Morgunblaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018 ✝ SigurbjörgKristín Guð- mundsdóttir fædd- ist í Hólakoti í Dýrafirði 26. apríl 1927. Hún lést 11. nóvember 2018 á Hrafnistu í Reykja- vík. Foreldrar henn- ar voru Guðmundur Ásgeir Sigurðsson, f. 6. febrúar 1896 í Lambadal, d. 18. október 1965, og Þórdís Þorlaug Guðmunds- dóttir, f. 16. ágúst 1883 í Álfadal, d. 3. janúar 1941. Systir Krist- ínar var Guðrún, f. 18. septem- ber 1923, d. 17. júní 2015. Auk þess fæddist foreldrum hennar andvana drengur 16. júlí 1922. Dóttir Kristínar með Garðari Ágústssyni: 1) Þórdís, f. 14. febr- Jacobsson, f. 1992. Seinni eigin- maður Kristínar var Guðmundur Magnússon, f. 8. desember 1913 á Kjörvogi, d. 3. desember 1999. Synir þeirra: 4) Magnús Rúnar, f. 19. mars 1961, maki Hrönn Harðardóttir, f. 28. janúar 1965. Börn þeirra: Hanna Kristín, f. 1987, og Arna Margrét, f. 1993. 5) Níels Pétur, f. 23. nóvember 1967. Kristín átti fimm lang- ömmubörn þegar hún lést. Kristín gekk í barnaskólann á Núpi og var einn vetur á hús- mæðraskólanum á Staðarfelli í Dölum. Hún var ráðskona á Núpi einn vetur og á Reykjaskóla í Hrútafirði nokkur sumur, vann á saumastofu í Reykjavík, við ræstingar í Sundhöll Reykja- víkur og var starfsmaður á magaspeglun Landspítalans um árabil. Auk ofangreinds rak Kristín heimili á Hólakoti og í Reykjavík, lengst af á Miklu- braut 16. Kristín verður jarðsungin í Fossvogskirkju í dag, 20. nóvem- ber, og hefst athöfnin klukkan 13. úar 1944, maki Lúð- vík Björnsson, f. 8. maí 1944. Börn þeirra: Árni Ragn- ar, f. 1966, d. 1990, og Elínborg Hall- dóra, f. 1978. Fyrri eiginmaður Krist- ínar var Níels P. Guðmundsson, f. 26. febrúar 1922 í Hnífsdal, d. 5. mars 1954. Börn þeirra: 2) Guðmundur Elías, f. 3. sept- ember 1953, maki Karólína Guð- mundsdóttir, f. 28. janúar 1955. Börn þeirra: Elías Karl, f. 1990, Kristín, f. 1993, og Guðmundur Ásgeir, f. 1997. 3) Elsa Margrét, f. 4. nóvember 1954, maki Jacob Alexander de Ridder, f. 15. júlí 1951. Börn hennar: Hlín, f. 1974, Stephanie, f. 1990, og Alexander Amma mín og alnafna, Kristín Guðmundsdóttir, lést sunnudag- inn 11. nóvember 2018 á aldar- afmæli friðar í Evrópu. Hún færði mér svo margt, þar á meðal nafnið mitt, en það er mér sannur heiður að vera skírð í höfuðið á henni. Mér hlýnar um hjartarætur þegar ég hugsa til þess þegar ég kom til hennar, hún leit upp, brosti sínu bjarta og glettna brosi með glitrandi augu og sagði svo: „Sæl nafna mín.“ Margar af mínum bestu minn- ingum um ömmu eru frá nýliðn- um árum og þar má nefna söng- stundirnar og dansiböllin á Hrafnistu. Þar söng hún með hverju lagi án þess að hafa text- ann fyrir framan sig enda kunni hún þau öll upp á staf. Þó sökn- uðurinn verði mikill þá munu minningarnar ylja mér um ókomna tíð. Þegar ég sat hjá ömmu hélt hún í hendurnar á mér og spurði hvort ég ætti ekki vett- linga, þær væru jú frosnar. Því næst fór hún með þetta ljóð sem mig langar að kveðja hana með. Takk fyrir allt, elsku besta amma mín. Kristín litla komdu hér með kalda fingur þína; ég skal bráðum bjóða þér báða lófa mína. Eitthvað tvennt á hné ég hef, heitir annað Stína. Hún er að láta lítið bréf í litlu nösina sína. Fuglinn segir bí, bí, bí, bí, bí segir Stína. Kvöldúlfur er kominn í kerlinguna mína. (Sveinbjörn Egilsson) Kristín Guðmundsdóttir. Það er erfitt að skrifa stutta minningargrein um ömmu mína, enda kæmust þær góðu minning- ar sem ég á um hana auðveldlega fyrir í doðranti, frekar en nokkr- um línum á síðum dagblaðs. Óteljandi minningar sem ég á um heimsóknir mínar á Miklu- braut, Dalbraut og nú síðast Hrafnistu munu ylja mér um ókomna tíð, hvort sem um er að ræða minningar af ísblómum og hafragraut sem við fengum á Miklubraut eða af dansiböllum á Hrafnistu, þar sem við amma slógum í gegn á dansgólfinu og sungum með, enda kunni frúin alla textana upp á tíu. Heimsóknirnar á Hrafnistu einkenndust einnig af samveru- stundum á hinu ágæta kaffihúsi Skálafelli, þar sem ófáar rjóma- pönnukökur voru hesthúsaðar, oftar en ekki á meðan amma gerði athugasemdir við óreiðuna í hári föður míns eða var aðalstjarnan í snapchat-skilaboðum viðstaddra, en í því hlutverki naut hún sín mjög. Ömmu minnar verður auðvitað sárt saknað, en það góða sem hún gaf okkur situr eftir hjá okkur sem hana þekktum. Takk fyrir allt elsku amma mín. Elías Karl Guðmundsson. Við kveðjum nú elsku frænku og systur móður okkar, Guðrúnar Ásgeirsdóttur. Á milli systranna var góð og mikil vinátta og kom „Stína systir“, eins og hún var alltaf kölluð af okkur systkinum, heim til okkar á Garðaveginn meðan móðir okkar lá á sæng, því faðir okkar var mikið að heiman vegna sjósóknar. Við eigum eingöngu góðar minningar af veru hennar þegar við vorum lítil, enda stjanaði hún við okkur. Að heimsækja Kristínu og Guðmund eiginmann hennar var dásamlegt, heimilið fallegt og allt- af tekið vel á móti okkur. Kæru börn, barnabörn og barnabarnabörn, yljið ykkur við minningar um yndislega konu sem gaf mikið af sér og vildi gera allt fyrir alla. Við minnumst þessarar góðu móðursystur með kærleika og virðingu. Vottum nánum ættingj- um innilega samúð. Hvíl í friði. Lilja, Guðmundur Ásgeir, Þórdís, Erla, Kristín og Steinunn Sölvabörn. Kristín Guðmundsdóttir ✝ SveindísHelgadóttir fæddist á Staðar- hóli í Saurbæjar- hreppi í Dalasýslu 24. nóvember 1938. Hún lést 7. nóvember 2018 á Landspítalanum við Hringbraut eftir erfið veikindi síðustu mánuði. Foreldar henn- ar voru Helgi Felix Ásmunds- son, f. á Neðri-Brekku í Saurbæ, Dalasýslu, 19. janúar 1915, d. 3. janúar 2004, og Guðlaug Sveinsdóttir, f. á Öxnalæk í Ölfushreppi, Árn., 12. júní 1907, d. 12. nóvember 1970. Sveindís var fjórða í röð sjö systkina. Elstur er Ásmundur Markús, f. 1934; Sigríður, f. 1936, d. 1989; Nanna f. 1937, d. 1986; Viðar, f. 1945, d. 1956; Erla, f. 1948, d. 2011, og Björk, f. 1950. Sveindís eignaðist þrjú börn: elstur er Gunnar Viðar Haf- Fannar Snær, f. 28.11. 1996, kærasta Esther Georgsdóttir, f. 18.10. 1996. Sveindís giftist árið 1994 Alberti Rúnari Ágústssyni málarameistara, f. 15.9. 1938, d. 26.5. 2018. Þau skildu. Sveindís ólst upp á Neðri- Brekku í Saurbæ í Dalasýslu. Hún kynntist í uppvexti sín- um hefðbundnu sveitalífi, ekki svo ýkja breyttu frá gamalli tíð, þar sem enn eimdi eftir af verklagi fyrri alda. Hún lærði ung að gera gagn á barnmörgu heimili fjölskyldunnar á Neðri- Brekku, og gagnkvæm hjálp- semi sveitarinnar, þar sem samfélagið byggðist upp á gagnkvæmri aðstoð og sam- vinnu við öll meiri háttar verk, varð henni fyrirmynd til lífstíðar, og alla ævi var hún boðin og búin að leggja öðrum lið sem hún vissi hjálp- ar þurfi. Hún hleypti heim- draganum 16 ára gömul og fór suður til Reykjavíkur og átti hér heima síðan. Sveindís vann ýmsa verkamannavinnu um ævina, lengst af hjá Flug- félagi Íslands, í mötuneyti starfsmanna. Útför hennar fór fram 15. nóvember 2018. steinsson, f. 4.10. 1956, í sambúð með Ester Helga- dóttur, f. 21.7. 1961. Börn Gunn- ars eru: 1) Sif Gunnarsdóttir, f. 19.7. 1994, og 2) Gunnar Már Gunn- arsson, f. 8.1. 2002. Faðir Gunn- ars Viðars er Haf- steinn Haf- steinsson, f. 3.12. 1939. Sveindís giftist síðar Herði Sævari Gunnarssyni rafvirkja- meistara, f. 2.3. 1941, d. 15.5. 1999. Þau skildu. Börn Harðar og Sveindísar eru: 1) Rúnar Ásmundur Harðarson, f. 2.12. 1965, maki Sylvía Bragadóttir, f. 27.7. 1970, eiga þau einn son, Anton Örn Rúnarsson, f. 28.2. 1996. 2) Helena Björg Harðardóttir, f. 15.9. 1967, maki Jón Gísli, f. 1.1. 1967, synir, Andri Þór, f. 24.5. 1989, í sambúð með Kristbjörgu Bjarnadóttur, f. 21.7. 1986, og Ég vil með nokkrum orðum kveðja tengdamóður mína hana Sveindísi Helgadóttur, mikla sómakonu sem ég kynntist fyrir um 24 árum þegar ég kynntist Helenu dóttur hennar. Ég man hvað ég dáðist að kraftinum í þessari konu sem vann daglangt og hlífði sér aldrei, allt fram á síð- asta dag. Dísa, eins og Sveindís var alltaf kölluð, var mikill gleðigjafi og hvers manns hugljúfi, hún var mikil handverkskona, saumaði, málaði og það var eiginlega ekk- ert sem ekki lék í höndunum á henni. Sveindís starfaði lengst af hjá Flugfélagi Íslands, í mötuneyti starfsmanna. Sveindís bjó á ýmsum stöðum en síðast í Jökulgrunni í Reykja- vík. Hún var börnum sínum stoð og stytta, var alltaf reiðubúin að hlaupa undir bagga með þeim og var alltaf til staðar fyrir barna- börnin þegar á þurfti að halda. Sveindís ferðaðist þó nokkuð um landið á árum áður og hafði hún sterkar taugar til Dalanna, þar sem hún ólst upp í æsku. Svo sterkar voru þær taugar að á efri árum keypti hún Neðri-Brekku sem tómstundahús fyrir fjölskyld- una, en þar undi hún sér alltaf vel. Dýrmætar voru þær stundir þegar fjölskyldan og frændsystk- ini hittust vestur í Dölum á Neðri- Brekku. Þá var yfirleitt farið að sýsla eitthvað úti við og farið í göngutúra um sveitina. Sveindís hafði alltaf mikla ánægju af þess- um ferðum en síðasta ferðin sem var farin var þegar hún seldi Neðri-Brekku fyrir nokkrum ár- um. Árið sem nú er að líða var Sveindísi erfitt. Hún var með ólæknandi sjúkdóm en aldrei kvartaði hún, ef eitthvað var svar- aði hún því til að sér hefði „aldrei liðið betur“. Ég vil fá að þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Sveindísi. Hún hefur verið stór hluti af lífi mínu síðastliðin 24 ár og ég hefði ekki viljað missa af því. Hennar verður sárt saknað en minningin lifir. Guð og góðu englarnir geymi þig, blessuð sé minning þín. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Jón Gísli Ragnarsson. Það vex eitt blóm fyrir vestan, og vornóttin mild og góð kemur á ljósum klæðum og kveður því vögguljóð. Ég ann þessu eina blómi, sem aldrei ég fékk að sjá. Og þangað horfir minn hugur í hljóðri og einmana þrá. Og því geng ég fár og fölur með framandi jörð við il. Það vex eitt blóm fyrir vestan og veit ekki, að ég er til. (Steinn Steinarr) Nú þegar Sveindís móðursystir mín hefur kvatt okkur kemur ým- islegt upp í hugann og helst eru það sögur afa míns heitins, Helga föður þeirra systra. Sagan um flutninginn mikla frá Kvennabrekku þegar afi og amma fluttu með börnin þrjú í Saurbæ- inn. Ási sem var elstur sat í fangi ömmu, afi sá um hest og kerru en batt Siggu móður mína og Dísu á baggahest sem fylgdi, laus auðvit- að. Og eins og hann sagði þá sváfu þær vært alla leiðina þar sem göngulag hestsins var rólegt og taktfast. Við erum að kveðja konu sem fæddist inn í allt annan heim en hún kvaddi – breytingarnar hafa verið langt umfram allt sem hægt var að ímynda sér. Á þessari stund er hugur minn hjá börnum Dísu, mökum þeirra og börnum og fjölskyldu. Dauðinn er fallegur en aldrei auðveldur – tregi og sorg fylgja alltaf þessum viðburði en minn- ingarnar lifa og þeim fylgir gleði. Hjartans kveðjur Guðlaug (Gulla) og fjölskylda. Sveindís Helgadóttir ✝ Arnór Har-aldsson fædd- ist 10. desember 1929 á Þorvalds- stöðum, Skeggja- staðahreppi, Norður-Múlasýslu. Hann lést á öldr- unarheimilinu Hlíð á Akureyri 31. október 2018. Foreldrar hans voru Haraldur Guðmundsson, bóndi og kenn- ari á Þorvaldsstöðum, f. 9.10. 1888 á Öngulsstöðum í Eyja- firði, en ólst upp í Skagafirði og víðar, d. 1.6. 1959 á Þor- valdsstöðum, og Þórunn Björg Þórarinsdóttir, húsfreyja og ljósmóðir á Þorvaldsstöðum, f. þar 18.12. 1891, d. þar 3.9. 1973. Önnur börn þeirra Ingv- eldur, f. 8.12. 1917, bústýra á Þorvaldsstöðum hjá bræðrum sínum, býr nú á Þórshöfn. Unnur, f. 17.3. 1919, d. 25.5. 1941. Þórdís, f. 26.6. 1920, d. 2.8. 2008, húsfreyja á Patreks- firði. Þórarinn, f. 27.11. 1921, d. 12.5. 1995, bóndi og hrepp- stjóri á Þorvaldsstöðum. Stein- unn, f. 3.1. 1923, d. 16.2. 2012, hússtjórnarkennari og mat- ráðskona í Reykjavík. Sigrún, f. 19.2. 1924, húsfreyja í Reykjavík. Ragnar, f. 13.5. 1926, d. 11.3. 2016, sjómaður og búfræðingur í Reykjavík. Hálfdan, f. 30.7. 1927, kennari og skólastjóri í Norðfjarðar- hreppi. Auðunn, f. 8.10. 1928, bóndi á Þorvaldsstöðum, býr nú á Þórshöfn. Guðríður, f. 24.2. 1931, húsfreyja og sjúkraliði í Reykjavík. Har- aldur, f. 3.6. 1932, hús- gagnasmiður og húsgagna- bólstrari í Hafnarfirði. Þórunn, f. 1.5. 1934, húsfreyja í Hafnarfirði. Ragnhildur, f. 22.6. 1939, sjúkra- liði Reykjavík. Arnór átti einnig hálfsystur, Krist- ínu Haraldsdóttur, f. 16.7. 1920, d. 14.11. 1998. Arnór kvæntist 14.9. 1962 Júlíu Friðriksdóttur frá Felli í Finnafirði, f. 6.10. 1934. Dætur þeirra eru: 1) Þórunn Björg, f. 26.6. 1963, maki Almar Björnsson, f. 19.10. 1959, börn þeirra Júl- ía Mist, f. 19.9. 1986, maki Guðmundur Stefánsson, f. 14.1. 1987, börn þeirra eru Arnór Breki, Dagur Hugi og Sara Björg. Unnar Númi, f. 3.1. 1988, maki Elsa Rós Smáradóttir, f. 12.4. 1987, Alma Björg, 16.1. 1992, maki Gísli Rúnar Víðisson, f. 27.9. 1983, börn þeirra Þórunn Helga og Gunnar Páll, dóttir Gísla, Berglind Heiða. Dóttir Almars, Arnheiður Rán. 2) Unnur Helga, f. 2.9. 1965. 3) Eydís, f. 31.12. 1967, maki Ingimar Tryggvason, f. 4.8. 1965. Börn þeirra Brynjar, f. 14.5. 1998, Karen, f. 30.5. 2005. Arnór ólst upp á Þorvalds- stöðum við almenn sveitastörf. Hann stundaði nám við Bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist sem búfræðingur 1955. Hann vann ýmis störf á sínum yngri árum, s.s. vega- vinnu, brúarsmíði, ýtustjóri, fór á vertíðir og fleira. Arnór bjó á Þórshöfn til ársins 1987, flutti þá til Akureyrar og vann við fiskvinnslu hjá ÚA. Útför Arnórs fór fram 12. nóvember 2018. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þórunn Björg, Unnur Helga og Eydís. Við viljum minnast góðs ná- granna okkar, hans Arnórs. Fljótt fundum við unga parið að við áttum góða vini í hjónunum í D, þeim Arnóri og Júlíu. Vinsam- legt viðmót og elskulegheit varð til þess að við leituðum til þeirra með ýmislegt. Margt var brallað og spaugað í Litluhlíðinni og gott að ilja sér við góðar minningar. Arnór var mikill listamaður og skar út ýmsa dýrgripi sem skreytir margt heimilið og feng- um við líka að njóta þess. Við þökkum Arnóri allt sem hann var okkur og elsku Júlíu og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Ég veit ekki hvort þú hefur, huga þinn við það fest. Að fegursta gjöf sem þú gefur, er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær. Hlýja í handartaki, hjartað sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði, heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði, sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Ólína, Viðar og börn. Arnór Haraldsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.