Morgunblaðið - 19.10.2018, Page 20

Morgunblaðið - 19.10.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 Mikið hefur verið rætt um innri endur- skoðun Reykja- víkurborgar að undanförnu að gefnu tilefni. Umræðan hefur snúist um sjálf- stæði hennar, verkefni o.s.frv. M.a.s. hafa aðilar utan úr bæ sem ekki er vitað til að hafi neitt yf- ir henni að segja talið sig bæra til að kalla til „óháða“ sérfræð- inga, innri endurskoðun til styrktar. Óvíst er að öll þessi ummæli hafi verið innri endur- skoðun til mikils gagns. Raun- ar hafa margir tjáð sig með þeim hætti að það gefur tilefni til að útskýra fyrir almenningi hvað þetta fyrirbæri er. Í umboði borgarráðs Innri endurskoðun er hluti af stjórnkerfi Reykjavíkur- borgar. Hún fer með fjármála- og stjórnsýslueftirlit hjá Reykjavíkurborg í umboði borgarráðs. Hún nýtur algers faglegs sjálfstæðis í störfum sínum gagnvart allri stjórn- sýslu borgarinnar, þ.m.t. borgarstjóra. Innri endur- skoðun á að vera laus við öll af- skipti varðandi ákvarðanir á umfangi innri endurskoðunar og framkvæmd verkefna. Innri endurskoðun getur líka hafnað því að gera skoðun sem borgarráð felur henni, telji hún þá skoðun t.a.m. ekki sam- ræmast sjálfstæði sínu. Ekkert fer heldur á milli mála að hún ræður sjálf hverja hún kallar sér til að- stoðar, telji hún á annað borð þörf á. Í þeim efnum og öðr- um hlítir hún engu boðvaldi. Ríkisend- urskoðun Ríkisendur- skoðun er gerólík innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hvað varð- ar alla uppbyggingu, umfang verka og lagalega stoð fyrir sjálfstæði sínu. Í lögum um ríkisendurskoðanda og endur- skoðun ríkisreikninga segir að ríkisendurskoðandi sé sjálf- stæður og engum háður í störf- um sínum. Jafnframt segir að hann ákveði sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu sam- kvæmt lögunum. Ríkisendur- skoðun er þannig sjálfstæð gagnvart Alþingi og óháð framkvæmdavaldinu sem það hefur eftirlit með. Ríkisendur- skoðandi annast t.d., ólíkt innri endurskoðun Reykjavíkur- borgar, endurskoðun ríkis- reiknings og ársreikninga ríkisaðila og ríkisfyrirtækja svo og ársreikninga hluta- félaga og sameignarfélaga þar sem ríkið á helmingshlut eða meira. Samanburður á ríkis- endurskoðanda og innri endurskoðun Reykjavíkur- borgar því að hluta alveg óvið- eigandi eins og sjá má við lág- marksskoðun. Hlutverk innri endurskoð- unar Reykjavíkurborgar Hlutverk innri endurskoð- unar Reykjavíkurborgar er miklu takmarkaðra en Ríkis- endurskoðunar. Þess vegna er sveitarfélögum lögskylt að ráða jafnframt löggiltan („ytri“) endurskoðanda sem annast skal endurskoðun árs- reikninga hjá sveitarfélaginu. Ýtarlega er um hann fjallað í lögum, m.a. til að tryggja óhæði hans. Eitt af hlut- verkum hans er einmitt að kanna hvort fullnægjandi heimildir hafi verið fyrir út- gjöldum og hvort almenn stjórnsýsla sveitarfélags og einstakar ákvarðanir af hálfu þess séu í samræmi við reglur um fjármál sveitarfélags, ábyrga fjármálastjórn og upp- lýsingaskyldu sveitarfélaga. Innri endurskoðun Reykja- víkurborgar fer ekki með þetta lögbundna hlutverk þótt hún geti veitt endurskoðand- anum mikilvæga aðstoð í þess- um efnum sem öðrum. – Ég leyfi mér að vona að þessi skrif verði svo til leiðbeiningar þeim sem um málefni Reykja- víkurborgar véla. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar Eftir Einar S. Hálfdánarson »Eitt af hlut- verkum „ytri endurskoðanda“ er að kanna hvort full- nægjandi heimildir hafi verið fyrir út- gjöldum. Einar S. Hálfdánarson Höfundur er starfandi hæsta- réttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi að mennt. Til að byggja upp öflugan og skilvirkan hús- næðismarkað hér á landi þarf að auka framboð á íbúðum, tryggja hagkvæma langtímafjár- mögnun, halda fasteignagjöldum hóflegum og fjölga valkostum sem eru á markaðnum. Sterk leigufélög mikilvæg Uppbygging öflugra leigu- félaga, sem geta boðið leigj- endum örugga langtímaleigu og flutning innan eignasafns síns eftir þróun fjölskyldu- stærðar, er mikilvægur þáttur í því að byggja upp virkan mark- að. Aukið framboð á hag- kvæmu húsnæði hjá leigu- félögum, sem njóta styrkja frá ríki og sveitarfélögum og hafa að markmiði að sinna tekju- lægri hópum þjóðfélagsins, er skref í rétta átt. Mikilvægt er að vel takist til og með þessum hætti þróist sterk leigufélög. Almennur leigumarkaður er svo valkostur fyrir allan þorra almennings. Á þeim markaði eru starfandi einkarekin leigu- félög sem ruddu brautina fyrir þá þróun íbúðaleigufélaga sem hafin er. Ég hef haldið því fram að á næstu árum þurfi íbúðum á leigumarkaði að fjölga um tíu þúsund og stutt það þeim rök- um að framundan séu m.a. fólksfjölgun, breytingar á við- horfum, síbreytileg húsnæðis- þörf og nýjar aðstæður í þjóð- félaginu. Samanlagt muni það gera leigu, tímabundna eða varanlega, að eftirsóknarverðu búsetuformi á þróuðum leigu- markaði. Góður fjárfest- ingarkostur Leiguverð og kostnaður við að búa í eigin hús- næði haldast í hendur við bygg- ingarkostnað og þróun fast- eignaverðs eftir svæðum og hverfum. Hagfræðingar hafa haldið því fram að áhrifaríkast sé að bregðast við háum hús- næðiskostnaði með auknu framboði af húsnæði. Jafnvel frekar en aðgerðum á eftir- spurnarhlið markaðarins, svo sem með húsaleigu- eða vaxta- bótum. Aukið framboð þrýstir niður fasteigna- og leiguverði og temprar verðbólgu sem síð- an leiðir til áframhaldandi vaxtalækkana. Í rekstri fasteigna eru vextir af lánsfé og fasteignagjöld ráð- andi þáttur í rekstrarkostnaði. Vilji stjórnvöld hafa áhrif á þró- un leigumarkaðar og vilja til fjárfestinga í leiguhúsnæði ættu sjónir þeirra að beinast að þessum þáttum. Þá hefur verið á það bent að fyrir lífeyrissjóði, tryggingafélög, líftrygginga- félög og aðra langtímafjárfesta sé fjárfesting í leigu- og bygg- ingarfélögum góður kostur. Dæmi eru um það frá ýmsum Evrópulöndum að lífeyrissjóðir hafi t.d. stuðlað að jafnvægi í efnahagsmálum og traustum húsnæðismarkaði með afger- andi þátttöku á leigu- og bygg- ingamarkaði. Ljóst er að líf- eyrissjóðir og fjárfestingar- sjóðir banka gætu tekið virkari þátt í uppbyggingu íbúðamark- aðar ef staðið væri með skipu- legri hætti en nú er gert að út- hlutun byggingarlóða, t.d. fyrir heil hverfi, eins og um nýtt Breiðholt væri að ræða. Slíkir aðilar munu þó aldrei ganga til fjárfestinga nema á markaðs- forsendum. Réttur leigjenda tryggður Kröfur eru uppi um að stjórnvöld setji reglur um leigumarkaðinn sem tryggi betur en nú er rétt leigjenda gagnvart leigusölum. Það er nauðsynjaverk og að því mun vera stefnt af hálfu ráðherra félagsmála. Regluverkið má þó ekki gera svo ósveigjanlegt að það verði til þess að taka fyrir nýtt framboð af leiguhúsnæði eins og dæmi er um. Reglu- verkið þarf að styðja við upp- byggingu leiguhúsnæðismark- aðar og gera leigu að raunveru- legum valmöguleika. Aukið framboð og hag- kvæm langtímafjármögnun Eftir Guðbrand Sigurðsson »Hagfræðingar hafa haldið því fram að áhrifaríkast sé að bregðast við háum húsnæðis- kostnaði með auknu framboði af hús- næði. Guðbrandur Sigurðsson Höfundur er framkvæmda- stjóri Heimavalla. gudbrandur@heimavellir.is ✝ Snorri Jóns-son fæddist í Reykjavík 7. maí 1988. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 11. október 2018. Foreldrar hans eru Jón Snorri Snorrason, lektor við Háskólann á Bifröst, f. 7.12. 1955, og Sigríður Knútsdóttir, kennari við Breiðagerðisskóla, f. 12.5. 1956. Systkini Snorra eru Tryggvi, MSc. í alþjóða- viðskiptum, f. 3.8. 1978, sam- býliskona Rúna Thors, fag- stjóri í vöruhönnun við Lista- háskóla Íslands, f. 15.10. 1982, og Hildur, BA í lögfræði, f. 13.2. 1982, sambýlismaður Alf- redo Ferrise lyfjafræðingur, f. 2.12. 1983. Börn þeirra eru; Tómas, f. 2012, Gabríel, f. 2014, og Sofia, f. 2018. Snorri flutti með foreldrum sínum og systkinum í Fossvog- inn 1988, þegar hann var sex mánaða. Hann bjó í Fossvogi nær alla sína tíð, í Brautar- landi, Hjallalandi og Geitlandi. Taugarnar til Fossvogs- hverfisins voru alltaf sterkar og vinahópurinn sem þar aftur heim haustið 2017 og hélt til fyrri starfa hjá félag- inu. Snorri stefndi á að þreyta löggildingarpróf í endur- skoðun á næsta ári. Á sínum yngri árum æfði Snorri sund hjá Ármanni og keppti um land allt. Hann stundaði skotveiði með vin- unum svo ekki sé minnst á tölvuleiki, helsta áhugamál hans kynslóðar. Ferðalög til sólarlanda á æskuárunum og síðar meir borgarferðir með fjölskyldu, unnustu og vinum voru stór þáttur í lífi Snorra. Eftir að systir hans flutti til Rómar voru farnar ófáar ferðir til Ítalíu með foreldrum og syst- kinum enda elskaði hann allt það sem landið hefur upp á að bjóða og ekki síst samveruna við börn Hildar og Alfredo. Hans öflugi vinahópur fór einnig saman í sín ferðalög. Standa þar upp úr tónleika- ferð til London að sjá Rolling Stones og heimsókn vinanna til Snorra í Eindhoven. Í síð- asta sumarfríinu naut Snorri sín með systkinum og mökum í sveitasælu á Ítalíu og hafði hann þegar ráðgert ferðalög með vinum og fjölskyldu síðar á þessu ári. Útför Snorra fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 19. októ- ber 2018, og hefst athöfnin klukkan 11. myndaðist var stór og samhentur, um 20 strákar sem hafa haldið hópinn alla tíð. Hann gekk hefðbundna skóla- göngu hverfisins; Fossvogsskóli, Réttó og síðan Menntaskólinn við Sund. Að loknu stúdentsprófi vann hann sem frí- stundaleiðbeinandi hjá Reykja- víkurborg en settist þá á skólabekk í Háskólanum í Reykjavík og nam viðskipta- fræði. Lauk hann BS-prófi ár- ið 2014 og hóf þá um haustið meistaranám í endurskoðun við sama skóla ásamt starfs- námi hjá endurskoðunar- skrifstofu Ernest & Young (EY). Snorri lauk M.Acc-prófi árið 2016 og hóf í framhaldi fullt starf á skrifstofum EY í Reykjavík. Snorri fékk síðar tækifæri á skrifstofu EY í Eindhoven í Hollandi og gat þar fylgt þá- verandi unnustu sinni, Önnu Diljá Sigurðardóttur, sem stundar hönnunarnám í sömu borg. Þó að sambúðin hafi slitnað hélst einstök vinátta þeirra alla tíð. Snorri kom Mjök erum tregt tungu at hræra Með þessum orðum hefst Sonatorrek Egils Skallagríms- sonar, þar sem hann lýsir sorg sinni og reiði eftir sonarmissi. Að vera vakinn að morgni með þau tíðindi að sonur þinn hafi fundist látinn á heimili sínu er svo óraunverulegt að því fá engin orð lýst. Jafnvel örfáum klukkustundum síðar þegar þú stendur í útfararstofu yfir látn- um syni þínum bíður þú eftir að vakna frá þessari hræðilegu martröð. Það haustar úti og laufin falla af trjánum en af ættartrénu mínu féllu ekki lauf heldur stór grein, sem skilur eftir sig opið sár sem mun kannski aldrei gróa. Þessi grein sem við höfum fylgst með vaxa og dafna mun aldrei blómgast á ný. Við í fjölskyldunni erum nán- ast smágreinar á þessu tré í samanburði við Snorra, sem tók einhvern óskiljanlegan vaxtar- kipp á unglingsárum og óx öllum meðlimum fjölskyldunnar langt yfir höfuð þó að hann væri ör- verpið, 6 og 10 árum yngri en systkini hans Hildur og Tryggvi. Það var honum mikið lán, þegar hann var lítill, hvað þau eru bæði barngóð og báru hann á höndum sér. Enda var hann alltaf bros- andi og glaður og naut samver- unnar við þau. Þegar Hildur eignaðist sín börn sáum við hversu barngóður hann var og hvernig hann miðlaði þessari væntumþykju til þeirra. Snorri var búinn mörgum eiginleikum foreldra sinna, gat verið dagfarsprúður eins og móðurfólkið en líka hávær og fljótur upp eins og föðurfólkið. Hann átti gott með að eignast vini, í leik og starfi, og átti fjöl- mennan og flottan vinahóp, sem hefur verið okkur í fjölskyldunni ómetanlegur stuðningur á síð- ustu dögum. Snorra fannst gaman að tak- ast á við krefjandi verkefni í starfi þó að hann teldi það ekki alltaf vera metið að verðleikum. Hann var ósérhlífinn, vann lang- an vinnudag og fyrir bragðið nærðist hann og hvíldist óreglu- lega. Fjölskyldan sá hann ekki vikum saman, þar sem vinnan og vinahópurinn tók sinn tíma. Ég brá á það ráð að hitta hann reglulega í hádegismat og var gaman að heyra frá hugmyndum hans og væntingum um framtíð- ina. En Luka vinur hans, sem hann fór að leigja með eftir Hol- landsdvölina, hefur sagt frá því hvernig Snorri hafi verið að snúa blaðinu við á undanförnum vik- um, minnkað vinnutímann, farið í ræktina og fyrr að sofa. Taldi hann það merki um að jákvæðari hlutir væru að gerast í lífi hans á fleiri en einn veg. Síðasta kvöld- inu eyddi hann með einum af sínum góðu æskuvinum, Jóel, sem sagði okkur fallega frásögn af því og hve léttur í lund Snorri hefði verið þetta kvöld og glaður þegar þeir kvöddust. Það er huggun harmi gegn þó að ég geti ekki tekið undir öll lokaorð Egils í Sonatorreki: skalt þá glaðr með góðan vilja ok óhryggr heljar bíða. Ég mun gleðjast yfir þeim góðu minningum, sem ég á um yndislegan dreng, sem var tek- inn frá okkur alltof fljótt en verð ávallt hryggur yfir að fá ekki að upplifa og sjá hann eiga kost á þeim tækifærum sem lífið hefur upp á að bjóða. Pabbi. Til elsku Snorra míns. Augun þín fá dimmu í dagsljós breytt, augun þín fá sorgarskýjum eytt. Ljómi þau er allt svo undurbjart, að ég því trúi vart að mér þau segi satt. Þó eru augun þín svo full af tærri tryggð og tállaus yfirskyggð, af ást. Augun þín þau birta eitt og allt, segja þúsundfalt að þú sért ástin mín. Burt rekur þú frá mér sérhverja sorg, syng ég því glaðvær um stræti og torg, vegsama allt sem þau tjá og ég á geymt í hjarta mínu. (Sigurður Helgi Guðmundsson) Guð geymi þig, elsku strákur- inn minn, mamma. Elsku besti bróðir. Það er engin leið að segja frá hvað þessi kveðjustund er erfið. En um leið koma fram í dags- ljósið minningar sem eru okkur ljúfsárar. Við fengum að njóta þeirra forréttinda að vera eldri syst- kinin þín. Á meðan smáerjurnar geisuðu okkar á milli stóðst þú á hliðarlínunni og lést þér fátt um finnast. Ljúfara og skemmti- legra barns var ekki hægt að óska sér. Þú settir tóninn á hverjum morgni, kvaddir fjöl- skylduna með kossi og óskaðir góðs gengis við komandi störf dagsins. Oft mátti heyra blístrið óma inn götuna þegar þú varst að koma heim úr skólanum og þá voru helst nokkrir vinir með í för. Og svo kom unglingurinn í öllu sínu veldi. Óstýrilátur og sjálfstæður sem gaf oft lítið fyrir veraldarvisku sinna eldri og vitr- ari systkina. Sparnaðaruppeldið sem við eldri höfðum fengið frá foreldrunum skilaði sér í minna mæli til þín og var hverri krónu helst eytt í góðum félagsskap og tölvuleiki eða nýjustu flíkurnar úr Smash. Síðan varstu allt í einu orðinn ungur maður. Eftir feimnisleg unglingsár sem entust fram yfir tvítugt varð kúvending. Yndisleg kærasta var kynnt fyrir fjöl- skyldunni í smáskrefum og svo kom stóra stökkið. Stüssy-fötin voru sett ofan í kassa og VIP- passanum frá Prikinu skilað með þökk fyrir góðar stundir. Metn- aðarfullur og áræðinn ungur maður var mættur til leiks sem vissi nákvæmlega hvert skyldi stefnt. Fyrr en varði var örverp- ið í fjölskyldunni búið að taka eldri systkini sín í nefið. Taflið hafði snúist og síðasta sumar var okkur gert ljóst að „gáfaðasta systkinið“ væri farið að vísa veg- inn. Glottið sem fylgdi skotinu á okkur var einlægt og pínu glað- hlakkalegt. Djók. En samt ekki djók. Við systkinin verðum ævin- lega þakklát fyrir samfylgdina með þér, elsku Snorri. Gráglett- inn húmor, einstakt bros og hlý nærvera munu halda áfram að kenna okkur mikið. Fríið sem við áttum í draumaumhverfi í ítölsku sveitinni í sumar ásamt vinum og mökum er okkur öllum ómetanleg minning. Planið þitt var auðvitað að kaupa slotið og jafnvel leyfa okkur smælingjun- um að kíkja í heimsókn. Einn daginn bönkum við vonandi upp á hjá þér. Þín systkini Tryggvi og Hildur. Hávaxinn og myndarlegur, brosmildur með liðað hár. Eld- klár og umhyggjusamur. Sannur vinur vina sinna og skemmtileg- ur sögumaður. Stundum hávær, með ákveðnar skoðanir en alltaf stutt í hláturinn. Snorri hafði allt til að bera sem mögulega getur prýtt góðan dreng. Snorri Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.