Morgunblaðið - 12.10.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.10.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Mig hafði ekki órað fyrirþessu og það var sann-arlega ekki á „to do“-listanum hjá mér að fara að leika. Ég hef aldrei staðið á sviði og leikið í leikriti nema í grunn- skóla og það var einvörðungu sýnt fyrir foreldra. Ég hef tekið þátt í einhverju flippi í árshátíðarmynd- böndum á vinnustöðum en lengra nær það ekki í leiklist hjá mér,“ seg- ir Sigurður Ástgeirsson en hann og ellefu ára dóttir hans, Arnbjörg Ýr, eða Abba, taka bæði þátt í upp- færslu á verkinu Á vit ævintýranna hjá Leikfélagi Selfoss sem verður frumsýnt í kvöld. Siggi segir þetta allt eiga upphaf sitt í því að Abba dóttir hans sé mikil áhugamann- eskja um leik- og sönglist og hún hafi tekið þátt í námskeiðum hjá Borgarleikhúsinu og farið á sumar- námskeið hjá leikfélaginu á Selfossi. „Hún vildi endilega fara í leiksmiðju sem boðið var upp á hér hjá leik- félaginu vegna undirbúnings á upp- setningu á leikritinu sem Ágústa Skúladóttir leikstjóri sá um. Konan mín hvatti mig til að fylgja Öbbu fyrsta kvöldið, hjálpa henni að stíga inn í leikfélagið og kannski hjálpa eitthvað til, sjá um leikmyndina, ljósin og annað verklegt. Ég sá ekk- ert því til fyrirstöðu en þegar ég gekk þarna inn fyrsta kvöldið var það alveg nýr heimur fyrir mig, ég þekkti ekki nokkurn mann með nafni.“ Út fyrir þægindarammann Siggi hélt að hann yrði á kantin- um til aðstoðar en þegar Ágústa leikstjóri sagði hópnum strax þetta fyrsta kvöld að koma upp á svið átt- aði hann sig á að tvennt var í stöð- unni fyrir hann. „Að vera pabbinn sem sendi stelpuna upp á svið og sæti sjálfur úti í sal, eða styðja mína dóttur alla leið og fara með henni upp á svið. Ég tók seinni kostinn, ég ætlaði ekki að vera stífi fúli karlinn. Áður en ég vissi af var ég orðinn þátttakandi í leiksmiðju og ég fór þarna mjög langt út fyrir minn þæg- indaramma, tók þátt í ýmsu sem mér hefði aldrei dottið í hug að ég, 36 ára karlinn, myndi gera á sviði fyrir framan annað fólk,“ segir Siggi og hlær. „Þegar kvöldinu lauk sagðist Ágústa ólm vilja fá okkur feðginin til að taka þátt í uppsetningu leikrits- ins. Þá varð ekki aftur snúið. Við för- um bæði með nokkur hlutverk í verkinu, ég leik til dæmis hest, mál- aður í framan með tagl um mig miðj- an og hoppa um sviðið með öðru fólki. Ég hefði aldrei trúað því að ég ætti eftir að gera slíkt. Ég leik líka djákna, lugt, vörðu, regnboga og gullna hliðið. Þetta er mikil fjöl- breytni og Abba leikur meðal annars dreng og gamlan karl. Ég er líka sviðsmaður í ákveðnum atriðum þar sem þarf að stjórna flekum sem eru hluti af leikmyndinni. Allir eru í öllu og það er einmitt svo skemmtilegt.“ Mun fá raunveruleikasjokk Þau feðginin komu bæði að því að semja tónlistina í leikritinu. „Við erum bæði í slagverki, Abba er kom- in á annað stig í trommum og hún er í tónlistarskóla og í lúðrasveit. En ég þurfti að læra ýmislegt nýtt í tónlist fyrir þetta leikrit, mér var til dæmis rétt sög og sellóbogi og sagt að ég ætti að spila. Ég gekk í verkið, ekk- ert annað í boði,“ segir Siggi og bæt- ir við að fyrstu tvær vikurnar í æf- ingaferlinu hafi þau verið í hópa- vinnu með handritið. „Þannig urðu hugmyndirnar til, en hún Ágústa er mögnuð manneskja sem lætur fólk gera ýmislegt sem það hefði ekki trúað að það gæti gert. Þetta er mjög gaman, en ég geri alveg ráð fyrir að ég fái raunveruleikasjokk fimm mínútum fyrir fyrstu sýningu, þegar ég átta mig á út í hvað ég hef komið mér,“ segir Siggi og hlær. „Þetta er ekkert mál þegar engir áhorfendur eru, en kvíðvænlegra að leika fyrir fullum sal af fólki.“ Siggi er einn af eigendum fyrir- tækisins Ísorku þar sem hann er framkvæmdastjóri og hann vinnur í Reykjavík. „Ég er með tvö yngri börn á heimilinu svo það er heilmikið púsluspil að koma þessu öllu að með leiklistarstarfinu. Maður brunar fyrr heim, kvöldmatur er eldaður klukkan fimm og við feðginin mætt á æfingu klukkan sex. Þetta setur fjöl- skyldulífið vissulega í öðruvísi skorður, en að baki mér er góð kona sem heldur fjölskyldunni á floti. Þetta eru langir dagar hjá okkur Öbbu, en rosalega gaman. Ég mæli með þessu fyrir alla foreldra; að fara út í eitthvert tómstundastarf með börnunum sínum. Enda segir ein- hvers staðar að besta forvörnin sé að vera samvistum við börnin. Þetta er alveg nýtt stig fyrir mig í samveru með dóttur minni; ég hafði aldrei pælt í að það að fara saman í leik- félag gæti verið vettvangur fyrir frá- bæra samveru.“ Nýtt Siggi þurfti að læra að spila á sög fyrir leiksýninguna. Fjör Það gengur heilmikið á í uppsetningu ævintýranna. Veisla Siggi (lengst t.h.) í einu af hlutverkum sínum í verkinu. „Ég lenti alveg óvart í þessu“ Hann óraði ekki fyrir að hann ætti eftir að standa á sviði og leika hest, djákna og vörðu. Sig- urður Ástgeirsson segir það frábæran vettvang fyr- ir samveru foreldris og barns að fara saman í leikfélag. Hann sér ekki eftir að hafa valið að vera ekki fúli stífi karlinn. Feðgin Siggi og Abba saman á leiklistaræfingu. Leikfélag Selfoss setur upp fjöl- skyldusýningu undir heitinu: Á vit ævintýranna, og er það í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Verkið er sam- eiginleg sköpun leikstjórans og leik- hópsins og er það byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og Stóra Kláus, ljóðinu um Sálina hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson ásamt kvæði Páls J. Árdal, En hvað það var skrýtið. Einnig munu verða frumflutt lög sem tilheyra sýningunni, sem voru samin á æfingarferlinu. Ágústa Skúladóttir vinnur nú með Leikfélagi Selfoss í fyrsta sinn og sögur herma að henni takist einkar vel að ná fram leikgleði hjá leik- hópnum. Alls eru 12 leikarar sem koma að sýningunni. Frumsýning er í dag, föstudaginn 12. október, og miðaverð er 2.000 kr. en hópafsláttur fyrir tíu eða feiri og þá er miðaverð 1.500 kr. Verkið er sýnt í Litla leikhúsinu við Sigtún 1 á Selfossi, á bak við verslunarkjarnann Krónuna. Miða- pantanir á email: midasala@leik- felagselfoss.is og í síma 482-2787 milli klukkan 14 og 20. Fólk er hvatt til að fylgjast með fjörinu með því að adda á snapchat: leik-selfoss. Nú er heldur betur lag að skella sér í leikhús á Selfossi, því það er alltaf gaman að kynna sér hvað er um að vera úti á landi. Þar þrífst menning sem heimafólk sér sjálft um að skapa og allir hjálpast að, vaða í verkin sem þarf að framkvæma. Fjörugt leikrit fyrir alla fjölskylduna frumsýnt í kvöld Verkið er sameiginleg sköpun leikstjórans og leikhópsins Gaman Hinum ólíkustu persónum bregður fyrir í leikritinu og þar er líf og fjör.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.