Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 Víglundur Þorsteinsson sumri 2002. Enn í sárum eftir atvinnumissinn og áttavilltur enn sem komið var. Þar sé ég Víglund allt í einu og hann kemur til mín og réttir út höndina. Hann tekur í mína og heldur henni fastri. Hann flytur langa ræðu með augunum einum og svipbrigðum meðan við horfumst í augu. Það streymir frá honum þvílík hlýja og samúð að ég hef ekki fundið neitt þvílíkt fyrr né síðar. Ekkert orð fer okkur á milli. Mér eru fyrirgefnar fornar van- hugsanir. Ég veit ekki hversu lengi við stöndum þarna meðan gestirnir tínast út í kringum okk- ur. Þegar þessu langa handabandi lýkur förum við sitt í hvora áttina og okkar samskipti verða ekki fleiri þessa heims. Nú er Víglundur allur án þess að ég vissi hann veikan enda upp- tekinn sjálfur af sama kvilla. Ég tóri enn og get rifjað minningarn- ar upp. Og þær eru miklu fleiri sem eru góðar og hlýjar um mann- inn Víglund en um þær stundir sem hvassviðrin gengu yfir fyrir margt löngu. Áhrifamaður í lífi okkar beggja og örlagavaldur að ýmsu leyti, Benedikt Magnússon frá Vallá, sagði eitt sinn við mig í öli okkar og horfði fast á mig: „Embættið þitt geta allir séð. En ert þú, sem berð það, maður?“ Ég ber minn brest. Víglundur Þorsteinsson var mikill maður í mínum augum. Halldór Jónsson. „Hann Víglundur fór að leita sannleikans.“ Þannig orðaði frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrr- verandi forseti, það þegar við ræddum baráttu Víglundar fyrir réttlæti á árunum eftir fall banka- kerfisins. Leit Víglundar að sann- leikanum var ekki þrautalaus og ýmsir urðu til að tefja fyrir henni. Með mikilli eljusemi og harðfylgi tókst honum að komast yfir gögn sem haldið hafði verið leyndum fyrir öllum almenningi. Ný ríkis- stjórn sem tók við völdum í byrjun febrúar 2009 brást íslenskum hagsmunum. Víglundur sýndi fram á með skjallegum heimildum hvernig kerfisbundið var unnið gegn íslenskum hagsmunum með samningum við erlenda kröfuhafa föllnu bankanna. Ég kynntist Víglundi um það leyti sem leit hans að sannleikan- um stóð sem hæst. Við áttum marga fundi um eftirmál hrunsins og ég hreifst svo mjög af baráttu- þreki hans að ég afréð að skrifa bók um efnið sem kom út árið 2015 og fékk nafnið Bylting og hvað svo? en Víglundur var einn aðal- heimildarmaður minn við ritun þeirrar bókar. Ekki eru enn öll kurl komin til grafar og ég hygg að Víglundur hafi haft rétt fyrir sér þegar hann tjáði mér að lík- lega væri um að ræða stórfelld- asta svika- og blekkingamál stjórnvalda sem sögur færu af hér á landi. Víglundur var stórbrotinn kar- akter og alltaf þótti mér jafn áhrifamikið að hitta hann. Eitt af því sem hann uppgötvaði í rann- sóknum sínum á eftirmálum bankahrunsins var að stórveldin á meginlandi Evrópu, Þýskaland og Frakkland, höfðu staðið með Ís- lendingum þegar flest önnur ríki sneru við okkur baki. Samt sem áður hafa íslenskir ráðamenn haft lítinn áhuga á að rækta tengslin við þessi ríki. Íslendingar gleyma því gjarnan að ríki þeirra er í reynd meginlandsríki. Við höfum sótt okkar menningu, lög og stjórnkerfi til meginlands Evrópu. Þar eru þær þjóðir sem okkur eru skyldastar og við eigum mesta samleið með. Við ræddum þessi mál gjarnan á fundum okkar, en Víglundur sá „stóru línurnar“. Meginatriðin. Það hafði verið iðnrekendum og íslensku atvinnulífi mikið lán að hafa slíkan mann í forystu. Mann sem skildi mikilvægi friðar og sáttar í samfélaginu. Og skildi líka mikilvægi þess að íslenskir ráða- menn gættu umfram allt íslenskra hagsmuna. Blessuð sé minning Víglundar Þorsteinssonar. Björn Jón Bragason. Kveðja frá Samtökum atvinnu- lífsins. Víglundur Þorsteinsson var at- kvæðamikill í forystusveit sam- taka atvinnurekenda á síðustu tveimur áratugum síðustu aldar. Hann tók við starfi framkvæmda- stjóra BM Vallár árið 1971, þá inn- an við þrítugt, og gegndi því í tæp 40 ár. Árið 1978 var hann kjörinn í stjórn Félags íslenskra iðnrek- enda og starfaði þar til ársins 1991, þar af síðustu níu árin sem formaður. Víglundur var kjörinn í framkvæmdastjórn Vinnuveit- endasambands Íslands (forvera Samtaka atvinnulífsins) á aðal- fundi 1983. Það hefur ugglaust verið afar sérstakt að koma að gerð kjarasamninga við þær óvenjulegu aðstæður sem þá ríktu í þjóðfélaginu. Verðbólgan var lið- lega 80% og vítahringur verð- bólgu, kauphækkana og gengis- lækkana hafði verið allsráðandi um langa hríð. Víglundur vildi breyta þessu og skapa betri aðstæður fyrir at- vinnureksturinn í landinu. Það var hans hugsjón sem hann brann fyr- ir og taldi það ekki eftir sér að bjóða krafta sína við gerð kjara- samninga til að ná því markmiði. Reynsla hans og þrautseigja naut sín vel þar sem tekist var á um kaup og kjör og möguleika fyrir- tækjanna að standa undir auknum útgjöldum. Miklar efnahagssveifl- ur einkenndu flest þessara ára og erfitt var að ná niðurstöðu í kjara- samningum sem atvinnulífið gæti borið og tryggja um leið sæmilega sátt í þjóðfélaginu. Víglundur var ávallt mjög virk- ur í starfi Vinnuveitendasam- bandsins, tók fljótlega sæti í for- ystusveit þess og sat í stjórn til 1998. Í þá daga gátu samninga- fundir verið mjög langir og var ekki spurt um hvíldartíma í lengstu samningalotunum í Karp- húsinu. Víglundur var ætíð ötul- astur stjórnarmanna VSÍ í þess- um viðræðum. Hann lá ekki á liði sínu við að gæta hagsmuna at- vinnulífsins og leita um leið lausna í erfiðum deilumálum. Þekking Víglundar á starfsemi almennu lífeyrissjóðanna mjög yfirgripsmikil, en hún er byggð á kjarasamningi SA og ASÍ um lífeyrismál. Samtök atvinnurek- enda tilnefndu Víglund til starfa í stjórn Lífeyrissjóðs verslunar- manna árið 1986 og átti hann þar sæti til ársfundar sjóðsins 2007, þar af sem formaður stjórnar í mörg ár. Þá sat hann í stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða frá stofnun þeirra 1998 til ársins 2007. Þessum trúnaðarstörfum, og öðrum sem honum voru falin af hálfu samtaka atvinnurekenda, gegndi hann af alúð og trú- mennsku. Víglundur setti mikinn svip á öll verkefni sem hann kom að. Að leiðarlokum þökkum við, fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins, Víglundi fyrir umfangsmikil, heilladrjúg og ósérhlífin störf í þágu samtakanna og forvera þeirra, en ekki síst fyrir að bera ætíð hagsmuni atvinnulífsins og fyrirtækja landsins fyrir brjósti. Fáir gerðu sér betur grein fyrir því að velgengni fyrirtækjanna er samofin hag starfsmanna þeirra. Á kveðjustund sendum við fjöl- skyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Víg- lundar Þorsteinssonar. Eyjólfur Árni Rafnsson, Halldór Benjamín Þorbergsson. Með Víglundi Þorsteinssyni er genginn forystumaður sem setti sterkan svip á samtíð sína hér á landi í áratugi. Honum voru falin margháttuð trúnaðarstörf fyrir iðnaðinn og at- vinnulífið í landinu. Víglundur var m.a. formaður Félags íslenskra iðnrekenda, for- maður Útflutningsmiðstöðvar iðn- aðarins, í stjórn Vinnuveitenda- sambands Íslands og formaður eða varaformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna í 21 ár. Einnig átti hann sæti í bankaráði Íslands- banka um tíma og í stjórnum fjölda atvinnufyrirtækja. Ég kynntist Víglundi á vett- vangi iðnaðarins sem óbilandi bar- áttumanni, hugsjónamanni og for- ystumanni. Hann var stór og fyrirferðar- mikill persónuleiki. Víglundur var ráðríkur en hann var ráðhollur. Ég gat alltaf leitað leiðsagnar og stuðnings hjá Víglundi. Hann var vinur vina sinna. Betri bandamann var ekki hægt að finna. Sem einn af helstu forystu- mönnum vinnuveitenda kom hann að gerð þjóðarsáttarinnar svo- nefndu árið 1990 sem átti eftir að gjörbreyta efnahagslífi lands- manna til hins betra. Þá var hann einn þeirra sem áttu hvað mestan þátt í því að móta grundvöll lífeyr- issjóðanna hér á landi og gera þá að því mikla afli sem þeir hafa orð- ið þjóðinni allri til ómældrar gæfu. Víglundur Þorsteinsson var vel að sér á ótrúlega mörgum sviðum. Þá var hann hugmyndaríkur og víðsýnn. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst honum og fengið tækifæri til að vinna með honum og njóta leiðsagnar hans þar sem leiðir lágu saman. Ég mun sakna þessa mikla bar- áttumanns. En mestur er missir nánustu ættingja hans. Ég sendi þeim öllum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minn- ing Víglundar Þorsteinssonar. Helgi Magnússon. Við Víglundur Þorsteinsson áttum langt og farsælt samstarf í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunar- manna. Hann var einn þeirra manna sem áttu hvað mestan þátt í upp- byggingu Lífeyrissjóðsins síðustu áratugi. Víglundur kom inn í stjórn sjóðsins sem fulltrúi iðnrekenda árið 1986 og varð formaður sjóðs- ins 1992. Iðnaðurinn lagði mikla rækt við sjóðinn og til marks um það hafa helztu forystumenn iðn- rekenda átt sæti í stjórn sjóðsins og hefur sú hefð haldizt fram á þennan dag. Með aðkomu iðnaðarins að sjóðnum breikkaði grundvöllur hans, en í breiddinni og stærðinni hefur falizt mikill styrkur. Sem forystumaður atvinnurek- enda lagði Víglundur áherslu á sátt í þjóðfélaginu, sátt milli stétta, sátt milli launamanna og atvinnurekenda, en líka sátt milli kynslóðanna. Hann sá „stóru línurnar“ ef svo má að orði komast, var vakandi yf- ir velferð lífeyrisþega og hvernig mætti ávaxta fé sjóðsfélaga með sem bestum hætti. Eitt sinn kom hann með mér á fund samtaka amerískra stofn- fjárfesta og við kynntum okkur fjárfestingar þarlendra lífeyris- sjóða í hlutabréfum. Lífeyrissjóð- ur verzlunarmanna átti eftir að verða í fararbroddi lífeyrissjóða þegar kom að fjárfestingum í ís- lensku atvinnulífi. Sú stefna hefur reynst afar farsæl fyrir ávöxtun sjóðanna og um leið mikilvæg fyr- ir fjármögnun stórra fyrirtækja. Það var okkur verzlunarmönn- um mikið lán að eiga samstarf við ýmsa af reyndustu og farsælustu athafnamönnum landsins í stjórn Lífeyrissjóðsins, menn eins og Víglund, sem störfuðu af einlægri hugsjón fyrir bættum hag lífeyris- þega og friði á vinnumarkaði. Með Víglundi er genginn einn af fremstu forystumönnum íslenzks atvinnulífs. Ég sendi Kristínu, sonum Víg- lundar og öðrum aðstandendum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guðmundur H. Garðarsson. ✝ Kristín Árna-dóttir fæddist á Ormarsstöðum í Fellahreppi 12. desember 1939. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Hrafnistu í Reykja- vík 9. nóvember 2018. Foreldrar henn- ar voru Árni Þór- arinsson, f. 29. ágúst 1893, d. 4. apríl 1975, og Sólveig Eiríka Sigfúsdóttir, f. 23. febrúar 1897, d. 12. júní 1985. Kristín var yngst af Ormarsstaða- systkinunum, þau voru: Þórarinn, f. 25. janúar 1920, d. 12. júní 1996, Sigfús, f. 29. mars 1921, d. 7. októ- ber 1997, Bergsteinn, f. 17. júlí 1926, d. 18. mars 1991, Ormar, f. óskírður, f. 6. nóvember 2018. Kjaran tölvunarfræðingur, f. 13. júní 1984, maki Fredrikke Bang verkefnastjóri, f. 20. maí 1988. Benedikt, f. 6. janúar 1993, nemi. Sambýlismaður Halldóru er Steindór Gunnlaugsson fram- kvæmdastjóri, f. 11. október 1961. Dóttir Kristínar er Þórdís, f. 9. maí 1970, faðir hennar er Vil- hjálmur Sigurlinnason, f. 6. jan- úar 1944. Kristín giftist Ívari Daníelssyni lyfsala, f. 18. júlí 1920, d. 14. nóvember 2017, þau skildu. Sálufélagi Kristínar síðustu ár- in var Adolf Haraldsson húsa- smíðameistari, f. 5. ágúst 1939. Kristín fluttist til Reykjavíkur ung að árum. Hún vann við marg- vísleg störf um ævina, meðal ann- ars í verslun, banka og við umönnun aldraðra. Útför Kristínar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 21. nóvember 2018, klukkan 13. 6. apríl 1928, d. 9. maí 1993, og Guð- rún, f. 28. september 1930, búsett á Egils- stöðum. Kristín giftist Kjartani Sveinssyni tæknifræðingi, f. 4. september 1926, d. 27. september 2014, þau skildu. Þeirra sonur var Sveinn Kjartansson pípu- lagningameistari, f. 12. desember 1957, d. 25. september 2000. Hans kona var Halldóra Lydía Þórðardóttir sjúkraliði, f. 17. september 1959, þeirra börn eru: Þuríður Ósk hjúkrunarfræð- ingur, f. 13. júní 1981, maki Ölvir Styrr Sveinsson kerfisfræðingur, f. 4. janúar 1975, sonur þeirra Kristín eða Stína eins og við kölluðum hana oftast var yngst af börnum Árna og Eiríku á Ormarsstöðum í Fellum. Fyrstu minningar mínar af Stínu voru þegar hún kom við á æskuheimili mínu á Egilsstöðum á leið í heimsókn á æskuslóðir sínar, oft til að heimsækja Svein son sinn sem var í sveit hjá afa og ömmu. Það var alltaf tilhlökkun að fá þau mæðgin frá Reykjavík í heimsókn. Stína var bæði falleg og glæsi- leg kona. Auk þess heilluðu mig fallegu og litríku fötin hennar, túberaða hárið og mikil förðun sem tíðkaðist hjá Reykjavíkur- dömum þess tíma. Stína gladdi alla og ekki síst Ormar föður minn sem var alltaf með sérstak- an gleðisvip þegar litla systir kom í heimsókn. Góðlátleg stríðni milli þeirra systkina hlát- ur og gleði er okkur systkinum minnisstætt. Síðar áttaði ég mig á því hversu góðir vinir þau voru og náin. Í sumardvöl Svenna á Orm- arsstöðum myndaðist góður vin- skapur með okkur systkinum. Við unnum með honum við ýmis störf í sveitinni og eftir dags- verkið var farið upp í kompur eins og herbergi Svenna voru kölluð. Þar var sérstök stemning á sumarkvöldum þegar Svenni sýndi okkur bíó. Hann átti for- láta upptöku- og sýningarvél. Svenni sýndi okkur myndir af líf- inu í sveitinni og aðkeyptar bíó- myndir. Á þessari stundu er mér of- arlega í huga þakklæti til Stínu fyrir þá miklu aðstoð sem hún veitti mér og fjölskyldu minni gegnum árin. Hún tók á móti okkur og aðstoðaði í heimsókn- um til Reykjavíkur. Stína var líka stoð og stytta í alvarlegum veikindum móður minnar á mín- um menntaskólaárum og síðar á lífsleiðinni. Auk þess fékk ég að leigja íbúð hennar hluta af mín- um námsárum. Eitt af síðustu skiptunum sem þau systkin Ormar og Kristín hittust austur á Egilsstöðum ákváðu þau að fara á harmonik- kudansleik í félagsheimilinu Hjaltalundi og bjóða Þórarni frænda þeirra á Hjarðarbóli með. Stína var bílstjóri fyrir „strákana“ og var tilhlökkunin og gleðin líkt og unglingar væru að fara á sinn fyrsta dansleik. Þetta eru minningar sem ylja. Áföll í lífi Stínu voru mörg en alltaf hélt hún áfram hnarreist og glæsileg. Lengi vel var hún ein- stæð móðir í Reykjavík og bjó börnum sínum fallegt heimili enda var Stína mikill fagurkeri. Sérstaklega er mér minnisstætt handverk Stínu í fallegu útsaum- uðu stólunum hennar. Eftir veikindi Þórdísar og hvarf Svenna var líf Kristínar oft erfitt. Barnabörnin og Þórdís voru hennar líf og yndi og í heim- sóknum mínum til hennar fékk ég alltaf nýjustu fréttir af þeim. Hún var sérstaklega stolt af því að segja frá gengi þeirra í námi. Í síðustu heimsókn mín til Stínu seinni partinn í október sá ég að henni hafði hrakað en það gladdi mig að sjá kunnuglegt bros og heyra gleðihlátur þegar væntan- legt langömmubarn bar á góma. Þegar nýtt líf kviknar er það oft að annað kveður. Fyrsta lang- ömmubarn Stínu fæddist á þriðjudegi og hún kvaddi aðfara- nótt föstudags. Blessuð sé minn- ing góðrar og fallegrar frænku. Signý Ormarsdóttir. Mig langar til að minnast Kristínar Árnadóttur móðursyst- ur minnar í nokkrum orðum. Hún fór burt úr sinni heimasveit Fellahreppi á Héraði suður til Reykjavíkur fyrir mitt minni. Giftist ung og eignaðist soninn Svein. Ég á þó minningar um hana í heimsókn hjá afa og ömmu á Ormarsstöðum og ég man hvað mér fannst hún alltaf fín og flott. Þegar ég fór í Verslunarskól- ann 16 ára gamall kynntist ég Stínu fyrst í raun og veru. Hún var þá einstæð móðir með ný- fædda stúlku og son á ferm- ingaraldri og hafði ekki mikið handa á milli. Þó að íbúðin henn- ar væri ekki stór vildi hún endi- lega að ég byggi hjá sér og gerði ég það annan veturinn minn í bænum. Það var einstaklega gott að búa hjá henni og ekki skaðaði það að stutt var að labba frá Grettisgötunni þar sem hún bjó yfir í Versló sem þá var á Grund- arstígnum. Þegar ég hóf sambúð með Guðrúnu, verðandi eiginkonu minni, skapaðist góður vinskapur og mikill samgangur milli okkar sérstaklega þegar við bjuggum á Háteigsvegi og í Álftamýri og hún á Rauðarárstíg. Á þessum árum var hún smám saman að reyna að komast í betra og stærra húsnæði. Úr kjallaraíbúð í Miðtúni, í hæð á Grettisgötu, síðan í íbúð á Rauð- arárstíg. Hún vildi hafa fínt í kringum sig og við reyndum að hjálpa henni eftir bestu getu við að mála og veggfóðra. Á þessum árum vann hún við verslunarstörf, m.a. í Gjafahús- inu á Skólavörðustíg og Hús- gagnaversluninni Bláskógum. Snemma á áttunda áratugnum hóf hún sambúð með Ívari Daní- elssyni lyfsala og bjuggu þau fyrst í Garðabæ en síðar í lúxus- íbúð í byggingu Borgarapóteks í Álftamýri. Árin með Ívari hafa án efa verið henni góð og meira handa á milli en áður. En um 1990 dró ský fyrir sólu þegar dóttir hennar hún Þórdís (Dísa) veiktist alvarlega. Þau Ívar skildu og við tóku ár mikils rót- leysis. Hún var alltaf að leita eft- ir betri aðstöðu til að geta haft Dísu hjá sér. Á þessum árum keypti hún og seldi fleiri íbúðir en ég hef tölu á en endaði í Mos- arima í Grafarvogi þar sem hún bjó í mörg ár meðan hún gat en síðustu árin hefur hún dvalið á Hrafnistu. Á árinu 2000 varð hún fyrir öðru þungu áfalli þegar Sveinn sonur hennar hvarf sporlaust frá eiginkonu og börnum. Því miður hefur lík hans aldrei fundist og það gat hún aldrei sætt sig við. Segja má að eftir þessi áföll hafi líf Stínu orðið mjög erfitt og hún sá lítið til sólar. Hún var ekki sú Stína sem við þekktum áður. Heilsu hennar hrakaði og hún varð gömul langt fyrir aldur fram. Að leiðarlokum viljum við þakka fyrir samfylgdina í gegn- um árin. Blessuð sé minning Kristínar Árnadóttur. Örn og Guðrún. Kristín Árnadóttir Ekki datt okkur í hug þegar við kvödd- um vin okkar Jón á Spáni í október að við værum að kveðjast í síðasta sinn. Lífið er hverfult. Ég man fyrst eftir Jóni sem lít- il stelpa í Mjólkursamsölunni í Reykjavík þar sem pabbar okkar unnu, Gústi og Toni. Síðan lágu leiðir okkar aftur saman fyrir 30 árum. Jón og Gullý eiginkona hans urðu góðir vinir okkar og við höfum átt margar góðar stundir saman, á Íslandi, í Danmörku og ekki má gleyma Spáni. Jón Rafns Antonsson ✝ Jón Rafns Ant-onsson fæddist 24. mars 1947. Hann lést 7. nóvember 2018. Útför hans fór fram 19. nóvember 2018. Gestrisni þeirra í okkar garð verður seint fullþökkuð. Það var alltaf gott að leita ráða hjá Jóni og kom það sér vel þegar við fluttum í vor. Jón, eða Nonni eins og hann var kallað- ur, var vinur vina sinna, traustur og ljúfur. Elsku Gullý, Sólveig, Svava og Guðrún Andrea, ykkar missir er mikill. Svava móðir Jóns sér á eftir elsta syni sinum. Megi Guð gefa þeim styrk. Við viljum hugsa til Jóns vinar okkar i Sumarlandinu á grænum velli með 18 holum, þá vitum við að hann er á góðum stað. Minning um góðan dreng mun lifa. Jörgen og Svava.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.