Morgunblaðið - 06.11.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.11.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Rauðager ði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Vatnskælar á frábæru verði 25-35% Afsláttur • Keyptann og eigðann • Ekkert mánaðargjald • Lítið viðhald • Sjá nánar á heimasíðu Kælitækni www.kaelitaekni.is Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Kjósendur í 37 ríkjum Bandaríkj- anna munu ákvarða um 155 mál- efni með beinu lýðræði í dag. Sam- kvæmt hinni ópólitísku kosninga- upplýsingasíðu Ballotpedia hafa þrýstihópar eytt um 1,12 millj- örðum bandaríkjadala til að hafa áhrif á þau málefni sem íbúar hvers ríkis fá að kjósa um. Málefni enda með mismunandi hætti á kjörseðlinum en óbreyttir borg- arar sem og vel fjármagnaðir þrýstihópar geta komið ýmsum málefnum á kjörseðilinn hverju sinni með undirskriftasöfnun. Í Nevada og Arizona er meðal ann- ars kosið um hvort það eigi að skylda orkufyrirtæki til að fram- leiða meira af umhverfisvænni orku, sólar- og vindorku. Málefni sem var þrýst á kjörseðilinn af þrýstihópnum NextGen Climate Action, sem er í eigu milljarða- mæringsins og demókratans Toms Steyers. Íbúar í Norður-Dakóta og Mich- igan munu kjósa um hvort lögleiða eigi kannabis og í Utah og Mis- souri verður kosið um hvort lög- leiða eigi kannabisnotkun í lækn- ingaskyni. Kjörskrá sveifluríkis undir Íbúar í Flórída kjósa hins vegar um málefni sem gæti haft mikil áhrif á næstu forsetakosningar. Kjósendur í þessu stærsta sveiflu- ríki Bandaríkjanna kjósa um hvort um 1,5 milljónir fyrrverandi fanga eigi að fá kosningarétt aftur. Þeir sem hafa verið dæmdir fyrir alvarleg afbrot í Flórída, sem og þremur öðrum ríkjum Bandaríkjanna, glata kosninga- rétti sínum ævilangt. Hingað til hafa fangar þurft að sækja um að fá kosningaréttinn aftur á skrif- stofu ríkisstjórans í Flórída. Þar er hvert mál ákveðið fyrir sig og alls ekki öruggt að viðkomandi fái kosningaréttinn aftur. Ríkisstjóraframbjóðandi Demó- krataflokksins, Andrew Gillum, styður málefnið og vill að fangar endurheimti kosningarétt eftir af- plánun en Ron Desantis, frambjóð- andi Repúblikanaflokksins, er mótfallinn því. Þarf málefnið að fá yfir 60% stuðning í kosningunum til að verða að lögum. Samkvæmt könnun Suffolk-háskólans sem gerð var 25.-28. október styðja 70% íbúa Flórída það að fyrr- verandi fangar endurheimti kosn- ingarétt sinn. Þrettán málefni í Flórída Kjörseðillinn í Flórída í ár er hins vegar með óhemjumörgum málefnum sem íbúar fá að kjósa um; alls eru þrettán málefni á kjörseðlinum. Meðal þess sem íbú- ar fá að ákveða er hvort eigi að leyfa spilavíti í Flórída, banna notkun rafrettna á vinnustöðum innandyra, banna ákveðna tegund af veðmálum um mjóhundakapp- hlaup og hækka eftirlaunaaldur dómara í 75 ár svo dæmi séu tekin. Í fjórum ríkjum, Colorado, Mich- igan, Missouri og Utah, verður kosið um hvort breyta eigi reglum um hvernig kjördæmalínur eru teiknaðar, m.a. með því að setja upp nefnd sem þarf að samþykkja kjördæmin sem stjórnmálamenn ákveða hverju sinni. Niðurstaðan úr þeirri kosningu gæti einnig haft áhrif á kosningar komandi ára. Hér þar að hafa í huga að stundum eru þessi málefni sem enda á kjörseðlinum sérstaklega sett þar til að reyna að koma kjós- endum á kjörstað. Í Norður- Karólínu er kosið um hvort stjórn- arskrá ríkisins eigi að innihalda réttinn til skot- og stangveiða til að reyna að fá íhaldssama kjós- endur á kjörstað. Þá eru kosn- ingar um t.d. lögleiðingu kanna- biss líklegri til að draga unga og framfarasinnaða kjósendur á kjör- stað. Þannig eru oft framfaramál- efni á kjörseðlinum í ríkjum þar sem repúblikanar eru með meiri- hluta og íhaldssöm málefni á kjör- seðlinum í frjálslyndari ríkjum. Í Kaliforníu er t.d. kosið um hvort eigi að lækka skatta á eldsneyti, málefni sem repúblikanar í Kali- fornínu hafa ekki farið leynt með að sé þar til að fá hægrisinnaða kjósendur á kjörstað. Kosið um aukinn stuðning til heilbrigðistrygginga í fjórum ríkjum Í Idaho, Utah, Nebraska og Montana verður kosið um hvort ríkin eigi að setja aukið fé í Medicaid-kerfið, heilbrigðistrygg- ingar fyrir lágstéttarfólk í Banda- ríkjunum. Stjórnmálamenn í þess- um fjórum ríkjum kusu gegn því að auka fé í Medicaid fyrir fjórum árum og því verður áhugavert að sjá hvort íbúar séu sammála eða ósammála kjörnum fulltrúum. Ríkin fengu þann valmöguleika að auka stuðning við Medicaid með setningu heilbrigðistrygg- ingalaga sem Barack Obama kom á, betur þekkt sem Obamacare. Löggjöf sem þingmenn repúblik- ana hafa reynt ótal sinnum að fella í báðum þingdeildum. Repúblik- anar hafa sterkt fylgi í öllum þess- um fjórum ríkjum sem kjósa um Medicaid. Medicaid er þó vinsælt meðal kjósenda og hefur fráfar- andi ríkisstjóri Idaho, repúblik- aninn Butch Otter, meðal annars hvatt kjósendur til að kjósa með því að fá aukafjárstuðning í Medicaid. Kosningaréttur fanga á kjörseðlinum  Flórídabúar kjósa um hvort fangar endurheimti kosningarétt sinn að lokinni afplánun  Gæti haft mikil áhrif á næstu forsetakosningar  Bein kosning í BNA um allt frá kannabis yfir í spilavíti AFP Ríkisstjórakosningar Ron Desantis, frambjóðandi repúblikana til ríkisstjóra Flórída, á kosningaviðburði með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Desantis er á móti því að fangar endurheimti kosningarétt sinn eftir afplánun. Rússneskir hermenn gengu fylktu liði á Rauða torginu í hjarta Moskvu í gær, en verið var að æfa fyrir hátíðarhöld í tengslum við minningarathöfn sem þar fer fram 7. nóvember nk. Verður þess þá minnst að 77 ár eru liðin frá því að hersveitir Sovétríkjanna sálugu héldu til átaka gegn innrásarher Þriðja ríkis Þýskalands. Voru hermennirnir á æfingu sinni klæddir í sams konar fatnað og sovéthermenn klæddust á vígvöllum síðari heimsstyrjaldar. AFP Þrammað á Rauða torginu Minnast átakanna við hersveitir nasista

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.