Morgunblaðið - 19.10.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018
Grafinn lax
- Láttu það eftir þér
Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Kostur, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin,
Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mikilvægt er að fólk sé með lausafé
brunatryggt vilji það fá bætt tjón á
innbúi og lausafé vegna náttúru-
hamfara. Sömuleiðis þurfa bændur
að vera með landbúnaðartryggingar
sem innifela brunatryggingu til að
fá bætur úr náttúruhamfaratrygg-
ingu vegna tjóns á t.d. búfé, vélum
og fóðri vegna náttúruhamfara.
Þetta kom fram í erindi Huldu
Ragnheiðar Árnadóttur, fram-
kvæmdastjóra Náttúruhamfara-
tryggingar Íslands (NTÍ), á Kötlu-
ráðstefnu í Vík í Mýrdal 12.
október.
Fasteignir skyldutryggðar
Skylda er að vátryggja fasteignir
og er iðgjaldi til NTÍ innheimt sam-
hliða brunatryggingariðgjaldinu.
Einnig er skyldutrygging á opin-
berum mannvirkjum svo sem veitu-
mannvirkjum, hafnarmannvirkjum,
brúm lengri en 50 metra, raforku-
virkjum og síma- og fjarskipta-
mannvirkjum sem eru í meiri-
hlutaeigu hins opinbera. Þessi
mannvirki eru því tryggð gegn
mögulegu tjóni vegna náttúru-
hamfara. Hulda Ragnheiður sagði
að um 70% landsmanna tryggðu
lausafé sitt sem þýddi að um 30%
væru ekki með lausafé sitt og innbú
brunatryggt. Þeir fengju því ekki
bætur yrði tjón á lausafénu í nátt-
úruhamförum.
Verðmæti sem ekki er hægt að
vátryggja með náttúruhamfara-
tryggingu hjá NTÍ eru t.d. vegir,
land, ökutæki og fjarskipta- og
veitumannvirki í einkaeigu. Tjón
vegna rekstrarstöðvunar eða ann-
ars tekjumissis fæst ekki bætt hjá
NTÍ.
Nágrannar Kötlu
Hulda Ragnheiður sýndi sviðs-
mynd þar sem gert var ráð fyrir
miklu öskufalli og jökulhlaupi til
austurs frá Kötlu. Á því svæði eru
530 fasteignir að heildarvirði fjórir
milljarðar. Tjón gæti orðið mjög
mikið. Lausafé er á um 200 vá-
tryggingastöðum að heildarvirði 2,6
milljarðar. Talsvert margir þeirra
eru ekki með brunatryggingu á
lausafé. Talið er að umfang tjóns
yrði fremur mikið. Á svæðinu eru
fjórar brýr lengri en 50 metrar,
vatnsveita, fráveita og rafveita sem
allt er tryggt hjá NTÍ.
Önnur sviðsmynd sneri að því ef
mikið öskufall og jökulhlaup yrði til
vesturs, það er niður Þórsmörk og
Markarfljótsaura og vestur eftir
láglendinu. Á því svæði eru 1.730
fasteignir að heildarvirði 37 millj-
arðar. Tjón gæti orðið mjög mikið.
Lausafé er á 535 vátryggingastöð-
um að heildarvirði 12 milljarðar og
þykir líklegt að umfang tjóns yrði
fremur mikið. Ekki er lausafjár-
trygging á talsvert mörgum af þess-
um stöðum, að sögn Huldu. Á þessu
svæði eru tvær brýr lengri en 50
metrar og einnig vatnsveitur, frá-
veitur, rafveitur, fjarskiptamann-
virki og Landeyjahöfn.
NTÍ tók við hlutverki Viðlaga-
tryggingar Íslands 1. júlí síðastlið-
inn. NTÍ er tryggingafélag í eigu ís-
lenska ríkisins og vátryggir vegna
tjóns af völdum náttúruhamfara,
það er gegn beinu tjóni af völdum
eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla,
snjóflóða og vatnsflóða. Hulda
Ragnheiður nefndi sérstaklega af-
leiðingar eldgosa á borð við jökul-
hlaup, öskufall, hraunrennsli,
gjóskuhlaup og eldsvoða sem bein-
línis verða raktir til eldgoss en tjón
af þeirra völdum falla undir vá-
tryggingavernd NTÍ.
Kötlugos Sviðsmyndir gera ráð fyrir öskufalli og jökulhlaupi til austurs eða vesturs komi til Kötlugoss.
Mýrdalsjökull
Kötlugos – mögulegar sviðsmyndir
Öskufall og gjóskulag
ræðst af vindátt
Mögulegt flóðasvæði vegna
hlaups í austurátt frá Kötlu
Mögulegt
flóðasvæði vegna
hlaups í vesturátt
frá Kötlu
Mögulegt
flóðasvæði
Fasteignir
Heimild: NTÍ
Katla
Brunatrygging lausafjár
gegn náttúruhamförum
Um 30% landsmanna hafa ekki tryggt lausafé Fá því
ekki bætur verði tjón á lausafé vegna náttúruhamfara
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Breska ferðaskrifstofan Super Break
mun meira en tvöfalda flugframboð
sitt frá Bretlandi til Akureyrar í
vetur. Hún fjölgar ferðum þannig að
ferðatímabilið verður lengra og notar
einnig heldur stærri flugvélar. Þá er
verið að ræða við hollenska ferða-
skrifstofu um leiguflug þaðan.
Hjalti Páll Þórarinsson, verkefna-
stjóri Flugklasans AIR 66N sem
vinnur að markaðssetningu Akur-
eyrarflugvallar, staðfestir að áfram-
haldandi samstarf verði við Super
Break um beint leiguflug í vetur.
Fyrirtækið verður með 29 brottfarir
samtals frá 18 flugvöllum í Bretlandi
á tímabilinu frá 10. desember og fram
í mars. Í fyrra voru 14 brottfarir.
Flogið er tvisvar í viku, á mánudögum
og föstudögum. Flogið er frá flugvöll-
um sem ekki hafa tengingu við Kefla-
víkurflugvöll, yfirleitt smærri völlum.
Ferðaskrifstofan hefur samið við
nýtt flugfélag um að flytja farþegana
og eru notaðar 202 sæta flugvélar en
vélarnar sem notaðar voru í fyrra-
vetur tóku 189 farþega.
Við þetta eykst framboðið úr 2.646 í
5.858 flugsæti. Hjalti Páll segir að
þessi starfsemi virðist gefa góða raun
og láti forsvarsmenn Super Break vel
af sölunni. Ef miðað er við 90-95%
sætanýtingu má gera ráð fyrir að
5.300 til 5.500 Bretar fari um Akur-
eyrarflugvöll í vetur og njóti ferða-
þjónustunnar á Norðurlandi.
Flugklasinn er í viðræðum við hol-
lenska ferðaskrifstofu um beint leigu-
flug til Akureyrar og fleiri verkefni
sem miða að því að auka ferðamanna-
strauminn beint til Norðurlands.
Hjalti segir ekki hægt að staðfesta að
af því verði en það skýrist vonandi
fljótlega.
Áætlunarflug í kjölfarið
Hugmyndin byggist á sama grunni
og flug Super Break, að byrja á röð
leigufluga til að byggja upp áfanga-
staðinn og síðan komi beint áætlunar-
flug í fyllingu tímans. Flugklasinn er
einnig í sambandi við flugfélög um
beint áætlunarflug en Hjalti segir
ekkert að frétta af þeim málum nú.
Flugþróunarsjóður stjórnvalda
styður flug til flugvalla á landsbyggð-
inni, bæði með krónutölustyrk út á
hvern farþega og veitir einnig styrki
til markaðssetningar á móti viðkom-
andi ferðaskipuleggjanda. Hjalti seg-
ir að það hafi hjálpað til við að koma á
fluginu frá Bretlandi og muni gagnast
í viðræðum við Hollendingana.
Ákveðin vandamál komu upp á
Akureyrarvelli vegna veðurs á síðasta
vetri og lentu vélarnar nokkrum sinn-
um í Keflavík. Hjalti vonast til þess að
meginhluti þeirra vandamála leysist
með nýju flugfélagi. Það undirbúi sig
betur en það eldra. Sendi til dæmis
flugvél með hóp flugmanna til að at-
huga aðflugsaðstæður á Akureyrar-
flugvelli og ræða við starfsmenn flug-
vallarins. Búið er að ákveða að setja
upp ILS-aðflugsbúnað úr norðri en
það verður ekki fyrr en á næsta ári.
Bæta þarf aðstöðuna
Hjalti segir nauðsynlegt að bæta
aðstöðuna frekar á Akureyrarflug-
velli, stækka flughlaðið eins og drög
hafi verið lögð að og laga aðstöðu inn-
anhúss fyrir farþega. Það sé ekki síst
mikilvægt fyrir flugöryggi í landinu.
Mikil aukning hafi orðið á flugi til
Keflavíkurflugvallar og vélarnar
þurfi að eiga varaflugvöll ef eitthvað
komi uppá þar.
Yfir 5.000 farþegar frá Bretlandi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyrarflugvöllur Fljótt myndast biðraðir við flugstöðina, eins og gerð-
ist í fyrsta flugi Super Break í fyrravetur. Flugklasinn vill bæta aðstöðuna.
Áframhaldandi samstarf við Super Break um beint flug til Akureyrar Sætaframboð meira
en tvöfaldast frá síðasta vetri Rætt við hollenska ferðaskrifstofu um sambærilegt verkefni
„Tjónið er meira en við óttuð-
umst,“ segir Lárus Bl. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Knattspyrnu-
félagsins Vals, en vatnsleki kom
upp í húsnæði félagsins í Hlíðar-
enda og uppgötvaðist í gærmorg-
un. Hafði rör við
vatnsinntak, sem
meðal annars
leiðir að vökv-
arakerfi knatt-
spyrnuvallarins,
gefið sig. Var
vatnið að sögn
Lárusar um eins
metra djúpt í
kjallara íþrótta-
hússins þegar
menn komu þar
að í gærmorgun.
„Það kom í ljós að rafmagnstafla
og allt rafmagn sem snýr að að-
alrafstöðinni er ónýtt. Þá er allur
búnaður í tæknirými sem var í
kjallaranum ónýtur,“ segir Lárus
en hann sagði ekkert liggja fyrir
um hversu mikið fjárhagstjón yrði
að ræða vegna lekans. Var verið að
vinna að því að koma rafmagni aft-
ur á húsið í gærkvöldi og tókst að
setja upp vararafstöð um hálfníu-
leytið í gærkvöldi. Var stefnt að
því að opna húsið á ný í dag og
sagði Lárus að það væri vilji allra,
bæði tryggingafélags og Vals-
manna, að koma hinni reglulegu
æfingastarfsemi félagsins sem
fyrst af stað á ný, en óttast var í
gær að mögulega þyrfti að færa
heimaleik Vals í Olísdeildinni um
helgina vegna lekans.
Nokkuð var af sögulegum minj-
um, ljósmyndum og málverkum
sem tengjast sögu félagsins í kjall-
ara hússins og var óttast í gær að
leikinn hefði valdið þar óbætanlegu
tjóni. Lárus segir hins vegar að
það líti betur út en óttast var.
„Sem betur fer sýnist okkur í fljótu
bragði að tjónið sé ekki eins mikið
og við óttuðumst.“ Hins vegar sé
nokkuð um að ljósmyndir og skjöl
hafi eyðilagst eða séu illa farin eft-
ir lekann. Það hafi þó verið bót í
máli að minjar um sögu félagsins
væru geymdar víðar en í kjallara
hússins. „Þessi þáttur hefði getað
farið miklu verr, þó að það sé alltaf
ömurlegt að lenda í svona,“ segir
Lárus að lokum. sgs@mbl.is
Tjón Vals meira
en óttast var
Mikill vatnsleki kom upp í fyrrinótt
Lárus Bl.
Sigurðsson