Fréttablaðið - 04.03.2019, Page 8
Abdelaziz Bouteflika
hefur verið forseti Alsír í
20 ár, frá árinu 1999.
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
FJÖLHÆFASTA FJÖLSKYLDA LANDSINS?
Glæsilegur og vel útbúinn pallbíll með
3.0 lítra, 258 hestafla, V6 dísilvél,
580 Nm togi, sjálfvirkum vélarhitara,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara að
framan og aftan, regn- og birtuskynjara,
Xenon/led aðalljósum og 18” álfelgum.
Volkswagen Amarok
verð frá 8.290.000 kr.
Hannaður með þarfir iðnaðar-
manna að leiðarljósi og með
átta þrepa sjálfskiptingu fyrir
allar útgáfur. Fjöldi útfærslna
á hleðslurými, farþegarými og
aðstoðarkerfi.
Volkswagen Crafter
verð frá 6.220.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll
á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og
fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda
útfærslna.
Volkswagen Caddy
verð frá 2.870.000 kr.
Transporter hefur fylgt
kynslóðum af fólki sem hefur
þurft á traustum og áreiðan-
legum vinnuþjarki. Fullkomin
stöðugleikastýring, spólvörn
og sjö þrepa sjálfskipting.
Volkswagen Transporter
verð frá 4.590.000 kr.
ALSÍR Lögreglumenn og öryggis
sveitir í Alsír hafa gripið til öflugra
vatnsbyssna, táragass og barefla til
að hafa hemil á mótmælendum á
götum borga landsins. Samkvæmt
opinberum tölum hafa 56 lögreglu
menn og 45 mótmælendur særst
í átökunum. Tölur um mannfall
liggja ekki fyrir.
Mótmælt hefur verið í borgum
landsins undanfarna viku eftir að
forseti landsins, hinn 82 ára gamli
Abdelaziz Bouteflika, tilkynnti að
hann hygðist sækjast eftir endur
kjöri í komandi forsetakosningum.
Það yrði fimmta kjörtímabil for
setans en hann tók við árið 1999
eftir blóðuga borgarastyrjöld sem
kostaði um 200 þúsund manns lífið.
Undanfarin ár hefur hann verið
heilsuveill en árið 2013 fékk hann
heilablóðfall og hefur þjóðin lítið
sem ekkert heyrt frá honum síðan
þá. Þrátt fyrir heilsubrestinn var
stjórnarskrá landsins breytt árið
2014 til að hann gæti boðið sig fram
á ný sem forseti.
Stúdentar komu saman í Algeirs
borg, höfuðborg landsins, í gær, en
þar hafa mótmæli verið bönnuð
með lögum frá 2001, og mótmæltu
fyrirætlun forsetans þaulsætna.
Áætlað er að mótmælendur í höfuð
borginni hafi verið rúmlega hund
rað. Fjölmennari mótmæli voru í
öðrum borgum víðs vegar um land.
Þá f lykktist stór hópur mótmæl
enda út á götur höfuðborgar gömlu
valdsherranna í Frakklandi.
Frestur til að skila inn framboði í
kosningunum rann út í gær en það
var gert í húsakynnum stjórnlaga
dómstóls landsins. Mótmælendur
komu saman fyrir utan dómstólinn
í gær og kölluðu eftir því að Bout
eflika fengi ekki að bjóða sig fram
á ný. Stjórnarskrá landsins kveður
ekki á um að framboði skuli skilað
í eigin persónu en þó þarf for
seti landsins að vera nægjanlega
hraustur til að geta gegnt starfinu.
Sex frambjóðendur höfðu skilað inn
framboði í gær.
Bouteflika situr áfram en lofar
að sitja ekki út kjörtímabilið
Alsíringar hafa undanfarið mótmælt því að forseti landsins, hinn 82 ára gamli Abdelaziz Bouteflika, ætli
sér að sitja eitt kjörtímabil enn. Mótmælin eru þau fjölmennustu sem sést hafa lengi í landinu en víða er í
gildi bann við mótmælafundum. Köll þeirra báru árangur að hluta. Bouteflika fékk heilablóðfall 2013.
Mótmælendur komu saman fyrir utan stjórnlagadómstól Alsírs þar sem skila átti inn framboðum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Mótmælin skiluðu árangri að
hluta seint í gær. Þá var lesin í ríkis
fjölmiðli landsins yfirlýsing frá for
setanum. Heilsufar forsetans leyfir
varla að hann geri slíkt sjálfur auk
þess sem hann er um þessar mundir
staddur í Sviss í reglulegri læknis
skoðun. Forsetinn lofaði að næði
hann kjöri á ný myndi hann ekki
sitja allt kjörtímabilið.
KASMÍR Bandarísk stjórnvöld reyna
nú að komast að því hvort Pakist
anar hafi notað bandarískar F16
herþotur til að skjóta niður ind
verska herþotu í síðustu viku. Slíkt
væri brot á samkomulagi sem gert
var við sölu vélanna til Pakistan.
Talsmaður bandaríska sendi
ráðsins í Islamabad, höfuðborg
Pakistan, staðfesti í samtali við
fréttastofu Reuters að verið væri að
skoða ásakanir þess efnis.
Pakistönsk stjórnvöld hafa neitað
því að F16 þoturnar hafi tekið þátt í
bardögunum sem leiddu til þess að
indverska þotan var skotin niður.
Þau hafa ekki tilgreint hvaða her
þotur voru notaðar.
Eftir átök og togstreitu síðustu
viku var ástandið tiltölulega rólegt
í gær. Chaundry Tariq Farooq, ráð
herra í pakistanska hluta Kasmír,
sagði þó enn spennu í loftinu og að
aldrei væri hægt að segja hvenær
átök gætu brotist út á ný. – sar
Sagðir brjóta
samkomulag
Endurheimt flugmanns fagnað.
NORDICPHOTOS/GETTY
BANDARÍKIN Maður að nafni Brian
skilaði bókasafni í Ohioríki Banda
ríkjanna nýverið tímariti sem hann
fékk þaðan. Það þætti ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir að
hann stal því þaðan árið 1968.
Í liðinni viku barst bókasafninu í
Cuyahogasýslu umslag sem innihélt
septembertölublað tímaritsins Life
frá árinu 1968 en Bítlarnir prýddu
forsíðuna. Þar var einnig bréf frá
Brian þar sem hann sagði að hann
hefði stolið því skömmu eftir að
það kom út. Bréfið innihélt einnig
hundrað dollara seðil.
Tíu senta dagsektir liggja við sein
um skilum en sektir eru að hámarki
hundrað dollarar.
Í samtali við AP þakkaði safnstjór
inn Brian fyrir að skila blaðinu. Það
verður ekki til útláns framar. – jóe
Bítlunum skilað
eftir fimmtíu ár
Mótmælin nú eru stærri en
heimsbyggðin hefur van
ist hingað til. „Þegar
Bouteflika tilkynnti
um framboð sitt
árið 2014 mót
m æ l t u t u g
þúsundir þeirri
ák vörðu n. Nú
er u þeir mun
f l e i r i , m ö r g
hundruð þúsund
manns. Þá er meiri
hiti í þeim, þau eru
stærri og í f jölmenn
ari borgum en áður,“ segir
Omar Ashour, prófessor við Qatar
Doha Institute, við Al Jazeera.
Sem fyrr liggja tölur
u m ma nnfa l l ek k i
fyrir. Staðfest er þó að
Hassan Benkhedda,
sonur Benyoucef
Benkhedda fyrsta
forsæt isráðher ra
landsins eftir að
það fékk sjálfstæði
frá Frakklandi, lést í
mótmælum nærri for
setahöllinni í Algeirs
borg á laugardag.
joli@frettabladid.is
4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
8
-E
2
6
8
2
2
7
8
-E
1
2
C
2
2
7
8
-D
F
F
0
2
2
7
8
-D
E
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K