Morgunblaðið - 21.11.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Langreyður er ekki lengur flokkuð
sem tegund í hættu (EN) á heims-
lista Alþjóðlegu náttúruverndar-
samtakanna (IUCN). Tegundin er
nú flokkuð sem viðkvæm (VU). Talið
er að fjöldi dýra af tegundinni hafi
tvöfaldast frá því á sjöunda áratugn-
um og eru þau nú
talin vera um 100
þúsund í höfum
heimsins. Í frétt
IUCN er banni
við veiðum síð-
ustu áratugi
þakkaður árang-
urinn í uppbygg-
ingu stofnsins.
Gísli Víkings-
son, hvala-
sérfræðingur á
Hafrannsóknastofnun, segir þetta
vera talsverð tíðindi. Langreyði hafi
á síðustu áratugum fjölgað mjög við
Ísland og Austur-Grænland, en
stofnar í suðurhöfum hafi hins vegar
lengi átt í vök að verjast. Í mati Al-
þjóðlegu náttúruverndarsamtakanna
hafi verið miðað við tegundina í heild,
en ekki tekið tillit til einstakra stofna
þó svo að enginn samgangur sé á
milli norðlægari stofna við þá sem
lifa á suðurhveli jarðar.
Gjörólíkt ástand stofna
„Válistinn hefur verið sterkt vopn
í höndum þeirra sem hafa gagnrýnt
veiðar Íslendinga á langreyði,“ segir
Gísli. „Það hefur verið óspart notað
að við séum að veiða tegund í útrým-
ingarhættu. Þessi breytta flokkun
gerir það að verkum að ekki verður
lengur hægt að halda slíku fram með
því að vitna í þennan heimslista, sem
hefur talsvert vægi.
Við höfum reynt að útskýra að
ástand stofna sé gjörólíkt á norður-
og suðurhveli og okkur hefur ekki
fundist mjög vísindalegt að slá norð-
ur- og suðurstofnum saman í eitt mat
á heimslista, enda ræðst niðurstaðan
þá fyrst og fremst af ástandi hinna
fyrrum geysistóru suðurhvelsstofna.
Ekkert tillit hefur verið tekið til þess
að í greinargerð með heimslistanum
kemur skýrt fram að staða lang-
reyðar í Norður-Atlantshafi sé góð
þvert á það sem verið hefur í Suður-
höfum.“
Við framkvæmd CITES-
samningsins um bann við al-
þjóðaverslun með tegundir villtra
dýra og plantna sem eru í útrýming-
arhættu hefur verið tekið mið af
banni Alþjóðahvalveiðiráðsins við
hvalveiðum í atvinnuskyni. Fyrir all-
mörgum áratugum var samþykkt að
meðan það bann væri í gildi yrðu
hvalir á lista CITES, án tillits til lista
IUCN eða ástands einstakra stofna.
Stofninn hér hefur náð sér
Eins og áður sagði er talið að lang-
reyðar séu nú alls um 100 þúsund. Af
þeirri tölu er talið að í stofninum í
Mið-Norður-Atlantshafi séu tæp 40
þúsund dýr og er talið að stofninn
hér hafi náð sér eftir miklar veiðar
fram eftir síðustu öld. Nýlega birti
Náttúrufræðistofnun Íslands válista
spendýra og er langreyður við Ísland
flokkuð sem tegund ekki í hættu
(LC) og er það í samræmi við válista
Noregs og Grænlands.
Síðustu áratugi hefur nánast ekk-
ert verið veitt af langreyði í Suður-
höfum fyrir utan fáein dýr sem Jap-
anar hafa veitt í tilraunaskyni.
Stofnar stórhvela voru risastórir en
voru veiddir niður á 20. öldinni. Að
sögn Gísla byrjuðu slíkar veiðar fyrir
1900 við Noreg, Ísland, víðar í Atl-
antshafinu og síðan í Kyrrahafi. Upp
úr 1920 var farið að veiða stórhveli af
krafti í Suðurhöfum og var ofveiði í
gangi fram eftir öldinni. Veiðibann
Alþjóðahvalveiðiráðsins tók gildi
1986, en áður höfðu nokkrar teg-
undir stórhvela verið friðaðar í suð-
urhöfum.
Langreyður ekki lengur „í hættu“
Breyting á válista Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna Langreyðar nú taldar 100 þúsund
„Válistinn hefur verið sterkt vopn í höndum þeirra sem hafa gagnrýnt veiðar Íslendinga“
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Á sundi við sólarlag Stofn langreyðar hefur styrkst á síðustu árum, bæði á norðurhveli og í suðurhöfum.Gísli Víkingsson
Önnur tegund virðist vera að rétta úr kútnum
samkvæmt lista Alþjóðanáttúruverndarsam-
takanna, en það eru fjalla-górillur. Þær eru
ekki lengur flokkaðar sem tegund í bráðri
hættu heldur sem tegund í hættu.
Þessar górillur lifa í Rúanda, Úganda og
Austur-Kongó. Fjöldi þeirra var talinn kominn
niður í um 680 dýr fyrir tíu árum, en nú eru
þær taldar vera rúmlega eitt þúsund. Ein-
staklingar, samtök dýraverndarsinna og
margir fleiri hafa lagst á árarnar til að bjarga
fjallagórillunum.
Þar var Dian Fossey fremst í flokki en hún
dvaldi um hríð meðal górilla í Rúanda. Fossey
kynntist lífsháttum þeirra, stundaði rann-
sóknir og komið var á verndarsjóð í hennar
nafni. Hún kallaði bók sína um þær „Gorillas
in the Mist“, en Fossey lést 1985. Þremur ár-
um síðar var gerð samnefnd kvikmynd og
með hlutverk Fossey fór Sigourney Weaver.
Fjalla-górillur hafa náð sér á strik síðustu ár
BARÁTTA DIAN FOSSEY OG DÝRAVERNDARSAMTAKA SKILAR ÁRANGRI
Minnisstæð Sigourney Weaver með mótleikara í myndinni um Dian Fossey.
Börnin í Laugarnesskóla fengu orðið í gær
þegar haldið var Barnaþing í tilefni al-
þjóðadags barna. Krakkarnir fengu sjálf að
undirbúa umræðuefnið, stjórnuðu þinginu
og leiddu umræður, enda var yfirskrift
dagsins í gær „Börnin fá orðið“.
Réttindi barna voru til umræðu, líðan
þeirra, hvernig hægt væri að hætta einelti,
öryggismál við skólann voru rædd, mat-
arsóun og umhverfismál í víðu samhengi.
Kennarar voru fundarritarar og stuðn-
ingsfulltrúar fylgdu nemendum sínum. Stóð
þingið yfir frá kl. 9.15 til hádegis og þótti
takast mjög vel. Var þinginu stjórnað af
nemendum í 6. bekk, sem höfðu fengið rétt-
indafræðslu frá ungmennaráði UNICEF.
Laugarnesskóli er fyrsti réttindaskóli
UNICEF í Reykjavík en Barnaþingið var
samstarfsverkefni UNICEF, Laugarnes-
skóla, embættis umboðsmanns barna, ráð-
gjafahóps embættisins og félags Sameinuðu
þjóðanna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Málin krufin í Laugarnes-
skóla á alþjóðadegi barna