Morgunblaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018 25
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Stólajóga kl.9:30 -
Gönguferð, gengið góðan hring um hverfið kl.10:15 - Tálgað í tré
kl.13:00 - Postulínsmálun kl.13:00 - Línudans kl.13:30, 500 kr. tíminn -
Bíó í miðrými kl.13:20 - Kaffi kl.14:30 -15:20
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Boccia
með Guðmundi kl. 10.Leshringur með Heiðrúnu kl.11. Bridge kl. 13-16.
Bónusbíll, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leib. kl.
12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS-fræðslu- og félagsstarf kl.
14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Boccia kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30. Bridge og Kanasta kl.
13.00.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12:00 Súpa og brauð eftir
stundina á vægu verði. Fataverslunin Logy mætir á með nýjustu fötin
í haustlínunni hjá sér. Tilvalið tækifæri að versla jólafötin. Spilum,
spjöllum og eigum góða samveru. Allir velkomnir
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverkstofa kl. 13.00. Landið
skoðað með nútímatækni kl.13.50. Kaffiveitingar kl.14.30. Allir vel-
komnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi 9-10, bútasaumur 9-12,
hópþjálfun með sjúkraþjálfara 10:30-11:15, bókband 13-17, frjáls spila-
mennska 13-16, opin handverkstofa 13-16, félagsvist 13:30-16. Verið
velkomin í Samfélagshúsið á Vitatorgi, Lindargötu 59. Síminn er 411-
9450
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. 7:30/15:00. Qi Gong Sjál. kl. 9:00. Karlaleikf.
Ásg.kl.12:00. Boccia. Ásg. kl. 12:45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl.
10:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl.
14:45. Tréskurður/smíði kl. 9:00 /13:00 í Kirkjuhvoli. Línudans í Kirkju-
hvoli kl. 13:30/14:30. Félagsvist í Jónshúsi kl. 20:00.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Keramik málun kl.
09:00-12:00. Glervinnustofa m/leiðb. kl 13:00-16:00. Línudans kl.
13:00-14:00. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:30 Qigong 10:30-11:30.
Gönguhópur um hverfið kl. 10:30-. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 10.00 stólaleikfimi, kl. 13.00 handa-
vinna, kl. 13.00 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14.00
hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 15.00 dans.
Grafarvogskirkja Í dag er opið hús í Grafarvogskirkju. Hefðbundin
dagskrá sem byrjar með kyrrðarstund klukkan 12:00. Brauð og súpa
í boði fyrir vægt gjald eftir stundina og svo byrjar söngstund með
Hilmari klukkan 13:00. Handavinna, spil og spjall fyrir þau sem vilja
og stundinni líkur svo með kaffisopa klukkan 15:00. Verið öll hjartan-
lega velkomin.
Grensaskirkja Kyrrðarstund kl 12
Gullsmári Myndlist kl. 9.00. Boccia kl 9.30. Málm og Sifursmíður Ca-
nasta / Tréskurður kl. 13.00.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og
hádegismatur kl. 11.30. Bridge í handavinnustofu kl. 13, gönguferð
um hverfið með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður Við byrjum daginn við Hringborðið, heitt á könnunni.
Myndlist hjá Margréti frá kl. 09:00. Thai Chi með Guðnýju kl. 09:00,
leikfimi kl. 10:00. Spekingar og spaugarar með Ásdísi Skúlad. kl.
10:45. Hádegismatur. Myndilistarhópurinn Kríurnar kl. 13:00. Bridge
kl. 13:00. Leiðbeiningar á tölvu kl. 13:10. Enskunámskeið kl. 13:00.
Síðdegiskaffi. U3A félagsmenn koma í hús kl. 16:30.
Korpúlfar Listmálun og postulínsmálun kl. 9 í dag í Borgum. Boccia
kl. 10 og 16 í Borgum. Helgistund kl. 10:30 í Borgum og leikfimishópur
Korpúlfa í Egilshöll kl. 11 allir velkomnir, Ársæll leiðbeinir. Sundleik-
fimi í Grafarvogssundlaug kl. 13:30 í dag og heimanámskennsla í
Borgum kl. 16:30.
Neskirkja Krossgötur kl. 13.00. Sett út af sakramentinu. Sakamál
fyrri alda. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur í Neskirkju fjallar um efnið.
Kaffiveitingar
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffispjall í
króknum kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi
kl. 11.30. Bridge í Eiðismýri 30 kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu
kl. 14.00. Munið bingóið í salnum á Skólabraut nk. fimmtudag 22.
nóv. kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13.00.
Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti
er til sölu frá kl. 14.30-15.00. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-
2586.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13.00, allir velkomnir. Fimmtudaginn 22.
nóvember bókmenntaklúbbur, kl. 14:00 -15:45. Þá verður lesin og
rædd bók Bjarna Harðarsonar "Í skugga drottins".
Félagslíf
EDDA 6018112019 III
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Vala Pálsdóttir, formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna, verður gestur á
hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn
21. nóvember kl. 12:00, í Valhöll,
Háaleitisbraut 1. Vala mun þar ræða við
okkur um nýjar áherslur í heilbrigðismálum
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á
súpu gegn vægu gjaldi,
1000 krónur.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Til sölu
KRISTALS LJÓSAKRÓNUR
í Glæsibæ
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. Handskornar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell,
kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL,
Glæsibær
Sími 7730273
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Smá- og raðauglýsingar
✝ Gissur Jensenfæddist í Múla á
Selfossi 12. janúar
1944. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 13.
nóvember 2018.
Foreldrar hans
voru Jóna Gissurar-
dóttir, f. 22.9. 1908 í
Votmúla í Sand-
víkurhreppi, og Ró-
bert Georg Jensen, f. 16.8. 1910
í Álaborg í Danmörku. Systkini
hans eru Björn, f. 6.4. 1939, og
Jóhanna, f. 17.8. 1946.
Gissur kvæntist Hansínu Ástu
Stefánsdóttur 14.1. 1967, f. 2.2.
1949, d. 24.6. 2007. Foreldar
hennar voru Unnur Sigursteins-
dóttir og Stefán Jónsson.
Synir Hansínu Ástu og Giss-
urar eru: 1. Stefán Róbert, f.
10.7. 1967, eiginkona hans er
Sigrún Sigurðardóttir, f. 9.9.
1967, börn þeirra eru: Diðrik, f.
10.11. 1988, hann á tvö börn, og
Ásta Lilja, f. 18.6. 1995. 2. Axel
Þór, f. 11.3. 1974, börn hans frá
fyrra hjónabandi með Ásdísi
Björgu Ingvars-
dóttur eru: Gísli
Þór, f. 6.5. 1995,
Inga Dís, f. 10.2.
2008, og Eva Sól, f.
10.3. 2011. Axel er í
sambúð með And-
reu Ingimundar-
dóttur, f. 22.11.
1971, börn hennar
eru Arnar Freyr og
Logi Freyr. Síð-
ustu ár bjó Gissur með Guðrúnu
Berglindi Einarsdóttur, f. 9.7.
1949.
Gissur gekk í barnaskóla á
Selfossi og hann hóf störf við
Mjólkurbú Flóamanna aðeins 14
ára. Hann lærði mjólkurfræði í
Danmörku. Hjá MBF starfaði
hann í 53 ár, þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Hann
starfaði í flestum deildum
mjólkurbúsins, lengst af sem
verkstjóri og síðustu ár sem for-
stöðumaður rannsóknarstof-
unnar.
Útför hans fer fram frá Sel-
fosskirkju í dag, 20. nóvember
2018, klukkan 14.
Eftir skammvinn alvarleg veik-
indi lést faðir minn á sjúkrahúsinu
á Selfossi. Allt bar þetta frekar
brátt að og hefði ég gjarnan viljað
njóta nærveru hans mikið lengur.
Mér varð þó ljóst fyrir alllöngu
hvert stefndi. Fljótlega eftir and-
lát móður minnar 2007, sem var
honum mjög þungbært, fóru að
láta á sér kræla veikindi, veikindi
sem herja á alltof stóran hluta
þjóðarinnar. Þetta eru framleidd
og seld veikindi sem nærast á ein-
manaleika og söknuði, veikindi
sem eru illa skilgreind og erfið
viðureignar því að hver maður
nærir þau sjálfur. Erfitt er fyrir
þá er standa hjá að veita hjálp því
hennar er alls ekki alltaf óskað.
Þetta eru veikindi sem valda
dauða og sorg.
Þegar ég horfi til baka og
hugsa um æsku mína minnist ég
margra ljúfra stunda sem við
feðgar og fjölskyldan áttum. Og
ekki síst koma upp í hugann allar
veiðiferðirnar sem farnar voru í
hin ýmsu vötn og voru framvötnin
að Fjallabaki alltaf í miklu uppá-
haldi. Þangað var haldið í góðra
vina hópi og oftar en ekki slegið
upp tjöldum og veitt í tvo til þrjá
daga því þá var þetta heilmikið
ferðalag og iðulega miklar ævin-
týraferðir.
Pabbi var mikill veiðimaður og
náttúruunnandi og stundaði veið-
ar frá unga aldri. Hann var dug-
legur að hafa okkur bræður með
sér og kenndi okkur frá barnæsku
að veiða og að skjóta þegar við
höfðum aldur til.
Þessi áhugi smitaðist til okkar
beggja. Í seinni tíð var alltaf var
ein af fyrstu spurningunum hvort
eitthvað væri frétta af veiðiskap,
næst á eftir að hann var búin að
spyrja um hvort allir hefðu það
ekki gott og hvort ekki væri
örugglega nóg að gera í vinnunni.
Hann hafði mikinn áhuga á barna-
börnunum sínum og sýndi þeim
mikla ást og hlýju. Hann var víð-
lesinn og fróður og hafði miklar
skoðanir á flestum málum. Oftar
en ekki var hann ósammála síð-
asta ræðumanni og hafði yfirleitt
betur í þeim rökræðum sem
fylgdu, kannski þvert á sínar
skoðanir. Hann hafði skemmtileg-
an húmor og oft hlógum við sam-
an að einhverjum skrýtnum
bröndurum.
Mamma og pabbi voru óskap-
lega samrýnd hjón. Það var því
óskaplega sárt fyrir okkur og
hann sérstaklega þegar móðir
mín greindist með Alzheimer á
besta aldri, en betri félaga hefði
hún aldrei getað fengið í þeim
veikindum.
Undir það síðasta þegar hún
dvaldi á Landkoti gerði hann sér
ferðir alla daga til Reykjavíkur
eftir vinnu þar sem hann sat með
henni fram á kvöld.
Elsku pabbi, ég veit að þú ert á
góðum stað núna, búinn að hitta
mömmu og allt hitt fólkið þitt,
jafnvel farinn að kasta fyrir fisk
og mamma situr kannski nærri og
les í bók eða ræður krossgátu í
fullkominni sátt og friði.
Þinn sonur
Axel Þór Gissurarson.
Gissuri tengdapabba mínum
kynntist ég fyrir rúmum 35 árum
þegar ég fór að gera mig heima-
komna á heimili hans.
Mér var vel tekið frá fyrsta
degi enda Gissur einn mesti
öðlingsmaður sem ég hef þekkt.
Hann var mikill fjölskyldumaður
og barnabörnin í sérstöku dálæti
hjá honum. Þolinmæði hans
gagnvart þeim var einstök þar
sem hann gat eytt löngum stund-
um í spjall, hlustað og frætt. En
Gissur var afar vel lesinn, fróð-
leiksfús og skemmtilegur maður.
Það þýddi lítið að gefa honum
einhverja jólabók í jólapakkann
því hann var búinn með þær
flestar þegar kom að jólum. Tím-
inn var fljótur að líða þegar sest
var niður að spjalla og alltaf lærði
maður eitthvað nýtt eða skildi
hlutina betur að spjalli loknu.
Tengdapabbi var einstakur
maður, hlýr, góður og einlægur. Í
veikindum tengdamömmu stóð
hann eins og klettur allt þar til
hún lést. Ég er þakklát fyrir
þann tíma sem við áttum saman
þó að stundirnar hafi verið færri
en ég hefði viljað síðustu ár. En
minningarnar um yndislegan
mann ylja. Þú munt ávallt eiga
stórt pláss í hjarta mínu.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Sigrún.
Nú kveð ég elsku góða afa
minn í síðasta skipti. Þó að kveðj-
an sé sár og söknuðurinn mikill
er svo gott að minnast þeirra
dásamlegu stunda sem ég var svo
lánsöm að fá að njóta með hon-
um. Það voru ófá skiptin þar sem
afi sat uppi í sófa og ég hlammaði
mér á afabumbu eins og amma
kallaði það og við lásum saman
fréttir eða spjölluðum um allt á
milli himins og jarðar. Hann var
svo stoltur, hvort sem það var af
því ég var byrjuð að geta lesið
heilu setningarnar, hverja á eftir
annarri, eða af því að ég gekk á
höndum fram og til baka í stof-
unni. Hann gladdist yfir öllum
litlu sigrunum og ég er svo ótrú-
lega þakklát að hafa átt afa eins
og hann. Elsku afi minn, það er
svo margt sem mig langar að
segja og rifja upp en ég ætla að
geyma það í hjartanu mínu þang-
að til við hittumst á ný. Skilaðu
kveðju og kossum til ömmu frá
mér.
Við eigum minningar um brosið bjarta,
lífsgleði og marga góða stund,
um mann sem átti gott og göfugt
hjarta
sem gengið hefur á guðs síns fund.
Hann afi lifa mun um eilífð alla
til æðri heima stíga þetta spor.
Og eins og blómin fljótt að frosti falla
þau fögur lifna aftur næsta vor.
(Guðrún Vagnsdóttir)
Ásta Lilja Stefánsdóttir.
Gissur Jensen