Morgunblaðið - 14.11.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018
VIÐTAL
Gústaf Adolf Skúlason
Svíþjóð
Í dag dregur til tíðinda í sænskum
stjórnmálum. Þingið greiðir atkvæði
um forsætisráðherraefni. Hingað til
hefur tillaga um forsætisráðherra
alltaf verið samþykkt, en nú er uppi
meiri óvissa en áður og allt getur
gerst.
Laufblöðin fuku í vindinum 8.
nóvember sl. Fyrir utan sænska
þingið, Sveriges Riksdag, að norð-
anverðu má í góðu veðri sjá ráðhús
Stokkhólmsborgar tróna skammt
hjá í öllu sínu skarti með þrjár
glampandi kórónur. Í þetta sinn var
krúnan mistri hjúpuð og minnti á
stjórnmálaástandið en elstu menn
muna ekki eftir annarri eins stjórn-
málaþoku í Svíþjóð.
Einn er sá maður er mestu kappi
etur við að blása hindrunum úr vegi
og hleypa birtunni inn svo Svíar geti
eignast nýja ríkisstjórn. Andreas
Norlén heitir hann og er nýkjörinn
forseti sænska þingsins – tal-
mannen eins og Svíar segja. Eitt
fyrsta verk hans var að efna til at-
kvæðagreiðslu um traust þingsins
til forsætisráðherrans Stefans Löf-
vens sem var felldur með 204 at-
kvæðum en 142 þingmenn studdu
ráðherrann. Er það í fyrsta skipti í
sögu þingsins sem sitjandi forsætis-
ráðherra fellur á vantrausti.
Það var bjart yfir talmanninum
og ritara hans þegar þau tóku á
móti sendiboða Morgunblaðsins á
skrifstofu talmannsins í þinghúsinu.
Sú hlýja og gestrisni sem boðið var
upp á eru til marks um þann sér-
deilis góða vinarhug sem frændur
okkar Svíar sýna Íslendingum.
Fyrsta spurningin til talmannsins
fjallaði um þingræðið í Svíþjóð.
- Eitt af því sem vefst fyrir mönn-
um er hið svokallaða neikvæða þing-
ræði sem talmaðurinn hefur rætt
um að gildi í Svíþjóð. Hvað er átt
við með hugtakinu neikvætt þing-
ræði?
„Þingræði þýðir að ráðandi ríkis-
stjórn verður að njóta trausts
þingsins og í sænsku útfærslunni
þýðir það að sá einstaklingur sem
þingið kýs sem forsætisráðherra
þarf ekki að hafa meirihluta þing-
manna að baki sér til að ná kjöri
heldur er krafan sú að tryggt sé að
meirihluti þingsins lýsi ekki yfir
vantrausti gagnvart forsætisráð-
herraefninu. Það sem er afgerandi
er að forsætisráðherrann fái ekki
175 eða fleiri atkvæði gegn sér.
Minna máli skiptir hversu mörg at-
kvæði eru að baki forsætisráð-
herranum.
Jákvætt þingræði eins og ég
túlka að sé ríkjandi t.d. í Þýskalandi
krefst þess að kanslarinn fái virkan
stuðning meirihluta þingsins til að
ná kjöri. Þannig höfum við ekki lagt
upp hlutina í Svíþjóð heldur höfum
svokallað neikvætt þingræði sem
segir að ekki sé hægt að ná kjöri
sem forsætisráðherra ef meirihluti
þingmanna leggst gegn því.“
Fagna 100 ára afmæli
lýðræðisins í ár
- Áður hafði konungurinn það
hlutverk að fela stjórnmálaleiðtog-
um stjórnarmyndunarumboð en
núna er það í höndum talmannsins.
Gætir þú útskýrt hvernig sú þróun
átti sér stað?
„Já, áður var það hlutverk kon-
ungs og þannig er það enn víða í
Í heimsókn hjá „talmanninum“
Mikið hefur mætt á Andreas Norlén, forseta sænska þingsins, frá þingkosningum í september
Atkvæði verða greidd í dag um forsætisráðherraefni Óvissa um niðurstöðu kosningarinnar
Ljósmynd/GS
Talmaður sænska þingsins Andreas Norlén á skrifstofu sinni. Hann verður í eldlínunni á þingfundi í dag þegar kosið verður um forsætisráðherra.
9. september 2018: Almennar
þingkosningar. Átta flokkar kjörn-
ir á þing.
24. september: Þing kemur
saman, forseti þingsins – talmað-
urinn – valinn.
25. september: Þingið formlega
sett af Svíakonungi. Sama dag
kýs þingið um traust á forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, Stefan Löfven,
sem féll á 204 mótatkvæðum
gegn 142 sem studdu Löfven. Tal-
maðurinn vék þá Stefan Löfven úr
starfi forsætisráðherra en bað
hann jafnframt að sitja áfram þar
til ný stjórn yrði mynduð.
26. og 28. september heldur
talmaðurinn fund með öllum
flokksleiðtogum, hverjum fyrir
sig.
2. október felur talmaðurinn Ulf
Kristersson, formanni Moderat-
arna, að kanna grundvöll
ríkisstjórnarmyndunar innan
tveggja vikna. Sama dag velja
þingnefndir formenn og varafor-
menn þingnefnda sem skiptast á
alla flokka aðra en Svíþjóð-
ardemókrata.
14. október heldur talmaðurinn
blaðamannafund og tilkynnir að
Ulf Kristersson hafi mistekist að
skapa grundvöll til myndunar
nýrrar ríkisstjórnar.
15. október felur talmaðurinn
Stefan Löfven formanni Sósíal-
demókrata að kanna grundvöll
ríkisstjórnarmyndunar innan
tveggja vikna.
29. október skilar Stefan Löf-
ven umboðinu aftur til talmanns-
ins, þar sem honum mistókst að
skapa grundvöll til myndunar
nýrrar ríkisstjórnar. Sama dag
hélt talmaðurinn stutta fundi með
leiðtogum allra stjórnmálaflokka
hverjum fyrir sig.
30. október: Talmaðurinn held-
ur fundi með flokksleiðtogum
flokka til að ræða fjóra hugs-
anlega möguleika til ríkisstjórnar-
myndunar.
5. nóvember: Talmaðurinn lýsir
því yfir að hann myndi leggja
fram þá tillögu að þingið kysi um
Ulf Kristersson, formann Mod-
erata, sem næsta forsætisráð-
herra Svíþjóðar.
12. nóvember fer tillaga tal-
mannsins í þinglegt ferli.
14. nóvember 2018 kl. 9 að
sænskum tíma, 8 að íslenskum
tíma, greiðir þingið atkvæði um
Ulf Kristersson sem næsta for-
sætisráðherra Svíþjóðar. Verði
hann felldur með meirihluta þings
á móti sér er það í fyrsta skipti í
sögu sænska þingsins sem tillaga
talmannsins um forsætisráðherra
er felld. Hingað til hefur alltaf
fyrsta tillaga talmannsins verið
samþykkt. Talmaðurinn getur
samtals fjórum sinnum borið upp
tillögu um forsætisráðherra til at-
kvæðagreiðslu og felli þingið allar
verður efnt til nýrra þingkosninga
innan þriggja mánaða eftir fjórðu
atkvæðagreiðsluna.
Atburðarásin frá kosningum
STJÓRNARMYNDUNARTILRAUNIR
Á kjörskrá voru 7.495.936 kjósendur.
6.535.271 kaus sem er 87,18% kjörsókn, 1,38% meiri en 2014.
Tölur í sviga sýna mun miðað við kosningarnar 2014.
Moderaterna 19,84% og 70 þingmenn (- 3,49%).
Miðflokkurinn 8,61% og 31 þingmann (+ 2,49%).
Frjálslyndi flokkurinn 5,49% og 20 þingmenn (+ 0,07%).
Kristilegir demókratar 6,32% og 22 þingmenn (+ 1,75%).
Sósíaldemókratar 28,26% og 100 þingmenn (- 2,75%).
Vinstriflokkurinn 8% og 28 þingmenn (+ 2,29%).
Umhverfisflokkurinn 4,41% og 16 þingmenn (- 2,47%).
Svíþjóðardemókratar 17,53% og 62 þingmenn (+ 4,68%).
Upplýsingar: kjörstjórn val.se
https://data.val.se/val/val2018/slutresultat/R/rike/index.html
Úrslit þingkosninganna 9. september