Morgunblaðið - 19.10.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum
auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu
fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
R
og
og
Íslendingar hafa búið við einstakaefnahagslega tíð á síðastliðnum
árum. Verðbólgan hefur verið lág,
hagvöxtur góður og kaupmáttar-
aukning framúrskarandi. Þetta
hefur vakið athygli
víða, enda hvergi á
byggðu bóli hægt að
benda á jafn já-
kvæða almenna
efnahagsþróun.
Innan Evrópusam-bandsins er
sérstaklega áber-
andi að ríki sem
lentu illa í efnahags-
áfallinu fyrir áratug
sitja enn föst í efna-
hagsvanda evru-
skuldasúpunnar og komast hvergi.
Það jákvæða við stöðuna hér álandi er að ekkert sérstakt ætti
að verða til þess að spilla henni.
Þessi jákvæða þróun ætti með öðr-
um orðum að geta haldið áfram.
En það er líka hægt að spillahenni og í raun hægur vandi.
Það eina sem þarf eru óskynsam-
legar aðgerðir innanlands. Um
þessar mundir er veruleg hætta á
að verkalýðshreyfingin misstígi sig
og skaði með því allt launafólk.
Fram eru komnar kröfur semvalda miklum áhyggjum í at-
vinnulífinu. Þar vita allir að kröf-
urnar standast ekki.
Þetta veit forysta verkalýðs-hreyfingarinnar líka og þess
vegna neitar hún að reikna út
hvaða afleiðingar kröfurnar munu
hafa.
Þetta er ábyrgðarleysi sem for-ysta í félögum tuga þúsunda
launamanna getur ekki leyft sér.
Allt er hægt
að eyðileggja
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ekki er enn búið að mynda starfshóp stjórn-
valda, stofnana og samtaka á vinnumarkaði um
aðgerðir gegn félagslegum undirboðum á vinnu-
markaði en fimm vikur eru liðnar frá því að
ríkisstjórnin samþykkti hinn 14. september, að
tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og
jafnréttismálaráðherra, að efna til víðtæks sam-
starfs um verkefnið. Ástæða þess að verkefnið
er ekki komið í gang er sú að ekki hafa allir þeir
aðilar sem boðið var að taka þátt í samstarfinu
gengið frá tilnefningu fulltrúa í starfshópinn.
,,Við óskuðum eftir tilnefningum í hann en það
hefur aðeins dregist hjá aðilum að senda okkur
tilnefningar. Við erum að reka á eftir þessu.
Þetta er stór hópur en hann hefur ekki enn kom-
ið saman,“ segir Arnar Þór Sævarsson, aðstoðar-
maður félagsmálaráðherra.
Þegar aðgerðirnar voru kynntar kom fram að
markmiðið væri að skoða mögulegar lagabreyt-
ingar og leggja til leiðir sem vænlegar væru til
árangurs til að sporna við félagslegum undirboð-
um. Aðspurður segir Arnar Þór enga tregðu á að
ráðast í þetta verkefni. ,,Það vilja allir fara í
þessa vinnu,“ segir hann og bætir við að strax
eftir að hópurinn verður fullskipaður hefjist
vinnan af fullum krafti. Reikna megi með að til-
lögur um aðgerðir geti legið fyrir með vorinu.
Eftirtöldum var boðið að taka þátt í samstarf-
inu, sem verður undir forystu velferðarráðuneyt-
isins: ASÍ, atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neyti, BHM, BSRB, dómsmálaráðuneyti,
fjármála- og efnahagsráðuneyti, Ríkislögreglu-
stjóra, Ríkisskattstjóra, Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Vinnu-
eftirliti ríkisins og Vinnumálastofnun.
omfr@mbl.is
Átaksverkefni ekki komið í gang
Enn vantar tilnefningar í starfshóp ráðherra gegn félagslegum undirboðum
Rannsóknarsetrið EDDA við Há-
skóla Íslands, í samvinnu við nor-
ræna öndvegissetrið ReNEW,
stendur fyrir alþjóðaráðstefnu 19.-
20. október 2018 um neyðarvöld og
stjórnmál undir heitinu States of
Exception and the Politics of
Anger.
Ráðstefnan er öllum opin og fer
fram í fyrirlestrarsal Þjóðminja-
safnsins.
Í kynningu á dagskránni segir:
Ríkisstjórnir og yfirþjóðlegar stofn-
anir hafa í vaxandi mæli nýtt sér
neyðarheimildir til að takast á við
aðsteðjandi vanda á borð við stjórn-
málaólgu, hryðjuverk, náttúru-
hamfarir og fjármálakreppur.
Erlendir og innlendir
fræðimenn
Á ráðstefnunni koma saman er-
lendir og innlendir fræðimenn á
sviði sagnfræði, stjórnmálafræði,
hagfræði, lögfræði, heimspeki, fé-
lagsfræði og bókmenntafræði til að
fjalla um neyðarvöld og -stjórnmál í
samtímalegu og sögulegu sam-
hengi. Sjónum verður m.a. beint að
áskorunum sem lýðræðiskerfið
stendur frammi fyrir. Hér má m.a.
nefna uppgang róttækra popúlískra
þjóðernisflokka, fjármálakreppur,
pólitískt ofbeldi, áhrif samfélags-
miðla og tæknibreytinga og birting-
armyndir eftirlitsiðnaðar og gagna-
gnóttar (e. Big Data).
Á ráðstefnunni mun Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra flytja
fyrirlestur um pólitíska ólgu í kjöl-
far fjármálakreppunnar.
Meðal erlendra fyrirlesara eru
Nadia Urbinati, prófessor í stjórn-
málafræði við Columbia-háskóla í
New York, James K. Galbraith,
prófessor í hagfræði við Texas-
háskóla í Austin, sem var ráðgjafi
Yanis Varoufakis, fyrrv. fjármála-
ráðherra Grikklands, Claudia Ara-
dau, prófessor í alþjóðastjórn-
málum við King’s College í London,
og Hans Köchler, prófessor í heim-
speki við Innsbruck-háskóla.
Alþjóðleg ráðstefna
um pólitísk neyðarvöld
Í Þjóðminjasafninu í dag og morgun
Nadia
Urbinati
James
Galbraith