Morgunblaðið - 14.11.2018, Side 2

Morgunblaðið - 14.11.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Mér finnst þetta í raun vera ákall til borgarinnar. Það er hins vegar ekki brugðist við því, gefið í skyn að þetta sé villandi og ég fæ ekki betur séð en að þessu bréfi sé enn ósvarað,“ segir Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins, við Morgunblaðið. Vísar hann í máli sínu til erindis Björns Traustasonar, framkvæmda- stjóra leigufélagsins Bjargs, til borg- arstjóra, dagsetts 22. júní síðastlið- inn. Þar óskar Bjarg eftir endur- ákvörðun byggingarréttargjalds vegna verkefna félagsins og að end- urákvörðun gildi einnig fyrir áður úthlutuð verkefni. Markmið félags- ins er að veita leigutökum, sem eru undir tekju- og eignamörkum þeim sem skilgreind eru í lögum um al- mennar íbúðir, aðgengi að öruggu húsnæði þar sem greiðslubyrði leigu verði að jafnaði ekki hærri en sem nemur 25% af heildartekjum. „Það er mikil áskorun að ná þessu markmiði í Reykjavík fyrir þá lægst launuðu. Þar vegur hátt byggingar- réttargjald þungt,“ segir í erindi Bjargs, en Reykjavíkurborg lagði upp með að Bjarg greiddi jafnaðar- verð 45.000 á fermetra fyrir bygg- ingarrétt. „Samkvæmt áætlunum Bjargs hækkar byggingarréttar- gjald 45.000 á fermetra leigu með- alíbúðar um ca. 20.000 á mánuði,“ segir þar, en „[b]estum árangri væri náð með því að fella gjaldið alveg niður“ að mati Bjargs íbúðafélags. Eyþór segir ljóst að umrætt gjald leggst þungt á alla hlutaðeigendur, leigjendur, kaupendur og þá sem standa að framkvæmdum. „Þetta gjald er svo hátt að það er erfitt fyrir félög á borð við Bjarg að afhenda íbúðir á viðráðanlegu verði.“ Heiða Björg Hilmisdóttir, borgar- fulltrúi Samfylkingar, segir meiri- hlutann í Reykjavík ekki hafa í hyggju að fella gjaldið niður á næst- unni. „Það er borgun fyrir innviða- uppbyggingu í borginni,“ segir hún. Þá sagðist Þórdís Lóa Þórhalls- dóttir, oddviti Viðreisnar, ekki geta gefið upp afstöðu sína til bygging- arréttargjaldsins þar sem hún væri stödd erlendis á vegum Reykjavík- urborgar. Líf Magneudóttir hjá Vinstri grænum telur eðlilegt að greitt sé fyrir lóðir í borginni og að það sé samið um byggingarréttargjald og innviðagjald líkt og hafi verið gert á mikilvægum uppbyggingarreitum. „Fjárfesting í innviðum þarf að standa undir sér og tekjur af bygg- ingarréttargjaldi og gatnagerðar- gjaldi eru hluti af því. Gjaldtaka á þessu sviði eins og annars staðar þarf hins vegar að vera gagnsæ og sanngjörn og það kemur vel til greina í mínum huga að breyta fyr- irkomulagi gjaldtöku þannig að t.d. óhagnaðardrifin leigufélög eða íbúð- arfélög fái afslátt eða niðurfellingu að uppfylltum skilyrðum um að verði sé haldið í lágmarki, hvort sem það er til kaups eða leigu. Það hefur aldr- ei verið stefna Vinstri grænna að búa til misskiptingu í samfélaginu eða á húsnæðismarkaði og í því ljósi finnst mér rétt að skoða alla gjaldtöku,“ segir Líf. Byggingarréttargjald þungur baggi  Framkvæmdastjóri leigufélagsins Bjargs segir byggingarréttargjald skila sér inn í hærra leiguverð og vill það burt  Oddviti sjálfstæðismanna í borginni segir gjaldið íþyngjandi fyrir alla hlutaðeigendur Morgunblaðið/Ómar Nýbygging Framkvæmdir í Reykja- vík hafa mjög verið til umræðu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslenskir aðalverktakar eiga lægsta tilboð í fyrsta áfanga breikkunar og lagningu nýs Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss. Tilboð fyrirtækisins hljóðar upp á 1.361 milljón kr. sem er 111 milljónum kr. yfir áætlun Vegagerðarinnar. Til- boðið var tæplega 9% yfir áætlun. Þessi fyrsti áfangi í breikkun Suð- urlandsvegar er um 2,5 kílómetra langur. Hefst hann austan við Hveragerði, liggur um Varmá, framhjá Íshestum og Ölfusborgum og aðeins austur fyrir Hvammsveg vestari. Gera þarf gatnamót við Vallaveg og Ölfusborgaveg og nýja hliðarvegi sem tengjast vegamótun- um og tengja bæi á leiðinni. Einnig þarf að breikka brú yfir Varmá og gera undirgöng til móts við Íshesta fyrir gangandi og ríðandi umferð. Vegurinn verður í upphafi með þremur akreinum, svokallaður 2 + 1 vegur, en þó þannig að hægt verði að hafa hann tvöfaldan í báðar áttir í framtíðinni, án þess að grafa allt upp aftur. Fullfrágenginn næsta haust Framkvæmdatími er stuttur því gert er ráð fyrir að veginum verði að fullu lokið 15. september næsta haust. Fjögur af helstu verktakafyrir- tækjum landsins sendu inn tilboð í verkið og voru tilboðin á bilinu tæpir 1,4 til rúmlega 1,6 milljarðar kr. Ís- tak átti næstlægsta tilboðið, 1.561 milljón kr. Vegagerðin fer nú yfir tilboðin og gefur að því loknu út hvaða tilboði verði tekið. Samkvæmt upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, upplýs- ingafulltrúa Vegagerðarinnar, telur stofnunin að tilboðin séu frekar há en sú þróun hafi verið í gangi undan- farin misseri. Vegagerðin sé hins vegar ánægð með að fá fjögur tilboð í flókið verk þar sem verktíminn sé einnig tiltölulega stuttur. ÍAV lægstir í breikkun Suðurlandsvegar Tölvuteikning/Mannvit Suðurlandsvegur Hér sést kaflinn, með nýjum vegi. Reiðhöll og hótel Íshesta sjást í forgrunni.  2+1 vegur austan Hveragerðis á að vera tilbúinn eftir aðeins 10 mánuði Helgi Bjarnason Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Hægt verður á ýmsum framkvæmd- um á næsta ári, samkvæmt breyting- artillögum sem meirihluti fjárlaga- nefndar leggur til fyrir aðra umræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs. Það á m.a. við um framkvæmdir við Landspítala, Alþingishúsið og stjórnarráðið. Þá verða framlög til málefna öryrkja lækkuð um 1,1 milljarð frá því sem áformað var í frumvarpinu, úr 4 milljörðum í 2,9 milljarða kr., og færist þess í stað yf- ir á árið 2020. „Verðbólgan lætur aðeins á sér kræla, hagvöxtur er aðeins minni en gert er ráð fyrir og einkaneysla er að dragast saman. Þetta hefur allt áhrif á stærðir í frumvarpinu,“ segir Will- um Þór Þórsson, formaður fjárlaga- nefndar. Það leiðir til þess að launa- og verðlagsbætur hækka og því þurfi að mæta. Nefndin lauk umfjöllun um frumvarpið í gær og meirihlutinn og minnihlutaflokkarnir leggja fram breytingartillögur á morgun, þegar önnur umræða hefst í þinginu. Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar og 2. varaformaður fjárlaganefndar, segir það fordæmalaust að meirihluti fjár- laganefndar leggi til lækkun fram- laga til öryrkja á milli umræðna. Þeir 4 milljarðar sem áttu að bætast við málaflokkinn hafi ekki verið stór fjárhæð, myndi til dæmis aðeins duga fyrir þriðjungi af þeim útgjöld- um sem afnám skerðingar krónu á móti krónu hefði í för með sér. Blaut tuska í andlitið Ágúst nefnir einnig að meirihlut- inn lækki húsnæðisstuðning um 100 milljónir. Það sé eins og köld tuska í andlit verkalýðshreyfingarinnar sem hafi sagt að húsnæðismálin séu eitt helsta baráttumál hennar í komandi kjaraviðræðum. Hjúkrunarheimilin fái aðeins um fimmtung af þeim við- bótarframlögum sem þau þurfi til reksturs. Willum Þór segir að starfshópur sé að vinna að útfærslu tillagna um nýtingu viðbótarfjármagns til mál- efna öryrkja. Segir hann ljóst að ekki verði hægt að nýta alla fjárhæð- ina á næsta ári og því frestist hluti hennar fram á árið 2020. Hluta hækkunar til öryrkja frestað  Fjárlagafrumvarpið til þingsins Huginn VE 55 kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í gær, eftir talsverðar breytingar í skipasmíðastöð í Pól- landi. Heimferðin gekk vel. Huginn er frystiskip og fjölveiðiskip. Skipið var smíðað árið 2001 í Chile en var nú lengt um 7,2 metra. Með því stækkar lestarrými um 600 rúmmetra og verður skipið þá betur útbúið til að sjókæla aflann og landa honum ferskum en ekki fryst- um. Með því aukast valmöguleikar útgerðarinnar. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Huginn VE til heimahafnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.