Morgunblaðið - 21.11.2018, Side 27
og starfaði þar til 1973. Þá flutti hún
til Hellu á Rangárvöllum og kenndi
þar til ársins 1984. Hún flutti þá til
Selfoss, kenndi þar í eitt ár og flutti
síðan til Akureyrar. Þar kenndi hún
við Lundarskóla í þrjú ár og starfaði
einnig í Stjörnuapóteki.
Árið 1988 flutti Guðný svo aftur
heim á æskuslóðirnar, til Siglu-
fjarðar, og kenndi við Grunnskóla
Siglufjarðar í 20 ár. Hún hætti
kennslu árið 2008 og í kjölfarið dvaldi
hún á Spáni í tæpt ár.
Siglfirðingurinn Guðný sótti sinn
pólitíska áhuga suður í Rangárvalla-
sýslu: „Áhuginn á pólitík kviknaði
þegar ég var búsett á Hellu og var
enn til staðar þegar ég kom aftur til
Siglufjarðar. Þar starfaði ég í Alþýðu-
bandalaginu og síðar Samfylking-
unni, sat í bæjarstjórn á Siglufirði frá
1994-2006 og var forseti bæjar-
stjórnar síðustu fjögur árin.“
Guðný situr í sóknarnefnd Siglu-
fjarðarkirkju og í stjórn Norræna fé-
lagsins. Hún vann að uppbyggingu
Síldarminjasafnsins og er félagi í
FÁUM, félagi áhugamanna um
minjasafn. Þá situr hún í stjórn
kvæðamannafélagsins Rímu og kveð-
ur við raust með félögum sínum þar
við ýmis tækifæri.
Guðný er músíkölsk og hefur sung-
ið í fjölda kóra: „Ég byrjaði að syngja
í kirkjukór í Oddakirkju á Rang-
árvöllum og hef sungið síðan í kirkju-
kórum á Akureyri og Siglufirði. Ég
var einn stofnandi sönghópsins Fim-
mundar sem kom fram við mörg
tækifæri. Ég hef stundað nám í tón-
list bæði á píanó, þverflautu og í söng
og er enn nemandi við tónlistarskól-
ann á Siglufirði. Það er alltaf hægt að
bæta einhverju við sig í tónlistinni.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Guðnýjar er Haf-
þór Rósmundsson, f. 4.6. 1943, fyrrv.
sjómaður og forstöðumaður lífeyr-
issjóðs verkalýðsfélaganna á Norður-
landi vestra. Foreldrar hans voru
María Jóhannsdóttir, f. 26.7. 1891, d.
26.11. 1969, húsfreyja, og Rósmundur
Guðnason, f. 6.3. 1900, d. 23.7. 1967,
sjómaður. Þau voru búsett á Siglu-
firði.
Eiginmaður Guðnýjar frá því áður
var Steindór Hjörleifsson, f. 1938, d.
2011, en þau skildu 1972. Hún var í
sambúð með Stefáni M. Halldórssyni,
f. 1949, en þau skildu 1973. Þá var
hún gift Daníel Þorsteinssyni, f. 1955,
en þau skildu 1986.
Börn Guðnýjar: 1) Páll Steindór
Steindórsson, f. 3.12. 1966, d. 5.8.
2013, flugmaður, var búsettur á Ak-
ureyri en eftirlifandi kona hans er
Sigríður María Hammer viðskipta-
fræðingur og eru barnabörnin Guðný
Birta og Sara Elísabet; 2) Halldór
Már Stefánsson, f. 12.7. 1972, tónlist-
arkennari, búsettur í Barselóna á
Spáni en kona hans er María Jose
Boira Sales tónlistarkennari og eru
barnabörnin Stefán, Katrín og María,
og 3) Ólöf Kristín Daníelsdóttir, f.
17.1. 1979, skjalastjóri, búsett á Siglu-
firði en maður hennar er Jón Hrólfur
Baldursson rakari og eru barnabörn-
in Emma Hrólfdís og Ellen Daðey
Systkini Guðnýjar eru Jón Pálsson,
f. 22.2. 1942, rafvirki, búsettur í Þor-
lákshöfn; Þórunn Pálsdóttir, f. 6.5.
1945, hárgreiðslukona á Akureyri;
Unnur Björk Pálsdóttir, f. 29.7. 1946,
húsfreyja og verslunarmaður á Ak-
ureyri, og Magnús Pálsson, f. 15.10.
1955, yfirfélagsráðgjafi á Reykja-
lundi, búsettur í Reykjavík..
Foreldrar Guðnýjar: Páll Magn-
ússon, f. 21.3. 1918, d. 23.7. 1974, bif-
reiðastjóri, búsettur á Siglufirði og
síðar á Akureyri, og k.h., Auður
Magnea Jónsdóttir, f. 21.4. 1921, hús-
freyja og starfaði lengi í versluninni
Amaró á Akureyri
Úr frændgarði Guðnýjar Pálsdóttur
Guðný Pálsdóttir
Guðný Jónasdóttir
húsfr. í Heiðarseli
Magnús Benediktsson
b. í Heiðarseli í
Gönguskörðum
Unnur Magnúsdóttir
húsfr. á Sauðárkróki
Auður M. Jónsdóttir
húsfr. á Siglufirði og verslunarm. áAkureyri
Jón Björnsson
verslunarm. á Sauðárkróki
Guðbjörg Guðjónsdóttir
húsfr. á Unastöðum
Björn Björnsson
b. á Unastöðum í Kolbeinsdal, síðar á Sauðárkróki
Hrólfdís
Hrólfsdóttir
húsfr. á
Siglufirði
Hrólfur
Baldursson rakari
og bareigandi á
Siglufirði
Emma
Magnúsdóttir
verkakona á
Siglufirði
Brynja Magnúsdóttir verkak. á Siglufirði
Gunnhildur Eldjárnsdóttir
bankastarfsm. í Rvík og á
Seyðisfirði
Eldjárn Magnússon
kjötiðnaðarmaður
á Siglufirði og í Rvík
Unnur Guðný
Björnsdóttir hárgreiðsluk.
á Sauðárkróki
Björn Jónsson rafvirki
á Sauðárkróki
Kári Jónsson símstöðvarstj.
á Sauðárkróki
Óli Björn Kárason
alþm.
igríður Jónsdóttir
húsfr. í Kópavogi
SEgill Þórðarson
ljóðskáld
Magnús Jónsson fv.
úsasmiður í Ástralíuh
Sigríður Magnúsdóttir
veitingak. á Sauðárkróki
Anna Friðrika Daníelsdóttir
húsfr. á Grund í Svarfaðardal
Sigurður Halldórsson
b. og skipstj. á Grund í
Svarfaðardal
Þórunn Sigurðardóttir
húsfr. á Grund og á Siglufirði
Magnús Pálsson
búfr. og b. á Grund í Svarfaðardal og verkam. á Siglufirði
Guðrún Magnúsdóttir
húsfr. á Hóli
Páll Björnsson
b. á Hóli í Svarfaðardal
Páll Magnússon
bílstjóri á Siglufirði og síðar áAkureyri
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
Skapaðu þinn eigin stíl með
Edge skápaeiningunum frá
Hammel. Ótal möguleikar á
uppröðun og útfærslum. Þú
velur hvort þú hengir
skápana upp á vegg eða
setur fætur undir. Dönsk
hönnun og framleiðsla.
95 ára
Hilmar Hafsteinn Júlíusson
85 ára
Sigurlaug Guðvarðsdóttir
80 ára
Jónasína S.
Hallmundsdóttir
Svanborg Erla Ingvarsdóttir
75 ára
Guðný Pálsdóttir
Gunnar Valur Jónsson
Hafdís Rut Pétursdóttir
Jón Aðalsteinsson
Kristín Halla Jónsdóttir
Steinþóra Vilhelmsdóttir
Vilhjálmur Björnsson
70 ára
Ástríður Ólafsdóttir
Guðmundur Guðmarsson
Halldór Ingvason
Kristín Árnadóttir
Páll Guðjón Ágústsson
Siggerður Aðalsteinsdóttir
60 ára
Auður Stefánsdóttir
Ásdís Harpa
Guðmundsdóttir
Bryndís Gertrud
Hauksdóttir Hauth
Gísli Petersen
Guðbjörg Sigríður
Pétursdóttir
Hansína Kristjánsdóttir
Ingi Khang Hoang
Jóhannes E. Jóhannesson
Jón Ingigeir Jónsson
Ormur Helgi Sverrisson
Páll Helgi Valdemarsson
Ragnheiður Ingadóttir
Sawai Kongkaeo
Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Þorgeirsdóttir
Sigurjón Haukur Valsson
Sirina Margret Ayabadda
Dewage
Skúli Sveinsson
50 ára
Ari Arnalds Jónasson
Cinzia Epis
Hafdís Hafsteinsdóttir
Ilona Arlauskiené
Joaquim I. Da Silva Eugénio
Júlía Yanzhong Xiao
Karvel Líndal Hinriksson
Sigurgeir Ólafsson
40 ára
Bruno Miguel Cardoso
Correia
Brynja Ástráðsdóttir
Elsa Kristjánsdóttir
Leifur Örn Gunnarsson
Margrét Kolbeinsdóttir
Ragnar Stefán Halldórsson
Rögnvaldur Ingi Ólafsson
Sigríður Pétursdóttir
Sólveig Dögg Alfreðsdóttir
Sturla Hilmarsson
Örn Ægir Barkarson
30 ára
Alda María Almarsdóttir
Elvar Sigurðsson
Eva Sif Helgadóttir
Guðni Þór Einarsson
Hjörtur Freyr Jóhannsson
Hólmfríður Sunna
Guðmundsdóttir
Ingibjörg Elsa Turchi
Jóhann Eyþór Jóhannsson
Jónas Halldór Friðriksson
Mykhailo Ivanchyshyn
Ólafur Davíð Friðriksson
Stefán Páll Skarphéðinsson
Valerio Ferrara
Til hamingju með daginn
30 ára Ólafur Davíð ólst
upp í Reykjavík og Dan-
mörku, býr í Mosfellsbæ,
lauk BSc-prófi í eðlisfræði
frá HÍ og er að hefja nám í
byggingaverkfræði.
Bræður: Guðmundur
Guðmundsson, f. 1980,
og Daníel Friðriksson, f.
1990.
Foreldrar: Valdís Guð-
mundsdóttir, f. 1952, leik-
skólakennari, og Friðrik
Ólafsson, f. 1959, bygg-
ingaverkfræðingur.
Ólafur Davíð
Friðriksson
30 ára Jóhann ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
stúdentsprófi frá Kvennó
og starfar hjá Sorphirðu
Reykjavíkurborgar.
Unnusta: Saga Roman, f.
1992, MS-nemi við HÍ.
Systkini: Hálldór Davíð, f.
1977; Ásthildur María, f.
1984, og Vilberg, f. 1991.
Foreldrar: Jóhann Vil-
bergsson, f. 1960, búsett-
ur í Reykjavík, og Eygló
Ástvaldsdóttir, f. 1958, d.
2003.
Jóhann Eyþór
Jóhannsson
30 ára Ingibjörg ólst upp
í Reykjavík, býr þar, lauk
BA-prófi í latínu og forn-
grísku frá HÍ og stundar
nú BA-nám í tónsmíðum
og rythmísku kennara-
námi við LHÍ.
Maki: Hróðmar Sigurðs-
son, f. 1991, tónlistar-
maður og gítarkennari.
Foreldrar: Paolo Turchi, f.
1964, kennari, og Sigríður
E. Laxness, f. 1958, bók-
menntafræðingur og rit-
ari.
Ingibjörg
Elsa Turchi
Valgerður Pálmadóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í hugmyndasögu
við háskólann í Umeå í Svíþjóð. Rit-
gerðin ber heitið Perplexities of the
Personal and the Political: How wo-
men’s Liberation became Women’s
Human Rights (ísl.: Um hið persónu-
lega og hið pólitíska: Frá kvennabar-
áttu til mannréttinda).
Leiðbeinendur voru dr. Sara Eden-
heim, dósent í sagnfræði og kynja-
fræði, og dr. Lena Eskilsson, dósent í
hugmyndasögu við Umeåháskóla.
Í rannsókninni fjallar Valgerður um
hvernig baráttan gegn ofbeldi gegn
konum hefur tekið breytingum í ár-
anna rás. Orðræða 7. áratugarins um
kvenfrelsi var smám saman leyst af
hólmi af orðræðu um mannréttindi
kvenna. Áherslan á meðvitund
kvenna og réttláta reiði yfir ranglátu
kerfi vék smám saman fyrir áherslu á
að auka skilning og meðlíðan annarra
á stöðu kvenna, sérstaklega aðila
með stofnanalegt og pólitískt vald.
Rannsóknin sýnir að einkunnar-
orðin „hið persónulega er pólitískt“
hafa mikilvæga og margræða þýð-
ingu í sögu kvennabaráttunnar og
þau hafa verið túlkuð á mismunandi
hátt eftir sögulegu, pólitísku og
fræðilegu samhengi. Slagorðið „hið
persónulega er pólitískt“ er því ekki
barn síns tíma heldur lifandi bar-
áttutæki sem nýst getur undirskip-
uðum og jaðarsettum hópum í marg-
víslegu samhengi.
Valgerður Pálmadóttir
Valgerður Pálmadóttir er fædd í Svíþjóð árið 1984 en uppalin í Reykjavík. Hún
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2004, BA námi í
heimspeki og félagsfræði við Háskóla Íslands árið 2007 og mastersnámi í hug-
myndasögu við Gautaborgarsháskóla árið 2010. Sambýlismaður Valgerðar heitir
Kasper Kristensen og sonur þeirra Alvar Pálmi. Þau búa í Uppsölum í Svíþjóð.
Í dag, miðvikudaginn 21. nóvember, heldur Valgerður fyrirlestur á vegum
MARK Miðstöðvar margbreytileika og kynjarannsókna, og Heimspekistofnunar
HÍ um rannsókn sína. Fyrirlesturinn er í sal HB 5 í Háskólabíói kl. 12-13.
Doktor