Morgunblaðið - 12.10.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Veður víða um heim 11.10., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Akureyri 8 alskýjað
Nuuk 0 léttskýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 15 heiðskírt
Kaupmannahöfn 15 heiðskírt
Stokkhólmur 11 skýjað
Helsinki 11 alskýjað
Lúxemborg 20 heiðskírt
Brussel 23 léttskýjað
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 15 skúrir
London 18 skúrir
París 24 léttskýjað
Amsterdam 21 heiðskírt
Hamborg 20 heiðskírt
Berlín 22 heiðskírt
Vín 20 heiðskírt
Moskva 9 heiðskírt
Algarve 21 skýjað
Madríd 20 léttskýjað
Barcelona 23 heiðskírt
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 20 rigning
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg -1 alskýjað
Montreal 7 rigning
New York 23 skúrir
Chicago 7 skýjað
Orlando 29 skýjað
12. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:10 18:20
ÍSAFJÖRÐUR 8:20 18:19
SIGLUFJÖRÐUR 8:03 18:02
DJÚPIVOGUR 7:41 17:48
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Norðvestan og vestan 5-10 m/s á
norðanverðu landinu með rigningu á köflum, en
slyddu til fjalla. Suðvestlægari sunnantil, skýjað og
víða þurrt. Hiti 1 til 7 stig, mildast suðaustantil.
Suðlæg átt, 5-13 m/s, skýjað og úrkomulítið, en snýst í norðaustan 8-15 m/s undir kvöld, hvass-
ast með suðausturströndinni. Rigning austanlands, en yfirleitt þurrt annars. Hiti 2 til 8 stig.
Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti í
vikunni afgreiðslu skipulagsráðs
bæjarins á tillögu til auglýsingar að
deiliskipulagi brúar yfir Fossvog.
Gert er ráð fyrir um 270 metra
langri brú yfir voginn frá norður-
enda Bakkabrautar á Kársnesi að
flugbrautarenda Reykjavíkur-
flugvallar vestan Nauthólsvíkur.
Markmið tillögunnar er að bæta
samgöngutengingar milli Reykja-
víkur og Kópavogs og styðja við vist-
væna samgöngukosti, segir í fundar-
gerð bæjarstjórnar Kópavogs.
Brúin verður fyrir umferð gang-
andi, hjólandi og almennings-
samgöngur.
Tillagan er unnin af ráðgjafarfyr-
irtækinu Alta fyrir hönd Kópavogs-
bæjar og Reykjavíkurborgar og í
samvinnu við Vegagerðina. Sameig-
inleg skipulags- og matslýsing var
auglýst í fyrravetur.
Í umsögn sinni nefndi Slökkviliðið
á höfuðborgarsvæðinu að æskilegt
væri að burður brúarinnar gerði ráð
fyrir akstri neyðarbíla og var ákvæði
þess efnis bætt í greinargerð. Einn-
ig má nefna að í umsögn fagnaði Há-
skólinn í Reykjavík verkefninu og
benti á nauðsyn þess að gera þyrfti
ráð fyrir almenningssamgöngum
fyrir flugbrautarendann og eftir
Nauthólsvegi. Í tillögunni er gert
ráð fyrir að sá möguleiki sé fær.
aij@mbl.is
Auglýsa um 270 metra Fossvogsbrú
Frá Bakkabraut á Kársnesi að flug-
brautarenda vestan Nauthólsvíkur
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gengi krónu heldur áfram að gefa
eftir og kostar evran nú 134 krónur.
Gústaf Steingrímsson, hagfræð-
ingur hjá Landsbankanum, segir
vöru- og þjónustujöfnuð enn jákvæð-
an þótt hann hafi dregist töluvert
saman. Sé eingöngu horft á þá stærð
ætti krónan að vera að styrkjast.
Ekkert sérstakt bakslag hafi orðið í
gjaldeyrisöfluninni sem skýra ætti
veikingu krónunnar. Markaðurinn
sé hins vegar grunnur og því þurfi
lítið til að hreyfa við honum.
„Það er mjög lítil velta á
gjaldeyrismarkaðnum. Því þarf litlar
upphæðir til að hreyfa verðið í hvora
áttina sem er. Það er hugsanlegt að
aðilar sem fá reglubundið gjaldeyri
frá útlöndum, eins og útflytjendur,
séu að bíða lengur á hliðarlínunni en
áður með von um að skipta gjaldeyri
yfir á hagstæðara gengi. Vegna
þessara áhrifa kann krónan að vera
að veikjast meira en ella,“ segir
Gústaf. Erfitt sé að ráða í væntingar
markaðarins. Með líku lagi sé erfitt
að spá um gengisþróunina á næstu
vikum en ekki sé ólíklegt að sveifl-
urnar verði áfram töluverðar.
Ólafur Torfason, stjórnarformað-
ur Íslandshótela, segir íslenska
ferðaþjónustu hafa skaðast af styrk-
ingu krónunnar. Sú þróun hafi bitn-
að á Íslandshótelum. Því sé ánægju-
efni fyrir íslenska ferðaþjónustu að
krónan sé að gefa eftir.
Hefur markverð áhrif á rekstur
„Við höfum tekjur í evrum og
þessi þróun þýðir að við fáum fleiri
krónur fyrir okkar evrur. Styrking
krónunnar kemur sér ekki vel fyrir
íslenska ferðaþjónustu. Þetta er ein-
falt reikningsdæmi og nú kemur
þetta eitthvað til baka,“ segir Ólafur.
Hann segir aðspurður það hafa
markverð áhrif á afkomu hótela að
134 krónur fáist nú fyrir evruna.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
ferðamálastjóri, segir styrkingu
krónunnar og hátt verðlag hafa haft
neikvæð áhrif á eftirspurn í íslenskri
ferðaþjónustu. Það sé orðið umtalað
hversu dýrt Ísland sé orðið.
Með því að krónan hafi nú gefið
eftir sé Ísland orðið ódýrara fyrir
ferðamenn. Það muni taka nokkra
mánuði fyrir eftirspurnina að aðlag-
ast því að krónan hafi verið að gefa
eftir. Raunhæft sé að horfa til vors-
ins í því efni. Þessi þróun verði von-
andi til þess að fjölga ferðamönnum
frá Þýskalandi og öðrum rótgrónum
mörkuðum í Mið-Evrópu.
Samkvæmt áætlun Ferðamála-
stofu komu 2,22 milljónir ferða-
manna til landsins í fyrra. Skarphéð-
inn Berg segir áætlað að fyrir næstu
mánaðamót hafi tvær milljónir
ferðamanna komið í ár, miðað við
góða eftirspurn í október. Útlit sé
fyrir 2,3 milljónir ferðamanna í ár.
Metfjöldi á Keflavíkurflugvelli
Samkvæmt nýbirtum tölum Isavia
fóru um 983 þúsund farþegar um
Keflavíkurflugvöll í september, sem
er met og 13% fleiri en í fyrra.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur
hjá Landsbankanum, segir aðspurð-
ur það geta komið sér vel fyrir ís-
lensku flugfélögin að krónan veikist.
„Félögin hafa tekjur í erlendri
mynt. Launakostnaður er hins vegar
að mestu í krónum. Veiking krónu
ætti því að styðja félögin. Veikari
króna ætti einnig að styðja við sam-
keppnishæfni ferðaþjónustunnar.“
Stefán Broddi Guðjónsson, for-
stöðumaður greiningardeildar Arion
banka, segir að í haust hafi fleiri vilj-
að selja krónur en kaupa krónur.
„Flestar hagstærðir í ár hafa gefið
til kynna að viðskiptaafgangur sé að
minnka meðan lítið lát hefur verið á
fjárfestingum lífeyrissjóða erlendis.
Það kom mér því töluvert á óvart
hvað krónan hélst sterk næstum allt
þetta ár. Að veikingin gerist núna
skýrist líklega af sviptingum í kring-
um ferðaþjónustuna í framhaldi af
hækkun olíuverðs og umræðu um
erfiðan rekstur flugfélaganna. Þar
við bætist síðan ótti við að framund-
an séu kostnaðarhækkanir og verð-
bólga. Því miður hækkar verð inn-
fluttra vara með veikari krónu og því
er hætt við að verðbólga aukist og
kaupmáttur minnki ef krónan styrk-
ist ekki aftur. Á hinn bóginn bætir
veikari króna samkeppnisstöðu ís-
lenskra fyrirtækja.“
Veiking krónu góð fyrir hótelin
Bætir afkomu hótela Evran komin í 134 krónur Hagfræðingur spáir frekari gengissveiflum
Farþegafjöldi og spá Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll 2018
Heildarfarþegafjöldi fyrstu
9 mánuði árs 2017 og 2018
Rauntölur fyrir janúar-sept. 2017
6.823.390
Spá Isavia frá nóvember sl.
fyrir janúar-september 2018
Spá Isavia frá maí sl.
fyrir janúar-september 2018
8.077.639
7.759.050
Rauntölur fyrir janúar-sept. 2018
7.721.466
Heimild: Isavia
1.250
1.000
750
500
250
0
.000
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
Farþegafjöldi (rauntölur):
Skipti
Komur
Brottfarir
Spá frá nóv. sl.
Heildarfarþegafjöldi 2018
10,38
milljónir
10,07
milljónir
Spá Isavia frá
nóvember 2017
Uppfærð áætlun
um farþegafjölda*
*Miðað við farþegafjölda í jan.-sept. og
spá Isavia frá maí sl. fyrir okt.-des. 2018
Gengi evru og bandaríkjadals
Frá ágústbyrjun 2018
Heimild: Seðlabanki Íslands
1. ágúst 2018
1 € = 123,4 kr.
1 $ = 105,6 kr.
Evra (€)
Bandaríkja-
dalur ($)
11. október 2018
1 € = 134,4 kr.
1 $ = 116,15 kr.