Morgunblaðið - 12.10.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 12.10.2018, Qupperneq 21
upp skemmtileg atvik frá upp- vaxtarárunum, minntumst með hlýhug foreldra og systra sem eru látin og deildum gleði yfir vel- gengni og heilbrigði afkomenda okkar. Við vottum fjölskyldu Sigrún- ar dýpstu samúð. Kæra Sigrún, hvíl þú í friði. Ása Gíslason, Hjördís Magnúsdóttir. „Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran) Þessi orð hef ég haft yfir aftur og aftur þessa daga sem liðnir eru síðan Sigrún mín dó. Það er svo innilega sárt að kveðja og eig- inlega er það mér um megn að skrifa þessi orð. Sigrún var móðursystir mín, en í raun mikið frekar sem stóra systir mín enda skildu okkur aðeins átta ár. Hún passaði mig og lék við mig fyrstu árin og enga vissi ég flottari og skemmtilegri. Svo leið tíminn og henni fannst mun skemmtilegra að hanga með vinkonum sínum og hlusta á „Lög unga fólksins“ eða nýjustu plöturnar en að passa mig. Það breytti ekki þeirri stað- reynd að enga vissi ég flottari og skemmtilegri. Og þannig hefur það ævinlega verið. Eins og góðar systur jafnan eru vorum við líka bestu vinkonur. Við deildum dag- legu lífi alla okkar tíð, bárum undir og leituðum ráða hvor hjá annarri með þessa hversdagslegu hluti sem við öll sinnum og leysum. Sigrún var óvenju listræn, söng vel og teiknaði og hún hafði einstaka hæfileika til að búa sér fallegt heimili. Sigrún var traust, heilsteypt og góð manneskja. Hún var líka ótrúlega skemmti- leg. Húmoristi fram í fingurgóma og sneri grínið í flestum tilfellum að henni sjálfri. Þannig fólk er langskemmtilegasta fólkið. Nú er engin smellin saga og dillandi hlátur meir, engin boð í Skorradalinn eða Mánatúnið með spjalli og skemmtilegheitum fram á nótt. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa átt Sigrúnu að alla mína tíð og ég sakna hennar meira en orð fá lýst. Ég kveð hana með bæninni sem ég fer gjarnan með og amma Sesselja kenndi mér: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Ég votta elsku Jakobi, Sunnu Dóru, Kristínu Þóru, Árna Baldri og fjölskyldunni allri mína inni- legustu samúð, ykkar missir er mestur. Unnur Sverrisdóttir. Í dag kveðjum við æskuvin- konu úr Miðbæjarskólanum við Tjörnina. Ungar stelpur stofnuðu saumaklúbb árið 1960, þá um níu ára gamlar, og fór stofnun klúbbsins fram í kjallaranum á Laufásveginum hjá foreldrum Sigrúnar. Þessir dagar voru sæludagar og ungviðið lék sér áhyggjulaust í miðbænum. Á unglingsárunum tvístraðist hópurinn en kjarninn hittist enn af og til. Stelpunum úr gamla saumaklúbbnum var hóað saman fyrir ekki svo löngu og átt- um við yndislega kvöldstund. Vináttan kom þá berlega í ljós. Við höfðum engu gleymt frá því í gamla daga. Með þessu ljóði sendum við fjölskyldu Sigrúnar samúðar- kveðjur og biðjum ykkur Guðs blessunar á þessum erfiðu tím- um. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Halldóra (Dóra), Sigríður (Sigga), Áslaug, Kristrún, Agnethe og Nanna. Sigrún er yngsta systir Systu mágkonu minnar. Þannig kynnt- umst við. Við áttum margar góðar stund- ir á sokkabandsárum okkar og mikið var hlegið. Sigrún kunni að njóta og var alltaf tilbúin að gera eitthvað skemmtilegt. Hún gaf mikið af sér og ósérhlífni var stór eiginleiki í hennar fari. Árin liðu og við eignuðumst báðar fjöl- skyldu. Við hittumst í fjölskyldu- boðum og ég fylgdist með Sig- rúnu gegnum tíðina. Svo lágu leiðir okkar saman fyrir stuttu gegnum veikindi okk- ar beggja. Sigrún var ein fyrsta manneskjan til að heimsækja mig á spítalann. Hún kom eins og ferskur vindur til að gefa góð ráð og bjóða sína aðstoð. Því gleymi ég aldrei. Nú hefur Sigrún kvatt okkur og margir sem sakna. Mínar samúðarkveðjur. Hvíl í friði. Rósa Steinsdóttir. Það eina í lífinu sem er öruggt er að vist okkar hér á „hótel jörð“ lýkur í fyllingu tímans. Samt er það alltaf jafn erfitt að sjá á bak góðum vini og félaga, jafnvel þó að aðdragandinn hafi verið öllum ljós um nokkurt skeið. Sigrún Snævarr var án efa skærasta ljósið og drifkrafturinn í matarklúbbi okkar vinanna sem hittumst reglulega í tæpa tvo ára- tugi, eða allt frá því að vinskapur okkar allra hófst. Þetta voru jafn- an miklir og einlægir vinafundir og góðar gleðistundir. Oft var líka hist utan funda, hvort sem var á öðrum sameiginlegum gleði- stundum eða á ferðalögum sam- an. Það var því mikið reiðarslag fyrir alla, vini og ekki síst fjöl- skyldu Sigrúnar og Jakobs, þegar hún greindist með alvarlegan sjúkdóm. Þau hjón tóku þó þess- um tíðindum af einstakri ró og miklu æðruleysi. Þau bæði sýndu af sér mikið þolgæði og tókust á við þetta eins og hvert annað verkefni. Viðhorf þeirra hjóna og þá sér- staklega baráttuvilji hennar, raunsæi og jákvæðni í senn hafa verið öðrum fyrirmynd og hvatn- ing. Bjartsýni og jákvætt hugarfar Sigrúnar hefur verið aðdáunar- vert og minningin um einstaklega hugprúða og jákvæða konu lifir áfram í hjarta okkar. Okkur vin- um Sigrúnar er efst í huga þakk- læti fyrir allar þær ánægjulegu stundir sem við áttum saman. Við sendum Jakobi, börnum þeirra, tengdabörnum og barna- börnum okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Pétur Ingimundarson, Margrét Ingadóttir, Tómas Rólant Hansson, Steinunn Sigurbjörnsdóttir og Jónas Egilsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018 ✝ Sigmar KarlÓskarsson fæddist 1. júlí 1932 í Rangárvallasýslu. Hann lést á Sjúkra- húsi Suðurlands 5. október 2018. Foreldrar hans voru Anna Guð- munda Markús- dóttir, f. 1913, d. 2011, og Óskar Gunnlaugsson, f. 1908, d. 1992. Systkini Sigmars sammæðra eru Sigrún, f. 1940, Margrét, f. 1942, Sveinn Óskar, f. 1944, Guðjóna, f. 1945, Ármann, f. 1948, Svanhildur, f. 1951, d. 2005, Anna Ólöf, f. 1953, og Hulda Katrín, f. 1956. Systkini Sigmars samfeðra eru: Soffía Erla, f. 1933, d. 2012, Viðar, f. 1940, d. 2004, Ragnar, f. 1942, Gunnlaugur, f. 1949, og Hjördís, f. 1952, d. 2004. Sigmar Karl giftist 7.12. 1957 Ingimundu Guðrúnu Þorvalds- dóttur, f. 10.9. 1929, foreldrar hennar voru Solveig Jónína Jóns- dóttir, f. 1907, d. 1983, og Þor- valdur Gestsson, f. 1901, d. 1933. Börn Sigmars og Ingimundu eru: 1) Katrín, f. 1958, gift Erni Tryggva Gíslasyni, f. 1961, þau eiga þrjú börn: a) Sigmar Örn, f. barn. 2) Ágústa Guðlaug, f. 1950, d. 1951. 3) Jón Sólberg, f. 1953, maki Steinunn Geirmundsdóttir, f. 1956, þau eiga þrjú börn. a) Nói, f. 1977, fyrrverandi maki Jó- hanna Magnúsdóttir, f. 1978, þau eiga tvö börn. b) Ásta Rún, f. 1981, maki Kristófer Ómar Em- ilsson, f. 1973, þau eiga þrjú börn. c) Finnur, f. 1992, maki Silja Stefánsdóttir, f. 1993. 4) Hulda Björk, f. 1956, maki Eirík- ur Jónsson, f. 1953, þau eiga tvö börn. a) Emelía Guðrún, f. 1976, maki Guðlaug Jónsdóttir, f. 1971, þær eiga alls fjögur börn. b) Haukur Brynjar, f. 1980. Sigmar Karl ólst upp í Dísu- koti í Þykkvabæ. Hann starfaði á sínum yngri árum hjá varnarlið- inu í Keflavík uns hann keypti jörðina Sandhólaferju í Djúp- árhreppi með eiginkonu sinni. Árið 1962 flytjast þau á Selfoss. Eftir að Sigmar fluttist á Selfoss starfaði hann hjá Hitaveitunni uns hann lét af störfum eftir far- sælan 40 ára starfsferil, árið 2002. Árið 2006 flytjast þau hjón- in í Grænumörk 2, íbúð eldri borgara á Selfossi. Sigmar Karl hafði mikið dálæti á hestum, öll umhirða og umgengni í kringum hestana var hans aðalsmerki og metnaðarmál. Í hestamanna- félaginu Sleipni á Selfossi eign- aðist Sigmar Karl góða vini og félaga. Útför Sigmars Karls fer fram frá Þykkvabæjarkirkju í dag, 12. október 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. 1981, maki Þórey Harpa Þorbergs- dóttir, f. 1984, þau eiga alls fjögur börn. b) Berglind, f. 1987, maki Hrólfur Sæberg Daníelsson, f. 1991, þau eiga tvö börn. c) Gísli, f. 1989, maki Hafdís Hilmarsdóttir, f. 1991, þau eiga eitt barn. 2) Sólveig, f. 1961, fyrrverandi maki Kristján Már Gunnarsson, f. 1959, þau eiga þrjú börn: a) Andri Már, f. 1987, maki Ragnheiður Vign- isdóttir, f. 1990, þau eiga eitt barn. b) Karen, f. 1989, maki Ze- nel Demiri, f. 1989. c) Aníta, f. 1992, maki Málfríður Bjarnadótt- ir, f. 1991. 3) Anna Snædís, f. 1962, maki Snorri Þórisson, f. 1959, þau eiga eitt barn. a) Anna Sólveig, f. 1995, kærasti Örn Óli Strange, f. 1995. Börn Ingi- mundu Guðrúnar af fyrra hjóna- bandi með Nóa Jónssyni, f. 1915, d. 1956, eru: 1) Þorvaldur, f. 1947, maki Anne Ström, f. 1948, þau eiga þrjú börn. a) Margrét, f. 1971, hún á eitt barn. b) Arne Jakob, f. 1974. c) Ragnhild, f. 1980, maki Matthew Terje Aadne, f. 1990, þau eiga eitt Elsku faðir okkar Sigmar Karl er látinn, hann háði tæp- lega tveggja ára baráttu við brisbólgu sem hann greindist með í byrjun árs 2016. Ekki ór- aði okkur fyrir því að hann yrði allur haustið 2018. Það togast gjarnan á tvær tilfinningar þegar svona er komið; ákveðinn léttir fyrir þann sem losnar undan þján- ingunni og hins vegar söknuð- urinn eftir kærum ástvini. Pabbi var 26 ára þegar hann tók að sér unga ekkju, móður okkar, með þrjú börn og bætt- umst við systurnar þrjár síðan við, það var því oft ansi þröngt í koti. Við systkinin skildum ekki alltaf hvers vegna hann var stundum fúll í skapi og þreytt- ur þar sem við vorum í fullu fjöri og nutum okkar við gleði og leik. Hestamennskan var stór þáttur í lífi pabba, ófáir reiðtúrarnir og ferðirnar á hestamannamót voru fastir liðir á hverju ári. Pabbi átti bara góða hesta og var öll umgjörðin í kringum hrossin honum til sóma því þrifalegri hesta og hesthús var varla að finna á Selfossi. Ferðirnar norður á Strandir á heimaslóðir mömmu voru farnar á hverju ári, þessir 300 km urðu eins og 700 þar sem pabbi þurfti að keyra frekar hægt því holóttari vegi var varla hægt að keyra og falleg hross var víða að sjá. Með breyttum tíðaranda tóku við sólarlandaferðir, þar voru pabbi og mamma engin undantekn- ing. Þau fóru í sína fyrstu sól- arlandaferð árið 1979, en það tók tíð og tíma að sannfæra pabba um gæði og kosti þess að liggja í sólinni og slaka á. Eftir það varð ekki aftur snúið, hann þráði sólina og hit- ann og fóru þau pabbi og mamma nánast árlega í ferðir á eigin vegum og síðar með ferð- um eldri borgara til Spánar. Síðasta ferð okkar saman var þegar þau komu með okkur fjölskyldunum til Flórída 2017 en sá tími er nú ómetanlegur. En nú er pabbi farinn í aðra ferð og við vitum að það verður tekið vel á móti honum. Guð blessi minningu þína, elsku pabbi, og takk fyrir allt. Megir þú hvíla í friði. Stundir lífsins lýsa sem ljós í myrkri nótt dreggjar dagsins geyma drauma er líða skjótt eins og fuglinn frái þú flýgur burt um haust kemur vor að vetri er strýkur vanga laust. (Sólin) Þínar dætur, Katrín, Sólveig og Anna Snædís. Nú þegar við kveðjum tengdaföður minn, Sigmar Karl Óskarsson, langar mig að minn- ast hans í nokkrum orðum. Sig- mari kynntist ég fyrst árið 1989 og þó hann væri svo sem ekki margmáll fann maður strax hvaða ágætismann hann hafði að geyma. Fyrstu minningarnar eru þegar við Anna Snædís dvöld- um hjá þeim hjónum yfir jólin um nokkurra ára skeið. Þá var oft gaman að setjast niður yfir vel völdum dropa og ræða um menn og málefni, en Sigmar lét til dæmis aldrei pólitískt dæg- urþras hafa áhrif á sig og alltaf var stutt í glettni. Á þessum tíma var Sigmar á kafi í hesta- mennsku en aldrei tókst mér að að fá hann til að segja hvað marga hesta hann ætti eða hve góðir þeir væru. Þegar stór fjölskylda kom saman gekk oftar en ekki ým- islegt á og óhætt er að segja að skarkali og læti voru Sigmari ekki mikið að skapi. Engu að síður var augljóst hvað honum þótti vænt um nærveru afa- barna sinna og seinna meir langafabarna. Og hann fylgdist alltaf með þeim, hvað þau voru að gera og hvernig þeim gekk. Sigmar var ekki mikið að skipta sér af annarra málum en þegar eftir því var leitað gat hann verið bæði bóngóður og ráða- góður. Þrátt fyrir að þau hjónin færu oft til útlanda í sumarfrí höfðu þau aldrei farið vestur um haf, og fundum við að þang- að langaði Sigmar að fara. Því ákváðum við að fara saman og dvelja í Flórída um jól og ára- mót 2013 til 2014. Ekki óraði mig fyrir því að við ættum eftir að fara aftur nokkrum árum síðar og lagði því til við Sigmar að við gerðum vel við okkur og leigðum bæði stórt hús og bíl. Hann var aldeilis til í það og mikið var hlegið þegar hann gekk um húsið og taldi sjón- varpsskjái. Ekki lét hann þar við sitja heldur mældi líka alla skjáina með málbandi og skráði niður. Þá daga sem við Anna Snædís og Anna Sólveig fórum á golfvöllinn undi Sigmar sér best með Ingimundu við sund- laugina enda mikill sóldýrkandi. Einn daginn þegar við komum til baka í húsið var hann búinn að mæla og reikna út flatarmál sólpallsins og laugarinnar og tilkynnti það formlega að að- staðan væri alls 310 fermetrar. Ég held að fæst okkar hafi gert sér grein fyrir á síðustu árum hvað Sigmar var í raun orðinn lasburða en samt vildi hann gjarnan endurtaka Flór- ídaferðina. Um síðustu jól og áramót fórum við því aftur, og þá í talsvert stærri hóp. Það var greinilegt að í þetta skiptið tók ferðalagið dálítið á Sigmar en engu að síður naut hann sín ágætlega stóran hluta dvalar- innar. Þetta ár var Sigmari erfitt heilsufarslega og því fór sem fór. Ég þakka Sigmari Karli Óskarssyni fyrir góða viðkynn- ingu og votta Ingimundu og börnum þeirra Sigmars, afa- börnum og langafabörnum sam- úð mína. Snorri Þórisson. Elsku bróðir. Mig tekur sárt að þurfa að kveðja þig. Þú varst stóri bróðir minn og verndari ef eitthvað bjátaði á. Þú varst snemma farinn að vinna í Keflavík og komst heim um helgar og á hátíðum, ég var svo stolt af því að eiga þig fyrir bróður. Einu sinni um jólaleytið var mikið frost, allir krakkar úti á skautum eða að renna sér, þeg- ar birtist vofa í hvítu laki, krakkarnir flúðu en mig grun- aði sem var að þarna væri Sig- mar bróðir minn kominn. Tíminn leið og í einni af heimsóknum þínum heim kynntir þú þá fallegustu konu sem ég hafði séð, hana Ingi- mundu, og sagðir okkur að þetta væri konan þín, mér lík- aði þetta mjög vel og þið hófuð búskap á Sandhólaferju. Munda var ekkja með þrjú ung börn, ég fékk að dvelja hjá þeim hluta úr sumri sem hjálp þar sem Munda gekk með ykkar fyrsta barn, Katrínu. Þetta var dásamlegur tími og mikil upp- lifun fyrir mig, þú varst okkur svo góður, komst fram við ung- lingana sem jafningja. Takk fyrir allt, elsku bróðir, þín er sárt saknað, ég votta Mundu og fjölskyldu þinni inni- lega samúð. Hvíldu í friði. Þín systir, Guðrún (Gauja). Sigmar þýðir „sá sem er frægur fyrir sigra sína“. Sig- mar afi minn hefur eflaust stát- að af mörgum sigrum um æv- ina, stórum sem smáum, þótt hann hafi nú ekki hlotið frægð fyrir. En nú hefur hann háð sína seinustu baráttu, án sig- urs. Fyrstu þrjá mánuði ævi minnar bjó ég á Grænó hjá ömmu og þér og tókstu strax ástfóstri við mig. Þegar búið var að skíra mig gafstu mér gælunafnið Milla sem þú kallaðir mig fram eftir aldri; það sýnir fallega teng- ingu. Við vorum miklir félagar þegar ég var lítil enda léstu allt eftir mér; að slökkva og kveikja ljósið á Grænó að óþörfu var harðbannað, en ég fékk að sjálfsögðu að dunda mér við það; ég hafði gaman af því að ærslast og þurfti ekki að beita miklum fortölum til að fá þig til að fara að slást við mig uppi í rúmi, jafnvel á miðjum degi, það var nóg fyrir mig að segja „afi slást“ og þá stökkstu til. Þær voru ófáar ferðirnar sem þú sóttir mig í bæinn til að gista hjá ykkur ömmu; mín beið ávallt nammipoki og dunduðum við okkur oft tvö við að gefa hestunum og kindunum þínum, þú gafst mér meira að segja eina kind til eignar sem gaf mér nokkur lömb og þar með sparifé. Þú varst ekki allra en þú varst hlýr við mig og virtist alltaf ánægður að heyra í mér þegar ég hringdi eða kom í heimsókn. Ég fann alltaf að þú barst hag minn fyrir brjósti, þau heilræði sem þú gafst mér báru því vitni; það er ómetanleg tilfinning hvenær sem er á lífs- leiðinni að vita og finna að mað- ur sé elskaður skilyrðislaust. Ég veit ekki hvað verður en ég tek heilshugar undir sein- ustu orðin þín til mín: „Takk fyrir allt saman.“ Emelía Guðrún Eiríksdóttir. Sigmar Karl Óskarsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI SIGHVATSSON frá Ási, Vestmannaeyjum, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Vestmannaeyjum, 9. október. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 20. október klukkan 13. Sigurlaug Bjarnadóttir Páll Sveinsson Guðmunda Á. Bjarnadóttir Viðar Elíasson Sighvatur Bjarnason Ragnhildur S. Gottskálksdóttir Ingibjörg R. Bjarnadóttir Halldór Arnarson Hinrik Örn Bjarnason Anna Jónína Sævarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.