Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 1
Raunir
ofurkonu
4. NÓVEMBER 2018SUNNUDAGUR
Barnið semenginn vildi
Málþing umleikritið Rejúníoní Tjarnarbíói enþað fjallar umofurkonu semlendir í erfið-leikum þegarhún verðurmóðir 2
Skammdegiðendurspeglastí fatatískunnien heimafyrireru hlý ljósallsráðandi
20-22
Hasim Ægir Khan var hafnað í barnæsku,
bæði á Indlandi og Íslandi og lenti á götunni 16
Svartog hvítt
L A U G A R D A G U R 3. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 259. tölublað 106. árgangur
SNÚIÐ UPP Á
SANNLEIKANN
Í DÓMSMÁLI
DRULLU-
MALL LIST-
BANDALAGS
POST-DREIFING 44SAMÞYKKI Í LEIKHÚSI 47
AFP
Kosningar Trump með Josh Hawley, þing-
frambjóðanda repúblikana í Missouri.
Á þriðjudaginn verður kosið um
rúman þriðjung þingmanna í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings.
Demókratar eiga undir högg að
sækja í ár þar sem sitjandi þing-
menn flokksins eru í 26 af þeim 35
þingsætum sem kosið er um. Sam-
kvæmt fjölmiðlum og skoðanakönn-
unum vestanhafs þykir líklegt að
Repúblikanaflokkurinn muni bæta
við meirihluta sinn í þingdeildinni.
Metfjöldi kvenna er í framboði í
þingkosningunum í ár; 200 konur
bjóða sig fram fyrir demókrata og
60 fyrir repúblikana. Samkvæmt
könnunum eru hvítar háskóla-
menntaðar konur miklu líklegri til
að styðja demókrata og karlmenn
með enga háskólamenntun líklegri
til að styðja repúblikana. „Þetta er
kynjamunur á sterum,“ segir Cel-
inda Lake, sem vinnur úr niður-
stöðum skoðanakannana fyrir
demókrata. »22 og 24
Repúblikanar halda
líklegast meirihluta
í öldungadeildinni
Landsnet
» Landsnet miðar við að
tryggja 99,99% afhendingar-
öryggi raforku.
» Leysi Suðurnesjalína 1 út
detta 180 MW út, sem getur
valdið straumleysi víðar.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Umhverfismat vegna Suðurnesjalínu
2 er á lokametrunum, að sögn Írisar
Baldursdóttur, framkvæmdastjóra
kerfisstjórnunarsviðs Landsnets.
„Við vonumst til að geta skilað frum-
matsskýrslu til Skipulagsstofnunar í
þessum mánuði og að geta hafið
framkvæmdir síðla næsta árs,“ sagði
Íris. Í umhverfismatinu eru m.a.
skoðaðar blandaðar leiðir þar sem
horft er bæði til loftlína og jarð-
strengja.
Viðbúnaðaræfing vegna mögulegs
rafmagnsleysis á Suðurnesjum var
haldin í stjórnstöð Landsnets í gær.
Þar voru æfð viðbrögð við atburðum
sem hafa veruleg áhrif á afhend-
ingaröryggi raforku til Suðurnesja.
„Það að missa tenginguna við Suður-
nesin er einn af þeim atburðum í raf-
orkukerfinu sem hafa hvað mest
áhrif í dag,“ sagði Íris. Ástæða þess
er að aðeins ein háspennulína tengir
Reykjanesið við raforkudreifikerfið.
Íris sagði að ekki væri hægt að
tryggja viðunandi afhendingaröryggi
til jafn stórs samfélags og er á Suður-
nesjum með aðeins einni raflínu.
Loftlínur og jarðstrengir
Blandaðar leiðir eru skoðaðar í umhverfismati Suðurnesjalínu 2 sem er á loka-
metrunum Landsnet vonast til þess að framkvæmdir geti hafist síðla árs 2019
MSuðurnesjalína 2 … »6
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Seðlabanki Íslands tilkynnti í gær að
reglum frá júní 2016 um bindingu
reiðufjár vegna nýs innstreymis er-
lends gjaldeyris hefði verið breytt á
þá vegu að bindingarhlutfall regln-
anna færi úr 40% niður í 20%. Sagt
er í tilkynningu bankans að markmið
bindingarskyldunnar hafi verið að
tempra og hafa áhrif á samsetningu
innstreymis erlends fjármagns á
innlendan skuldabréfamarkað og há-
vaxtainnistæður, auk þess sem hún
átti að styrkja miðlunarferli pen-
ingastefnunnar. Minni vaxtamunur
gagnvart útlöndum og lægra gengi
krónunnar hafi hins vegar skapað
aðstæður til þess að lækka hlutfallið.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs Samtaka at-
vinnulífsins, segir að lækkun bindi-
skyldunnar sé mjög jákvætt og
tímabært skref. „Að okkar mati hafa
rökin fyrir beitingu innflæðishaft-
anna verið fremur veik við þær að-
stæður sem við höfum búið við
undanfarið, enda má líta á beitingu
slíkra hafta sem neyðarúrræði og
slíka neyð hefur ekki verið að sjá í ís-
lensku efnahagsumhverfi.“
Ásdís bætir við að ef aðgerðin opni
ekki á verulegt innflæði fjármagns
og ógni ekki fjármálalegum stöðug-
leika í landinu búist hún fastlega við
því að Seðlabankinn stígi frekari
skref og lækki bindiskylduna í 0%
eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
hefur m.a. ítrekað mælt með. »6
Lækka bindingarhlutfallið í 20%
Seðlabankinn breytir reglum vegna nýs innstreymis erlends gjaldeyris
Annir eru nú á dekkjaverkstæðum enda mikil-
vægt að bílar séu komnir á góð dekk þegar fer
að snjóa og götur verða hálar. Þessi mynd var
tekin hjá Barðanum í Skútuvogi í Reykjavík þar
sem vanir menn voru snöggir að afgreiða bílana.
Spáð er snjókomu á Norður- og Austurlandi um
helgina og gæti færð þar spillst. Sunnanlands og
vestan verður staðan betri þótt allra veðra sé
von þegar komið er fram í nóvember.
Hamagangur á hjólbarðaverkstæðunum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Setja bílana á vetrardekk þegar allra veðra er von
Svandís Svav-
arsdóttir heil-
brigðisráðherra
segist vongóð um
að það takist að
gera nýjan samn-
ing við sér-
greinalækna, en
rammasamn-
ingur þeirra við
Sjúkratrygg-
ingar Íslands
rennur út um áramótin. Segir hún í
samtali við Morgunblaðið í dag að
ómögulegt sé að segja til um hversu
lengi sérgreinalæknar verði án
samnings en hún hefur áður lýst yf-
ir vilja sínum til þess að framlengja
gildandi samning um eitt ár meðan
unnið sé að breyttu fyrirkomulagi.
»10
Svandís vongóð um
að samningar takist
Svandís
Svavarsdóttir
Fosshótel Austfirðir á Fáskrúðs-
firði verður lokað næstu þrjá mán-
uði eða fram til 1. febrúar næst-
komandi vegna lítillar aðsóknar.
Segir Davíð Torfi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandshótela, að
ekki sé grundvöllur fyrir að hafa
hótelið opið á þessum tíma og
reksturinn sé strembnari yfir vetr-
armánuðina á landsbyggðinni. Þá
segir Kristofer Oliversson, eigandi
CenterHotels, að mörg hótel muni
ekki bera stóraukinn launakostnað,
sérstaklega á landsbyggðinni. »4
Loka hótelinu í vet-
ur vegna aðsóknar