Morgunblaðið - 06.11.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018
Rauðager
ði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Vatnskælar á frábæru verði
25-35%
Afsláttur
• Keyptann og eigðann
• Ekkert mánaðargjald
• Lítið viðhald
• Sjá nánar á
heimasíðu Kælitækni
www.kaelitaekni.is
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Kjósendur í 37 ríkjum Bandaríkj-
anna munu ákvarða um 155 mál-
efni með beinu lýðræði í dag. Sam-
kvæmt hinni ópólitísku kosninga-
upplýsingasíðu Ballotpedia hafa
þrýstihópar eytt um 1,12 millj-
örðum bandaríkjadala til að hafa
áhrif á þau málefni sem íbúar
hvers ríkis fá að kjósa um. Málefni
enda með mismunandi hætti á
kjörseðlinum en óbreyttir borg-
arar sem og vel fjármagnaðir
þrýstihópar geta komið ýmsum
málefnum á kjörseðilinn hverju
sinni með undirskriftasöfnun. Í
Nevada og Arizona er meðal ann-
ars kosið um hvort það eigi að
skylda orkufyrirtæki til að fram-
leiða meira af umhverfisvænni
orku, sólar- og vindorku. Málefni
sem var þrýst á kjörseðilinn af
þrýstihópnum NextGen Climate
Action, sem er í eigu milljarða-
mæringsins og demókratans Toms
Steyers.
Íbúar í Norður-Dakóta og Mich-
igan munu kjósa um hvort lögleiða
eigi kannabis og í Utah og Mis-
souri verður kosið um hvort lög-
leiða eigi kannabisnotkun í lækn-
ingaskyni.
Kjörskrá sveifluríkis undir
Íbúar í Flórída kjósa hins vegar
um málefni sem gæti haft mikil
áhrif á næstu forsetakosningar.
Kjósendur í þessu stærsta sveiflu-
ríki Bandaríkjanna kjósa um
hvort um 1,5 milljónir fyrrverandi
fanga eigi að fá kosningarétt
aftur. Þeir sem hafa verið dæmdir
fyrir alvarleg afbrot í Flórída,
sem og þremur öðrum ríkjum
Bandaríkjanna, glata kosninga-
rétti sínum ævilangt. Hingað til
hafa fangar þurft að sækja um að
fá kosningaréttinn aftur á skrif-
stofu ríkisstjórans í Flórída. Þar
er hvert mál ákveðið fyrir sig og
alls ekki öruggt að viðkomandi fái
kosningaréttinn aftur.
Ríkisstjóraframbjóðandi Demó-
krataflokksins, Andrew Gillum,
styður málefnið og vill að fangar
endurheimti kosningarétt eftir af-
plánun en Ron Desantis, frambjóð-
andi Repúblikanaflokksins, er
mótfallinn því. Þarf málefnið að fá
yfir 60% stuðning í kosningunum
til að verða að lögum. Samkvæmt
könnun Suffolk-háskólans sem
gerð var 25.-28. október styðja
70% íbúa Flórída það að fyrr-
verandi fangar endurheimti kosn-
ingarétt sinn.
Þrettán málefni í Flórída
Kjörseðillinn í Flórída í ár er
hins vegar með óhemjumörgum
málefnum sem íbúar fá að kjósa
um; alls eru þrettán málefni á
kjörseðlinum. Meðal þess sem íbú-
ar fá að ákveða er hvort eigi að
leyfa spilavíti í Flórída, banna
notkun rafrettna á vinnustöðum
innandyra, banna ákveðna tegund
af veðmálum um mjóhundakapp-
hlaup og hækka eftirlaunaaldur
dómara í 75 ár svo dæmi séu
tekin.
Í fjórum ríkjum, Colorado, Mich-
igan, Missouri og Utah, verður
kosið um hvort breyta eigi reglum
um hvernig kjördæmalínur eru
teiknaðar, m.a. með því að setja
upp nefnd sem þarf að samþykkja
kjördæmin sem stjórnmálamenn
ákveða hverju sinni. Niðurstaðan
úr þeirri kosningu gæti einnig haft
áhrif á kosningar komandi ára.
Hér þar að hafa í huga að
stundum eru þessi málefni sem
enda á kjörseðlinum sérstaklega
sett þar til að reyna að koma kjós-
endum á kjörstað. Í Norður-
Karólínu er kosið um hvort stjórn-
arskrá ríkisins eigi að innihalda
réttinn til skot- og stangveiða til
að reyna að fá íhaldssama kjós-
endur á kjörstað. Þá eru kosn-
ingar um t.d. lögleiðingu kanna-
biss líklegri til að draga unga og
framfarasinnaða kjósendur á kjör-
stað. Þannig eru oft framfaramál-
efni á kjörseðlinum í ríkjum þar
sem repúblikanar eru með meiri-
hluta og íhaldssöm málefni á kjör-
seðlinum í frjálslyndari ríkjum. Í
Kaliforníu er t.d. kosið um hvort
eigi að lækka skatta á eldsneyti,
málefni sem repúblikanar í Kali-
fornínu hafa ekki farið leynt með
að sé þar til að fá hægrisinnaða
kjósendur á kjörstað.
Kosið um aukinn stuðning
til heilbrigðistrygginga
í fjórum ríkjum
Í Idaho, Utah, Nebraska og
Montana verður kosið um hvort
ríkin eigi að setja aukið fé í
Medicaid-kerfið, heilbrigðistrygg-
ingar fyrir lágstéttarfólk í Banda-
ríkjunum. Stjórnmálamenn í þess-
um fjórum ríkjum kusu gegn því
að auka fé í Medicaid fyrir fjórum
árum og því verður áhugavert að
sjá hvort íbúar séu sammála eða
ósammála kjörnum fulltrúum.
Ríkin fengu þann valmöguleika
að auka stuðning við Medicaid
með setningu heilbrigðistrygg-
ingalaga sem Barack Obama kom
á, betur þekkt sem Obamacare.
Löggjöf sem þingmenn repúblik-
ana hafa reynt ótal sinnum að fella
í báðum þingdeildum. Repúblik-
anar hafa sterkt fylgi í öllum þess-
um fjórum ríkjum sem kjósa um
Medicaid. Medicaid er þó vinsælt
meðal kjósenda og hefur fráfar-
andi ríkisstjóri Idaho, repúblik-
aninn Butch Otter, meðal annars
hvatt kjósendur til að kjósa með
því að fá aukafjárstuðning í
Medicaid.
Kosningaréttur fanga á kjörseðlinum
Flórídabúar kjósa um hvort fangar endurheimti kosningarétt sinn að lokinni afplánun Gæti
haft mikil áhrif á næstu forsetakosningar Bein kosning í BNA um allt frá kannabis yfir í spilavíti
AFP
Ríkisstjórakosningar Ron Desantis, frambjóðandi repúblikana til ríkisstjóra Flórída, á kosningaviðburði með
Donald Trump Bandaríkjaforseta. Desantis er á móti því að fangar endurheimti kosningarétt sinn eftir afplánun.
Rússneskir hermenn gengu fylktu liði á Rauða torginu í hjarta Moskvu í
gær, en verið var að æfa fyrir hátíðarhöld í tengslum við minningarathöfn
sem þar fer fram 7. nóvember nk. Verður þess þá minnst að 77 ár eru liðin
frá því að hersveitir Sovétríkjanna sálugu héldu til átaka gegn innrásarher
Þriðja ríkis Þýskalands. Voru hermennirnir á æfingu sinni klæddir í sams
konar fatnað og sovéthermenn klæddust á vígvöllum síðari heimsstyrjaldar.
AFP
Þrammað á Rauða torginu
Minnast átakanna við hersveitir nasista