Morgunblaðið - 06.11.2018, Page 31

Morgunblaðið - 06.11.2018, Page 31
og skrifar á ensku. Dansað í Ódessa var hans fyrsta útgefna bók, kom út árið 2004 og hlaut mikið lof og hreppti verðlaun sem framúr- skarandi byrjandaverk. „Við yfirgáfum Ódessa í þvílíku hasti að við stein- gleymdum / ferðatöskunni fyrir utan íbúðina okkar, fullri af enskum orðabók- um.“ Þannig lýsir skáldið í loka- hluta bókarinnar, „Lofgjörð“, brottför fjölskyldunnar frá gömlu heimkynnunum við Svartahaf. Og það er þessi gamli heimur sem var yfirgefinn í hasti og minningar um hann, og allrahanda brot úr fortíð fjölskyldu og sam- félags sem mynda heim ljóðanna. Tónninn er hlýr og það er mikil gleði og leikur í þeim myndum, sögum, draumum og minningum sem unnið er með, þótt undir niðri megi líka finna fyrir djúpum harmi, erfið- leikum og eftirsjá eftir heimi sem var en er horfinn fyrir fullt og allt. Sumir rýnendur hafa líkt ljóðum Kaminskys við draumkenndan og hugmyndaríkan myndheim mál- arans Chagalls, úr horfnum gyðinga- samfélögum Sovétríkjanna, og sú líking er alls ekki fjarri lagi. Þá má finna fyrir ýmsum skáldum, áhrifa- völdum sem Kaminsky hyllir um leið á sinn hátt. Bókin hefst á „Bæn höfundar“ þar sem ljóðmælandinn segir að ef hann tali fyrir hina dauðu þá verði hann að „skrifa sama ljóðið upp aftur og aft- ur, / því autt blað er hinn hvíti fáni upgjafar þeirra.“ Og á tungu sem ekki er hans – og þar má skilja að Kaminsky tali um enskuna – vill hann tala „um tónlist sem vekur okk- ur, tónlist // sem við hrærumst í. Því allt sem ég segi // er eins konar bænaskrá, og hina dimmustu daga / verð ég að lofsyngja.“ Bókin skiptist síðan í fimm hluta. Í þeim fyrsta, „Dansað í Ódessa“, eru dregnar upp myndir af fólki og lífi í borginni, af dansi sem myrkum at- burðum, eins og af afanum sem „var skotinn og ömmu var nauðgað / af ríkissaksóknara sem stakk kúlu- penna inn í hana, // þessum penna sem skrifaði fólk í burtu næstu tutt- ugu árin.“ Og minningunum og öll- um orðunum er líkt við „hrúgur af brennandi fjöðrum / sem fjúka lengra burt í hvert skipti sem þau eru endurtekin.“ Annar hluti bókarinnar, „Musica Humana“, ber undirtitilinn „Óður til Osip Mandelstam“. Og það er inn- blásinn og fljúgandi mælskur bálkur sem fjallar að hluta um skáldið kunna, sem líkt er við nútíma Orfeif. Þriðji hlutinn er annar flæðandi bálkur, „Natalía“, um ástkonu ljóð- mælandans, sem samhliða lýsingum á samlífi þeirra Natalíu tjáir sig um textann í neðanmálsgreinum. Í fimmta hlutanum, „Farand- músíköntum“, vottar skáldið unga öðrum skáldum virðingu sína og yrk- ir meðal annars um Paul Celan, Jós- ef Brodský („…af því að mildileikinn / milli línanna skiptir ekki máli leng- ur, / það sem þú kallar að vera inn- flytjandi, kalla ég sjálfsmorð“), Isaac Babel og Marínu Tsvetaevu: „Í línu hvers sérkennilegs samhljóða vakn- ar hún / eins og mávur, tvístruð / milli himins og jarðar…“ Lokahlutinn er síðan fyrrnefnd „Lofgjörð“. Þar segir meðal annars um hlutskipti flóttamannsins: Að kvöldi biður kona um sögu með farsælum endi. Ég á enga. Flóttamaður fer ég heim og verð að draugi í leit að húsunum sem ég bjó í… Dansað í Ódessa er furðu þroskað byrjandaverk, áhrifamikil bók þar sem í persónulegum ljóðheimi er dregin upp mynd af heimi sem var. Og það er jafnframt tregafull upp- lifun að lesa þessi síðustu ljóð sem Sigurður Pálsson, skáldið góða og menningarmiðlarinn, hefur þýtt svo listavel áður en hann lést. Kaminsky „… áhrifamikil bók þar sem í persónulegum ljóðheimi er dregin upp mynd af heimi sem var. MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2018 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Eftir að hafa starfað í fjölda ára sem blaðamaður og rithöfundur sneri Guðrún Guðlaugsdóttir sér að glæpasögum, en fram að því hafði hún skrifað viðtalsbækur, ævisögur, ljóðabækur, ástarsögur og smásög- ur meðfram blaðamennskunni. Í fyrstu glæpasögunni, Beinahúsið, sem kom út 2014, kom við sögu blaðamaðurinn Alma og hún hefur verið í aðalhlutverki í þeim bókum sem fylgt hafa í kjölfarið, Blaðamað- ur deyr (2015), Dauðinn í opna saln- um (2016), Morðið í leshringnum (2017) og nú kemur Erfðaskráin. Erfðaskráin gerist að mestu leyti á heimili þriggja aldraðra systkina, eitt þeirra reyndar nýlátið þegar Alma kemur á staðinn, og snar þátt- ur í sögunni er að systkinin hafa verið nær innlyksa á heimilinu alla tíð, hafa ekki átt sér annað líf en innan veggja æskuheimilisins. Guð- rún segir hugmyndina að sögunni sprottna úr fjölmörgum viðtölum sem hún hafi tekið við fólk á sínum blaðamennskuferli: „Ég fór víða um sveitir lands fyrr á árum og þá hitti ég gjarnar fyrir svona fjölskyldur. Mér fannst það alltaf mjög sérstakt, sérstakt andrúmsloft, það voru allt- af hálfsagðir hlutir, það passaði hver annan, það var svo mikil þögg- un í gangi. Það leit hver á annan að- varandi augnaráði og maður skynj- aði að þarna var eitthvað á bak við. Sjálf kem ég úr öðruvísi fjölskyldu þar sem fólk lét allt gossa og mér fannst þetta því einkennilegt og vakti spenning hjá mér að vita hvað væri á bak við. Ég reyndi stundum að fá fram eitthvað og einstaka sinn- um tókst það, en oftast var fólk mjög vart um sig.“ — Alma heldur áfram að flækjast í mál, ertu með frekari Ölmu- ævintýri í huga? „Ég er með hugmynd að næstu bók, hvað sem úr henni verður. Mér finnst óumræðilega skemmtilegt að skrifa þessar bækur, meðan ég er að skrifa þær lifi ég í miklum skemmtilegheitum, ræð öllu sjálf og sé þetta allt fyrir mér. Sagan tekur þó stundum undarlegar vendingar, en það gerist þá gjarnan þannig að ég sé fyrir mér einhverja mynd sem kemur allt í einu og hugsa þá: auð- vitað hefur þetta verið þannig. Mað- ur reiknar allt út einhvernveginn, ósjálfrátt og sjálfrátt.“ — Við höfum áður rætt það að í bókunum þínum eru konur í aðal- hlutverkum, bækurnar gerast í kvennaheimi, karlarnir eru ýmist ekki til staðar nema sem gerendur eða valdendur en alltaf í auka- hlutverkum. „Það vill nú svo til að ég er kona og hef haft gott samband við kyn- systur mínar. Ég hef verið svo lán- söm að eiga margar kunningja- konur og mjög góðar æskuvinkonur og hef fylgst með lífi margra kvenna. Í viðtölum hef ég líka mjög oft talað við konur og skrifaði til dæmis mikið um Kvennaathvarfið á sínum tíma og Stígamót. Allt þetta hefur orðið til þess að hlutskipti kvenna hefur orðið mér mjög hug- leikið. Það hafa orðið miklar breytingar frá þeim tíma þegar ég tók þátt í Rauðsokkahreyfingunni sem ung kona, en þá vaknaði áhugi minn. Ég var formaður leikfélagsins Grímu þegar Hvað er í blýhólknum? var sett upp og lék í þeirri sýningu sem María Kristjánsdóttir stjórnaði. Ég kynntist líka Svövu Jakobsdóttur sem líka hafði mikinn áhuga fyrir konum og hlutskipti þeirra. Svo er það ég sjálf, ég á sex börn og þurfti að glíma við töluvert mikla erfiðleika til að geta gert það sem mig langaði til að gera, það var áður fullt starf fyrir konur að eiga sex börn og ala þau upp, það felst tölu- verð vinna í því að geta skrifað með- fram svo miklu fjölskylduforholli.“ — Gunnar eiginmaður Ölmu kemur aðeins við sögu í bókinni, nánast úr fjarska, en Gunnhildur dóttir hennar er í stærra hlutverki. „Gunnhildur er í raun ný sögu- persóna og ef mér auðnast að skrifa meira þá verður Gunnhildur þar, þá á hún hlutverk og Gunnar líka, hann hverfur ekkert. Þá myndi hann leika töluvert hlutverk, ég er farin að hafa svolítinn áhuga fyrir körlum líka,“ segir Guðrún og hlær, „og þá öðruvísi áhuga en bara kynbundinn áhuga, ég er farin að fá meiri áhuga fyrir hlutskipti karla.“ Þess má geta að bækurnar fimm um Ölmu eru nú fáanlegar í hljóð- bókaveitunni Storytel í lestri Guð- rúnar. Morgunblaðið/Hari Glæpasögur Guðrúnu Guðlaugsdóttur finnst óumræðilega skemmtilegt að skrifa bækurnar um Ölmu blaðakonu en Erfðaskráin er sú fimmta. Það passaði hver annan  Blaðamaðurinn Alma flækist enn í glæpamál í nýrri bók Guðrúnar Guðlaugsdóttur Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Fly Me To The Moon (Kassinn) Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Sun 2/12 kl. 19:30 Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Lau 1/12 kl. 19:30 Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Insomnia (Kassinn) Mið 14/11 kl. 19:30 Frums Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/12 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 10/11 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 13:00 Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 9/11 kl. 22:00 Daður og dónó Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Fjallkonan fríð (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 10/11 kl. 20:00 3.sýn Sun 11/11 kl. 17:00 4.sýn Fjallkonan skoðuð á fullveldisafmæli leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Fim 8/11 kl. 20:00 aukas. Sun 18/11 kl. 20:00 171. s Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Fös 9/11 kl. 20:00 164. s Fim 22/11 kl. 20:00 172. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Sun 11/11 kl. 20:00 aukas. Fös 23/11 kl. 20:00 173. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Fim 15/11 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 10/11 kl. 20:00 19. s Fös 23/11 kl. 20:00 21. s Lau 17/11 kl. 20:00 20. s Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 10/11 kl. 20:00 66. s Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Fös 16/11 kl. 20:00 67. s Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Sýningum lýkur í nóvember. BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.