Morgunblaðið - 06.11.2018, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Stórtíðindiurðu í gær áíslenska flug-
markaðnum og í ís-
lensku viðskiptalífi
þegar tilkynnt var
um kaup Icelandair
á Wow air. Í kauphöllinni sást
ágætlega hversu mikil tíðindin
voru því að bréf Icelandair
hækkuðu um tæp 40% í við-
skiptum dagsins, og höfðu raun-
ar hækkað enn meira um miðjan
dag.
En tíðindin ná langt út fyrir
kauphöll og viðskiptalíf í þröng-
um skilningi. Flugfélögin tvö
snerta allan almenning eins og
tíðar ferðir Íslendinga yfir hafið
sýna. Langflestir ferðast til og
frá landinu með þessum tveimur
flugfélögum og áhugi almenn-
ings á fyrirtækjunum tveimur
er mikill eftir því.
Við kaupin í gær vakna þess
vegna líka spurningar um verð
flugmiða og hvort það muni
hækka við breytingarnar.
Slíkar áhyggjur eru eðlilegar
því að flestum er ljóst að það
verð sem hefur verið í boði hef-
ur ekki alltaf verið raunsætt
fyrir rekstur félaganna. Skarp-
héðinn Berg Steinarsson ferða-
málastjóri benti á það í samtali
við mbl.is í gær að flugfargjöld
hefðu verið lág og að bæði fyrir-
tækin hefðu verið að tapa pen-
ingum, sem benti til að það hefði
verið of ódýrt að fljúga. „Og ég
held að samkeppni frá erlendum
flugfélögum sé algjörlega
nægjanleg og hún sé orðin mjög
öflug, bæði frá Ameríku og
Evrópu. Það eitt og sér er alveg
nægjanlegt sam-
keppnisumhverfi
og það mun örugg-
lega bara aukast á
næstu árum.“
Miklu skiptir fyr-
ir Íslendinga að á
þessum markaði sé samkeppni,
en það skiptir ekki síður máli að
hér á landi sé starfrækt flug-
félag sem geti keppt við erlend
félög. Ekki væri skynsamlegt að
búa svo um hnútana í íslensku
viðskiptalífi, hvorki í flugi né á
öðrum sviðum, að íslensk fyrir-
tæki legðu upp laupana með
þeim afleiðingum einum að rými
skapaðist fyrir erlend fyrirtæki.
Og landsmenn hefðu vissulega
ekki verið betur settir ef illa
hefði farið um rekstur íslensks
flugfélags en ef félögin samein-
ast og styrkjast.
En flugfélögin skipta orðið
máli í enn víðara samhengi.
Ferðaþjónustan er á örfáum ár-
um orðin ein af helstu undir-
stöðum í efnahagslífi þjóðar-
innar og miklir hagsmunir eru í
húfi fyrir hag landsins í heild að
ferðamenn haldi áfram að fljúga
hingað og kaupa hér vörur og
þjónustu. Ekki síst í því ljósi
verður að meta tíðindi gær-
dagsins.
Bæði flugfélögin hafa stuðlað
að eflingu ferðaþjónustunnar
hér á landi og þess vegna er
ánægjuefni að forsvarsmenn
þeirra virðast hafa fundið leið út
úr þeim vanda sem við var að
etja. Með því hafa þeir aukið
verulega líkurnar á að hinn ný-
útsprungni atvinnuvegur haldi
áfram að blómstra.
Svo virðist sem
hættu af áfalli
í flugrekstri hafi
verið bægt frá}
Jákvæð tíðindi
Um þessarmundir eru
rútubílstjórar látnir
sækja endurmennt-
unarnámskeið sem
þeir munu þurfa að
gera á fimm ára
fresti. Að meðaltali þurfa þeir að
sitja námskeið einn dag á ári
með tilheyrandi kostnaði.
Sumir bílstjóranna lýsa þessu
sem tímasóun eða þaðan af
verra og formaður hópferða-
nefndar Samtaka ferðaþjónust-
unnar segir námskeiðin ekki
hafa aukið mikið við þekkingu
bílstjóra. Stundum sé eins og
verið sé að búa til námskeið til
að fylla út í ákveðinn tíma-
ramma. Aðrir eru jákvæðari og
telja sig hafa gott af þessu, en
það má efast stórlega um að
slíkt námskeið sé nauðsynlegt
fyrir fólk sem vinnur alla daga
við að keyra rútur. Aksturinn
sjálfur er sennilega besta leiðin
til að halda kunnáttunni við og
auka hana.
En hvers vegna skyldi þetta
námskeið hafa verið tekið upp?
Var það vegna þess að talin var
þörf á því hér á
landi? Nei, skýr-
ingin er sú að hér
var ákveðið að inn-
leiða reglur frá
Evrópusambandinu
sem hafa ekkert
með Ísland að gera.
Upplýsingafulltrúi Sam-
göngustofu tjáði Morgunblaðinu
að réttindi atvinnuökumanna
væru samræmd á EES-svæðinu,
eins og í öðrum greinum sam-
gangna, svo sem í flugi og sigl-
ingum. Munurinn er hins vegar
sá að skip og flugvélar fara héð-
an og til annarra ríkja á EES-
svæðinu, en rútur gera það yfir-
leitt ekki. Því veldur Atlants-
hafið og jafnvel skrifstofumenn í
Brussel ættu erfitt með að halda
öðru fram.
Ísland ætti ekki að gleypa allt
hrátt sem frá Evrópusamband-
inu kemur. Sumt á ekki við og
upptaka þess er aðeins til þess
fallin að auka kostnað hér á
landi en hefur enga kosti í för
með sér, svo sem að rútubílar
geti ekið yfir landamæri til ann-
arra ríkja.
Ísland þarf að gæta
sín að gleypa ekki
við öllu sem
frá ESB kemur}
Atlantshafið er ófært rútum
Þ
að er ekki fyrir hvern sem er að
gagnrýna eða efast um hag-
fræðiþekkingu þeirra sem nú
fara fyrir stærstu verkalýðs-
félögum landsins. Sá hinn sami
má eiga von á því að vera samtvinnaður við
illt auðvald, sakaður um að vinna gegn launa-
fólki og fleira í þeim dúr. Það eina sem er
öruggt er að sá sem hreyfir efasemdum um
hina pólitísku stefnu hinna miklu leiðtoga
verður úthrópaður með fúkyrðum – líklega í
þeim tilgangi að koma í veg fyrir að viðkom-
andi tjái sig nokkurn tímann aftur. Opinber
orðræða fælir skynsamt fólk frá því að taka
til máls.
Skynsömu fólki má vera ljóst að kröfur há-
værustu verkalýðsfélaganna eru ekki bara
óraunhæfar og óskynsamlegar, heldur með
öllu ábyrgðarlausar og aðeins til þess fallnar
að búa til falsvonir. Sem betur fer þekkja margir vel til
mála og geta tekist á við óskynsemina með efnislegum
og málefnalegum hætti. Það hafa að vísu ekki allir jafn
digra sjóði og stéttarfélögin hafa en við skulum vona að
skynsemin hafi yfirhöndina, sem tryggir launafólki betri
lífskjör – stöðugleika og aukinn kaupmátt.
Hugmyndafræðilegi þátturinn er þó ekki síður mikil-
vægur. Árið er 2018 en vofa Karls Marx lifnar við í frös-
um íslenskra forystumanna verkalýðsfélaga og fylgi-
sveina þeirra. Þeir sem eldri eru þekkja afleiðingar
sósíalismans í Sovétríkjunum, Austur-Þýskalandi og
Kína og við sem yngri erum höfum séð
hvernig almenningur í Venesúela hefur greitt
dýru verði fyrir enn eina tilraunina í nafni
sósíalismans. Landi sem fyrir örfáum árum
var eitt auðugasta ríki í Suður-Ameríku en er
nú orðið efnahagsleg auðn. Dæmin eru fleiri
en rúmast í stuttum pistli sem þessum, en
niðurstaðan er alltaf sú sama. Hvar sem
sósíalismi hefur skotið rótum eru afleiðing-
arnar skelfilegar fyrir almenning. Það er
engin ástæða til að ætla að niðurstaðan yrði
önnur hér á landi.
Einn af þeim frösum sem við höfum fengið
að heyra mikið af á undanförnum misserum
er að atvinnurekendur séu óvinir launa-
manna. Ekkert gæti verið fjær sanni. Hvorir
um sig geta ekki lifað án hinna. Það er sam-
eiginlegur hagur atvinnurekenda og launa-
fólks að vel gangi í rekstri. Bættur hagur
launafólks er bættur hagur fyrirtækjanna og öfugt.
Hugmyndafræði sósíalista sem nú hafa hæst í aðdrag-
anda kjarasamninga er hugmyndafræði sem byggist á
og sækir næringu í sundrungu. Henni er ætlað að reka
fleyg, ekki aðeins milli atvinnurekenda og launafólks
heldur einnig milli stétta. Sagan kennir okkur hvaða af-
leiðingar það hefur. Fyrir launafólk, ekki síður en eig-
endur fyrirtækja, er nauðsynlegt að spyrna við fótum.
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Hugmyndafræði sundrungar
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari
Sjálfstæðisflokksins. aslaugs@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Breytingar á mengunar-staðli vegna útblástursbíla sem tóku gildi 1.september í Evrópu eru
þegar farnar að valda hækkun á út-
söluverði nýrra bíla hér á landi.
Um er að ræða svonefndan
WLTP-staðal sem felur í sér hertar
reglur um losunarmælingar á út-
blæstri bifreiða. Þetta veldur því að
skráð losun koltvísýrings frá bílum
hækkar um 10-40% frá því sem verið
hefur samkvæmt svonefndri NEDC-
losunarmælingu (evrópsku aksturs-
lotunni), að því er fram kom í
skýrslu um endurskoðun skattlagn-
ingar ökutækja og eldsneytis
snemma á þessu ári.
FÍB og fleiri hafa bent á að inn-
leiðing nýja mengunarstaðalsins
geti valdið hækkun á bílasköttum og
hafa stjórnvöld í nokkrum löndum
þegar gripið til aðgerða til að draga
úr slíkum hækkunum. Frumvarp
fjármála- og efnahagsráðherra um
breytingar á vörugjaldi ökutækja
o.fl., sem er til meðferðar á Alþingi,
tekur hins vegar ekki gildi fyrr en 1.
janúar verði það samþykkt í núver-
andi mynd. Því er m.a. ætlað að
koma í veg fyrir að ósamræmi verði í
skattlagningu ökutækja vegna þess-
ara breytinga á mælingum á út-
blæstri bíla.
Umtalsverðar verðhækkanir
á nýjum bílum eftir 1. sept.
Bílgreinasambandið rökstyður í
umsögn til efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis hvernig skráningar
bæði á WLTP- og NEDC-gildi fyrir
koltvísýringslosun geta leitt til þess
að bifreiðar færast í hærri vöru-
gjaldaflokka.
„Nú þegar eru komnar fram
umtalsverðar hækkanir á bílverði
þar sem allar bifreiðar koma í dag
með bæði NEDC afturreiknuðu og
WTLP gildum. Nánast án undan-
tekningar eru bílar að hækka um
tollflokk vegna mælinganna. Verð-
hækkanir vegna breyttra mæli-
aðferða eru því nú í október og
nóvember 2018 að koma að fullum
þunga inn,“ segir í umsögn Bíl-
greinasambandsins frá 1. nóvember.
„Frá 1. september hefur krónan
að auki veikst um 10% gagnvart
evru og er því ljóst að verðhækkanir
á nýjum bílum á tímabilinu 1.
september til loka nóvember verða
umtalsverðar,“ segir þar enn
fremur.
Vill Bílgreinasambandið að
brugðist verði hratt við „og bráða-
birgðalög sett á til áramóta þar sem
mikið ójafnvægi mun skapast á bíla-
markaðinum þar til ný lög um vöru-
gjöld taka gildi um næstu áramót.
Ljóst er að hækkun á bílverði mun
[hafa] neikvæð áhrif á verðbólgu-
hraða, eins og þegar er komið fram,
en um leið er ljóst að bílasala mun
verulega dragast saman á sama
tímabili þar sem verðlag hefur rokið
upp,“ segir þar.
Í umsögn Tollstjóra til þing-
nefndarinnar segir að talið sé að
fram að áramótum verði a.m.k. 2-4
þúsund bifreiðar fluttar til landsins.
FÍB fagnar frumvarpinu í um-
sögn til þingsins en segir ljóst að
innleiðing WLTP-staðalsins á ár-
unum 2017-2020 hafi haft og muni
hafa töluverð áhrif á gjaldflokkun
margra ökutækja miðað við núgild-
andi lög. „Þvert á yfirlýsingar fram-
kvæmdarstjórnar Evrópusam-
bandsins þá virðist óhjákvæmilegt
að bílar muni sveiflast í verði vegna
nýja staðalsins.“
Kveðst félagið vona að hægt
verði að tryggja samræmingu álagn-
ingar bifreiðagjalds með þeim breyt-
ingum sem boðaðar eru í frumvarp-
inu.
Bílar hækka í verði
vegna nýs staðals
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýir bílar Bílgreinasambandið telur að ójafnvægi mun skapast á bíla-
markaðnum þar til ný lög um vörugjöld taka gildi um næstu áramót.
FÍB birtir í umsögn sinni dæmi
um erindi sem félagið fékk í
haust frá félagsmanni sem var
ekki sáttur við hækkun á verði
nýs bíls vegna breytinga á vöru-
gjaldi:
„Félagsmaðurinn pantaði bíl
hjá bílaumboði í vor og bíllinn
var væntanlegur til landsins um
mitt sumar. Það dróst og bíllinn
var ekki tilbúinn til afhendingar
fyrr en um miðjan september.
Nú var félagsmanninum til-
kynnt að vegna breytinga á
mengunarstöðlum, sem tóku
gildi 1. september sl., hefði bíll-
inn færst upp um tvo vöru-
gjaldsflokka og það, til viðbótar
við gengisveikingu, hækkaði
samningsbundið kaupverð bíls-
ins um 800.000 krónur. Um var
að ræða um 10% hækkun á
kaupverðinu vegna þess að
áætluð afhending ökutækisins
dróst um nokkrar vikur,“ segir í
umsögn FÍB til efnahags- og
viðskiptanefndar Alþingis.
Hækkaði um
800 þúsund
AFHENDING DRÓST