Morgunblaðið - 19.10.2018, Page 27

Morgunblaðið - 19.10.2018, Page 27
nefnd frá 1992 og í siglinganefnd Sjúkratrygginga Íslands frá 2002. – Sumir hella sér út í tómstunda- störf eftir sjötugt. Er það kannski á dagskránni hjá þér, Halldóra? „Ó nei. Ég hef aldrei verið mikil tómstundamanneskja. Ég held áfram að sinna mínu fagi, a.m.k. í sérverkefnum. Annars hef ég alltaf verið með nefið ofan í bókum. Það breytist ekkert. Ég les mikið skáld- sögur, ævisögur og krimma og er nú að lesa skáldævisögu með heim- spekilegu ívafi eftir norska höfund- inn Karl Knausgaard. Bókhneigðum leiðist aldrei með bók í farteskinu.“ Fjölskylda Halldóra giftist 14.6. 1969 Peter Sönderberg Rasmussen, f. 6.9. 1945, mag.art. í norrænum fræðum og fyrrv. konrektor MS. Hann er sonur Prebens S. Rasmussen, f. 9.2. 1908, d. 8.3. 1980, skrifstofustjóra í Kaup- mannahöfn, og k.h., Betty Louise Rasmussen, f. Möller 19.6. 1916, d. 13.10. 1993, endurskoðanda. Hall- dóra og Peter skildu 1976. Dóttir Halldóru og Peters er Anna Ingeborg, f. 21.1. 1974, Ph.D og dósent í Texas. Maður hennar er Mitch Weverka tónlistarmaður og þeirra börn Jackson Ólafur, f. 2012, og Audrey Anna, f. 2014. Halldóra giftist 17.12. 1977 Kjart- ani Mogensen, f. 14.12. 1946, MA í landslagsarkitektúr. Hann er sonur Eriks Julius Mogensen, f. 31.10. 1924, d. 4.10. 1964, stöðvarstjóra fiskiræktarstöðvarinnar í Kollafirði, og k.h., Helgu Kristínar Stefáns- dóttur, f. 14.11. 1923, d. 7.4. 2007, verslunarmanns. Sonur Kjartans er Erik Julius, f. 10.1. 1969, tölvunarfræðingur og yfirmaður hjá Google í Noregi. Kona hans er Marit Strand viðskiptafræð- ingur og synir þeirra Snorre, f. 1996, og Haakon, f. 2000. Dóttir Halldóru og Kjartans er Helga Kristín, f. 4.6. 1986, sérnáms- læknir í svæfingum og gjörgæslu- lækningum í Gautaborg. Maður hennar er Gunnlaugur Úlfsson lög- fræðingur og synir þeirra Úlfur, f. 2014, og Kjartan Leó, f. 2017. Albróðir Halldóru er Sigurður, f. 29.9. 1951, menntaskólakennari á Akureyri. Hálfsystir Halldóru, sam- feðra, er Ragnheiður, f. 28.2. 1947, læknir á Bretlandi. Foreldrar Halldóru: Ólafur Sig- urðsson, f. 4.8. 1915, d. 13.8. 1999, yfirlæknir á Akureyri, og k.h., Anna Soffía Björnsdóttir, f. 25.11. 1920, d. 26.10. 2014, húsmóðir.„Norska“ grein fjölskyldunnar F.v.: Erik Julius, Haakon, Snorre og Marit. Halldóra Ólafsdóttir Anna Sigfúsína Zóphoníasdóttir húsfr. á Upsum Gunnlaugur Daníelsson b. á Upsum í Svarfaðardal Guðrún Daníela Gunnlaugsdóttir húsfr. á Akureyri Anna Soffía Björnsdóttir húsfr. á Akureyri Sigurður Ólafsson menntaskóla- kennari á Akureyri Steingrímur Sigurðsson listmálari Guðmundur ngvi Sigurðsson hrl. í Rvík I Sigurður Guðmundsson læknaprófessor og fv. landlæknir Örlygur Sigurðsson listmálari og rithöfundur Sigurður Örlygsson myndlistarmaður Þórunn Ólafsdóttir húsfr. í Kálfholti, frá Mýrarhúsum, systurdóttir Þórðar, afa Kristjáns Albertssonar rithöfundar Ólafur Finnsson pr. í Kálfholti, systursonur Hans, langafa Ögmundar Jónassonar fv. ráðh., af Stephensenum og Presta-Högnaætt Halldóra Ólafsdóttir húsfr. á Akureyri Sigurður Guðmundsson skólameistari MA Ingibjörg Guðrún Sigurðardóttir húsfr. á Æsustöðum Guðmundur Erlendsson hreppstj. á Æsustöðum, bróðursonur Jóns, afa Jóns Leifs tónskálds, Jóns Kaldal ljósmyndara og Jóns Jónssonar í Stóradal, af Skeggstaðaætt Úr frændgarði Halldóru Ólafsdóttur Ragnheiður Ólafsdóttir læknir í Bretlandi Ólafur Sigurðsson yfirlæknir á Akureyri Björn Sigmundsson deildarstj. á Akureyri Friðdóra Guðlaugsdóttir húsfr. á Ytra-Hóli Sigmundur Bjarnason b. á Ytra-Hóli Finnur Sigmundsson landsbókavörður Þröstur Sigtryggsson skipherra Hlynur Sigtryggsson veðurstofustjóri Sigtryggur Guðlaugsson prófastur og skólastj. á Núpi ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt Nýjar vörur Sigurbjörn Sveinsson fæddist áKóngsgarði í Austur-Húnavatnssýslu 19.10. 1878. Foreldrar hans voru Sveinn Sig- valdason húsmaður og k.h., Sigríður Þórðardóttir. Eiginkona Sigurbjörns var Hólm- fríður Hermannsdóttir og eignuðust þau tvær dætur. Sigurbjörn lærði ungur skósmíði í Reykjavík, var búsettur á Ísafirði um skeið og starfaði þar í Hjálpræðishernum, var skósmiður og á vegum Hjálpræðishersins á Akureyri, en flutti til Reykjavíkur og var barnakennari þar 1908-19. Þá flutti hann til Vestmannaeyja og bjó þar síðan, lengst af í húsinu Hnjúk við Brekastíg. Hann var barnakenn- ari í Eyjum 1919-32 og kenndi síðan í einkatímum, ensku og á fiðlu. Sigurbjörn var fyrst og síðast rit- höfundur og einn sá fyrsti sem skrif- ar meðvitað fyrir börn og unglinga. Þekktustu verk hans eru Bernskan I sem er æskuminningar hans, og Bernskan II sem inniheldur smásög- ur og ævintýri. Þá má nefna Geisla, Æskudrauma, Skeljar og Margföld- unartöfluna, eða söguna um Glókoll sem flestir sem komnir eru á miðjan aldur lásu í einni lestrarbók Náms- flokka Reykjavíkur og gert var barnaleikrit eftir sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu 1971. Ritsafn Sig- urbjörns hefur oft verið endur- útgefið. Sigurbjörn var einn stofnenda Taflfélags Vestmannaeyja, var kos- inn fyrsti heiðursfélagi þess 1936 og fékk verðlaun frá Taflfélagi Reykja- víkur fyrir sérlega fögur skákdæmi. Hann var heiðursborgari Vest- mannaeyja. Halldór Laxness dáði mjög verk Sigurbjörns, vinar síns, en textinn í trúarsöngnum „Þú vínviður hreini“, sem einnig er heitið á fyrra bindinu um Sölku Völku, er eftir Sigurbjörn. Þá samdi hann ljóðið við nokkurs konar ættjarðarlag Eyjamanna sem hefst svo: „Yndislega eyjan mín, en hvað þú ert morgunfögur.“ Sigurbjörn lést 2.2. 1950. Merkir Íslendingar Sigurbjörn Sveinsson 90 ára Sigríður G. Júlíusdóttir 85 ára María Steingrímsdóttir 80 ára Bára Sigurgeirsdóttir Hallbera Árný Ágústsdóttir Ingunn Jónsdóttir Margeir Björnsson Ólafur A. Bergsveinsson Sigurjón Stefánsson Stefán Már Stefánsson 75 ára Brynhildur Tómasdóttir Dagný K. Gunnarsdóttir Emilía Sveinsdóttir Hjálmar Magnússon Þorvaldur Markússon 70 ára Anna Eyvör Ragnarsdóttir Arnbjörn Gunnarsson Guðjón Sigurðsson Halldóra Ólafsdóttir Pétur J. Jónasson 60 ára Ágúst Þór Ingólfsson Helgi Hermannsson Hrafney Ásgeirsdóttir Indiana F. Sigurðardóttir John Steven Berry Jón Jóhannsson Kristrún Jóna Jónsdóttir Rut Gunnþórsdóttir Sólveig Jensdóttir Örn Ingólfsson 50 ára Charlotta R. Magnúsdóttir Dalia Aleksandraviciené Elísabet Kjartansdóttir Eybjörg Guðný Guðnadóttir Guðlaug Á. Kjærnested Hanna Kristín Didriksen Hrafnhildur Helgadóttir Jacalyn Fia Grétarsson Jón Eyjólfsson Lára Pálína Jónsdóttir Maria Jesus Arto Millan Óskar Gunnarsson Senee Sankla Sigrún Þorbjörnsdóttir Sveinbjörn M. Bjarnason Zylkade Kulaj 40 ára Eyrún Harpa Hlynsdóttir Guðríður Ringsted Hafrún B. Guðmundsdóttir Harijs Lukasins Haukur Gunnlaugsson Iris Myriam Waitz Jirí Balín Jóna Kristín Snorradóttir Karen D. Guðmundsdóttir Katarzyna Tersa Mariana C. Sineavschi Paula V.C.Santos De Moura Rafal Andrzej Labudda Sandra Rán Garðarsdóttir Svanhvít Friðriksdóttir Tara Patricia Roberts Tomasz Pacak Violeta Baltrimiene 30 ára Bryndís Ben Guðfinnsdóttir Einar Sigurður Jónsson Erna María Sveinsdóttir Federica Cassini Gunnlaugur Þ. Kristinsson Hafdís Kristínardóttir Hanna Beata Kakol Hilmar Örn Albertsson Kristjana S. Arnþórsdóttir Ólöf Brynjólfsdóttir Stefán J. Bolon Stefánsson Þorsteinn Júlíus Árnason Þórveig Traustadóttir Til hamingju með daginn 30 ára Þórveig lauk BA- prófi í félagsráðgjöf frá HÍ og stundar nú nám í lög- reglufræðum við HA. Systur: Aldey, f. 1987, hjúkrunarfræðingur; Ólöf, f. 1995, nemi í sálfræði, og Fanný, f. 1997, nemi í sál- fræði. Foreldrar: Unnur Guðjóns- dóttir, f. 1962, skrif- stofustjóri hjá sýslum. á Húsavík, og Trausti Aðal- steinsson, f. 1961, skrif- stofustjóri hjá Samskipum. Þórveig Traustadóttir 30 ára Stella ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BSc-prófi í hjúkrunar- fræði frá HA og er hjúkr- unarfræðingur á Hjarta- gátt. Maki: Hlynur Indriðason, f. 1990, læknir. Dóttir: Herdís Þóra Hlynsdóttir, f. 2017. Foreldrar: Arnþór Heimir Bjarnason, f. 1956, og Lovísa Guðmundsdóttir, f. 1962. Þau er búsett í Reykjavík. Stella Arnþórsdóttir 30 ára Bryndís ólst upp í Keflavík, býr í Hafnarfirði og er vaktstjóri hjá Olís í Garðabæ. Kærasti: Pétur Ingi Rak- elarson, f. 1983, starfar við járnabindingar. Dóttir: Guðný Elsa, f. 2014. Foreldrar: Hafdís Ben Friðriksdóttir, f. 1963, starfsmaður hjá Olís, og Guðfinnur Kjartansson, f. 1962, vöruflutningabíl- stjóri. Bryndís Ben Guðfinnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.