Morgunblaðið - 20.11.2018, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Reynisdrangar Ferðalangur býr sig undir að taka ljósmynd af Reynisdröngum, allt að 66 metra háum klettadröngum sem mynduðust í eldsumbrotum úti í sjó sunnan við Reynisfjall í Mýrdal.
Eggert
Nú liggur fyrir Al-
þingi frumvarp til
breytinga á lögum um
umboðsmann barna.
Þar er gert ráð fyrir
að lögfesta það sem
kallað er þing um
málefni barna –
barnaþing – sem
halda skal annað
hvert ár. Umboðs-
manni barna er ætlað
skipuleggja þingið og leggja í upp-
hafi þess fram skýrslu um stöðu
barna í íslensku samfélagi. Á
þinginu verður jafnframt farið yfir
stöðu innleiðingar Barnasáttmál-
ans hér á landi. Til þingsins skal
bjóða fjölbreyttum hópi barna, al-
þingismönnum, fulltrúum stofnana
ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa
aðila vinnumarkaðarins og frjálsra
félagasamtaka sem koma að mál-
efnum barna.
Ráðgert er að fyrsta barnaþing-
ið af þessu tagi verði haldið í
kringum alþjóðadag barna að ári
sem er vel við hæfi enda verða þá
liðin 30 ár frá því að Barnasátt-
málinn var samþykktur á allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna 20.
nóvember 1989. Barnasáttmálinn
var síðan fullgiltur hér á landi
nokkrum árum síðar og loks lög-
festur árið 2013.
Barnaþing sækir
fyrirmynd sína að
nokkru til jafnrétt-
isþings og er gert ráð
fyrir að á þinginu
verði börn í lykilhlut-
verki en í greinargerð
frumvarpsins kemur
fram að gert sé ráð
fyrir virkri þátttöku
barna í skipulagningu
þingsins og fram-
kvæmd þess og að
börn verði jafnframt
meðal gesta og mælenda þingsins.
Í 12. gr. Barnasáttmála Samein-
uðu þjóðanna er lögð áhersla á
virka þátttöku barna í ákvarð-
anatöku um öll mál sem þau varð-
ar og að tillit sé tekið til skoðana
þeirra. Barnaþingið er nýstárlegur
vettvangur fyrir þátttöku barna
þar sem farið verður yfir stöðu og
þróun í málefnum barna á helstu
sviðum samfélagsins og þar mun
eiga sér stað samræða við börn
um málefni sem snerta þau. Nið-
urstöður þingsins og tillögur til
úrbóta verða síðan kynntar rík-
isstjórn, hlutaðeigandi ráðherrum
og öðrum sem vinna með börnum
og að málefnum þeirra.
Embætti umboðsmanns barna
hefur þegar hafið undirbúning að
barnaþinginu og vonast til að eiga
víðtækt samstarf um skipulagn-
ingu og framkvæmd þess. Ráðgert
er að barnaþingið að ári verði
haldið í Reykjavík en jafnframt
verði allir sem vinna með börnum
hvattir til að huga að málefnum
þeirra og leiðum til að virkja þau
til þátttöku. Þannig má hugsa sér
að skólar landsins, frístundaheim-
ili, leikskólar og sveitarfélög haldi
samskonar þing á sama tíma. Með
þeim hætti væru börn virkjuð til
lýðræðislegrar þátttöku í sam-
félaginu í anda Barnasáttmálans
og aðalnámskrár grunnskóla.
Fjölmargir skólar um land allt
hafa á síðustu árum unnið með
margvíslegum hætti að því að
auka þátttöku barna í skólastarf-
inu. Umboðsmaður barna hefur á
þessu ári verið í samstarfi við tvo
skóla í Reykjavík þar sem til-
raunir hafa verið gerðar með
barnaþing, í samvinnu við UNI-
CEF á Íslandi. Síðastliðið vor hélt
Landakotsskóli þing meðal nem-
enda 5. og 7. bekkjar þar sem
rædd voru málefni sem tengjast
námsaðferðum og viðhorfum
barna til skólans. Áður en þingið
var haldið fengu nemendur
fræðslu um hlutverk umboðs-
manns barna, réttindi barna og
Barnasáttmálann. Síðan sáu ung-
menni úr ráðgjafarhópi umboð-
manns barna um að þjálfa elstu
nemendur í fundarstjórn en eldri
nemendur höfðu það hlutverk að
stýra umræðum í anda þjóðfundar
hjá yngri nemendum. Landakots-
skóli ætlar að endurtaka leikinn í
dag á alþjóðadegi barna, 20. nóv-
ember. Sams konar fyrirkomulag
hefur verið viðhaft í Laugarnes-
skóla þar sem 6. bekkur hefur
fengið þjálfun í að stýra umræðum
yngri nemenda á barnaþingi sem
haldið er í dag. Þá er umboðs-
manni kunnugt um að í dag verði
einnig haldið þing með nemendum
í 6. bekk í Þróttar- og Framheim-
ilunum sem er samstarfsverkefni
fjölmargra í Laugardals-, Háa-
leitis- og Bústaðahverfi. Hér er
um mikilvægar tilraunir að ræða
til að virkja börn til þátttöku og
skipulags, auka vitund þeirra um
réttindi sín, þjálfa þau í að taka
þátt í lýðræðislegri umræðu og
rökræða mál sem á þeim brenna í
anda Barnasáttmálans.
Það er von umboðsmanns barna
að samstarf skapist um barnaþing
að ári meðal allra þeirra sem
vinna með börnum eða að hags-
munum þeirra alls staðar á land-
inu. Mikilvægt er að skólar lands-
ins og sveitarfélög taki höndum
saman um að halda lýðræðisþing í
tilefni af þrjátíu ára afmæli
Barnasáttmálans og geri það að
reglubundnum viðburði í kringum
alþjóðadag barna í framtíðinni.
Þær tilraunir sem þegar hafa ver-
ið nefndar benda ótvírætt til að
árangursríkt sé að skipuleggja
slík þing í náinni samvinnu við
börnin sjálf, bæði hvað varðar
fundarefni og framkvæmd. Með
því að vinna saman að þessum
markmiðum getur barnaþingið
orðið raunveruleg hvatning og
vettvangur fyrir málefni barna.
Með því móti fáum við ómetanlegt
tækifæri til að hlusta á skoðanir
barna, gefum þeim tækifæri til að
hafa áhrif á umhverfi sitt og stuðl-
um að því að upp vaxi kynslóð
sem hefur fengið mikilvægan und-
irbúning fyrir frekari þátttöku í
lýðræðissamfélagi.
Eftir Salvöru
Nordal »Mikilvægt er að skól-
ar landsins og sveit-
arfélög taki höndum
saman um að halda lýð-
ræðisþing í tilefni af
þrjátíu ára afmæli
Barnasáttmálans og
geri það að reglubundn-
um viðburði í kringum
alþjóðadag barna í
framtíðinni.
Salvör Nordal
Höfundur er umboðsmaður barna.
Lýðræðisleg þátttaka barna og barnaþing
Alþjóðadagur barna
er haldinn hátíðlegur
í dag, 20. nóvember
og í tilefni þess er um
allan heim vakin sér-
stök athygli á mál-
efnum sem varða
stöðu og réttindi
barna. Þetta er mik-
ilvægur dagur fyrir
börn og okkur öll,
ekki síst vegna þess
að þennan dag fyrir
29 árum var Barnasáttmáli Sam-
einuðu þjóðanna samþykktur.
Alþingi Íslendinga samþykkti í
tengslum við 25 ára afmæli Barna-
sáttmálans að helga 20. nóvember
ár hvert fræðslu um mannréttindi
barna í skólum landsins. Á al-
þjóðadegi barna minnum við því á
þau mikilvægu réttindi sem
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóð-
anna veitir öllum börnum um allan
heim og hve mik-
ilvægt það er að þessi
réttindi séu virt og að
þeim sé jafnframt
fagnað. Það er mik-
ilvægt fyrir sam-
félagið allt að börn
njóti verndar og rétt-
inda á öllum tímum
og öllum stöðum, á
heimilum sínum, í
skólanum og hvar
annars staðar í sam-
félaginu, þannig að
þau geti lifað, vaxið,
lært og náð að
blómstra á eigin forsendum. Þetta
eru ekki bara falleg orð heldur
fjárfesting til framtíðar, því ham-
ingja og velgengni barna er fjár-
festing í næstu kynslóð. Við eigum
að vera meðvituð um þetta og hafa
metnað til að gera sífellt betur til
að byggja upp betra samfélag og
betri heim fyrir börn.
Hér á Íslandi tökum við þessi
mál alvarlega og því er þegar haf-
in endurskoðun á þjónustu við
börn og á réttindum barna, þvert
á ráðuneyti með aðkomu allra
hlutaðeigandi ráðherra og helstu
sérfræðinga, þvert á pólitík með
samvinnu allra flokka á þingi og
þvert á kerfi og fagþekkingu. Allt
er þetta skipulagt á þeim grund-
velli að við viljum setja börnin í
fyrsta sæti og fjárfesta í þeim og
framtíð þeirra. Þarfir barna eru
mismunandi, almennar og sértæk-
ar og það er til margs að líta.
Verkefnið er sannarlega umfangs-
mikið en sú samvinna, samstaða
og ástríða fyrir því að gera vel
sem einkennir vinnu og samskipti
í málaflokknum í tengslum við
þessi áform fyllir mig eldmóði og
bjartsýni um að raunverulegar
breytingar í þágu barna verði að
veruleika á næstu árum.
Til marks um mikilvægi þessa
og skýran vilja stjórnvalda um að
auka áherslu á málefni barna og
ungmenna, verður samkvæmt
þingsályktunartillögu sem nú ligg-
ur fyrir á Alþingi gerð breyting á
embættistitli mínum. Frá 1. jan-
úar 2019, sem er þrjátíu ára af-
mælisár Barnasáttmálans, verður
titill minn félags- og barna-
málaráðherra. Nýtt ráðuneyti fé-
lagmála mun leiða endurskoðun á
þjónustu við börn, móta stefnu Ís-
lands til framtíðar og markmið í
málefnum barna, tryggja að börn
séu í forgangi í allri stefnumótun
og tengja betur saman stefnu í
málefnum barna og stefnu í efna-
hagsmálum. Aukið samstarf allra
aðila er lykilþáttur við heildarend-
urskoðun núverandi kerfis, þjón-
ustunnar og úrræða fyrir börn.
Þegar rætt er um samstarf og
samvinnu í málefnum barna meg-
um við ekki gleyma okkar dýr-
mætustu ráðgjöfum; börnunum
sjálfum. Barnasáttmálinn kveður
skýrt á um að börn skuli ávallt fá
að tjá sig um mál sem þau varðar.
Við viljum í þessari vinnu að gefa
börnum tækifæri til að tjá skoð-
anir sínar og tala fyrir réttindum
sínum og annarra barna heima hjá
sér, í skólanum og úti í samfélag-
inu.
Það er spennandi ferðalag fram-
undan sem við öll þurfum að taka
þátt í. Verkefni sem nær yfir öll
kerfi og alla pólitík. Verkefni sem,
ef vel tekst til, verður besta fjár-
festing sem við sem samfélag höf-
um gert.
Til hamingju með daginn öll
börn í nútíð og framtíð, til ham-
ingju allir landsmenn.
Eftir Ásmund Einar
Daðason » Það er mikilvægt
fyrir samfélagið
að börn njóti verndar
og réttinda í hvívetna
og geti lifað, vaxið, lært
og blómstrað á eigin
forsendum.
Ásmundur Einar
Daðason
Höfundur er ráðherra barnamála.
Til hamingju með alþjóðadag barna