Morgunblaðið - 06.11.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018
Ég er stödd í Reykjavík, börnin búa þar og við ætlum að borða sam-an, fjölskyldan, í tilefni dagsins,“ segir Kristrún Björg Gunnars-dóttir, húsvörður í Djúpavogsskóla, en hún á 60 ára afmæli í
dag.
Kristrún hefur alla tíð búið á Djúpavogi fyrir utan þegar hún fór til
Reykjavíkur í skóla. „Fyrst fór ég í Hússtjórnarskólann og svo nokkrum
árum seinna lærði ég að verða matsveinn.“ Kristrún er á sínu 23. starfs-
ári við Djúpavogsskóla. „Það má segja að ég geri allt í skólanum nema
kenna. Þetta er lítill skóli og þá er maður í mörgum störfum eins og mað-
ur segir, en ég er í mjög skemmtilegu og líflegu starfi,“ en 75 nemendur
eru við skólann. Kristrún eldar þó ekki ofan í krakkana. „Við erum ekki
með skólamötuneyti heldur förum við niður á hótel með börnin og ég sé
um að þau fái að borða þar, þetta er svona samvinna.“
Kristrún hefur verið virk í félagsmálunum á Djúpavogi alla tíð. „Ég
kem mér alltaf í eitthvað; ég er í kvenfélaginu og er í miklu stússi við
stéttarfélagið AFL og sit í stjórn félagsins. Svo er ég líka í sóknarnefnd
og er bjölluhringjari. Ég hef samt minnkað við mig félagsstörfin með
aldrinum. Svo hef ég gaman af handavinnu og við hittumst nokkrar kon-
ur einu sinnu í viku og köllum það prjónakaffi. Við prjónum og heklum
en erum ekki mikið í bróderingu eins og sagt var í denn.“
Eiginmaður Kristrúnar er Sigvaldi Júlíus Þórðarson vinnuvélamaður.
Börn þeirra eru Gunnar og Fríða Margrét og barnabörnin eru fjögur.
Hjónin Sigvaldi og Kristrún mætt til Reykjavíkur í gær.
Gætir skóla og
hringir bjöllum
Kristrún Gunnarsdóttir er sextug í dag
E
inar Bollason fæddist 6.
nóvember 1943 í
Reykjavík og ólst þar
upp við Vesturgötuna.
Hann lauk landsprófi
frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
1959, stúdentsprófi frá MR 1963 og
stundaði nám við lagadeild HÍ um
skeið. Einnig stundaði hann nám í
dönsku og í stjórnun.
Einar var stundakennari við Gagn-
fræðaskóla Vesturbæjar í tvö ár sam-
hliða lögfræðináminu en fluttist til
Akureyrar og kenndi við Gagnfræða-
skóla Akureyrar í tvö ár. Jafnframt
þjálfaði hann og lék með Íþrótta-
félaginu Þór í efstu deild. Einar var
forstöðumaður Námsflokka Hafnar-
fjarðar 1972-76, forstöðumaður
Vinnuskóla Hafnarfjarðar 1971-75,
forstöðumaður Vinnuskóla Kópavogs
1975 og 1977-85 og skólastjóri Þing-
hólsskóla í Kópavogi 1977-78. Hann
kenndi síðan við Flensborgarskóla og
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði til 1989.
Þá sneri hann sér alfarið að rekstri
Íshesta hf. sem var í upphafi fyrir-
tæki fjölskyldunnar en stækkaði síð-
an með innkomu fleiri hluthafa.
Fyrirtækið var selt í lok árs 2011.
Einar lék körfuknattleik í mörg ár
og á að baki fjölda Íslands- og bikar-
meistaratitla með KR. Að loknum
farsælum ferli sem leikmaður gerðist
hann körfuknattleiksþjálfari og þjálf-
aði meistaraflokka karla og kvenna
hjá bæði KR og Þór Akureyri. Þá
þjálfaði hann einnig meistaraflokka
karla hjá Haukum og ÍR. Hann var
landsliðsþjálfari karla í nokkur ár og
hefur samið kennslubækur í þjálfun.
Einar hefur um langt árabil tekið
þátt í störfum Framsóknarflokksins
og átt sæti í miðstjórn flokksins.
Einar Bollason, fv. framkvæmdastjóri og körfuboltamaður – 75 ára
Stórfjölskyldan Stödd í Skrúð á Núpi í fyrra í tilefni af sjötugsafmæli Sigrúnar.
Lionsmaður og KR-
ingur af lífi og sál
Hjónin Einar og Sigrún í frægum
skrúðgarði í Singapúr 2016.
Njarðvík Þórarinn
Theo fæddist í
Reykjanesbæ 10.
desember 2017 kl.
05.31. Hann var
4.270 g og 53,7 cm.
Foreldrar hans eru
Helga Lind Sigur-
bergsdóttir og Ívar
Rafn Þórarinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
TONON Up
Barstóll – viðarfætur
Verð 129.000,- stk.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is