Morgunblaðið - 14.11.2018, Side 18

Morgunblaðið - 14.11.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mark Zuc-kerberg,stofn- andi, aðaleigandi og stjórnandi Facebook, við- urkenndi fyrir nefnd öldungadeildar Banda- ríkjaþings í vor að Kísildalur væri „gríðarlega vinstrisinnað svæði“. En hann bætti því við að stjórnmál hefðu engin áhrif á hvernig Facebook stýrði efni á samfélagsvefnum risavaxna. Í sama vitnisburði Zucker- bergs kom fram að afstaða til stjórnmála hefði ekkert haft með það að gera að einn af starfsmönnum Facebook, Pal- mer Luckey, hefði hætt hjá fyrirtækinu. Luckey þessi þótti, og þykir enn, standa framarlega þegar kemur að sýndarveruleika og Facebook keypti af honum fyrirtæki á því sviði árið 2014. Tveimur árum síðar gerðist það svo að Luckey þótti hallur undir framboð Donalds Trump og studdi þá sem börðust gegn Hillary Clinton. Nokkrum mánuðum síðar, eftir uppnám innan fyrirtækisins vegna þessarar afstöðu starfsmanns- ins, hraktist hann á brott en hvorki hann né fyrirtækið gáfu á því skýringu. Nú hefur Luckey hins vegar sagt frá því, sem þeir sem til þekktu þóttust vita, að hann hefði verið látinn fara vegna pólitískra skoðana sinna. Þetta er óneitanlega áhyggjuefni og vekur spurn- ingar um heilindin í því þegar Zuckerberg segir að stjórn- mál hafi engin áhrif á það hvernig Facebook stýrir efn- inu á vefnum. Facebook getur haft mjög mikil áhrif með því að stýra því sem notendurnir sjá. Ef til vill segir Zucker- berg satt um að samfélags- miðillinn sé ekki misnotaður í pólitískum tilgangi, en er víst að svo sé? Ef menn missa vinnuna við að styðja tiltekinn stjórnmálamann eða vera and- snúnir öðrum, er þá líklegt að miðillinn sé hlutlaus að öðru leyti? Og hvað með aðra miðla sem sprottnir eru upp úr og starfa í sama umhverfi, svo sem Twitter, eða leitarvélina Google? Er umburðarlyndið meira þar? Eða hlutleysið? Kísildalur er gríðar- lega vinstrisinnaður, en umburðarlyndið er minna} Spurningar vakna um Facebook Það eru ótalsanninda- merki til um það að mælingar í skoð- anakönnunum snemma á kjör- tímabili hafi lítið forsagnargildi um kosningar mörgum árum síðar. Þannig hefur það oft gerst að einstakir flokkar hafi skotist í háhæðir á miðju kjörtímabili og skapað miklar væntingar en innstæðan horfið að mestu þegar að kosningum kom. Nefna má Bandalag jafn- aðarmanna fyrir rúmum fjór- um áratugum, Alþýðuflokk sem skaust yfir 30% í nokkrum könnunum ekki löngu síðar, svo Samtök um kvennalista, Borgaraflokk Alberts Guð- mundssonar, Þjóðvaka og frá seinustu kjörtímabilum t.d. Flokk fólksins. Allar þessar fylgisbólur kölluðu á mikið umtal og spár um að flest væri nú á hverfandi hveli í stjórn- málum. En í öllum þessum til- vikum, sem nefnd voru af handahófi, og mörgum fleirum varð lítið úr þegar til kastanna kom og varanleg áhrif af upp- sveiflu einstakra flokka eða framboða léttvæg. Af þessum ástæðum er sjálf- sagt að leggja ekki mikið upp úr könnun MMR sem birt var í gær. Þar var reyndar enginn hástökkv- ari sem skar sig úr og virðist sú grein hafa verið sett til hliðar um hríð og einungis keppt í því hvaða flokkur gæti orðið hæstur í lágstökki. Sjálfstæðisflokkurinn mældist þannig með 19,8% fylgi sem einhvern tíma hefði þótt saga til næsta bæjar og jafnvel til bæjarins utan við hann. Hinn burðarflokkur ís- lenskra stjórnmála, Fram- sóknarflokkurinn, mældist að- eins með 8,8% fylgi og bætir þó við sig einu prósentustigi frá síðustu mælingu, sennilega eftir að hann tók afgerandi af- stöðu í orkupakkamálinu. Stuðningur við ríkisstjórn- ina minnkar mikið á milli kannana eða um 5,3 prósentu- stig og minnkar stuðningurinn þannig um 16%. Það er eft- irtektarvert því ekki verður séð að ríkisstjórnin hafi feng- ist við erfið mál fram að þessu og eins fer fjarri að stjórn- arandstaðan birtist þjóðinni sem heildstæður og sannfær- andi kostur. Óneitanlega hefur jöfnuður í fylgi flokka aukist mjög ef marka má þessa könnun} Enginn sker sig úr H eilsugæslan ætti að vera fyrsti viðkomustaður allra í heil- brigðiskerfinu. Til þess að heilsugæslan geti staðið undir því hlutverki þarf að efla hana og styrkja, en sú styrking er eitt meginmark- miða ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í heilbrigðismálum. Nú þegar hafa verið stigin mikilvæg skref í þá átt að efla heilsugæsluna, á því tæpa ári sem liðið er síðan ríkisstjórnin tók við. Í maí síðastliðnum kynnti ég ákvörðun mína um stofnun Þróunarmiðstöðvar heilsugæslunnar á landsvísu. Þróunarmiðstöðin mun leiða fag- lega þróun allrar heilsugæsluþjónustu í land- inu og markmiðið með stofnun hennar er meðal annars að jafna aðgengi landsmanna að þessari mikilvægu grunnþjónustu hvar sem fólk býr, efla gæði þjónustunnar og stuðla að nýj- ungum. Einnig að annast innleiðingu gæðavísa, leiða samstarf á sviði rannsókna og stuðla að því að sérhæfð þekking fagfólks heilsugæslunnar um allt land nýtist sem best. Samkvæmt fjárlögum ársins 2019 verður heilsugæsl- an styrkt umtalsvert, til þess að efla hana sem fyrsta viðkomustað sjúklinga, efla teymisvinnu innan hennar og auka forvarnir og fræðslu til sjúklinga. Geðheilbrigð- isþjónusta á landsvísu innan heilsugæslunnar verður einnig efld til muna með 650 milljóna króna framlagi samkvæmt fjárlögum ársins 2019, til að fjölga geð- heilsuteymum og fjölga stöðugildum sálfræð- inga í samræmi við geðheilbrigðisáætlun al- þingis. Í byrjun október tók ég þá ákvörðun að fjölga sérnámsstöðum í heimilislækningum við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um fimm. Þörf fyrir að fjölga sérnámsstöðum í heimilislækningum er tvíþætt. Annars vegar er fjölgun sérfræðinga í heimilislækningum mikilvæg til að fylgja eftir áherslum stjórn- valda um eflingu heilsugæslunnar og aukið hlutverk hennar innan heilbrigðiskerfisins. Hins vegar er meðalaldur starfandi sérfræð- inga í heimilislækningum fremur hár og stór hópur þeirra mun fara á eftirlaun á næstu ár- um. Fjölgun sérnámsstaða í heimilislækn- ingum er því mikilvægt skref. Eins og með aðra þætti heilbrigðiskerfisins er það svo að breytingar innan heilsugæslunnar hafa áhrif á heilbrigðiskerfið allt. Efling og styrking þjónustu heilsugæslunnar hefur jákvæð áhrif á bráðamóttökur spítalanna, sem glíma alltof oft mið of mikið álag, léttir á geðdeildum spítalanna og álagi á sjúkrahúsum landsins almennt. Með eflingu heilsugæslunnar næst það mikil- væga markmið að einstaklingar fái notið þjónustu á réttu þjónustustigi innan heilbrigðiskerfisins. Þannig er tryggt að öryggi og gæði þjónustunnar samrýmist bestu fagþekkingu, og þannig viljum við hafa það. Svandís Svavarsdóttir Pistill Öflugur fyrsti viðkomustaður Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Skráð atvinnuleysi meðallandsmanna var 2,4% í ný-liðnum mánuði og jókst lít-ið eitt á milli mánaða. Þetta er hins vegar töluvert meira atvinnuleysi í októbermánuði en í sama mánuði fyrir ári og fjölgaði um 769 manns á atvinnuleysisskrá frá október 2017, þegar atvinnu- leysið mældist 1,9%. Atvinnuleysið nú er svipað og á fyrstu mánuðum ársins. Athygli vakti þegar Samtök at- vinnulífsins birtu nýverið niður- stöður könnunar meðal aðildarfyr- irtækja sem leiðir í ljós að upp- sagnir hafa verið miklar undan- farna mánuði og sú þróun muni halda áfram næstu mánuði. Mögu- lega birtast afleiðingar þessara uppsagna að einhverju leyti í þess- um nýju tölum Vinnumálastofnunar um skráð atvinnuleysi. Fram kem- ur í yfirliti Vinnumálastofnunar sem birt var í gær að gera má ráð fyrir að atvinnuleysi muni aukast í takt við árstíðasveiflu í nóvember og verða á bilinu 2,3% til 2,6%. Alls höfðu 943 verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok október en þeir voru 836 í októberlok í fyrra. Atvinnuleysið hér á landi er með því minnsta meðal OECD- ríkjanna að því er sjá má af yfirliti sem OECD birti í gær. Þær tölur ná til loka september og eru upp- lýsingar um Ísland byggðar á könn- un Hagstofunnar. Samkvæmt þeim mælist eingöngu minna atvinnuleysi en hér á landi í tveimur af 36 lönd- um innan OECD þ.e. í Tékklandi og Japan. Að meðaltali eru 5,2% fólks á vinnumarkaði í OECD- löndum án atvinnu og atvinnuleysið mælist 6,7% í löndum Evrópusam- bandsins. Mikil fjölgun starfsmanna starfsmannaleiga milli mánaða Athyglisverð þróun virðist eiga sér stað meðal útlendinga á vinnu- markaði hér á landi skv. yfirliti Vinnumálastofnunar frá í gær. Stofnunin hefur t.a.m. veitt fleiri at- vinnuleyfi það sem af er þessu ári en allt árið í fyrra eða alls 1.769 það sem af er ári. Flestir sem fengu útgefið atvinnuleyfi í seinasta mánuði fengu það til að starfa á veitingahúsum og næstflestir við umönnun. Aftur á móti fækkar þeim starfsmönnum sem hér eru á veg- um erlendra fyrirtækja. ,,Fjöldi starfsmanna á vegum erlendra fyr- irtækja var samtals 212 í október og hefur þeim fækkað um 50 frá því í síðasta mánuði. Verði sambærileg þróun áfram út árið má reikna með að útsendir starfsmenn á árinu 2018 verði um 35% færri en allt ár- ið 2017,“ segir í skýrslu Vinnu- málastofnunar. Nýliðinn mánuður var svo á hinn bóginn fjölmennasti mánuður yfirstandandi árs hvað varðar fjölda starfsmanna sem eru á vegum starfsmannaleiga. Þeir voru 1.631 í seinasta mánuði og fjölgaði um alls 215 á milli mánaða. ,,Það sem af er ári hafa ekki fleiri starfsmenn á vegum starfsmannaleiga starfað á innlendum vinnumarkaði í einum mánuði en í október síðastliðnum,“ segir í skýrslu Vinnumálastofnunar. Fleiri eru á atvinnu- leysisskrá en í fyrra Skráð atvinnuleysi frá okt. 2016 til okt. 2018 3,5% 3,0% 2,5% 2,0% 1,5% 1,0% 0,5% 0% Heimild: Vinnumálastofnun 2016 2017 2018 okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. 2,42,32,32,22,12,2 2,32,42,42,42,22,1 1,91,81,91,81,81,9 2,1 2,4 2,93,0 2,3 2,1 2,0 Við störf Atvinnulausum fjölgaði í flestum starfsgreinum í október. Morgunblaðið/Eggert Hundruð manna í atvinnuleit eru á starfsþjálfunarsamn- ingum hjá fyrirtækjum. Enginn vafi leikur á mikilvægi þessa þrátt fyrir efasemdir í um- ræðunni að mati Vinnumála- stofnunar. „Nýjustu árangurs- mælingar Vinnumálastofnunar sýna að 77% þeirra atvinnuleit- enda sem ljúka starfsþjálfunar- samningi eru ekki lengur í at- vinnuleit þremur mánuðum eftir að starfsþjálfunarsamningi lýkur. Ef litið er til sex mánaða verður hlutfallið 73% sem sýnir svart á hvítu hve árangurinn er góður og úrræðið mikilvægt í því verkefni að skapa tækifæri fyrir langtímaatvinnulausa á vinnumarkaði á ný.“ Skilar góðum árangri STARFSÞJÁLFUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.