Morgunblaðið - 12.10.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.10.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018 Kvikmynd leikstjórans Ara Alex- anders Ergis Magnússonar, Undir halastjörnu, var frumsýnd í Smára- bíói í gær. Myndin er byggð á lík- fundarmálinu svokallaða frá árinu 2004. Þá fann kafari lík fyrir til- viljun í höfninni í Neskaupstað og rannsókn lögreglu leiddi í ljós að líkið var af 27 ára Litháa. Bárust böndin fljótlega að manni sem var nýkominn til bæjarins og tveimur öðrum mönnum. Með aðalhlutverk fara Pääru Oja, Kaspar Velberg, Atli Rafn Sigurðarson og Tómas Lemarquis. Undir halastjörnu frumsýnd Morgunblaðið/Eggert Frumsýning Svandís Eva Brynjarsdóttir, Ari Alexander, Pääru Oja, Tómas Lemarquis og Friðrik Þór Friðriksson. Myndlistarmaðurinn John Zurier opnar í dag kl. 17 sýninguna Stund- um (yfir mig fjallið) í galleríinu BERG Contemporary. Zurier sýnir ný málverk sem hann vann hér á landi síðastliðið sumar og er sýn- ingin fyrsta einkasýning hans í gall- eríinu. Zurier er bandarískur, fæddist ár- ið 1956 í Santa Monica í Kaliforníu og útskrifaðist með MFA-gráðu í myndlist frá University of Cali- fornia, Berkeley árið 1984. Hann býr og starfar í Berkeley og í Reykjavík. Zurier hefur tekið þátt í tvíæring- unum í São Paulo í Brasilíu, Kali- forníu í Bandaríkjunum, Gwangju í Suður-Kóreu og Whitney í sam- nefndu listasafni í New York, að því er fram kemur í tilkynningu. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga í heimalandi sínu, Evrópu og Japan og verk hans má finna í opinberum söfnum. Stafesting, ekki uppgötvun Í texta sem Merry Scully, kennari í Santa Fe í Nýju-Mexikó, sýning- arstjóri fyrir samtímalist og yfir- maður sýningarstjórnarmála í New Mexico Museum of Art, ritar um Zu- rier segir að þegar hann hafi komið fyrst til Íslands árið 2002 hljóti það að hafa verið eins og að afhjúpa eitt- hvað sem hann vissi þegar hvað væri. „Þessi fyrstu kynni af Íslandi voru ekki uppgötvun heldur frekar staðfesting á því sem hann var þegar að setja fram og túlka í verkum sín- um. Frá 2011 hefur Zurier deilt tíma sínum milli íslenska landslagsins sem hann ber svo sterkar tilfinn- ingar til og heimaslóðanna í Kali- forníu. Áhrifin frá hvoru tveggju má vel greina í verkunum,“ skrifar Scully. Mjúk birtan við San Frans- iskó-flóa, þangað sem hann flutti 1974 til að læra landslagsarkitektúr við Kaliforníuháskóla í Berkeley, og tær strandbirtan sem hann ólst upp við í Los Angeles kallist á við fjöl- breytt og eyðilegt landslagið á Ís- landi í málverkum sem segja megi að séu frekar eins og upplifun eða ferðalag en eftirmyndir af nátt- úrunni. Krefst mikillar nákvæmni Scully segir mikla nákvæmni þurfa til að meðhöndla strigann eins og Zurier geri með lími, farva og olíulitum og að sú nákvæmni snúist fyrst og fremst um nákvæma skoðun og skilning. Zurier vinni með hvern tiltekinn striga jafnframt því að hafa í huga sögu málverksins, öll málverk sem hann hafi sjálfur málað og öll málverk sem hann hafi séð. Sýningunni lýkur 22. desember. Berg Contemporary er á Klapp- arstíg 16. Morgunblaðið/Einar Falur Íslandsvinur John Zurier sækir m.a. innblástur í íslenska náttúru. Áhrif frá Íslandi og Kaliforníu Fagurbleikt Eitt af verkum Zurier.  John Zurier í Berg Contemporary Hljómsveitin 13 tungl heldur sína fyrstu tónleika í Eldborgarsal Hörpu í kvöld kl. 20.30. Hrólfur Jónsson, söngv- ari hljómsveit- arinnar, hefur til margra ára sam- ið lög og texta og verða á tónleikunum flutt lög eftir hann, Ragnar Jón Hrólfsson og Kristján Kristjánsson/KK, sem er einn af gestum hljómsveitarinnar. Hana skipa Ástvaldur Traustason, Daníel Friðrik Böðvarsson, Ing- ólfur Magnússon, Ragnar Jón Hrólfsson, Rósa Guðrún Sveins- dóttir, Unnur Birna Björnsdóttir, Vigga Ásgeirsdóttir og Þorvaldur Ingveldarson en einnig munu þekktir íslenskir tónlistarmenn stíga á svið, þau Ingveldur Ýr Jóns- dóttir, Jakob Frímann Magnússon og KK, ásamt karlakórnum Þröst- um. 13 tungl halda tónleika í Eldborg Hrólfur Jónsson eldu á milli fimm girnilegra tegunda f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru ægilegir, ljúffengir og fljótlegir. ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS V a þ Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.