Morgunblaðið - 06.11.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.11.2018, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Landsbankinn hf. býður til sölu, í heild eða að hluta, allt að 12,1% eignarhlut í fjárfestingarfélaginu Eyri Invest hf. Eyrir Invest hf. er fjárfestingarfélag sem stofnað var árið 2000. Langstærsta eign Eyris Invest hf. er 25,9% eignarhlutur í Marel hf. Eyrir Invest hf. á einnig tæpan helmings hlut í Eyri Sprotum slhf., fjárfestingarfélagi sem fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum og um þriðjungshlut í Efni ehf., sem sérhæfir sig í að byggja upp nýjar markaðs- og söluleiðir fyrir fyrirtæki í gegnum netsölu og samfélagsmiðla. Söluferlið fer fram í samræmi við stefnu Landsbankans um sölu eigna og er öllum opið sem teljast vera hæfir fjárfestar samkvæmt skilgreiningu í 9. tölulið 43. greinar laga nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti. Áhugasamir fjárfestar geta haft samband við Fyrirtækjaráðgjöf Lands- bankans með því að senda tölvupóst á netfangið soluferli@landsbankinn.is. Þá má nálgast stutta sölukynningu, trúnaðaryfirlýsingu, eyðublað vegna hæfismats, upplýsingar um lágmarksverð, lágmarksfjárhæð tilboða og aðra tilboðsskilmála, ásamt mati á hagsmunaárekstrum á vef bankans, www.landsbankinn.is. Fjárfestar sem undirritað hafa trúnaðaryfirlýsingu og uppfylla hæfisskilyrði fyrir þátttöku í söluferlinu fá afhent ítarlegri kynningargögn um Eyri Invest hf. og gera tilboð á grundvelli þeirra. Eingöngu verður tekið við tilboðum á sérstöku tilboðsformi og samkvæmt þeim skilmálum sem þar koma fram og hægt er að nálgast hjá umsjónaraðila söluferlisins, Fyrirtækjaráðgjöf Lands- bankans. Tilboðsfrestur er til kl. 12.00 miðvikudaginn 28. nóvember 2018. Opið söluferli á hlut Landsbankans í Eyri Invest Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Bolir Kr. 4.900 Str. 40-56 • Fleiri litir Skrekkur, hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, fer fram um þessar mundir á stóra sviði Borgarleikhússins. Í ár taka þátt í keppninni 26 grunnskólar með ung- lingadeild í Reykjavík og eru öll verk sem flutt verða frumsamin af ungling- unum sem jafnframt eru leikarar. Í þessari viku fara undanúrslit fram í Borgarleikhúsinu. Fyrsta keppnis- kvöldið var í gær, 5. nóvember, en einnig er keppt í kvöld og annað kvöld, 6. og 7. nóvember. Úrslitakvöldið er 12. nóvember. Átta skólar stíga á stóra sviðið á mánudag, níu á þriðjudag og níu á miðvikudag. RÚV sýnir beint frá úrslitakvöldi Skrekks en að þessu sinni eru undanúrslitakvöldin í beinni vefútsendingu á ungruv.is. Dómnefnd undanúrslitakvöldanna skipa: Halla Margrét Jóhannesdóttir, Ernesto Camilo, Bryndís Jakobsdóttir, Ásta Glódís, fulltrúi ungmennaráðs Samfés, og Sigfríður Björnsdóttir, for- maður dómnefndar, deildarstjóri list- fræðslu hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Dómnefnd úrslitakvölds- ins skipa stjórnendur menningarhúsa í borginni; Borgarleikhússins, Þjóð- leikhússins, Hörpu og Íslenska dans- flokksins, auk ungmenna úr ungmennaráði Samfés. Skrekkur á sviði Borgarleikhússins 26 grunnskólar í Reykjavík keppa Morgunblaðið/Hari Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ástin er límið í sögunni.Kannski þurfa öll skáld-verk að hafa slíkt element.Það er einatt svo að funi kveikist af funa og oftast einhver fót- ur fyrir atburðarásinni,“ segir Finn- bogi Hermannsson, fréttamaður og rithöfundur. Út er komin hjá forlag- inu Sæmundi heimildaskáldsagan Undir hrauni, þar sem Finnbogi segir sögu sem á upphaf sitt í því að þýska flutningaskipið Bahía Blanka sökk út af Vestfjörðum snemma árs 1940. Áhöfn skipsins var bjargað um borð í íslenskan togara og flutt til Reykja- víkur þar sem skipbrotsmennirnir dvöldust fram á sumarið 1940. Þjóðverjar á flótta Þegar Bretar hertóku Ísland, 10. maí, var forgangsverk hernámsliðs- ins að taka alla Þjóðverja á Íslandi höndum og koma þeim úr landi. Hinir þýsku sjómenn vissu strax hvað klukkan sló. Þeir héldu strax að morgni hernámsdagsins út fyrir bæ- inn, dulbúnir sem skátar, og komust þannig fram hjá breskum varð- mönnum við vegartálma klæddir sem skátadrengir á leið í útilegu. En áður en að flóttanum austur á Rangárvelli kom gerðist lítið ævin- týri. Með hinum þýska Waldemar Ul- rich og Helgu Maríu, sem svo er nefnd í bókinni, tókust ástir og heitar tilfinningar, saga sem ber bókina uppi. „Það eru um þrjú ár síðan ég komst í kynni við þessa sögu sem mér fannst áhugaverð. Þetta gerðist fyrir bráðum áttatíu árum og því er sagan af Bahía Blanka að fyrnast, er hjúpuð ákveðnum leyndardómi og aðeins sögð í skáldsöguformi. Það er svo verk sagnfræðinga ef þeir nenna að komast nær,“ segir Finnbogi. Ekki er launungarmál að stúlkan í sögunni Undir hrauni er spegilmynd af manneskju sem var af holdi og blóði. Sú hét Þórunn Anna María, var dóttir Tryggva Gunnarssonar, alþing- ismanns, bankastjóra og brúarsmiðs. „Vitanlega er ástarsaga úr stríði ákaflega vandmeðfarið efni og auð- velt að misstíga sig. Ég vona að mér hafi tekist að sigla þarna milli skers og báru,“ tiltekur Finnbogi og bætir við að alþekkt sé sú saga að þýsku piltarnir hafi verið látnir vinna fyrir mat sínum hjá bóndanum í Selsundi. Til frásagnar um tildragelsi „Ég var austur í sveitum um daginn og fann að fólk í héraði þekkti söguna um Þjóðverjana og var hún jafnvel komin til þriðju kynslóðar,“ segir Finnbogi. „Þarna voru aldnir héraðsbúar sem lifað höfðu þessa at- burði og voru forvitnir um tök höf- undar á þeim. Hvers vegna þetta hefur ekki ratað í sögubæk- ur eða í annála veit ég ekki. Og upp við Selsund er Gamlaból þar sem drengirnir höfðust við lung- ann úr sumrinu 1940 og þangað kom Helga María í heimsókn sumarið 1940. Í því samhengi kemur í hugann minnið um Höllu og Eyvind, þó við aðrar aðstæður.“ Finnbogi tiltekur jafnframt að í litlu Reykjavík árið 1940 hafi fátt far- ið fram hjá fólki og einn heimildar- manna hans sem býr í Reykjavík, að verða hundrað ára, hafi verið ágæt- lega til frásagnar um þetta tildra- gelsi. Sagan lifði og ýmsir voru til frá- sagnar. Lesendur verða þó að hafa í huga að bókin er – að breyttu breyt- anda – heimildaskáldsaga og fylgir lögmálum slíkra verka. Mikilvirkur höfundur Á síðustu árum hefur Finnbogi Hermannsson sent frá sér allmargar bækur og er mikilvirkur rithöfundur. Þar skal fyrst nefnd þrílógía; sögur úr æskuveröld hans í Reykjavík á eftirstríðsárunum. Fyrsta bókin var Í húsi afa míns, og henni fylgdu svo Í fótspor afa míns og hin þriðja og síð- asta var var Úr húsi afa míns. Þá skrifaði hann ævisögu Steinólfs Lárussonar, bónda í Innri-Fagradal í Dölum, og skáldsagan Virkið í vestri gerist meðal annars á Straumnesfjalli vestur á fjörðum, þar sem Banda- ríkjamenn ráku á sínum tíma radar- stöð sem hafði miklu hlutverki að gegna á tímum kalda stríðsins. Þannig eiga sögur höfundarins sér sumar hverjar rætur í menningu hers og styrjalda. Kunnastur er Finnbogi þó sem fréttamaður Ríkisútvarpsins í áratugi, var þá rödd Vestfjarða á öld- um ljósvakans sem flutti fréttir og annan mikilvægan fróðleik að vestan. Það er fótur fyrir atburðarásinni Ást í meinum í heimsstyrj- öld. Sá er söguþráðurinn í heimildaskáldsögu Finn- boga Hermannssonar, sem er nýkomin út. Margt hangir í spýtunni og sag- an greinir frá undarlegu samspili ásta ungs fólks og örlaga þess. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hekla Gnæfir yfir Suðurlandið og er svipsterk. Undir rótum fjallsins dvöldust þýskir sjómenn sumarið 1940 en voru að lokum teknir höndum. Rithöfundur Finnbogi Hermannsson á vinnustofu sinni þar sem kötturinn heldur honum selskap. Finnbogi var í áratugi fréttamaður Ríkisútvarpsins á Vestfjörðum en hefur nú á síðari árum helgað sig bókarskrifum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.