Morgunblaðið - 06.11.2018, Page 1
3.500 starfsmenn 33 Boeing vélar 46 áfangastaðir1.500 starfsmenn 20Airbus vélar 37 áfangastaðir
Stærð flugfélaganna
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Áreiðanleikakönnun mun leiða í ljós
hvort Skúli Mogensen, stofnandi og
forstjóri WOW air, fær 1 milljarð
eða allt að 3,6 milljarða fyrir fyrir-
tækið. Gengið var frá samningi um
kaup Icelandair Group á öllu hlutafé
fyrirtækisins í gærmorgun. Greitt
verður fyrir hlutinn með bréfum í
Icelandair Group, en heimildir
Morgunblaðsins herma að félagið
muni gefa út nýtt hlutafé til að fjár-
magna kaupin. Þá mun einnig vera í
skoðun að ráðast í umfangsmeira
hlutafjárútboð til þess að styrkja
grunnstoðir félagsins í kjölfar kaup-
anna.
Þreifingar um möguleg kaup Ice-
landair á WOW air hófust í byrjun
síðustu viku. Skriður komst hins
vegar á málið í kjölfar þess að
stjórn Icelandair var kölluð saman
til fundar eftir lokun markaða sl.
föstudag.
Viðræður milli aðila stóðu alla
helgina í húsakynnum KPMG í
Borgartúni en fyrirtækið er endur-
skoðandi beggja flugfélaga.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að á laugardag hafi grundvöllur fyr-
ir samningaviðræðum verið kann-
aður. Kom afar þröngur hópur fólks
frá báðum félögum að því samtali.
Þegar ljóst var að grundvöllur til
samninga var til staðar var hópur-
inn víkkaður út á sunnudagsmorg-
un. Var þá unnið sleitulaust að því
að binda lausa enda og róið var öll-
um árum að því að senda út tilkynn-
ingu um viðskiptin fyrir opnun
markaðarins í gær. Þá var Fjár-
málaeftirlitinu og forystumönnum
ríkisstjórnarinnar einnig haldið
upplýstum um framgang mála.
Ekki náðist að undirrita samn-
inga fyrir opnun markaða í gær.
Var þá Kauphöll gert viðvart og
kannað hvort loka ætti fyrir við-
skipti með bréf Icelandair Group.
Ákveðið var að aðhafast ekki fyrr
en á 12. tímanum í gær þegar lokað
var fyrir viðskipti með félagið í
rúma klukkustund. Fram að því
fylgdust sérfræðingar Kauphallar-
innar náið með framvindu mála.
Eftir að opnað var fyrir viðskipti að
nýju upp úr kl. 13.00 í gær hækkuðu
bréf félagsins á tímabili um meira
en 50%. Við lok dags stóð hækkunin
í tæpum 40% og markaðsvirðið
hafði aukist um 15 milljarða króna.
Uppstokkun á markaði
Mikil umskipti á flugmarkaði
eftir að Icelandair Group keypti
allt hlutafé WOW air í gærdag
Skúli Mogensen, eigandi
WOW air, fær á bilinu 1 til 3,6
milljarða í sinn hlut eftir söluna
Icelandair Group gefur út
nýtt hlutafé til þess að fjármagna
kaup á öllu hlutafé WOW air
MWOW air keypt »2, 12, 14, 18
Þ R I Ð J U D A G U R 6. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 261. tölublað 106. árgangur
CARMEN VAR
FYRSTA RAUÐ-
SOKKAN ÚTÓN MEÐ RÁÐSTEFNU
ICELAND AIRWAVES
ÁST Í MEINUM Í
SEINNI HEIMS-
STYRJÖLD
TÓNLISTARVEISLA 33 MIKILVIRKUR PENNI 11HAFNARBORG 30
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tæplega 2.200 fleiri erlendir ríkis-
borgarar fluttu til Íslands á þriðja
fjórðungi en fluttu þá frá landinu.
Hins vegar fluttu tæplega 300 fleiri
íslenskir ríkisborgarar frá landinu
en fluttu til landsins.
Má lesa þetta úr nýjum mann-
fjöldatölum Hagstofunnar.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, segir brottflutn-
ing íslenskra ríkisborgara alltaf tölu-
verðan á þriðja fjórðungi út af námi
erlendis á haustönn. „Sé mynstrið í
búferlaflutningum skoðað yfir árið
bendir líkan mitt til að heldur fleiri
Íslendingar muni flytjast hingað en
flytja burt. Brottflutningur vegna
náms á haustönn jafnast út á síðasta
fjórðungi,“ segir hann.
Árið í öðru sæti sögunnar
Alls fluttu 3.610 erlendir ríkis-
borgarar til landsins á þriðja fjórð-
ungi en 1.000 íslenskir ríkisborgarar.
Á móti kom að 1.440 erlendir ríkis-
borgarar og 1.280 íslenskir ríkis-
borgarar fluttu frá landinu. Með
þessum búferlaflutningum er árið
2018 í öðru sæti í sögunni hvað varð-
ar aðflutta erlenda ríkisborgara.
Hafa samtals 5.630 fleiri erlendir
ríkisborgarar flutt til landsins á
fyrstu níu mánuðum ársins en fluttu
þá frá landinu. »10
Enn straumur til landsins
Íslenskir ríkisborgarar flytja margir út vegna náms
Morgunblaðið/Hari
Borg Íbúum fer hratt fjölgandi.
Kosið verður um sameiningu SFR
og Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar í dag. Verði sameiningin
samþykkt verða félagsmenn sam-
einaðs félags 10.300 talsins, sem er
nærri helmingur félagsmanna
BSRB og þriðja stærsta stéttar-
félag landsins. Formenn félaganna,
sem eru þau langstærstu innan
BSRB, tala fyrir sameiningu. Áður
höfðu félögin augljósa aðgreiningu;
SFR – stéttarfélag í almannaþjón-
ustu var félag ríkisstarfsmanna en
Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar var félag borgarstarfs-
manna. Skiptingin hefur riðlast
nokkuð, m.a. vegna færslu verk-
efna frá ríki til sveitarfélaga og
stofnunar opinberra hlutafélaga
um rekstur opinberra stofnana. »6
Kosið um samein-
ingu tveggja félaga
Útsöluverð nýrra bíla hér á landi
er tekið að hækka vegna breytinga á
mengunarstaðli vegna útblásturs
bíla sem tóku gildi 1. september í
Evrópu. Er um að ræða svonefndan
WLTP-staðal sem felur í sér hertar
reglur um losunarmælingar á út-
blæstri bifreiða. Þetta veldur því að
skráð losun koltvísýrings frá bílum
hækkar um 10-40% frá því sem verið
hefur samkvæmt svonefndri NEDC-
losunarmælingu.
Frumvarp fjármála- og efnahags-
ráðherra um breytingar á vöru-
gjaldi ökutækja o.fl., sem er til með-
ferðar á Alþingi, tekur ekki gildi
fyrr en 1. janúar nk. verði það sam-
þykkt. Á það að koma í veg fyrir
ósamræmi í skattlagningu ökutækja
vegna þessara breytinga. »18
Nýr mengunarstað-
all hækkar bílverð