Fréttablaðið - 04.03.2019, Side 10

Fréttablaðið - 04.03.2019, Side 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Það mega þessar tvær konur eiga að hvorug þeirra verður kennd við klækj- astjórnmál. Aftur hefur sigið á ógæfuhliðina eftir þann tíma og þróunin er nú hröð í átt til ójafnaðar.匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㄀㈀ ∠ ㄀㄀  刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㄀㔀㄀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀 䔀爀 樀攀瀀瀀椀渀渀 爀愀昀洀愀最渀猀氀愀甀猀 㼀 猀琀愀爀琀 昀礀爀椀爀 樀攀瀀瀀愀渀渀  瘀攀琀甀爀嘀攀氀搀甀 爀甀最最琀 䴀氀甀洀 ∠ 匀欀椀瀀琀甀洀 ∠ 吀爀愀甀猀琀 漀最 昀愀最氀攀最 ︀樀渀甀猀琀愀 Allt frá hruni hefur þjóðin borið lítið sem ekkert traust til bankakerfisins enda eru stjórnendur þess með ofurlaun á sama tíma og bankinn hirðir alls kyns óþarfa gjöld af viðskiptavinum. Það ætti að vera nánast ómögulegt fyrir aðrar stofnanir að skáka bönkunum í óvinsældum. Íslenskum stjórnmála- mönnum hefur samt tekist það. Í nýrri mælingu Gallups á trausti til stofnana kemur í ljós að traust almennings á Alþingi og borgarstjórn Reykjavíkur er enn minna en á bönk- unum. Traust til Alþingis var að hífast upp, en þá fóru nokkrir fulltrúar þjóðarinnar á alræmt fyllirí. Þeir sitja enn á þingi, í óþökk þjóðarinnar. Nú er traust til Alþingis 18 prósent og í sömu könnun mælist minnst traust til borgarstjórnar eða 16 prósent. Það hefur ekki farið framhjá þjóðinni að algjör ringulreið ríkir í Ráðhúsinu og hún sér enga ástæðu til að treysta þeim fulltrúum sínum sem þar sitja. Klögumálin sem ganga á milli þessara fylkinga eru ekki sæmandi kjörnum fulltrúum þjóðarinnar. Þar ber minnihlutinn reyndar mun meiri sök en meirihlutinn, en burtséð frá því þá er ljóst að gríðarleg orka fer í argaþras þegar hún ætti að nýtast til uppbyggilegra starfa í þágu borgar- búa. Kjörnir fulltrúar þjóðarinnar, á Alþingi og í Ráð- húsinu, eiga mikið verk fyrir höndum ætli þeir sér að endurheimta traust þjóðarinnar. Ekki er sjálfsagt að það takist. Það má samt koma auga á ljósglætu. Á sama tíma og þjóðin er enn eina ferðina að gefast upp á stjórnmálamönnum sínum var forsætisráð- herra þjóðarinnar, Katrín Jakobsdóttir, yngsti kven- leiðtogi Evrópu, valin ein af tuttugu áhrifamestu konum heims af við skipta tíma ritinu CEO Mag azine. Tímaritið sagði konurnar á listanum eiga það sam- eiginlegt að vilja og leitast við að gera heiminn betri – og það veitir svo sannarlega ekki af því. Landsmenn ættu að vera stoltir af Katrínu Jakobsdóttur, hvort sem þeir fylgja flokki hennar að málum eða ekki. Hún er heiðarleg og hrein- skilin, hörkudugleg og með jarðsamband. Fyrir ekki ýkja mörgum árum áttu Íslendingar aðra konu sem gegndi starfi forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, og hafði einnig þessa eiginleika til að bera, en á sínum tíma setti Forbes hana á lista yfir valdamestu konur heims. Síst af öllu hafa Katrín og Jóhanna gert sig sekar um að skandalísera úti í bæ, eins og of margir stjórnmálamenn hafa á samvisk- unni, og yfirleitt komist upp með. Mjög var þjarmað að Jóhönnu á sínum tíma og Katrín fær sömuleiðis sínar skammir. Enginn stjórnmálamaður er hafinn yfir gagnrýni en það mega þessar tvær konur eiga að hvorug þeirra verður kennd við klækjastjórnmál. Það þarf f leiri þeirra líka í stjórnmálin. Það er nóg komið af stjórnmálamönnum sem stunda framapot af mikilli elju, telja ýmiss konar hrossakaup vera sjálfsagðan hluta af starfinu og hafa um leið stórar og miklar hugmyndir um eigið ágæti. Ef heiðarleiki væri ríkjandi afl í íslenskri pólitík væri traust til stjórnmálamanna mun meira en nú er. Heiðarleiki Innan norrænna samfélaga mælist ekki bara minni ójöfnuður en annars staðar heldur líka meira traust, meiri sátt, meiri samheldni, betri heilsa og færri glæpir. Allt fylgir þetta jöfnuðinum. Stjórnvöld ættu því að setja aukinn jöfnuð í algjöran forgang. Þróunin hefur hins vegar verið þveröfug hér á landi seinni árin og andrúmsloftið eftir því. Á árunum fyrir hrun jókst ójöfnuður þegar fjármagns- tekjur jukust mikið hjá efstu tekjuhópunum og ekki síður vegna stefnu hægri sinnaðra ríkisstjórna í skatta- og bótamálum. Jöfnuður jókst aftur eftir hrun, vegna þess að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur, sem starfaði frá 2009 til 2013, beitti skatta- og bótakerfinu markvisst til jöfnunar. Aftur hefur sigið á ógæfuhliðina eftir þann tíma og þróunin er nú hröð í átt til ójafnaðar. Til að bregðast við þurfum við nú að hækka fjármagnstekjuskattinn og leggja skatt á stóreignir og auðlegð. Auðlindagjöld verða að hækka og renna til þjóðarinnar eins og sanngjarnt er. Bætur og opinber stuðningur ættu að hækka í takti við laun og gjaldheimtu af veiku fólki þarf að linna. Vilji stjórnvöld auka jöfnuð, samfélagslegt traust og stuðla að raunverulegri þjóðarsátt, þarf að beita bæði skatta- og bótakerfinu og hætta gjaldtöku innan velferðarkerfisins. Tekjutengingar bóta eru mun meiri hér á landi en í hinum norrænu ríkj- unum. Barnabætur byrja t.d. að skerðast, samkvæmt ákvörðun núverandi ríkisstjórnar, við lágmarkslaun og launafólk með meðaltekjur fær alls engar barna- bætur sem í augum stjórnvalda eru fátækrastyrkur. Samfylkingin hefur margoft bent á að stjórnvöld hafi á undanförnum árum veikt helstu jöfnunar- tæki hins opinbera. Þetta hefur verið pólitísk stefna Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í ríkisstjórn og er nú gert með stuðningi Vinstri grænna. Samfylkingin tekur heils hugar undir hugmyndir ASÍ um breyting- ar á gjaldtöku, sköttum og bótum. Með þeim munu kjör almennings batna en auk þess fengist meiri sátt í íslensku samfélagi. Það er til mikils að vinna. Jöfnuður, traust og sátt Oddný Harðardóttir þingmaður Sam- fylkingarinnar Málgleði Sem kunnugt er teppti þing- f lokkur Miðf lokksins þingstörf í liðinni viku þegar til stóð að afgreiða eftirleguaf lands- krónur úr þinginu. Samtals töluðu þingmennirnir í nærri 19 klukkustundir við 2. umræðu frumvarpsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður f lokksins og nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd, hafði verið fjarri góðu gamni við nefndarstörfin og ákvað því að láta til sín taka. Alls tók hann 84 sinnum til máls en 60 prósent ræðna hans á yfirstandandi þingi tengdust þessu máli. Vafa- laust hefði hann getað forðað sér, og öðrum, frá þessu með nærveru á nefndarfundum. Nándin Undanfarið hafa laun stjórn- enda ríkisbanka verið talsvert í umræðunni og virðist sem trún- aðarrof hafi orðið milli stjórn- valda og Bankasýslu ríkisins og stjórna bankanna. Formenn stjórnarf lokkanna hafa allir kallað eftir því að launahækk- anir verði dregnar til baka, að hluta hið minnsta. Eftir að ríkið eignaðist banka í kjölfar efnahagshrunsins voru menn sammála um að koma Banka- sýslunni á fót til að tryggja að bankarnir yrðu í armslengd frá stjórnvöldum. Grípi stjórnvöld inn í núna, hver er þá tilgangur stjórna og Bankasýslunnar? joli@frettabladid.is 4 . M A R S 2 0 1 9 M Á N U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 7 8 -C E A 8 2 2 7 8 -C D 6 C 2 2 7 8 -C C 3 0 2 2 7 8 -C A F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.