Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 19.10.2018, Síða 36
*Verð miðast við WOW Basic aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. Tilboðið á aðeins við ef bókað er flug fram og til baka. HÁTÍÐLEGAR AÐVENTUFERÐIR LONDON FRÁ 4.999kr.* BERLÍN FRÁ 6.499kr.* BOSTON FRÁ 12 999kr * Tímabil: nóv.–des. Tímabil: nóv.–des. Tímabil: nóv.–mars Tímabil: nóv.–des. KAUPMANNAHÖFN FRÁ 5.999kr.* PARÍS FRÁ 7.999kr.* . . Tímabil: nóv.–des. Njóttu þín á kaffihúsi í Köben, upplifðu notalegt andrúmsloftið í London eða gerðu vel við þig í Berlín.Hafðu það hátíðlegt á aðventunni meðWOW air. Tónlistarmaðurinn Matthew Santos kemur fram í Hljómahöll í Reykja- nesbæ í kvöld. Santos er að upplagi þjóðlaga- og rokktónlistarmaður en vakti fyrst alvöruathygli fyrir samstarf við rapparann Lupe Fiasco og var tilnefndur til Grammy-verðlauna fyrir sam- starfið. Hann hefur komið fram hjá Letterman og á hátíðum á borð við Glastonbury og Coachella. Matthew Santos í Hljómahöll í kvöld FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 292. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. „Þetta var rosalegt og svo gaman. Það er svo góð tilfinning að fara inn í úrslitadaginn með þessa góðu til- finningu eftir undankeppnina,“ sagði Andrea Sif Pétursdóttir, fyrir- liði íslenska kvennalandsliðsins í hópfimleikum, við Morgunblaðið eftir að liðið tryggði sér örugglega sæti í úrslitum á Evrópumeistara- mótinu á laugardaginn. »1 Góð tilfinning fyrir úrslitakeppnina ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Kontrabassaleikarinn Borgar Magnason kemur fram í Mengi í kvöld kl. 21. Borgar gekk nýverið frá þriggja plötu samningi við breska plötufyrirtækið Pussyfoot og verð- ur dagskrá kvöldsins alfarið nýtt efni tengt gerð fyrstu plötunnar, sem ráðgert er að komi út í apríl 2019. Borgar hefur verið afkasta- mikill tónlistarmaður undanfarin ár og samið tónlist fyrir leikhús, kvikmyndir, dansverk og hljóm- sveitir af öll- um stærð- um. Borgar Magnason spilar í Mengi í kvöld Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Kokkurinn Atli Már Yngvason opnaði nýverið veitingastaðinn Kötlu í Ósló og hefur hlotið ein- róma lof matargagnrýnenda. Þetta er annar veitingastaðurinn sem Atli opnar í Noregi á stuttum tíma en hann var áður með veit- ingastaðinn Pjoltergeist sem var opnaður árið 2013. Hann lokaði Pjoltergeist 2. júní síðastliðinn til að undirbúa opnun á Kötlu en norski matargagnrýnandinn And- ers Husa ritar að Pjoltergeist hafi verið besti óformlegi veitingastað- urinn í Noregi og Katla sé endur- koma Atla. „Loksins, Atli er byrj- aður að gera aftur það sem hann gerir best – elda virkilega góðan mat,“ segir í gagnrýni Husa. Troðfullt frá opnun „Við opnuðum núna 28. ágúst og það er búið að vera opið í tvo mánuði og troðfullt á hverjum degi,“ segir Atli um opnun Kötlu í samtali við Morgunblaðið. Katla er á Universitetsgötu í miðbæ Ósló- ar, „í svona þriggja mínútna fjar- lægð frá konungshöllinni“, segir Atli. Atli lærði matreiðslu hjá Sigga Hall hér heima á Íslandi og út- skrifaðist árið 2007. Hann flutti til Noregs eftir útskrift og hefur ver- ið þar í 11 ár. Hann hóf ferilinn á hinum fræga Bagatelle-veitinga- stað, sem er tveggja Michelin- stjarna staður. „Eftir það vann ég hér og þar áður en ég opnaði Pjol- tergeist sem ég lokaði núna í júní til að opna þennan,“ segir Atli og bætir við að hann hafi upphaflega bara ætlað að vera eitt ár í Noregi. Lifandi humar og hörpuskel Matarvefur Dagens Næringsliv í Noregi hrósar Kötlu og Atla í há- stert í matargagnrýni sinni og tek- ur fram að staðurinn hafi fengið hundrað borðapantanir á fyrstu fjórum mínútunum eftir hann var opnaður. Spurður hvers konar mat sé að fá á Kötlu segir Atli hann mjög blandaðan. „Þetta er mjög bland- að, héðan og þaðan, en mest fisk- meti. Við fáum inn lifandi humar og hörpuskel. Við fáum mikið af lifandi hráefni alveg fersku og svo erum við með stórt grill og viðar- ofn,“ segir Atli. Líta megi á stað- inn sem sjávarréttagrill með as- ísku og suðuramerísku ívafi, en Atli ferðaðist m.a. í heilt ár, frá 2009 til 2010, um Asíu til að sækja sér innblástur í matargerð. Ljósmynd/Anne Valeur Kokkur Atli Már hefur náð að skapa sér nafn í norska veitingageiranum. Leikur sér að bragð- laukum Norðmanna  Atli Már opnar veitingastaðinn Kötlu í Noregi Ljúffengt Gestir Kötlu geta gætt sér á grilluðum sjávarréttum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.