Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti.
Fatnaður fyrir fagfólk
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
MEATER +
ÞRÁÐLAUS KJÖTHITAMÆLIR
Stórsniðugur þráðlaus hitamælir sem vinnur með WiFi og Bluetooth.
Fylgst er með hitastigi og stillingum í appi í snjallsíma, tölvu eða spjaldtölvu.
VERÐ: 19.995KR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nýr Cleopatra-bátur, Indriði Krist-
ins BA 751, sem Þórsberg ehf. á
Tálknafirði hefur keypt frá Trefjum
gerir útgerðinni kleift að minnka
olíukostnað. Áhöfnin getur lagt tvær
lagnir í hverjum róðri og þannig
minnkað stímið um helming.
„Þetta er það eina sem við getum
tekist á við í þessari útgerð, að nota
minna eldsneyti. Við ráðum ekki við
neitt annað, allt er á markaði,“ segir
Guðjón Indriðason, framkvæmda-
stjóri Þórsbergs.
Báturinn er búinn til línuveiða
með beitningarvél um borð. Hann er
með búnað til að kæla fiskinn, í anda
svokallaðrar ofurkælingar. „Það er
öll stefnan í þessa átt, að kæla aflann
eins fljótt og hugsast getur. Þeim
mun betra verður hráefnið. Þetta er
það sem markaðurinn kallar á, vönd-
uð meðferð aflans. Við verðum að
gera eins vel og kostur er á hverjum
tíma,“ segir Guðjón.
Eldri bátur fyrirtækisins með
sama nafni var seldur í lok júlí.
Hann var aðeins tveggja ára en ekki
var hægt að koma þessum kælibún-
aði fyrir í honum. Þess vegna var
ráðist í kaup á nýjum báti.
Skrítnar reglur
Báturinn er 14 metra langur og
mælist 30 brúttótonn. Guðjón segir
að reglurnar í krókaaflamarkinu séu
skrítnar. Bátar megi ekki fara yfir
15 metra lengd og 30 tonn. Það þýði
að 15 metra bátur má ekki vera
breiðari en 4,40 metrar. Þessi bátur
og bátar sömu gerðar eru hugsaðir
öðruvísi. Með því að hafa þá breiðari
fæst meira rými. Báturinn er því 5,5
metrar á breidd og reiknuð lengd
má þá ekki vera nema 13,20 metrar
til þess að hann haldist innan 30
brúttótonna.
„Þetta er eini útgerðarflokkurinn
sem er girtur niður í tonnastærð. Ef
við fengjum að hafa 15 metra langa
báta myndum við láta þá vera 8
metra breiða og þá myndum við geta
gert þetta almennilega. Við myndum
skapa meira rekstraröryggi og ör-
yggi og þægindi fyrir karlana. En
reglurnar leyfa það ekki. Það er ver-
ið að hanga í gömlu að einhverju
leyti. Sumir vilja bara hafa 6 tonna
trillur með einum karli eins og gert
var í gamla daga. Markaðurinn vill
hins vegar vandaðri vöru og henni
náum við ekki nema hafa nægilegt
pláss um borð,“ segir Guðjón.
Byrjað er að róa á nýja bátnum og
landað hefur verið úr honum nokkr-
um sinnum. Hefur útgerðin gengið
afskaplega vel, að sögn Guðjóns, og
aðstaðan um borð til mikillar fyrir-
myndar.
Sex menn eru í áhöfn og notað er
skiptikerfi. 4 eru um borð í hverjum
róðri. Menn vinna í tvær vikur og fá
síðan viku frí. Róið er alla daga vik-
unnar, þegar veður leyfir. „Báturinn
er smíðaður til að vera á sjó,“ segir
Guðjón. Aflinn fer á fiskmarkað.
Minni olía notuð til að
ná í betra hráefni
Nýr Indriði Kristins í notkun hjá Þórsbergi á Tálknafirði
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Öflugur Nýr Indriði Kristins kemur til heimahafnar á Tálknafirði. Hann er
Cleopatra-bátur, mjög vel útbúinn til línuveiða og hefur reynst vel.
Áhöfn Jörgen Eiríksson, Sigurður Jónsson, Magnús Kr. Guðjónsson skip-
stjóri, Bjarni Sigmar Guðnason og Guðjón Indriðason framkvæmdastjóri.
Aðstandendur Kristins Rúnarssonar
og Þorsteins Guðjónssonar, sem fór-
ust í október 1988 við fjallgöngu á
fjallinu Pumori í Nepal, hafa þegið
boð Leifs Arnar Svavarssonar, hjá
Íslenskum fjallaleiðsögumönnum,
um að hann fari að þeim stað þar sem
talið er að jarðneskar leifar þeirra
séu nú, í um 5.500 metra hæð.
„Staðurinn er talinn nægilega að-
gengilegur þannig að Leifi og öðrum
er ekki talin hætta búin, enda er að-
standendum öryggi þeirra hugleikið.
Hefur Leifur þegar lagt af stað og
mun kanna möguleika á því að flytja
jarðneskar leifar þeirra til Kat-
mandú, höfuðborgar Nepals.
Ráðgert er að þar muni fulltrúar
aðstandenda taka við og annast
nauðsynlegar ráðstafanir fyrir flutn-
ing þeirra heim til Íslands,“ segir í
yfirlýsingu frá aðstandendum Krist-
ins og Þorsteins sem send var fjöl-
miðlum í gær. Borgaraþjónusta ut-
anríkisráðuneytisins og alþjóðadeild
og kennslanefnd ríkislögreglustjóra
hafa aðstoðað við skipulagningu
flutningsins. „Nokkur tími mun líða
þar til ljóst er hvort takmarki ferð-
arinnar verði náð og biðja aðstand-
endur fjölmiðla og aðra að virða þá
ósk þeirra að nánari upplýsingar
verði einvörðungu veittar við ferða-
lok,“ segir í yfirlýsingunni og vilja
aðstandendur að lokum koma á
framfæri þökkum fyrir allan þann
hlýhug sem þeir hafi svo sannarlega
fundið fyrir.
Styrktarreikningur stofnaður
Vegna fyrirspurna um hvernig
megi aðstoða hefur verið stofnaður
styrktarreikningur í Arion banka á
nafni sonar Kristins; Kristins Stein-
ars Kristinssonar, kt. 310389-2939,
nr. 0370-13-004559.
Freista þess að
flytja félagana heim
Leifur Arnar fer í leiðangur á fjallið Pumori
Félagar Þorsteinn Guðjónsson og Kristinn Rúnarsson líklega fundnir.