Morgunblaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Vatnsheldir
Kuldaskór
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Innbyggðir
broddar
sólaí
Verð 16.995
Stærðir 36 - 47
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Buxnaleggings
Kr. 6.900 - Str. S-XXL
SVIÐSLJÓS
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Yfirskrift átaks UNICEF á alþjóða-
degi barna sem haldinn er í dag er
#börnfáorðið. Markmið dagsins er
að gefa börnum og ungmennum orðið
og skapa þeim vettvang til að tjá
skoðanir sínir opinberlega og í nær-
umhverfinu. Jökull Ingi Þorvaldsson
17 ára og Anna Arnarsdóttir 20 ára
sitja í ungmennaráði UNICEF á Ís-
landi. Jökull hefur setið í ráðinu í
fjögur ár en Anna í þrjú. Þau segja að
12 sitji í ráðinu nú en 15 sé hámarkið
og aldursbilið sé 15 til 20 ára.
„Áhuginn á að komast í ungmenna-
ráð UNICEF eykst með hverju árinu
en allt starf ráðsins miðast við að
fylgja eftir barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna, koma upplýsingum til
barna um hvaða réttindi þau hafa og
láta sjónarmið og hagsmuni barna
vera í fyrirrúmi, “ segja Anna og Jök-
ull Ingi. Þau segja að ungmennaráðið
hafi hrundið af stað verkefni í fyrra í
tilefni dags barna með gerð þriggja
myndbanda. Í myndböndunum var
rætt við börn fimm til ellefu ára og
þau spurð hvað þau vildu verða þegar
þau yrðu stór, hvað þau myndu gera
af þau yrðu forseti í einn dag, og ef
þau gætu breytt einhverju, hverju
myndu þau breyta. „Í ár gerðum við
myndbönd þar sem leikararnir voru
Jói og Króli og Inga og Begga en þau
kynntu þrjú atriði úr barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna sem verður 30
ára á næsta ári.“
Anna og Jökull Ingi segja að geð-
heilbrigðismál hvíli þungt á börnum
og ungmennum. Kvíði hafi aukist
mjög mikið og börn jafnvel í fyrstu
bekkjum grunnskóla finni fyrir ein-
kennum kvíða og þunglyndis.
„Okkur finnst að sálfræðingar
ættu að vera í öllum skólum landsins
og stytta þyrfti biðlista eftir þjónustu
í geðheilbrigðiskerfinu. Börn þurfa
önnur úrræði en fullorðnir og Ísland
hefur sérstöðu þegar kemur að mik-
illi lyfjagjöf til barna vegna kvíða og
annarra vandamála,“ segja Anna og
Jökull Ingi sem segja ungmennaráðið
einnig hafa staðið fyrir átakinu Heila-
brotum til þess að ná til barna og
ungmenna og selt boli á netinu til
styrktar flóttabörnum.
Jökull Ingi segir að ungmennaráð-
ið hafi tekið þátt í degi rauða nefsins
og sé nú farið af stað með réttinda-
fræðslu fyrir nemendur í grunnskóla.
Ráðið hafi meðal annars verið með
fræðslu í Laugarnesskóla, sem sé
einn af réttindaskólum UNICEF og
haldi í dag sitt fyrsta barnaþing í um-
sjón sjöttubekkinga.
Hagsmunagæsla fyrir börn
Eitt af hlutverkum ungmennaráðs
er hagsmunagæsla barna og ung-
menna gagnvart löggjafa og ráða-
mönnum.
„Við erum dugleg að fara á fundi
með ráðamönnum og alþingismenn
eru duglegir að hafa samband við
okkur um mál sem varða börn og
ungmenni. Ungmennaráð UNICEF,
ungmennaráð Barnaheilla og ung-
mennaráð Umboðsmanns barna eiga
sameiginlegan fésbókarvettvang með
talsmönnum barna á þingi en í þeim
hópi eru tveir þingmenn úr hverjum
flokki. Þar getum við komið sjónar-
miðum okkar á framfæri og veitt
þingmönnum hagnýt ráð þegar þeir
hitta börn áður en þeir setja lög sem
snúa að hagsmunum þeirra. Börn
koma oft með öðruvísi og skemmti-
legri og mikilvægari sýn á málin,“
segir Anna.
„Í tilefni alþjóðadags barna sendi
ungmennaráð UNICEF öllum þing-
mönnum og sveitarstjórnarmönnum
hagnýt ráð um samráð við börn og
ungmenni. Með þessu erum við að
benda á að samkvæmt 12. og 13. grein
barnasáttmálans eiga öll börn rétt á
því að láta skoðanir sínar í ljós og hafa
áhrif,“ segir Anna og Jökull Ingi bæt-
ir við að öll börn eigi rétt á að láta
skoðanir sínar í ljós, hafa áhrif, að-
gengi að upplýsingum og tjáningar-
frelsi.
„Mig langaði að gera eitthvað til að
hjálpa og breyta og bæta. Mig langaði
til að leggja mitt af mörkum til að
hjálpa og fannst ungmennaráðið góð
leið til að koma einhverju góðu til
skila,“ segir Anna.
„Ég var alltaf dálítið leiðinlegur
krakki og í stað þess að lesa náms-
efnið las ég um mannréttindi og ým-
islegt annað. Ég reyndi þegar ég var í
Kópavogsskóla að ná fram rétt-
mætum breytingum að mér fannst en
fékk þau svör að skólinn gæti ekkert
gert, ríkið eða sveitarfélagið réði. Mér
fannst ég alls staðar rekast á veggi
þangað til ég komst í ungmennaráðið.
Það var ekki liðin vika frá því ég byrj-
aði og þar til ég sat fund með velferð-
arráðherra,“ segir Jökull Ingi sem er
sammála Önnu um að það sé gott að
geta látið gott af sér leiða.
Anna og Jökull Ingi segjast ein-
ungis bundin af barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna og hagsmunagæslu
fyrir börn og ungmenni.
Sjónarmið barna í fyrirrúmi
Alþjóðadagur barna í dag Ungmennaráð UNICEF berst fyrir réttindum barna og unglinga
Börn hafa áhyggjur af geðheilbrigðismálum Ungmennaráð vill aukna þjónustu sálfræðinga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Baráttufólk Anna Arnardóttir og Jökull Ingi Þorvaldsson eru tvö af tólf ungmennum í ungmennaráði UNICEF sem
berst fyrir því að réttindi barna og unglinga samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna séu virt.
Eliza Reid verð-
ur verndari og
förunautur ís-
lenska kokka-
landsliðsins sem
tekur þátt í
heimsmeist-
arakeppni mat-
reiðslumanna
sem haldin verð-
ur í Lúxemborg
um komandi helgi. Mótið er haldið
á fjögurra ára fresti og nú er ætl-
unin að fylgja eftir árangrinum á
síðasta móti þegar lið Íslands náði
5. sæti.
Kokkalandsliðið kappkostar að
nota sérvalið, íslenskt hráefni og
verða þorskur, lambakjöt og skyr í
aðalhlutverkum í matargerð þess í
Luxemborg nú.
Eliza mun fylgja
kokkalandsliðinu
Eliza Reid
Bílaapótek Lyfjavals við Hæðar-
smára hefur fjölgað bílalúgum úr
þremur í sjö, vegna aukinnar eft-
irspurnar. Er þetta eina bílaapótek
landsins. Þá voru tölvustýring og
umferðarljós tekin í notkun við
lúguafgreiðsluna.
Til að auka afgreiðsluhraða voru
settir upp skjáir í vinnuaðstöðu
starfsmanna þar sem koma fram
upplýsingar um við hvaða lúgu við-
skiptavinur bíður. Með þessu á að
stytta biðtíma, segir Lyfjaval.
Lúgum í bílaapóteki
Lyfjavals fjölgað í 7
Í tilefni alþjóðadags barna verður
barnaþing í Laugarnesskóla í dag.
Skólinn er fyrsti Réttindaskóli UNI-
CEF í Reykjavík að sögn Sigríðar
Helgu Bragadóttur, skólastjóra
Laugarnesskóla, sem segir að
krakkar í 6. bekk ásamt umsjón-
arkennara hafi undirbúið þingið.
Krakkarnir hafi sjálfir undirbúið
umfjöllunarefni þingsins sem snúi
að réttindum barna. Þau stjórni
þinginu og leiði umræður. Sigríður
Helga segir að í Réttindaskóla séu
börnin meðvitaðri um réttindi og
jafnframt ábyrgð sem þau bera á
því að aðrir haldi sínum réttindum.
Hún segir að börn séu fordómalaus
og átti sig á gildi þess að virða
samninga og að allur heimurinn sé
undir. Rætt sé við börnin um mun-
inn á réttindum og forréttindum.
Barnaþingið er samstarfsverkefni
UNICEF á Íslandi, embætti umboðs-
manns barna, ráðgjafahóps emb-
ættisins, félags Sameinuðu þjóð-
anna og Laugarnesskóla.
6. bekkingar halda barnaþing
LAUGARNESSKÓLI ER RÉTTINDASKÓLI UNICEF