Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
NÝ OG FLOTT PARHÚS Á FRÁBÆRU VERÐI
í ekta spænsku þorpi, stutt frá Alicante, strönd og golfvelli.
Verð frá: 17.250.000 kr*
• Veitingastaðir og verslanir í göngufæri
• 10 mínútna akstur á Bonalba golfvöllinn
• 10 - 15 mínútna akstur á El Campello ströndina
• Fallegar hjóla- og gönguleiðir
• 30 mínútna akstur til Alicante
• Gott veður allt árið
Los Altos De Alicante
*(125.000 evrur + kostnaður. Gengi: 1 evra = 138 kr.)
Kona virðir fyrir sér verk breska götulistamannsins Banksy á listasafni á Ítalíu. Verkið er
sprautað á múrhúð, er frá árinu 2002 og ber heitið „Bomb Middle England“ á ensku eða
„Sprengjum Mið-England“.
Sýningin „The Art of Banksy“ stendur nú yfir á Museo delle Culture, MUDEC, lista- og
menningarsafninu í Mílanó. Sýningin var opnuð í gær og verður opin til 14. apríl á næsta ári.
Banksy var í fréttunum hér heima á dögunum vegna listaverkagjafar til Jóns Gnarr.
AFP
Verk götulistamannsins Banksy sýnd í Mílanó
London, Moskvu. AFP. | Þær raddir
verða háværari sem hvetja til að
Rússinn Alexander Prókoptsjúk
verði ekki valinn forseti alþjóðalög-
reglunnar Interpol út af áhyggjum
af að Rússar myndu misnota stöðuna
til að koma höggi á stjórnarandstæð-
inga.
Rússnesk stjórnvöld hafa hafnað
þessu og gagnrýna afskipti af at-
kvæðagreiðslunni, sem fara á fram í
dag á ársfundi Interpol í Dúbaí.
Hópur bandarískra öldungadeild-
arþingmanna úr röðum bæði demó-
krata og repúblikana birti fyrr í vik-
unni opið bréf þar sem þeir sögðu að
það væri eins og að „fela ref stjórn
hænsnabús“ að velja Prókoptsjúk.
„Rússar misnota Interpol reglulega í
þeim tilgangi að jafna sakir við og of-
sækja pólitíska andstæðinga, and-
ófsmenn og blaðamenn,“ skrifuðu
þeir. Í opna bréfinu sagði að Pró-
koptsjúk hefði persónulega tekið
þátt í þessu eftir að hann var kjörinn
í framkvæmdastjórn Interpol.
Tveir menn, sem hafa verið þyrnir
í augum rússneskra stjórnvalda,
gengu í gær lengra í gagnrýni sinni
og lýstu yfir því að þeir ætluðu að
leita á náðir dómstóla til að fá Rúss-
um vikið úr Interpol vegna misnotk-
unar þeirra á alþjóðalögreglunni.
Þeir eru fjárfestirinn Bill Brow-
der, sem hefur leitað til dómstóla í
Rússlandi með ásakanir um mann-
réttindabrot rússneskra embættis-
manna og aðild þeirra að dauða lög-
manns síns í gæsluvarðhaldi í
Moskvu fyrir níu árum, og auðkýf-
ingurinn Míkhaíl Kodorkovskí, sem
sat í fangelsi í Rússlandi í tíu ár og
býr nú í útlegð í London. Ráðamenn í
Kreml hafa ítrekað reynt að koma
því til leiðar að gefin yrði út alþjóð-
leg handtökuskipun á hendur þeim.
Kjósa á arftaka Meng Hongwei
frá Kína, sem hvarf í heimalandi sínu
í september. Kínversk stjórnvöld
upplýstu Interpol í kjölfarið um að
hann hefði sagt af sér eftir að hann
var kærður fyrir að þiggja mútur.
Rússar stýri
ekki Interpol
Vaxandi andstaða við forsetaefnið
AFP
Andóf Bill Browder og Míkhaíl Kodorkovskí héldu í gær blaðamannafund í
London og sögðu að þeir hygðust leita leiða til að víkja Rússum úr Interpol.
Að minnsta kosti 43 biðu bana og
áttatíu særðust í sprengingu í Ka-
búl, höfuðborg Afganistans, þegar
æðstu klerkar landsins komu saman
í gær.
Heilbrigðisráðherra landsins Ahid
Majroh, sagði að árásin hefði beinst
að samkomu í veitingasal þar sem
klerkarnir hefðu komið saman til að
fagna afmæli spámannsins Múham-
eðs. „Fyrstu vísbendingar benda til
þess að um sjálfsmorðsárás hafi ver-
ið að ræða,“ segir talsmaður innan-
ríkisráðuneytisins, Najib Danish, í
samtali við AFP.
Sprengingin átti sér stað í Uranus
Wedding Palace, sem er sam-
komusalur fyrir pólitíska og trúar-
lega viðburði í Kabúl. Rekstrarstjóri
samkomusalarins sagði í samtali við
AFP að maður hefði sprengt sjálfan
sig í loft upp meðan á samkomunni
stóð. „Það eru fjölmargir látnir. Ég
hef persónulega talið þrjátíu látna,“
sagði rekstrarstjórinn í samtali við
AFP á grundvelli nafnleyndar.
mhj@mbl.is
43 létu lífið og 80 særðust í sjálfs-
vígsárás í Kabúl í Afganistan