Morgunblaðið - 14.11.2018, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 4. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 268. tölublað 106. árgangur
KVENLEG
ORKA Í
KIRKJUNNI HÁTÍÐIN HEFST Í DAG
BACH-TÚLKUNIN
FÆR LOFSAM-
LEGA DÓMA
EVERYBODY’S SPECTACULAR 30 VÍKINGUR HEIÐAR 31LISTAVERKIÐ MÓÐIRIN 12
Morgunsólin var falleg úti við Örfirisey í gærmorgun, þegar
litið var til austurs yfir borgina og allt upp á Hellisheiði, þar
sem gufubólstrar frá virkjunarsvæðinu stigu upp til himins.
Sólin er lágt á lofti þessi dægrin og veldur t.d. ökumönnum
ama í mestu umferðinni að morgni og aftur síðdegis. Þá er
vissara að hafa sólgleraugun uppi og hreinar rúður. Sam-
kvæmt veðurspám fer sólin að hörfa fyrir vætu og sunnan-
vindum þegar nær dregur helginni. Á morgun gæti snjóað lít-
ilsháttar norðan- og austanlands en annars ágætt veður víða.
Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er erfitt að horfa upp á þessa
aukningu,“ segir Valgerður Rúnars-
dóttir, yfirlæknir á Vogi, en dauðs-
föllum hjá yngri sjúklingum hefur
fjölgað mikið síðustu misseri.
Lengi vel létust að meðaltali um
15 manns yngri en 39 ára á hverju ári
af þeim sem komið hafa í meðferð
hjá SÁÁ. Alger sprenging hefur hins
vegar orðið síðustu þrjú ár. Árið
2016 létust 27 í þessum aldursflokki
og í fyrra létust alls 25. Fyrstu tíu
mánuði ársins hafa þegar 27 manns
yngri en 39 ára látist, svo útlit er fyr-
ir að um metár verði að ræða.
Mikil umræða hefur verið um
fíknisjúkdóma og sjálfsvíg ungs
fólks eftir viðtal Morgunblaðsins við
Vigfús Bjarna Albertsson prest á
mánudaginn. Vigfús greindi þar frá
því að tugir hefðu látist það sem af
væri ári og margir hefðu fallið fyrir
eigin hendi í tengslum við þennan
„faraldur“ sem hann kallar ástandið
í fíkniefnaheiminum. Í starfi sínu
hefði hann kynnst frásögnum af
skefjalausri hörku handrukkara sem
svifust einskis. „Fíknivandinn hefur
klárlega aukist mikið á síðustu 3-4
árum. Við sjáum um það bil tvöföld-
un á fjölda einstakra tilvika sem eru
afleiðingar neyslu í ár frá því sem
var fyrir ári,“ segir Jón Magnús
Kristjánsson, yfirlæknir á bráða-
deild Landspítalans.
„Mér finnst „faraldur fíknisjúk-
dóma“ mjög lýsandi hugtak fyrir
þetta ástand. Allar tölur benda á
sama veg, þetta er hratt vaxandi
vandamál,“ segir Jón Magnús.
Mikil fjölgun dauðsfalla
hjá fólki undir fertugu
Fleiri látist það sem af er ári en allt árið í fyrra Fíknivandinn vex mjög hratt
Fíkniefnafaraldur
» 27 manns yngri en 39 ára úr
gagnagrunni SÁÁ létust fyrstu
tíu mánuði ársins, fleiri en allt
árið í fyrra.
» Mikil fjölgun síðustu
þrjú ár.
» Tvöfalt fleiri tilvik tengd
fíkniefnaneyslu á bráða-
móttöku Landspítala í ár.
MNeysluhópurinn … »6
Lagardère
Travel Retail er
stærsti veitinga-
staður landsins á
lista Creditinfo
yfir framúrskar-
andi fyrirtæki.
Franski ferðaris-
inn rekur sex
veitingastaði á
Keflavíkur-
flugvelli en rekur auk þess verslanir
og þjónustu í 240 flugstöðvum víða
um heim. Fyrirtækið naut verulega
góðs af þeim 8,8 milljónum farþega
sem streymdu í gegnum Leifsstöð á
árinu 2017 en velta fyrirtækisins á
því ári nam 3,8 milljörðum króna og
var 280 milljónum hærri en hjá
Foodco sem kemur næst á eftir.
Hagnaður fyrirtækisins nam 248
milljónum króna en það er 80%
meiri hagnaður en hjá KFC sem er
næst á þeim lista. »16
Franskur ferða-
risi umsvifamikill
á flugvellinum
Veitingar Gríð-
arleg umsvif.
Heildarkostnaður við uppbyggingu íþróttamannvirkja á
svæði ÍR í Suður-Mjódd er að óbreyttu áætlaður um
2.333 milljónir króna á verðlagi í október 2018. Er það
14% hærra en upphaflegur samningur Reykjavíkur-
borgar við ÍR frá 2017 gerir ráð fyrir. Hækkun kostn-
aðaráætlunar er 314 milljónir króna.
Byggingarnefnd mun nú skoða hvort ná megi fram
raunhæfum sparnaði við verkefnið, s.s. með því að draga
úr umfangi þess án þess að framtíðarafnot íþróttafélags-
ins af byggingunum rýrist. Borgarráð hefur heimilað að
uppbyggingu verði haldið áfram á svæðinu en undir-
strikar að áform um sparnað nái fram að ganga. »4
Reynt að draga úr fram-
úrkeyrslu í Suður-Mjódd
ÍR-ingar Mikil upp-
bygging framundan.
Eftir að hafa verið í rannsókn hjá
Seðlabankanum kærði bankinn
framkvæmdastjóra Vinnslustöðv-
arinnar og stjórn fyrirtækisins til
embættis Ríkislögreglustjóra árið
2011. Fyrirtækið vissi hins vegar
ekki af kærunni í þrjú ár.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirs-
son, framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar, segir að gagnvart
Vinnslustöðinni hafi Seðlabankinn
leikið tveimur skjöldum og sýnt af
sér dæmalausa hegðan. Það komi
honum ekki sérstaklega á óvart að
Seðlabakinn hafi goldið atlögu
sinnar gegn Samherja í réttarsöl-
um.
Nú þegar þessu máli sé lokið
sjái hann að tilgangurinn hafi verið
að koma höggi á sjávarútveginn í
pólitískum tilgangi árið 2011 og
þyrla upp moldviðri á sama tíma
og veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar hafi verið kynnt. » 10
Vissu ekki af kæru
Seðlabankans í 3 ár Atvinnulausum fjölgaði um 769 íoktóber, miðað við sama mánuð á
síðasta ári. Á sama tíma fjölgar at-
vinnuleyfum sem Vinnumálastofn-
un veitir erlendum ríkisborgurum.
Leyfin eru orðin 1.769 það sem af
er ári, fleiri en allt árið 2017. Sér-
stök fjölgun er hjá starfsmönnum á
vegum starfsmannaleiga.
Alls voru 43.726 erlendir ríkis-
borgarar búsettir hér á landi um
síðustu mánaðamót og fjölgaði
þeim um 5.914 manns frá 1. desem-
ber sl. eða um 15,6%. Flestir eru frá
Póllandi, rúmlega 19 þúsund. »18
Fleiri erlendir ríkis-
borgarar við vinnu