Morgunblaðið - 06.11.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 06.11.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert staðráðinn í því að fá vilja þín- um framgengt í vinnunni í dag. Velgengni þín stendur og fellur með því hvernig þér tekst að nýta drauma þína til að leysa vandamál. 20. apríl - 20. maí  Naut Það getur verið mjög erfitt að horfast í augu við persónuleg vandamál sín en það verður þú að gera fyrr eða síðar. Hlustaðu á aðra og taktu við því sem að þér er rétt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú verður ekki lengur undan því vik- ist að taka ákvörðun varðandi starfsvettvang. Staldraðu aðeins við og mundu að dómgreind þín hefur hingað til verið í lagi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það getur haft örlagaríkar afleiðingar að skipta sér af málum sem ekki eru á manns færi. Horfðu á þau úr fjarlægð svo þú eigir betra með að átta þig á næstu skrefum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur meðbyr og átt að geta notfært þér hann. Makar og nánir vinir virðast ein- staklega hressir og skemmtilegir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sumir eiga fullt af fallegum hlutum til að hafa í kringum sig, en finna samt til lítillar hamingju. Stundum er bros eða vinalegt orð nógu stór gjöf. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú átt það til að vantreysta sjálfum þér og ættir að forðast það og fylgja sannfæringu þinni eftir. Vertu opinn fyrir ástinni í kringum þig og líttu á björtu hliðar lífsins. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Líklegt er að vinur þinn komi þér á óvart í dag. Hlustaðu vandlega á það sem hann segir og dragðu þínar ályktanir. Kláraðu þín venjulegu störf og haltu þig við þína dag- skrá. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Bíddu með að kynna samstarfs- fólki þínu nýjar hugmyndir. Láttu ekki ein- hverja framagosa spilla verklagi þínu og starfs- gleði. Vertu opinn fyrir því að gera málamiðlun. 22. des. - 19. janúar Steingeit Vandi fylgir vegsemd hverri og svo er einnig um stöðuhækkanir á vinnustað. Lærðu að segja nei þegar það á við. Láttu það ekki angra þig, þótt allt gangi ekki eftir sem aðrir segja. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þörfin til að vera hvatvís er sterk, en ekki endilega gáfuleg. Spenna hefur verið að byggjast upp innra með þér og hún þarf að fá útrás einhvers staðar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hægðu aðeins á þér, kláraðu þau verk- efni sem þú ert með og taktu svo til við ný. Gefðu þér líka tíma til að vera með fjölskyld- unni og rifja upp gamlar minnningar. Pétur Stefánsson skrifaði á fés-bókarsíðu sína á laugardaginn ljóðið „Vetur“: Litskrúðugt haustið er horfið og heiðarnar náfölar orðnar. Skelkaðir fuglarnir flognir til fjarlægra stranda. Sestur er varmlítill vetur að völdum í harðbýlu landi. Vindsvali gnauðar við greinar í görðum og héluðum lundum. Þann sama dag sagðist Ármann Þorgrímsson á Leirnum sáttur við að kallast leirskáld: Ort af viti aldrei hef illa reglur Braga skil mest í vöku en meðan sef mikið verður líka til. Sigmundur Benediktsson svaraði að bragði: „Ósköp er langt síðan við höfum heyrst á Leir og gaman að heyra aftur í þér. Ertu sæmilega sprækur til heilsunnar? Allt í lagi að kallast Leirskáld, hvaða merk- ingu sem menn vilja leggja í það orð: Leirskáldin þau lifa best lofar þjóðin stritið, en atómskáldin aðeins flest auka sjálfsálitið.“ Ármann svaraði og sagði: „Þú spyrð hvernig ég hafi það: Margt ég verð að meta á ný miða allt við kaup og sölu, næst ég verð að ná mér í nýja og betri kennitölu.“ Sigmundur Benediktsson svaraði enn og sagði: „Líklega er ég geng- inn í barndóm, því ég er með 2 völ- ur í eldhúsglugganum á beit innan- um nokkra steina. Lék mér líka með völur og leggi sem barn, eins og svo mörg börn í sveitum þess tíma. Þetta voru kölluð barnagull og átti ég fullan kassa af þeim. Kassinn var alltaf kallaður Gulla- kassinn, hann átti sér fastan stað til fóta við rúmið mitt. Tvisvar verður gamall maður barn, segir máltækið. Því tel ég kennitöluflakk sennilega orðið óþarft hjá mér: Lífsins grennist leiðin því leik mér enn að völu, varla nenn’ að ná mér í nýja kennitölu.“ Það var annað hljóð í Ingólfi Ómari: Hef þá trú að henti mér helst við kaup og sölu. Nú er best að næla sér í nýja kennitölu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af leirskáldum og kenni- tölum og haustið horfið „MÉR HEFUR ALDREI LIÐIÐ BETUR. SKAMMTURINN SEM ÞÚ GAFST MÉR SVÍNVIRKAÐI. ” „Hvar er þessi heimski köttur?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það sem situr eftir. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HETJAN MÍN! ÉG VILDI AÐ ÉG BYGGI YFIR OFURKRÖFTUM JÁ, EINMITT HVAÐA OFURKRÖFTUM GÆTIR ÞÚ BÚIÐ YFIR? TIL AÐ MYNDA GETU TIL ÞESS AÐ LÁTA ALLT BRAGÐAST EINS OG RJÓMAÍS OKKUR REKUR Í ÁTTINA AÐ 300 METRA HÁUM FOSSI. HVERS VEGNA HELDUR ÞÚ FYRIR EYRUN? MÉR VERÐUR MÁL AÐ PISSA VEGNA VATNSNIÐSINS! Víkverji fékk það verðuga verkefnium helgina að hjálpa tveimur ungmennum við undirbúning jóla- sendingar til Úkraínu. Á hverju ári taka þau þátt í verkefninu Jól í skó- kassa sem felur það í sér að ýmsum nauðsynjavörum og glaðningi er komið fyrir í skreyttum skókassa. Það þurfti því að fara verslana á milli til að verða sér úti um tannbursta og tannkrem, skóladót, leikföng og sæl- gæti. Og svo var bætt við ónotuðum flíkum úr allsnægtunum heima. x x x Í kynningu á verkefni þessu á heima-síðu KFUM má lesa að ástæða þess að gjöfum er pakkað í skókassa er sú að þá fá allir krakkarnir svip- aðar gjafir, að stærð hið minnsta. Skókassarnir eru sendir til Úkraínu eins og áður segir en þar búa um 46 milljónir manna. „Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verð- ur dreift ríkir mikil örbirgð. Íslensku skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt,“ segir á heimasíðunni. x x x Þetta er skemmtilegt verkefni aðtaka þátt í. Vitaskuld er það frá- bært að geta með markvissum hætti glatt börn sem búa við örbirgð. Vík- verji gladdist þó ekki síður yfir því að sjá eigin afkvæmi finna til sín og leggja sig fram við að gleðja aðra. Mikilvægt þótti að allt það sem sett var í kassann passaði fyrir 7-10 ára stelpu og 11-14 ára strák. Sendingin skyldi sko aldeilis slá í gegn. x x x Söfnun þessi fór fyrst fram hér álandi fyrir jólin 2004. Fyrst um sinn söfnuðust um fimm hundruð skókassar ár hvert en þeir hafa verið um fimm þúsund undanfarin ár. Vert er að hvetja áhugasama til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni. Viðtakendur eru börn á munaðar- leysingjaheimilum, barnaspítölum og börn einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Húfur, vettlingar og sokkar eru það sem flestir setja í kassana enda getur veturinn orðið kaldur þarna í austri. vikverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði: „Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér getur ekki verið lærisveinn minn.“ (Lúkasarguðspjall 14.27) Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Lang- vinsælastur hollusta í hverjum bita

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.