Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Samþykki er fjórða leikritbreska leikskáldsins NinuRaine sem sett er upp íheimalandi hennar á rúmum
áratug. Það var frumsýnt við almennt
góðar viðtökur í Breska þjóðleikhús-
inu vorið 2017, aðeins nokkrum mán-
uðum áður en #metoo-byltingin hófst
sem opnað hefur augu margra fyrir
því rótgróna kynbundna ofbeldi sem
alltof lengi hefur fengið að grassera.
Út frá titli leikritsins þarf ekki að
koma á óvart að nauðgun er hér í
lykilhlutverki, en í breskum fjöl-
miðlum hefur höfundurinn lagt
áherslu á að titilinn beri ekki að skilja
einvörðungu í samhengi kynferðis-
ofbeldis heldur einnig hjónabandsins
þar sem einstaklingur geti til dæmis
samþykkt framhjáhald makans án
þess í raun að vera sáttur við hlut-
skipti sitt – en framhjáhald, svik,
hefnd, réttlæti og fyrirgefning eru
áberandi leiðarstef í verkinu.
Tilurð leikritsins má, að sögn höf-
undar, rekja til hennar eigin setu í
kviðdómi árið 2005 þar sem hún varð
vitni að því hvernig snúa má upp á
sannleikann með lagarökum. Í rann-
sóknarvinnu hennar fyrir ritun leik-
ritsins vakti meðferð breska dóms-
kerfisins á þolendum nauðgana furðu
hennar. Þar í landi flytur sækjandi
málið gegn nauðgaranum, sem nýtur
lögfræðiaðstoðar verjanda, en ólíkt
því sem viðgengst hérlendis er þol-
andanum ekki úthlutað réttargæslu-
manni og fyrir vikið verður þolandinn
aðeins vitni í eigin nauðgunarmáli.
Í meðförum Raine er ljóst að Gayle
(Arndís Hrönn Egilsdóttir) fær ekki
sanngjarna málsmeðferð og er í raun
úthýst af réttarkerfinu. Þannig vinn-
ur það gegn henni að hún var drukkin
þegar árásin átti sér stað, hún henti
nauðgaranum ekki út um leið og
árásinni lauk, hún svaraði sms-i frá
nauðgara sínum, nefndi ekki öll smá-
atriði við fyrstu skýrslutöku hjá lög-
reglu og var í meðferð hjá sálfræðingi
vegna fyrra áfalls. Taka má undir
undrun Gayle yfir að þessi atriði séu
tínd til til að veikja framburð hennar
meðan ekki má nefna ofbeldisfulla
fortíð gerandans svo kviðdómendur
heyri.
Lögmenn dómsmálsins sem áhorf-
endum er gefinn innsýn í, sækjandinn
Tim (Stefán Hallur Stefánsson) og
Edward eða Ed (Snorri Engilberts-
son) verjandi gerandans, takast ekki
aðeins á innan réttarsalsins – þar sem
þeir líkja yfirheyrslum og gagnyfir-
heyrslum við kappleik – heldur einnig
í persónulegum samskiptum utan
vinnustaðarins. Í forgrunni verksins
eru hjónin Ed og Kitty (Kristín Þóra
Haraldsdóttir) sem nýverið hafa
eignast soninn Leo. Á yfirborðinu lít-
ur allt vel út, en fljótlega kemur í ljós
að Kitty er enn í sárum eftir framhjá-
hald Eds fimm árum fyrr. Þar geta
þau að nokkru speglað sig í vinahjón-
unum og lögfræðingunum Jake
(Hallgrímur Ólafsson) og Rakel
(Birgitta Birgisdóttir), en Jake hefur
um langt skeið haldið gegndarlaust
framhjá Rakel og hættir því ekki fyrr
en hún hefnir sín.
Ólíkt Rakel virðist Kitty ekki drifin
áfram af hefndarþorsta. Það sem
særir hana mest er að Ed virðist
ómögulegt að setja sig í hennar spor
og skilja hversu miklum sársauka
framferði hans hafi valdið henni.
Jafnt í vinnunni og prívatlífinu reynir
Ed aðeins að sjá hlutina út frá vits-
munalegu sjónarmiði, enda er að
hans mati mikilvægara að fólk sé með
heilann á réttum stað en hjartað. Í ör-
væntingarfullri tilraun til að fá Ed til
að skilja sig heldur Kitty framhjá
með Tim, sem sjálfur er nýbyrjaður
með leikkonunni Zöru (Vigdís Hrefna
Pálsdóttir) sem er í kapphlaupi við
tímann um að eignast barn. Það flæk-
ir samskipti persónanna að Ed hefur
sjálfur verið að gera hosur sínar
grænar fyrir Zöru.
Áhugavert er að sjá hvernig Raine
stillir lögmannsstarfinu upp and-
spænis leikarastarfinu, en bæði störf
krefjast hæfileikans til að setja sig í
spor annarra. Framan af verki telur
Ed að hann þurfi ekki að hafa reynt
einhvern hlut til að hafa á honum
skoðun auk þess sem hann er sann-
færður um að hann myndi taka því af
yfirvegun ef haldið væri framhjá hon-
um – enda eina rökrétta afstaðan.
Þegar á reynir kemst Ed hins vegar
að því að það er mun auðveldara að
vera yfirvegaður þegar ekkert er í
húfi fyrir manneskjuna persónulega.
Ólíkt Kitty bregst Ed við framhjá-
haldinu af mikilli heift og breytist í of-
beldismann þegar hann hótar að
svipta hana syni þeirra, nauðgar
henni, eyðileggur eigur hennar og
sakar hana síðan um að vera geð-
veika. Athyglisvert er að það virðist
mest fara í taugarnar á Ed að hann
hafi verið kokkálaður af Tim. Þannig
verður framhjáhaldið enn einn kapp-
leikurinn milli karlmannanna tveggja
þar sem konur eru bara viðfang og
tæki.
Í viðtali við Morgunblaðið á frum-
sýningardag sagði Kristín Jóhannes-
dóttur, leikstjóri uppfærslunnar,
snilld verksins felast í því að áhorf-
endur væru alltaf að færa sig á milli
vogarskálanna til að halda með eða
hafna málflutningi hvers og eins.
Þannig sé það áhorfenda að vega og
meta sekt og sakleysi, sannleika og
lygi, rökhyggju og tilfinningar. Það
komi síðan í þeirra hlut að ákveða
hvort vegi þyngra; tilfinningar, sem
byggjast á samkennd, eða lög réttar-
ríkisins. Þessi túlkun leikstjórans
endurspeglast skýrt í tilkomumikilli
leikmynd Stígs Steinþórssonar sem
vegur stöðugt salt í samspili við sviðs-
umferðina þegar leikurinn á sér stað
á heimilum annars vegar Eds og
Kittyar og hins vegar Tims, en
nokkrar svipmyndir eru leiknar
framan við leikmyndina.
Það eru engin nýmæli að tefla fram
sem andstæðum skynsemi og tilfinn-
ingum, þar sem hið fyrra er sam-
kvæmt hefðinni karllægt og hið
seinna kvenlægt. En þegar Raine
reynir að heimfæra þetta yfir á tog-
streitu laga og tilfinninga fatast henni
flugið, því það er ekki ólöglegt að
hætta að elska aðra manneskju en
hins vegar refsivert að beita hana of-
beldi. Þegar verkið leggur síðan að
jöfnu nei eiginkonu við því að vera
nauðgað innan hjónabands og nei
eiginmanns við því að þessi sama
kona fari í fóstureyðingu þá hreinlega
slitnar þráðurinn.
Í reynd býður leikrit Raine ekki
upp á fyrrgreinda afstæðishyggju á
vogarskálinni, því frá höfundarins
hendi virðist ekkert fara á milli mála
að Gayle var órétti beitt – ekkert
frekar en það fer á milli mála að
tæknilega nauðgar Ed eiginkonu
sinni enda viðurkennir hann það í
öðru orðinu þó að hann reyni í hinu að
útskýra að það hafi ekki verið ásetn-
ingur hans. Eftir stendur að höfund-
ur notar kynferðisofbeldið fyrst og
síðast sem tæki til að skoða samskipti
karla. Að öllu framansögðu er leik-
hópnum verulegur vandi á höndum
að reyna að glæða leikritið, í annars
vandaðri þýðingu Þórarins Eldjárn,
lífi á íslensku sviði. Efniviðurinn gef-
ur engum færi á að glansa, þó að allir
skili sínu sómasamlega. Hallgrímur
Ólafsson náði ágætum tökum á húm-
ornum sem skrifaður er inn í hlutverk
Jake. Birgitta Birgisdóttir fær úr
litlu að moða sem Rakel og áhorfend-
um er það fullkomlega hulið hvers
vegna hún hætti við að fara frá Jake.
Vigdís Hrefna Pálsdóttir hafði fína
nærveru sem Zara og ekki við hana
að sakast þó að hlutverkið leystist
upp í seinni hlutanum. Hún á þó hrós
skilið fyrir góða textameðferð. Stef-
áni Halli Stefánssyni tókst vel að
miðla vandræðagangi Tims og inni-
byrgðri reiði. Snorri Engilbertsson
miðlaði vel tilfinningalegum kulda
Eds, en sennilega hefði farið betur á
því að hafa sterkara taumhald á til-
finningaflóðinu í seinni hlutanum
nema ætlunin hafi verið að undir-
strika leikaraskap persónunnar.
Kristín Þóra Haraldsdóttir býr yfir
einstökum hæfileika til að miðla sárs-
auka sem nýttist afar vel í erfiðu hlut-
verki Kittyar.
Arndís Hrönn Egilsdóttir fær það
vandasama hlutverk að túlka Gayle.
Plottsins vegna þarf hún að romsa
upp úr sér mikilvægum upplýsingum
fyrir áhorfendur, sem er ótrúverðugt
að þolandi myndi gera undir þessum
kringumstæðum. Samkvæmt for-
skrift höfundar leikur hún einnig
skilnaðarlögfræðing eftir hlé, sem
virkar skringilega í annars raunsæis-
legu verki. Leikstjórinn velur að
vinna á móti raunsæinu með því að
láta sviðsfólk leikhússins leiða per-
sónur inn og út af sviðinu líkt og þær
væru strengjabrúður. Ógerningur
var hins vegar að lesa merkingu í það
hvers vegna persónur voru bara
stundum leiddar.
Skiljanlega er freistandi að sækja
til útlanda leikrit sem vakið hefur
töluverða athygli ytra. Mikilvægt er
hins vegar að skoða menningar- og
félagslegt samhengi til að átta sig á
því hvort og hvernig tiltekið verk
passar við íslenskan raunveruleika.
Ólíkt breskum áhorfendum segir það
þeim íslensku lítið um bakgrunn eða
félagslega stöðu persóna hvort þær
búa í Camden, Forest Hill eða
Enfield og tala með skoskum hreim
eða Yorkshire-hreim. Með sama
hætti fara breskar lagatæknilegar
samræður að mestu fyrir ofan garð
og neðan. Í kynningu leikhússins á
Samþykki mátti hæglega halda að
hér væri á ferðinni spennandi verk
sem talaði beint inn í samtímann á
tímum #metoo. En þegar betur er að
gáð reynist þetta vera klisjukennt og
gamaldags verk um sjálfselska og
kaldlynda karlmenn sem víla ekki
fyrir sér að fórna hamingju og lífi
kvenna sjálfum sér til framdráttar,
enda er báðum nauðgunum verksins
sópað undir teppið með stórundar-
legum hætti sem er höfundi ekki til
sóma.
Veistu ef þú vin átt
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Kvöl „Kristín Þóra býr yfir einstökum hæfileika til að miðla sársauka sem nýttist afar vel í erfiðu hlutverki Kittyar.“
Þjóðleikhúsið
Samþykki bbmnn
Eftir Ninu Raine. Íslensk þýðing:
Þórarinn Eldjárn. Leikstjórn: Kristín
Jóhannesdóttir. Leikmynd: Stígur
Steinþórsson. Búningar: Þórunn María
Jónsdóttir. Lýsing: Halldór Örn Óskars-
son. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Hljóðmynd:
Elvar Geir Sævarsson. Leikarar: Arndís
Hrönn Egilsdóttir, Birgitta Birgisdóttir,
Hallgrímur Ólafsson, Kristín Þóra
Haraldsdóttir, Snorri Engilbertsson,
Stefán Hallur Stefánsson og Vigdís
Hrefna Pálsdóttir. Frumsýning á Stóra
sviði Þjóðleikhússins 26. október 2018.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
ICQC 2018-20
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
föstudaginn 30. nóvember
Við komum víða við í ár, heimsækjum
fjölda fólks og verðummeð fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
PÖNTUN AUGLÝSINGA: til 26. nóvember.
Morgunblaðsins kemur út
Jólablað