Morgunblaðið - 19.10.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 19.10.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Maki þinn fær hugsanlega gjafir eða hlunnindi af einhverju tagi í dag. Þú stendur með pálmann í höndunum í vinnunni, búinn með öll verkefni í tíma. Haltu upp á það. 20. apríl - 20. maí  Naut Þig langar til að kaupa eitthvað rán- dýrt. Er það viturlegt? Hvaða tilfinningaholu ertu að reyna að fylla upp í? Ef þú gerir þér grein fyrir því hefurðu þroskast mikið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Mundu að þú getur ekki tekið öll vandamál fjölskyldunnar á þínar herðar, þú getur ekki reddað lífi annarra, þú hefur nóg með þitt. Oft er sannleikurinn sterkur pipar í nösum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vinur þinn mun ekki bregðast eins við og þú býst við af honum. Ræddu við for- eldra vina barna þinna og í sameiningu get- ið þið búið til boð og bönn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ástarsambönd einkennast af gleði þessa dagana. Líttu deilumálin raunsönnum augum og þá sést að flest er í nokkuð góðu lagi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gerðu hvaðeina sem þér kemur til hugar til þess að auka við þekkingu þína. Þú færð mörg prik fyrir uppeldið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hefnigirni er löstur sem þú þarft að losa þig við. Einhver gömul leiðindamál skjóta upp kollinum næstu vikur en ganga fljótt yfir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er hætt við að það komi til sambandsslita. Kannski leggur þú of mikla áherslu á að þóknast öðrum, getur það passað? Þú veltir hverjum steini við til að finna svar við spurningu sem brennur á þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú munt hugsanlega upplifa ást við fyrstu sýn í dag. Hreinsaðu hugann og reyndu að komast eitthvað í burtu á næst- unni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er sama hversu gamall þú verður, þú ert alltaf barn foreldra þinna. Réttur málstaður sigrar að lokum. Þú kemur engu tauti við ungviðið þessi dægrin. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú rekst á skrýtna skrúfu í dag. Sem betur fer erum við ekki öll eins. Vinur lofar bót og betrun. Hafðu trú á honum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nýttu hæfileika þína, hversu lítilfjör- legir sem þú heldur að þeir séu. Sýndu dugnað í starfi og dirfsku í persónulegum málum. Hjálmar Freysteinsson skrifar áFésbók: „Einkenni brjóskloss í baki hafa plagað mig undanfarið. Nú hefur sjúkraþjálfarinn tekið það ráð að reyna að setja mig í sérstaka togun. Maður er settur á bekk, fæt- urnir festir og bekknum síðan velt þannig að fæturnir fari upp undir loft og hausinn niður í gólf, eða því sem næst. Hangandi þarna á löpp- unum hugsaði ég: Þess má ekki vænta að meðferð sé létt ef meinsemd er illskeytt og langdregin, en flestir teldu nú trúlega rétt að toga mig frekar á þverveginn. Ég hef nefnilega alltaf verið óhóflega langur og mjór og varla lagast það við þetta. Mér er reynd- ar sagt að þekkt aukaverkun sé að vegna þess að allt blóðið fer upp í haus geti menn orðið miklu meiri gáfum gæddir en þeir eiga vanda til, að minnsta kosti tímabundið. En fólk er mjög misnæmt fyrir auka- verkunum, sumir fá allar hugsan- legar aukaverkanir, aðrir engar. Ég held að togið sé að hafa góð áhrif á bakið en því miður finn ég ekkert fyrir aukaverkunum.“ Sigurlín Hermannsdóttir skrifar á Leir að samkvæmt könnun á póli- tík borgarinnar sé fylgið að sveifl- ast til íhaldsins frá Samfylkingunni vegna braggamála. Fylgið til hægri nú haggast svo heldur það áfram að vaggast en ég segi það strax að frá degi til dags eru borgarmál lítið að braggast Davíð Hjálmar Haraldsson rifjar upp vísu úr óprentaðri dagbók: Fékk mér kaffi trekk í trekk sem teljast mætti skyssa. Um Álftanes ég áðan gekk og oft ég varð að pissa. Guðmundur Halldórsson segir frá því á Boðnarmiði að einhver gerði athugasemd við það verklag að kaupa átján skóflur (kallað rek- ur í minni heimasveit) til að taka eina skóflustungu að spítalabygg- ingu: Ég vinnulagið vísa styð verkinu skal hasta átjánskófluuppmokstrið ekki skal ég lasta Pétur Stefánsson lítur til baka og yrkir: Að vinna mikið var mér tamt það vantaði ekki stuðið. Ósköp lítið á ég samt eftir lífsins puðið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Brjósklos og fylgið sveiflast Í klípu „ENGIN VITNI, ENGIN FINGRAFÖR OG SLÖKKT Á MYNDAVÉLINNI. VIÐ GÆTUM ALLTAF KVEIKT Á HENNI OG VONAÐ AÐ ÞEIR SNÚI AFTUR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MIKIÐ ER SKRÍTIÐ AÐ ALLIR SEX AF FYRRVERANDI VINNUVEITENDUM GLEYMDU STAFNUM S Í „ÆÐISLEGUR“.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að koma henni á óvart með árbít í rúmið. HUNDAR ERU EINS OG OPIN BÓK ÞAR SEM VANTAR NOKKRAR SÍÐUR ÉG HEF ALDREI TEKIÐ VIÐ FYRIRSKIPUNUM FRÁ NEINUM, NOKKURS STAÐAR, NOKKURN TÍMANN! ÞEGAR ÞÚ VARSTAÐ BRASA Á SKYNDIBITASTAÐNUM, TÓKSTU ÞÁ EKKI VIÐ PÖNT UNUM FRÁ KÚNNU NUM? ÉG LÍT Á ÞAÐ SEM BEIÐNIR! Víkverji gerði sér sérstaka ferð íNauthólsvík á dögunum til þess að skoða þennan bragga sem allir eru að tala um. Það fyrsta sem hann tók eftir var að bragginn var miklu minni en Víkverji hélt. Raunar gild- ir það um alls kyns hluti, sem mað- ur sér bara í sjónvarpinu, að þeir eru oft stærri á skjánum en í raun- veruleikanum. Miðað við sína eigin hæð hefði Víkverji líklega bara gott af því að komast í sjónvarpið af og til. x x x En nóg um það. Víkverji veittinærliggjandi gróðri enga sér- staka eftirtekt í þessari vettvangs- ferð sinni og gat ekki tekið eftir neinni „strandstemningu“ eða neinu öðru merkilegu við hann. Nokkrum dögum síðar sprakk umræðan í loft upp með umtali um rándýr „strá“, sérpöntuð frá Danmörku, sem væru höfundarréttarvarin í þokkabót. x x x Það liggur við að Víkverja langiaftur í vettvangsferð bara til þess að skoða hin frægu strá, en óttast að þau verði eflaust öll horfin þegar hann loksins fer, þar sem ef- laust verða allir prakkarar, grall- arar og „gárungar“ landsins búnir að plokka stráin á næstu vikum. Því að hver vill ekki vera með svona gífurleg „verðmæti“ í vasa hjá sér? x x x Sem aftur færir Víkverja að öðru.IKEA-geitin hefur nú verið sett upp með pomp og prakt, og er sér- staklega tekið fram í frétt mbl.is að það verði „bókstaflega menn í bíl“ að gæta geitarinnar allan sólar- hringinn. Ástæðan fyrir hinni miklu öryggisgæslu er einföld, vandalar hafa tekið sig til öll fyrri ár og brennt geitina til grunna. x x x Víkverji óttast að þeir sem hvaðólmast vilja sjá geitina í logum muni nú bara líta á hina bókstaflegu menn í bílnum sem áskorun en ekki hindrun. Verður honum enda hugs- að til frægra orða Michaels Caine í einni Batman-myndinni að sumir vilja bara sjá heiminn (og geitur) í ljósum logum. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn. (Sálm: 8.2)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.