Morgunblaðið - 06.11.2018, Side 36

Morgunblaðið - 06.11.2018, Side 36
Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart- ansson stendur fyrir þriggja daga gjörningi, Romantic Songs of the Patriarchy, í The Women’s Building í San Francisco 9.-11. nóvember. Gjörningurinn fer fram í nokkrum rýmum hússins og munu tónlistar- konur flytja þekkt ástarlög með bæði margslungnum og oft ágeng- um textum. Ragnar sýnir víðar í Bandaríkjunum því sýning á verkum hans var opnuð í Phoenix Art Museum á laugardaginn var. Þriggja daga gjörn- ingur í San Francisco ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Haukar og Valur eru í efri hluta Olís- deildar karla eftir að 7. umferðinni lauk í gær með tveimur leikjum. Haukar eru með 10 stig í 2. sæti eftir jafntefli gegn ÍR í Breiðholtinu. Valur er í 5. sæti eftir góðan sigur á Ís- landsmeisturum ÍBV í Vestmanna- eyjum. Þar fóru fyrrverandi leik- menn ÍBV mikinn hjá Val. ÍBV er í 7. sæti og ÍR situr í 10. sæti. »2-3 Valur í efri hlutanum eftir sigur í Eyjum ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er ekki lengur með keppnisrétt á LPGA, sterkustu mótaröð heims, og segir að hún hafi ekki náð sér á strik und- anfarna fjóra mánuði. „Ég hef átt erfitt með að einbeita mér og fund- ið alls konar einkenni sem ég finn ekki fyrir venjulega. Þetta hefur verið erfitt,“ segir Ólafía og telur að hún sé enn að jafna sig eftir fyrsta keppnisárið á mótaröðinni. Hún ætlar sér hins vegar að koma tvíefld til baka á næsta ári eftir góða hvíld. »1 Hef átt erfitt með að einbeita mér oft fyrir að fimm ættliðir séu á lífi á sama tíma. Ekki sé vitað um sex ætt- liði á lífi nema fjórum sinnum; 1974, 1998, 2008 og 2010. Til að möguleiki sé á að sex ættliðir séu á lífi á sama tíma þurfi ættarhöfðinginn að vera um hundrað ára þegar sá yngsti fæð- ist og kynslóðabilið þurfi að vera að meðaltali um 20 ár. „Það eru meiri líkur á sex ætt- liðum í beinan kvenlegg, þar sem oft- ast er um að ræða elsta afkomanda hverrar kynslóðar og mæður eru oft- ar yngri en feður,“ segir Jónas og bætir við að ættarhöfðinginn Gissur Ó. Erlingsson, sem fæddist 1909, eigi metið þegar kemur að sex ættliðum á lífi á sama tíma; þrjú ár og 82 daga. Í ættliðunum sex hafi dóttir hans, Jó- hanna G. Erlingsson, verið eina konan. Að sögn Jónasar hafa sex ættliðir í beinan kvenlegg lifað á sama tíma hjá Sigurjónu Jakobsdóttur, fæddri 1910, í tvö ár og 275 daga. Hjá Lauf- eyju Þorgeirsdóttur, fæddri 1914, í eitt ár og 286 daga og hjá Stefaníu Ólafsdóttur, fæddri 1878, hafi sex ættliðir í beinan kvenlegg lifað á sama tíma í fjóra daga. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Mamma átti mig 25 ára, Þorgerður átti Kristínu Björk 25 ára og hún Unu Margréti 25 ára, en sjálf var ég búin að eiga öll mín börn fyrir þann aldur,“ segir Kristín Á. Guðmunds- dóttir, dóttir Sigríðar Karólínu Jóns- dóttur, fyrrverandi bónda á Mið- Grund undir V-Eyjafjöllum og síðar ráðskonu meðal annars í virkjunum og hjá Stálvík í Garðabæ. Að sögn Kristínar bjó móðir hennar lengi í Garðabæ en færði sig nær heima- slóðum þegar hún flutti á hjúkr- unarheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli. „Mamma á 86 afkomendur og af þeim eru 11 langalangömmubörn og það 12. á leiðinni,“ segir Kristín. Á sunnudaginn renndu fjórir ætt- liðir í beinan kvenlegg austur fyrir fjall til þess að hitta ættmóðurina Sigríði. Þær nýttu tækifærið og létu taka mynd af fimm ættliðum í beinan kvenlegg. Sigríður Karólína Jónsdóttir fæddist 25. febrúar 1925. Hún varð ekkja 38 ára gömul með sex börn á aldrinum þriggja til 16 ára. Einsömul kom hún þeim öllum á legg. Dóttir Sigríðar, Kristín Á. Guð- mundsdóttir, skartar nú langömmu- titli í fyrsta sinn en hún á von á öðru langömmubarni fljótlega. Kristín er fyrrverandi formaður Sjúkraliða- félags Íslands, fædd 7. mars 1950. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, dóttir Kristínar, er formaður Félags íslenskra grunnskólakennara. Hún er amman í hópnum en hún fæddist 22. október 1967. Dóttir Þorgerðar, Kristín Björk Hilmarsdóttir, ber nafn ömmu sinnar. Hún fæddist 16. desember 1992. Kristín Björk er fé- lagsfræðingur, flugfreyja og móðir Unu Margrétar Kristjánsdóttur sem fæddist 29. júlí 2018 og er sú fimmta í beinan kvenlegg frá Sigríði Karólínu Jónsdóttur. 93 ár eru á milli Unu Margrétar, þeirrar yngstu, og langa- langömmunnar. Kynslóðabil á 20 ára fresti Jónas Ragnarsson, áhugamaður um langlífi, segir að það komi nokkuð Allar búnar að eiga sitt fyrsta barn 25 ára  Fimm og sex ættliðir algengari í beinan kvenlegg Fimm ættliðir Efri röð: Þorgerður Diðriksdóttir og Kristín Á. Guðmunds- dóttir. Neðri röð: Kristín Björk Hilmarsdóttir, Una Margrét Kristjánsdóttir, yngsti ættliðurinn, og ættmóðirin Sigríður Karólína Jónsdóttir. Kuldaskór SMÁRALIND www.skornirthinir.is Vatnsheldir og hlýir kuldaskór með innbyggðum broddum í sóla Verð 16.995 Stærðir 36 - 47 Verð 16.995 Stærðir 36 - 47 Verð 17.995 Stærðir 36 - 42

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.