Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2018 Efniviður Sólveigar Jóns-dóttur í hennar annarriskáldsögu, Heiður, vekurstrax forvitni. Íslenskur reynsluheimur og sögupersónur með beinan snertiflöt við átökin í Norður-Írlandi og IRA, írska lýð- veldisherinn er ódæmigert og spennandi efni. Að íslenskur rithöfundur leggist í slíkt efni kynni alla jafna að vekja efasemdir um að höfundur hefði nægilega innsýn í þau flóknu mál til að geta gert þeim skil á trúanlegan hátt en Sólveig hefur þá þekk- ingu, hún er með meistaragráðu í þjóðernishyggju og þjóðernis- átökum þar sem hún lagði áherslu á þær blóði drifnu deilur. Í Heiði fylgjum við Heiði Mc- Carron eftir, hálfírskri og hálf- íslenskri konu á fertugsaldri. Stakkaskipti urðu í tilveru Heiðar þegar hún var sjö ára og faðir henn- ar og jafngamall bróðir fluttu til Ír- lands án nokkurs fyrirvara. Heiður bjó áfram á Íslandi hjá móður sinni og heyrði aldrei í föður sínum aftur og hvarf feðganna og viðbrögð móð- ur hennar myrkvuðu á margan hátt æsku Heiðar. Heiður hefur óljósa vitneskju um að faðir hennar hafi horfið úr lífi hennar til að taka slaginn með kaþ- ólikkum á Írlandi, hún veit líka að hann lét lífið fyrir málstaðinn, en ótal spurningar brenna á henni alla tíð. Spurningum sínum á Heiður eftir að fá svarað. 28 árum eftir brott- hvarf feðganna hefur bróðir hennar, Dylan, samband og vill að hún komi til Írlands og við tekur ferðalag og dvöl í Írlandi þar sem forsagan er smám saman afhjúpuð og sett í sam- hengi við nútímann. Sólveig hefur sýnt það áður að hún ræður vel og gott betur við skrifað mál. Í Heiði er mikið um samtöl persóna. Bæði samtöl þeirra systkina og þá má segja að stór hluti bókarinnar sé frásögn af frásögn þar sem nokkrir karlmenn skiptast á um hituna, að segja Heiði söguna af föð- ur hennar og fjölskyldu hans í Ír- landi. Í þessum samtölum skortir nokkuð á náttúrulegt og eðlilegt flæði. Mikið er af vísunum um hver sagði hvað og bætti hverju við þann- ig að samtölin hökta um of í stað þess að lesandanum sé betur treyst til að ráða fram úr skiptingunum sjálfur. Á vissan hátt er sagan glæpasaga. Forsaga föður hennar og dauða hans er ekki einföld, ábyrgð einstaklings eða einstaklinga á honum er meiri en virtist í fyrstu og að því kemst Heiður í lok bókar. Ýmsar vísbend- ingar eru gefnar um hver ber ábyrgð og sennilega of augljósar því það liggur nokkurn veginn í augum uppi hver hinn ábyrgi er áður en að uppgjörinu, sem virðist eiga að vera spennandi, kemur. Fléttan hefur þó ýmislegt við sig og gefur frásögninni merg. Miðað við að Heiður er miðdepill frásagnarinnar er í raun furða hvað hún snertir lítt við lesanda. Per- sónuna skortir vissa dýpt og ávinnur hún sér ekki mikla samkennd miðað við þær raunir sem hún hefur gengið í gegnum. Sama má segja um Dylan, sem upplifði sams konar sorgir í sínu lífi í Írlandi. Best tekst höfundi að færa lesandann nær Heiði í frásögn af lífi hennar á Íslandi og flóknu hlutverki þess að vera stjúpforeldri, þá flæðir frásögnin fram. Það sama má segja um ömmu og afa í bókinni og samskipti þeirra við barnabörnin, þar eru atriði sem hræra við. Uppgjör og heiður á Írlandi Skáldsaga Heiður bbbnn eftir Sólveigu Jónsdóttur. Mál og menning, 2018. 253 bls. JÚLÍA MARGRÉT AL- EXANDERSDÓTTIR BÆKUR Morgunblaðið/Hari Sannleiksleit „Forsaga föður hennar og dauða hans er ekki einföld, ábyrgð einstaklings eða einstaklinga á honum er meiri en virtist í fyrstu.“ Tónlist frá norðurslóðum er yfirskrift dag- skrár sem fram fer í Veröld – húsi Vigdísar í dag, föstudag, milli kl. 17 og 18.30. Þar mun Byron Nicholai flytja nokkur lög og ræða tónsmíðar sínar og tengt efni við Sebastian Drude, fram- kvæmdastjóra Alþjóðlegrar mið- stöðvar tungumála. „Sebastian er málfræðingur og sérhæfir sig í fjölbreytileika tungumála, tungu- málum í útrýmingarhættu og skrásetningu tungumála. Umræð- urnar munu snúast um mikilvægi tungumála sem menningar- arfleifðar og hvað menningar- viðburðir geta lagt af mörkum til að styrkja stoðir tungumála í útrýmingarhættu. Byron Nicholai er tónlistarmaður og dansari frá samfélagi Yup’ik-fólks í Alaska. Í tónlist sinni blandar hann frum- byggjatungumáli Yup’ik-fólks saman við nútímalegri tækni svo sem hipphopptónlist og samfélags- miðla. Byron hefur komið fram á hátíðum víðs vegar um heiminn og virtum stöðum, þ.á m. Hvíta hús- inu,“ segir í tilkynningu. Aðgang- ur er ókeypis. Tónlist frá norðurslóðum í Veröld í dag Byron Nicholai Thelma (Norway) Metacritic 74/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 17.45 Mæri // Border (Gräns) Metacritic 78/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 20.00, 22.20 Bráðum verður bylting! Morgunblaðið bbbmn Bíó Paradís 18.00 Sorry to Bother You Metacritic 81/100 IMDb 7,4/10 Bíó Paradís 22.30 Mandy Metacritic 81/100 IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 22.10 Kler (Clergy) IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 17.30, 20.00 The Craft Bíó Paradís 20.00 Bad Times at the El Royale 16 Sjö gerólíkir einstaklingar, sem allir hafa einhverju að leyna, hittast á El Royale- hótelinu við Tahoe-vatn þar sem skuggaleg fortíðin svíf- ur yfir vötnum. Metacritic 60/100 IMDb 7,5/10 Laugarásbíó 22.00 Smárabíó 19.30, 21.50, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Billionaire Boys Club 12 Hópur auðugra ungra manna í Los Angeles ákveður að búa til svika- myllu til að auðgast með hröðum hætti. Metacritic 30/100 IMDb 5,6/10 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 22.20 Undir halastjörnu 16 Morgunblaðið bbbmn Smárabíó 20.00, 22.20 Háskólabíó 18.20, 21.40 Borgarbíó Akureyri 17.30, 21.30 Johnny English Strikes Again Metacritic 35/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 16.00, 18.00, 20.00 Sambíóin Álfabakka 16.00, 18.00, 20.00, 22.00 Sambíóin Keflavík 18.00, 20.00 Smárabíó 15.00, 17.20 Háskólabíó 17.40, 19.40 Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30 A Star Is Born 12 Metacritic 87/100 IMDb 8,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.10 Sambíóin Egilshöll 18.00, 20.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 21.00, 22.15 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 22.00 Night School 12 Metacritic 43/100 IMDb 5,5/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20 The Nun 16 Metacritic 46/100 IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 The House with a Clock in Its Walls Metacritic 57/100 IMDb 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 15.20, 17.40 Sambíóin Kringlunni 18.50 Sambíóin Akureyri 17.15 A Simple Favor 12 Háskólabíó 20.20 Smáfótur Snjómaðurinn Migo segir sögur af kynnum sínum af áður óþekktri goðsagna- kenndri dýrategund, mann- inum Percy. Metacritic 58/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 15.30, 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 16.45 Sambíóin Akureyri 17.20 Sambíóin Keflavík 17.50 Grami göldrótti Trausti er ungur drengur sem er óvart sendur yfir til annars heims þar sem hann verður að eiga við illgjarnan galdrakarl, Grami að nafni. Laugarásbíó 17.00 Smárabíó 15.10, 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Smárabíó 15.10 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 15.20 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 19.50 Morgunblaðið bbbbb Metacritic 81/100 IMDb 7,7/10 Háskólabíó 18.00 Morgunblaðið bbnnn Metacritic 35/100 IMDb 7,1/10 Laugarásbíó 19.50, 22.15 Sambíóin Álfabakka 14.50, 15.00, 17.10, 17.30, 19.30, 20.00, 21.50, 22.25 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00, 22.25 Smárabíó 16.30, 17.30, 19.10, 19.50, 22.30 Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.50 Venom 12 First Man 12 Myndin er byggð á ævisögu James Hansen; First Man: A Life Of Neil A. Armstrong, og segir söguna af fyrstu ferðinni til tunglsins, með sérstakri áherslu á geimfarann Neil Armstrong. Metacritic 84/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 17.00, 22.15 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.30 Sambíóin Akureyri 19.30 Lof mér að falla 14 Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur al- varlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,7/10 Smárabíó 16.40, 19.40, 22.40 Háskólabíó 20.40 Borgarbíó Akureyri 17.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.