Morgunblaðið - 06.11.2018, Side 2
Morgunblaðið/Hari
Fundur Starfsfólk WOW air kemur út af starfsmannafundinum.
Áfangastaðir WOW air í N-Ameríku
Boston
Chicago
Dallas
Detroit
Los Angeles
Montréal
New York
Orlando
Pittsburgh
San Francisco
St. Louis
Toronto
Vancouver
Washington DC
Áfangastaðir Icelandair í N-Ameríku
Anchorage
Baltimore
Boston
Chicago
Cleveland
Dallas
Denver
Edmonton
Halifax
Kansas City
Minneapolis
Montréal
New York
Orlando
Philadelphia
Portland
San Francisco
Seattle
Tampa
Toronto
Vancouver
Washington DC
Áfangastaðir Icelandair í Evrópu
Amsterdam
Bergen
Berlín
Billund
Brussel
Dublin
Düsseldorf
Frankfurt
Gautaborg
Genf
Glasgov
Hamborg
Helsinki
Kapmannahöfn
London
Madrid
Manchester
Mílanó
Munchen
Osló
Paris
Reykjavík
Stokkhólmur
Zurich
Áfangastaðir WOW air í Evrópu
Alicante
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Brussel
Dublin
Düsseldorf
Edinborg
Frankfurt
Gran Canaria
Kaupmannah.
London
Lyon
Mílanó
París
Reykjavík
Salzburg
Stokkhólmur
Tenerife
Varsjá
Tel Aviv
Nýja-Delí
Áfangastaðir Icelandair og WOW air
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Betra er eitt félag á flugi en tvö í
blindflugi ef marka má skilaboð Joh-
ans Lundgren, forstjóra EasyJet,
um fyrirhugaða sameiningu íslensku
flugfélaganna Icelandair og WOW
air. Lundgren tjáði sig um fréttir
gærdagsins á WTM-ferðaráðstefn-
unni sem var sett í Bretlandi í gær.
„Félögin hafa eflaust komist að
þeirri niðurstöðu að það væri far-
sælla að reka eitt starfandi og arð-
bært félag í stað þess að berjast til
dauða,“ sagði Lundgren skömmu eft-
ir tilkynningu Icelandair Group til
Kauphallar Íslands um kaupsamning
sem stjórn félagsins hafði gert um
allt hlutafé í WOW air. Samningur-
inn náðist eftir tveggja sólarhringa
viðræður milli félaganna tveggja, að
því er fram kom í bréfi Skúla Mogen-
sen, forstjóra og stofnanda WOW
air, til starfsmanna félagsins í gær.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair, staðfestir í skriflegu svari til
Morgunblaðsins að viðræðurnar hafi
hafist um helgina og tekið stuttan
tíma. Kaupin eru háð samþykki hlut-
hafa Icelandair Group og Sam-
keppniseftirlitsins.
Í bréfi Skúla til starfsmanna sagði
hann að engin breyting yrði á dag-
legum rekstri WOW air, en félagið
verður sjálfstætt dótturfélag Ice-
landair. Seint í gærkvöldi barst Sam-
keppniseftirlitinu hluti þeirra gagna
sem stofnunin þarfnast vegna sam-
runatilkynningar félaganna og má
vænta niðurstöðu stofnunarinnar
innan 25 virkra daga. eftir að öll
gögnin berast henni. Nánar er fjallað
um kaupsamninginn á viðskiptasíðu
Morgunblaðsins í dag.
37% áfangastaða þeir sömu
Félögin tvö fljúga samtals til 56
borga samkvæmt flugáætlun þeirra.
Icelandair flýgur til 45 áfangastaða
en WOW air á 37 flugvelli á 35
áfangastöðum, en félagið flýgur til
tveggja flugvalla í London og New
York. Miðast talningin bæði við þá
staði sem WOW air flýgur enn til en
hefur tilkynnt að látið verði af eftir
áramót, þá staði sem einungis er
flogið til hluta af ári og þá sem til-
kynnt hefur verið að flug hefjist fljót-
lega til, eins og Nýju-Delí og Tel
Aviv. Rúmlega þriðjungur flugleiða
félaganna eru þær sömu, þar á meðal
sex vinsælustu áfangastaðir Ice-
landair: New York, Boston, Wash-
ington, London, París og Kaup-
mannahöfn.
Fréttir af fyrirhugaðri sameiningu
vöktu eðlilega sterk viðbrögð í gær,
bæði hér á landi og í erlendum frétta-
miðlum. Viðmælendur Morgunblaðs-
ins litu flestir sameininguna jákvæð-
um augum enda ljóst að gangi hún
eftir styrkist horfur ferðaþjónust-
unnar hér á landi umtalsvert eftir
tíma óvissu um framtíð WOW.
Stéttarfélög flugstarfsfólks sögðu
heldur minna en meira í samtali við
Morgunblaðið í gær og bíða frekari
upplýsinga. Formaður Íslenska flug-
mannafélagsins, stéttarfélags flestra
flugmanna WOW air, sagði fé-
lagsmenn sína þó taka fréttunum
með jafnaðargeði, en Örnólfur Jóns-
son, formaður Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, vildi ekki tjá sig að
svo stöddu að öðru leyti en að breyt-
ingum fylgdu alltaf tækifæri.
Neytendasamtökin sendu í gær-
kvöldi ályktun til fjölmiðla þar sem
þau beina þeim tilmælum til Sam-
keppniseftirlitsins að í umfjöllun um
sameiningu félaganna verði fyrst og
fremst tekið mið af hagsmunum
neytenda. Skoraði félagið jafnframt
á Icelandair að velta ekki kostnaði yf-
ir á herðar neytenda.
Sameining betri en dauði
WOW air verður sjálfstætt dótturfélag Icelandair Group verði tilboð stjórnar Icelandair samþykkt af
hluthöfum félagsins og Samkeppniseftirlitinu Aðilum ferðaþjónustunnar er létt vegna minni óvissu
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Við tökum þessu með stóískri ró og höld-
um áfram þeirri góðu vinnu sem hefur átt
sér stað hjá stéttarfélaginu og WOW air,“
segir Vignir Örn Guðnason, formaður Ís-
lenska flugmannafélagsins, en flestir flug-
menn WOW air eru í félaginu. „Við höldum
ótrauðir áfram óháð því hverjir eru eig-
endur,“ segir hann.
Vignir ræddi við marga flugmenn hjá
WOW air í gær sem eðlilega hefðu ýmsar
spurningar um framhaldið. Hins vegar segist hann ekki finna
fyrir neinni hræðslu meðal félagsmanna sinna um framhaldið.
„Ég held að menn séu jákvæðir og þeir verða að vera það,“
segir Vignir en hann mun funda með WOW air í dag. Hann seg-
ir að á starfsmannafundi sem WOW air boðaði til í gær hafi ver-
ið tilkynnt að rekstrinum verði haldið áfram í óbreyttri mynd.
Finnur ekki fyrir hræðslu hjá flug-
mönnum WOW air vegna kaupanna
„Það er mikilvægt að íslenskur flugrekstur
sé öflugur og geti keppt á alþjóðamarkaði.
Það verður líka að hafa hugfast að miklu
fleiri flugfélög fljúga nú til landsins en áður
og það skiptir máli að sú samkeppni verði
áfram virk. Ferðaþjónustan er ein af okkar
mikilvægustu atvinnugreinum og það er
æskilegt að henni verði tryggður sem mest-
ur stöðugleiki,“ segir Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra.
Hún hafði spurnir af viðræðum félaganna um helgina.
„Nú fer þetta mál til skoðunar hjá þar til bærum yfir-
völdum. Við fylgjumst áfram vel með stöðu mála eins og við
höfum verið að gera,“ bætir hún við.
Ferðamálaráðherra hafði spurnir af
viðræðum félaganna um helgina
Breytir ekki áformum um stækkun
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Kaup Icelandair á WOW air hafa ekki
áhrif á áform Isavia um stækkun Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar. „Við hjá Isavia
fylgjumst vel með fréttum af kaupum Ice-
landair á WOW air enda um okkar
stærstu viðskiptavini að ræða,“ segir Guð-
jón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia.
„Ef þessi kaup verða til þess að styrkja
bæði félög er það ánægjuefni fyrir okkur.
Hvað stækkunaráform okkar til næstu ára
varðar, þá er löngu ljóst að aukið rými þarf í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar til að þjónusta sem best þann fjölda ferðafólks
sem nú þegar fer um Keflavíkurflugvöll. Þeim áætlunum
hefur ekki verið breytt,“ segir hann. Fyrr á árinu var áætl-
að að fjárfest yrði fyrir samanlagt 115 til 125 milljarða
króna til ársins 2025.
„Flugfargjöld hafa verið býsna lág og
bæði fyrirtækin hafa verið að tapa pen-
ingum, sem bendir til þess að það sé of
ódýrt að fljúga og ég held að samkeppni
frá erlendum flugfélögum sé algjörlega
nægjanleg og hún er orðin mjög öflug,
bæði frá Ameríku og Evrópu,“ segir
Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferða-
málastjóri og fyrrverandi forstjóri Iceland
Express.
Skarphéðinn Berg telur kaupin jákvæða
lausn fyrir bæði félög. „Ég held að það sé hellings áskorun
að vinna úr þessari sameiningu, en ég held að menn muni
alveg geta gert það,“ segir hann.
Taprekstur flugfélaganna bendir til
þess að fargjöld hafi verið of lág
Icelandair kaupir WOW air
„Þessi tíðindi eru jákvæð og eyða ákveðinni
óvissu, ekki síst gagnvart fyrirtækjum í
ferðaþjónustu um land allt,“ segir Jóhann-
es Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar. „Á síðustu miss-
erum hefur verið nokkur ókyrrð í kringum
íslensk flugfélög sem hafa glímt við erfið-
leika, m.a. vegna hækkunar á olíuverði og
launakostnaði. Íslensk flugfélag eiga í
harðri alþjóðlegri samkeppni og með þess-
um viðskiptum verður Icelandair betur í stakk búið í þeirri
samkeppni,“ segir Jóhannes. „Það skiptir höfuðmáli að stöð-
ugleiki ríki í atvinnugreininni. Þetta eru því jákvæð tíðindi
fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu um allt land, enda verðum við
að geta treyst á öflugar og góðar samgöngur til og frá land-
inu. Við lítum framtíðina því björtum augum.“
Eyðir ákveðinni óvissu gagnvart
ferðaþjónustufyrirtækjunum
Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flug-
freyjufélags Íslands, segir tíðindin hafa
komið á óvart í gærmorgun. Innan flug-
freyjufélagsins eru flugliðar Icelandair,
WOW air og Air Iceland Connect.
„Við höldum óbreyttum áformum hjá
okkur. Við erum með mismunandi kjara-
samninga við einstaka viðsemjendur. Flug-
liðar hjá Icelandair og Air Iceland Connect
eru hvorir á sínum kjarasamningnum þótt
eignarhaldið sé það sama,“ segir Berglind. Hún vonast til þess
að ekki þurfi að grípa til uppsagna og segir að félagið muni
fylgjast grannt með þróun mála næstu daga og félagsmenn
verði kallaðir saman eftir þörfum.
Formaður Flugfreyjufélagsins vonar
að ekki komi til uppsagna flugliða