Morgunblaðið - 21.11.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018
Útifuglafóður
Mikið úrval, gott verð
Smáratorg · Bíldshöfði · Grandi · Hafnarfjörður
Lansoprazol Krka 15 mg - Magasýruþo y
Nýtt lyf án lyfseðils við brjóstsviða og súru bakflæði.
Lansoprazol Krka 15 mg er komið í sölu í flestum apótekum en hingað til hefur eingöngu verið
hægt að fá þetta lyf gegn ávísun frá lækni.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Ertu med
bakflaedi
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
,,Uppgjörsmynt Landsvirkjunar er
Bandaríkjadalur og eru tekjur fyr-
irtækisins að stærstum hluta í þeirri
mynt. Það gæti því farið vel að arð-
greiðslur Landsvirkjunar verði í
Bandaríkjadal en ekki í íslenskum
krónum eins og verið hefur hingað
til,“ segir Hörður Arnarson, for-
stjóri Landsvirkjunar, í nýrri um-
sögn við drög að frumvarpi fjár-
mála- og efnahagsráðherra um
Þjóðarsjóð.
Sjóðnum er ætlað að vera varúð-
arsjóður til að mæta fátíðum efna-
hagslegum áföllum þjóðarbúsins í
framtíðinni og er gert ráð fyrir að í
hann renni tekjur af orkuauðlindum.
Fyrst í stað verði það einkum arð-
greiðslur Landsvirkjunar til ríkis-
ins. Hörður fagnar frumvarpinu og
bendir á að stoðir Landsvirkjunar
hafi verið að styrkjast og áætlanir
gefi til kynna að rekstur haldi áfram
að batna. Síðustu ár hafi fyrirtækið
greitt eiganda sínum 1,5 milljarða
kr. árlega í arðgreiðslum með sterk-
ari efnahag, minni framkvæmdum
og tryggu sjóðstreymi séu nú for-
sendur til að auka arðgreiðslur.
Miðað við núverandi áætlanir sé
stefnt að því að arðgreiðslur geti
hækkað í skrefum og náð á nokkrum
árum upp í 10-20 milljarða kr.
Hörður bendir á að gert sé ráð
fyrir að eignir Þjóðarsjóðs verði
varðveittar og ávaxtaðar í erlendum
gjaldmiðlum og fram komi í grein-
argerð að kanna megi þann mögu-
leika við arðgreiðslur að þær verði
að hluta til í erlendri mynt.
Erlendar tekjur gætu farið á
erlenda innistæðureikninga
Í mati fjármálaráðuneytisins á
áhrifum frumvarpsins kemur fram
að þar sem sjóðnum verður skylt að
fjárfesta í erlendum verðbréfum
muni hann að óbreyttu þurfa að
kaupa erlendan gjaldeyri fyrir fram-
lögin sem hann fær úr ríkissjóði og
hafi að því leyti til lítils háttar áhrif á
gjaldeyrisjöfnuð landsins.
,,Einnig gæti komið til álita að
haga arðgreiðslum þannig að er-
lendar tekjur orkufyrirtækja fari
beint inn á erlenda innistæðureikn-
inga ríkissjóðs og renni þá ekki í
gegnum gjaldeyrsjöfnuðinn,“ segir í
umfjöllun ráðuneytisins.
Þjóðarsjóður í
Bandaríkjadölum
Auknar arðgreiðslur Landsvirkjunar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hjónin Halla María Svansdóttir og
Sigurpáll Jóhannsson hafa opnað
veitingahúsið Hjá Höllu við C-hliðin
í suðurbyggingu
Keflavíkur-
flugvallar.
Halla María
segir aðspurð að
aðdragandinn
hafi verið sá að
hjónin sáu aug-
lýst veitingarými
í flugstöðinni.
„Við sáum aug-
lýsingu í blaðinu
og fengum
ábendingar frá fólki sem er vant að
versla hjá okkur. Það sendi okkur
línu á Facebook og spurði hvort við
hefðum ekki ábyggilega tekið eftir
þessu. Þetta væri tilvalið fyrir okk-
ur. Við ákváðum því að senda inn
umsókn og héldum að það yrði ferli
sem við myndum læra af. Við vissum
að senn verður farið í útboð á stækk-
un flugstöðvarinnar og sáum um-
sóknina því eins og æfingu fyrir um-
sókn síðar meir,“ segir Halla María
en þau hjónin urðu svo fyrir valinu.
Byrjuðu í heimahúsi
Þau hófu veitingarekstur með sölu
svonefndra námskeiðspoka úr
heimahúsi. Fengu viðskiptavinir þá
útbúinn mat fyrir daginn, drykki og
málsverði, að frátöldum kvöldmat.
Áður höfðu þau reynt að fá leyfi til
að opna kaffihús í Saltfiskshúsinu í
Grindavík en án árangurs.
Fyrsta árið gekk vel og árið 2012
fluttu þau reksturinn í gömlu Hafna-
vigtina í Grindavík og deildu þar 60
fermetra húsnæði með öðrum.
„Það var taktu-með-staður, ásamt
því sem við seldum til fyrirtækja.
Eftir eitt ár þar keyptum við hús-
næði gamla sparisjóðsins sem hafði
staðið autt árum saman. Við innrétt-
uðum gamla húsið upp á nýtt og ætl-
uðum að leigja hluta þess frá okkur
undir aðra starfsemi. Það væri enda
heldur stórt fyrir okkur. Annað kom
á daginn. Við höfum verið þar með
rekstur síðustu þrjú og hálft ár en
starfsmennirnir eru orðnir 33.
Við sóttum svo um aðstöðuna á
Keflavíkurflugvelli með það að
leiðarljósi að útbúa matinn í Grinda-
vík, nema hvað pítsurnar eru gerðar
á staðnum. Samkvæmt útboðinu
urðu að vera pítsur og salöt á staðn-
um sem var boðinn út.
Okkur langaði ekki að bjóða
venjulegar upphitaðar pítsur heldur
langaði okkur að bjóða almennilegar
eldbakaðar pítsur. Þá var farið í það
ferli að koma gasleiðslum í flugstöð-
ina sem okkur tókst,“ segir Halla
María um undirbúninginn.
Á staðnum er sérhannaður pítsa-
ofn frá Ítalíu og geta gestir látið sér-
baka pítsur. Þá er m.a. boðið upp á
salöt, samlokur, fisk, nýpressaðan
safa, chia-grauta, ávaxtaþeyting og
drykki. „Við erum með vegan- og
glútenfría-kosti sem ekki hefur verið
mikið framboð af á flugvellinum,“
segir Halla María. Veitingahúsið hjá
Höllu á flugvellinum er opið frá fjög-
ur að morgni til átta á kvöldin. Þar
starfa átta manns.
Ný matsala
í flugstöðinni
Veitingahúsið Hjá Höllu opnað
Morgunblaðið/Eggert
Á Keflavíkurflugvelli Nýi staðurinn er við C-hliðin í suðurbyggingunni. Í bakgrunni má sjá glitta í pítsaofninn.
Halla María
Svansdóttir