Morgunblaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Andartak innlifunar Fáir geta fetað í fótspor Ólafs Stefánssonar. Á dögunum sagði hann eldri borgurum í Krafti KR sögur með sínum einstaka hætti, vopnaður leikmunum og hljóðfærum. Hari Iðnaður hefur fylgt mannkyninu um margra alda skeið. Í gegnum þrjár iðnbylt- ingar og þá fjórðu sem er yfirstandandi hefur iðnaður þróast og orðið mikilvægari hluti af verðmætasköpun ríkja og útflutningstekjum auk þess að skapa verðmæt og eftir- sótt störf. Ef horft er til framtíðar viljum við að Ísland sé í fremstu röð hvað varð- ar samkeppnishæfni þjóða og njóti velgengni. Við viljum að efnahagsleg velmegun íbúa sé mikil og Ísland sé eftirsótt land til búsetu og atvinnu- rekstrar. Hagkerfið þarf að byggjast á fjölbreytilegri og gróskumikilli at- vinnustarfsemi sem er drifin áfram af nýsköpun, vel menntuðu og hæfi- leikaríku vinnuafli, traustum inn- viðum og skilvirku, hagkvæmu og stöðugu starfsumhverfi. Ef þessi framtíðarsýn á að verða að veruleika er nauðsynlegt að móta atvinnustefnu þar sem leiðir í ýmsum málaflokkum eru útfærðar þannig að samkeppnishæfni aukist. Með at- vinnustefnu er ekki einungis lagður grunnur að uppbyggingu til að styðja við efnahagslega velsæld heldur get- ur atvinnustefna verið rauði þráður- inn í stefnumótun hins opinbera þar sem stefnumótun einstakra mála- flokka er samhæfð. Staðreynd máls- ins er sú að auknir fjármunir eru ekki ávísun á meiri árangur heldur skipta stefnumörkun og umbætur á grunni hennar meira máli. Um þessar mund- ir standa stjórnvöld að stefnumótun í mörgum lykilmálaflokkum. Má þar nefna orkumál, menntamál og ný- sköpun. Vandinn er sá að stefnumótunin er ekki samræmd. Því er haldið fram að nú séu um 80 stefnur í gildi hjá stjórnvöldum. Það vantar hins vegar rauð- an þráð og þar gæti atvinnustefna skipt sköpum. Samtök iðnaðarins ætla í vikunni að leggja fram skýrslu um atvinnustefnu þar sem koma fram hátt í 70 tillögur að umbótum í málaflokkum sem skipta mestu í að efla samkeppnishæfni. Með því að draga fram þær grundvallarbreytingar sem verða á samfélaginu á næstu áratugum og mæta þeim áskorunum sem breyt- ingunum fylgja má byggja upp nýjan iðnað, jafnt innan rótgróinna fyrir- tækja og með frumkvöðlastarfsemi. Þannig getum við saman látið fram- tíðarsýnina rætast. Eftir Sigurð Hannesson » Getur atvinnustefna verið rauði þráður- inn í stefnumótun hins opinbera þar sem stefnumótun einstakra málaflokka er samhæfð. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Mótum framtíðina Nú liggur fyrir dóm- ur Hæstaréttar um inn- flutning á ófrosnu kjöti. Framleiðsla þess kjöts nýtur styrkja í fram- leiðslulöndum í Evrópu líkt og aðrar landbún- aðarafurðir sem þaðan eru fluttar njóta. Ekki liggja fyrir viðbrögð stjórnvalda við dómn- um. Ekki liggur fyrir hvort gripið verður til einhverra ráð- stafana til að tryggja heilbrigði ís- lenskra dýrastofna og heilsuöryggi neytenda. Engar ráðstafanir hafa verið gerðar að því er vitað er til að tryggja lágmarksgæði innfluttra vara og tryggja þannig neytendum bestu fáanlega vöru. Til að auka öryggi inn- fluttra matvæla verður að ganga úr skugga um uppruna vörunnar. Íslensk stjórnvöld hljóta í ljósi breyttra aðstæðna að tryggja að ófrosið innflutt kjöt verði uppruna- merkt og að fram komi hvort um sé að ræða uppþítt kjöt eða kjöt sem aldrei hefur frosið. Tryggja þarf að neytendur séu upplýstir um hvaða lyfjameðferð innflutt kjöt hefur feng- ið. Flestum er kunnugt um sjúkdóma sem komið hafa upp í Evrópu undan- farin ár s.s. kúariðu í Skotlandi, afr- íska svínapest um mestalla álfuna svo aðeins tvennt sé nefnt. Varast þarf að kjöt frá svæðum þar sem grunur er um að smit rati til landsins. Einnig þarf að koma í veg fyrir að hingað verði flutt svikin vara s.s. hrossakjöt í stað nautakjöts en fjölmörg dæmi eru um slík svik víða í Evr- ópu. Að þessu sögðu játar sá sem hér ritar að hann á ekki von á að til Íslands streymi gæða- vara á góðu verði að þessum dómi gengnum. Sporin hræða þegar ís- lenskir kaupmenn eiga í hlut. Skemmst er að minnast nautahakkefn- isins sem flutt var inn fyrir 2-3 árum. Þá voru innflutningsgjöld helm- inguð, nautakjötsverð á heimsmark- aði var afar lágt en nautahakk á Ís- landi hækkaði. Einnig varð tollalækkun á nokkrum tegundum grænmetis fyrir allnokkrum árum síðan en grænmeti lækkaði ekki að jafnaði í verslunum. Það er engin trygging fyrir lægra vöruverði að flytja inn ófrosið kjöt eða aðrar land- búnaðarvörur. Það er næsta víst að fylgi verðsvigrúm innflutningnum mun hagur af því enda í vösum kaup- manna (lífeyrissjóða). Þar höfum við nokkur dæmi nýleg s.s. styrkingu krónu sem lítt eða illa hefur skilað sér í lægra vöruverði en víst er að lækk- un krónunnar að undanförnu mun skila sér furðufljótt út í vöruverð. Verslunin hefur auk þess dregið lapp- irnar í að skila lægri álögum ríkisins í lægra vöruverði. Þess utan má rifja upp að í fyrra var verð til bænda á sauðfjárafurðum lækkað um 29% en lambakjöt hefur ekkert lækkað í verslunum. Tilkoma heildsölukeðjunnar Costco á íslenskum markaði vakti vissulega vonir um að aukin sam- keppni myndi lækka vöruverð á Ís- landi. Víst hefur verð á eldsneyti, hjólbörðum og ýmsum hreinlætis- vörum lækkað og haldist lágt og er það þakkarvert en keðjan hefur verið furðufljót að átta sig á markaðs- aðstæðum á Íslandi og verðlagt nauð- synjavörur eftir því. Til þess að tryggja samkeppni á fákeppnis- markaði hér þar sem dagvöru- verslandir með u.þ.b. 70% markaðs- hlutdeild eru í eigu skyldra aðila þarf nauðsynlega á utanaðkomandi aðstoð að halda. Neytendur eru í raun að greiða fyrir eigin lífeyri fyrirfram með háu vöruverði vegna eignarhalds lífeyrissjóða á verslanakeðjum. Hagnaður verslanakeðjanna er enda ærinn eins og fram kemur reglulega. Því er nauðsynlegt að hingað rati alvöru matvörukeðjur á borð við ALDI, LIEDL eða þá hinar dönsku NETTO eða Bilka. Það eru ærin tækifæri fyrir erlenda aðila að hasla sér völl á neytendamarkaði en á með- an þeir ráða ráðum sínum búum við íslenskir neytendur við meira ... svona okur ... alla daga. Eftir Þorstein Sæmundsson » ...sá sem hér ritar á ekki von á að til Ís- lands streymi gæðavara á góðu verði að þessum dómi gengnum. Sporin hræða þegar íslenskir kaupmenn eiga í hlut. Þorsteinn Sæmundsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Flytjum inn kaupmenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.