþólskum prestum sem
er ekkert heilagt. Leikstjóri er Woj-
ciech Smarzowski og í aðalhlut-
verkum Jacek Braciak, Janusz Ga-
jos og Arkadiusz Jakubik.
Bíófrumsýningar
Ævintýri, ofbeldi og sannar sögur
Sá fyrsti Ryan Gosling í hlutverki geimfarans Neils Armstrongs.
Ronja Ræningjadóttir (None)
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka
Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s
Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 2/12 kl. 17:00 24. s
Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka
Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s
Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka
Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s
Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Fim 25/10 kl. 19:30 11.s
Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Fös 26/10 kl. 17:00 Auka
Sun 14/10 kl. 17:00 6.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Lau 27/10 kl. 17:00 Auka
Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Lau 27/10 kl. 20:00 12.s
Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Mið 24/10 kl. 19:30 Auka Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fim 15/11 kl. 19:30 4.s Fim 29/11 kl. 19:30 7.s
Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 5.s
Mið 14/11 kl. 19:30 3.s Fös 23/11 kl. 19:30 6.s
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 13/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 11:00
Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 13:00
Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 11:00
Lau 20/10 kl. 13:00 Lau 3/11 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s
Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 11:00 330.s
Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 13:00 331.s
Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 14:30 332.s
Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 11:00 333.s
Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 13:00 334.s
Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 14:30 335.s
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fös 12/10 kl. 22:00 Fös 19/10 kl. 22:00
Daður og dónó
Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn)
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Fim 8/11 kl. 20:00 aukas.
Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s
Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Lau 17/11 kl. 20:00 165. s
Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 12/10 kl. 20:00 11. s Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s
Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 2/11 kl. 20:00 17. s
Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s
Fös 19/10 kl. 20:00 15. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas.
Athugið, sýningum lýkur í byrjun nóvember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tví-skinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s
Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s
Litrík jólasýning fyrir þau yngstu.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 12/10 kl. 20:00 62. s Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Lau 10/11 kl. 20:00 66. s
Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s
Besta partýið hættir aldrei!