Morgunblaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Svartur
Í ORMSSON OG SAMSUNG-SETRINU
23.
Nóv.
...og þú gerir
góð kaup á
gæðavörum frá
gæðamerkjum.
Kannaðu okkur
á facebook
og þú gætir
fengið forskot á
veisluna.
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
FACEBOOK.COM / ORMSSON.IS - INSTAGRAM.COM / ORMSSON.IS
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsyfirvöld í Kópavogi hafa auglýst til-
lögu að breyttu deiliskipulagi í Urðarhvarfi 8.
Gerir hún ráð fyrir að inndregin þakhæð verði
stækkuð til vesturs um 350 fermetra.
Tvennt vekur athygli við
umsóknina. Annars vegar
er húsið ekki fullbyggt og
hins vegar er það ein
stærsta skrifstofubygging
landsins. Hún er um 16.500
fermetrar og að auki með
um 9 þúsund fermetra bíla-
geymslu. Til samanburðar
er Norðurturninn við
Smáralind í Kópavogi rúmir
18 þúsund fermetrar.
ÞG Verk hóf smíði húss-
ins árið 2006 en gerði hlé á framkvæmdum
2008. Íslandsbanki eignaðist húsið í skuldaupp-
gjöri 2011 og eignaðist verktakafyrirtækið
Þingvangur svo húsið. ÞG Verk keypti bygg-
inguna aftur sl. vor og hyggst afhenda fyrstu
leigutökum rými þar næsta sumar.
Stórnotendur að skoða húsið
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verk,
segir eftirspurn eftir rými í húsinu eiga þátt í
áformum um að stækka efstu hæðina. Þaðan er
útsýni yfir Víðidalinn og út á sundin.
„Þrír stórnotendur eru að skoða húsið og
nokkrir minni aðilar líka. Húsið hefur fengið
töluvert mikla athygli og út úr því kom m.a.
þessi hugmynd um stækkun sem varð síðan að
umsókn um breytingu á deiliskipulaginu,“
segir Þorvaldur sem telur Urðarhvarf 8 meðal
fárra nýbygginga undir skrifstofustarfsemi
sem komi til afhendingar á höfuðborgar-
svæðinu á næstunni. Lítið hafi verið byggt af
slíkum húsum á liðnum árum og fá hús séu í
uppbyggingu eða á teikniborðinu
„Síðustu ár hefur markaðurinn tekið við hús-
næði sem til var á markaðnum. Fyrirtæki hafa
fært sig um set. Þá hefur gamalt atvinnuhús-
næði, á borð við Vodafone-húsið á Suðurlands-
braut, verið gert upp fyrir nýja leigjendur. Það
er hins vegar fyrst núna sem eftirspurn hefur
skapast eftir nýju skrifstofuhúsnæði,“ segir
Þorvaldur sem telur gott aðgengi að bílastæð-
um við Urðarhvarf 8 eiga þátt í áhuganum.
M.a. sé rætt um takmarkaðan fjölda bílastæða
við eldra skrifstofuhúsnæði í Reykjavík og
tafir á umferð til og frá miðborginni á álags-
tímum. Hann segir erfitt að spá um eftir-
spurnina eftir atvinnuhúsnæði á næstu árum.
Farið að hægja á hagkerfinu
„Það er með íslenska efnahagslífið eins og
veðrið. Maður veit aldrei hvernig það er næsta
daginn. Það er dálítið erfitt að átta sig á stöð-
unni. Það er augljóslega að hægja verulega á
öllu. Gengi krónunnar hefur gefið eftir og
vextir eru byrjaðir að hækka. Svo vofa þessar
kjaraviðræður yfir sem enginn veit hvernig
munu fara. Við erum samt bjartsýn hvað varð-
ar framhaldið og framtíðina,“ segir Þorvaldur.
Áætlað er að um 700 til 900 manns muni
starfa í Urðarhvarfi 8. Sunnan við húsið er
skrifstofuturn í Urðarhvarfi 6 en þangað flutti
verkfræðistofan Mannvit 2014. Útlit er fyrir að
innan fárra ára muni þúsundir starfa í Hvarfa-
hverfinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Kópavogi Byggð var inndregin þakhæð á austurhluta hússins. Áform eru um að stækka þakhæðina til vesturs. Húsið rúmar mörg fyrirtæki.
Stækka hálfklárað stór-
hýsi vegna eftirspurnar
ÞG Verk hyggst stækka þakhæð á Urðarhvarfi 8 vegna áhuga leigjenda
Teikning/ÞG Verk
Stórhýsi Skrifstofuhúsið Urðarhvarf 8 er í Kópavogi. Til norðurs er svæði Fáks í Víðidal.
Þorvaldur
Gissurarson
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks,
segir aðspurður að veiking krónu og
vaxta- og launahækkanir muni að óbreyttu
ýta undir byggingarkostnað íbúða.
„Þetta eru liðir sem hafa bein áhrif á
byggingarkostnað. Ég tel óhjákvæmilegt
að það skili sér út í íbúðaverðið. Það er
hætt við að við munum sjá einhverjar
hækkanir. Hins vegar er íbúðamarkaður-
inn að ná jafnvægi. Við höfum ekki séð
verðhækkanir lungann af þessu ári. Ég
held að það megi segja sem svo að mark-
aðurinn sé að leiðrétta sig og ná ákveðnu
jafnvægi,“ segir Þorvaldur.
Óvissan hefur áhrif á markaðinn
Sérfræðingur í sölu íbúða í miðborg
Reykjavíkur segir óvissu um stöðu efna-
hagsmála hafa haft áhrif á fasteignamark-
aðinn. Þessi áhrif hafi komið fram í ágúst
þegar umræða var um vanda WOW air og
aukin harka fór að færast í kjaraviðræður.
Þá séu skýr merki um að sumir lífeyris-
sjóðir hafi lækkað lánshlutfall verð-
tryggðra íbúðalána. Þeir séu að stíga á
bremsuna. Sjóðirnir hafa aukið hlutdeild
sína á markaðnum hratt og boðið jafnvel
betri vexti en bankarnir.
„Það er algengt að tveir til þrír kaup-
endur séu í keðju við fasteignakaup. Síð-
ustu mánuði er orðið algengara að brestir
verði í keðjunni með þeim afleiðingum að
hún slitnar og það þarf að byrja upp á
nýtt. Annað sem vekur athygli er að er-
lendir aðilar eru að kaupa dýrar eignir. Það
getur tekið þá jafnvel nokkra mánuði að fá
tilskilin leyfi fyrir kaupunum. Raunar selj-
ast dýrari eignir betur en minni og ódýrari
íbúðir,“ sagði umræddur heimildarmaður
um markaðinn.
Raunverðið breytist lítið
Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur
hjá Íbúðalánasjóði, segir útlánatölur í
september ekki benda til breytinga á út-
lánum lífeyrissjóða. Hann segir aðspurður
að ef samspil launahækkana og skatta-
breytinga leiði til þess að ráðstöfunar-
tekjur aukist hafi það líklega áhrif á íbúða-
verð til hækkunar.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar og
Þjóðskrár Íslands hækkaði raunverð fast-
eigna á höfuðborgarsvæðinu um 1% í
ágúst frá ágúst í fyrra og 1% í september
frá sama mánuði í fyrra.
Ýtir undir
byggingar-
kostnað
HÆRRI LAUN OG VEXTIR
Bryggjuhverfið Íbúðahverfi í byggingu.
Morgunblaðið/Eggert