Morgunblaðið - 19.10.2018, Qupperneq 14
17.11. 1918 Hlé varð á útgáfu Morgunblaðsins í tíu daga vegna veikinnar.
Þegar blaðið kom aftur út var heil síða lögð undir andlátstilkynningar.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hundrað ár eru í dag síðan
spánska veikin barst til Íslands
með skipunum Willemoes frá
Bandaríkjunum og Botníu frá
Kaupmannahöfn. Veikin dró 484
Íslendinga til dauða. Helmingur
þeirra var á aldrinum 20-40 ára.
Þar við bættust fósturlát, en tölu-
vert var um þau, að því er segir á
Vísindavefnum. Veikin kom þyngst
niður á Reykvíkingum og dóu 258
manns þar, 44 í Keflavík, 31 á
Eyrarbakka, 28 á Akranesi og 25 í
Vestmannaeyjum svo dæmi séu
tekin. Það tókst að verja Norður-
og Austurland með því að loka
landshlutana af.
Spánska veikin er mannskæð-
asta farsótt sögunnar. Um fimmt-
ungur mannkyns sýktist og um 25
milljónir dóu. Sumir telja að enn
fleiri hafi látist eða allt að 40 millj-
ónir manna. Veikin var afar skæð-
ur inflúensufaraldur sem herjaði á
fólk á besta aldri 1918-1919 víða
um heim.
Taka mið af spánsku veikinni
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir telur það vel geta gerst að
jafn skæður inflúensufaraldur og
spánska veikin komi aftur upp.
„Það eru alltaf að koma upp nýir
og nýir stofnar af inflúensu,“ sagði
Þórólfur. Hann sagði að margir
þessara nýju stofna smituðust ekki
á milli manna. „En svo geta komið
stofnar sem eru bæði skæðir og
smitast á milli manna. Svo virðist
sem spánska veikin 1918 hafi verið
hvort tveggja. Smitaðist auðveld-
lega og var skæð. Af þeim sem
sýktust dóu 2-3%.“ Aðrir heimsfar-
aldrar inflúensu sem komið hafa
síðan hafa ekki verið jafn skæðir.
Viðbragðsáætlanir við heimsfar-
aldri inflúensu taka mið af spánsku
veikinni, að sögn Þórólfs. Hann
taldi að í dag væri erfitt að tak-
marka samgöngur jafn mikið og
hér var gert 1918 til að hamla út-
breiðslu inflúensufaraldurs.
„Við erum með landsáætlun
gegn heimsfaraldri inflúensu sem
var endurskoðuð 2016. Þar er tekið
á öllum innviðum samfélagsins.
Þar á meðal hefur Vegagerðin það
hlutverk að loka vegum, en það
mun ekki koma í veg fyrir að
flensan fari á milli landshluta held-
ur tefja útbreiðsluna. Tilgangurinn
með mörgum þessara aðgerða er
að jafna útbreiðsluna út þannig að
innviðir samfélagsins séu betur
búnir til að ráða við hana.“
Nýlega var undirritaður samn-
ingur um kauptryggingu á 300
þúsund skömmtum af bóluefni
gegn heimsfaraldri inflúensu. Þór-
ólfur sagði að það væri mikilvægur
þáttur í að draga úr inflúensu-
faraldri og koma í veg fyrir að
margir veikist. Vandinn sé sá að
líklega fáist bóluefnið ekki jafn
fljótt og menn vilji vegna fram-
leiðsluferlisins sem tekur 4-6 mán-
uði frá því að heimsfaraldur byrj-
ar. Þórólfur nefndi að heilbrigðis-
starfsmenn væru í forgangi við
bólusetningu því mikilvægt væri að
halda heilbrigðisþjónustunni gang-
andi.
Auk samnings um bóluefni eru
til veirulyf fyrir um 50.000 manns
og einnig eru til birgðir af öðrum
nauðsynlegum lyfjum og hlífðar-
búnaði. „Allt þetta mun vonandi
geta fleytt okkur yfir erfiðasta
hjallann,“ sagði Þórólfur.
Ef fjöldi þeirra sem létust í
spánsku veikinni á fimm vikum ár-
ið 1918 í Reykjavík er framreikn-
aður til dagsins í dag gerir það um
3.700 manns. „Engir spítalar eða
heilbrigðisstofnanir ráða við slíkan
faraldur,“ sagði Þórólfur. „Vonandi
munu varúðarráðstafanir draga úr
fjölda sýkinga svo slíkur faraldur
verði ekki jafn alvarlegur og
1918.“
Þórólfur sagði að margir efist
um að spánska veikin hafi komið
með Willemoes og Botníu 1918.
„Það gekk hér inflúensa sumarið
1918. Þórður Thoroddsen gat þess
sérstaklega að þeir sem fengu
sumarinflúensuna hafi ekki veikst
þegar spánska veikin kom,“ sagði
Þórólfur. Hann benti á að frá því
að maður smitast af inflúensu og
þar til hann veikist líði 2-3 dagar.
Eftir því hefðu nánast allir um
borð í Botníu átt að vera fárveikir
þegar hún kom, en svo var ekki.
Skæð inflúensa getur komið aftur
100 ár frá því að spánska veikin kom til Íslands Dró
484 Íslendinga til dauða Lagðist á fólk á besta aldri
Varúðarráðstafanir vegna heimsfaraldurs inflúensu
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018
VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA og ÁREIÐANLEIKI
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík - Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
VÍKURVAGNAR EHF.
MIKIÐ ÚRVAL AF KERRUM
FYRIR IÐNAÐARMENNOGVERKTAKA