Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni. VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Það gengur mikið á í Ljósmynda- skólanum þegar blaðamann ber þar að garði morgunn einn í liðinni viku. Allir að hamast við að undirbúa tök- ur á tónlistarmyndbandi fyrir hip- hop-sveitina Cyber. Leikstjóri myndbandsins, Kolfinna Nikulás- dóttir, tekur á móti blaðamanni en hún vakti mikla athygli fyrir fáein- um árum sem ein liðskvenna hipphopp-sveitarinnar Reykjavík- urdætra líkt og Cyber-konur, þær Salka Valsdóttir, Jóhanna Rakel Jónasdóttir og Þura Stína Kristleifs- dóttir. Óljóst markmið Cyber sendi á dögunum frá sér konseptplötuna Bizness sem fjallar um fyrirtæki sem selur gardínur og demanta og gerist platan öll á einum vinnudegi. Í stúd- íói er einmitt ver- ið að stilla upp leikmynd fyrir bankaútibú sem kemur við sögu á plötunni og Salka og Þura eru á leið í smink þegar blaðamaður nær tali af þeim. Þær eru fyrst spurðar að því hvað sé eiginlega að gerast í myndband- inu. „Það er nóg að gerast. Það er verið að segja frá þremur konum sem eru aðeins of uppteknar, eru að vinna rosalega mikið en vita ekki endilega hvert markmiðið er eða hvert þetta stefnir. Það er aldrei neitt sérstaklega glaðlegt yfir þessu myndbandi,“ svarar Salka kímin. Litirnir dofni og myndbandið verði súrrealískara eftir því sem á líður. Bið eftir hinu og þessu Myndbandið er við lagið „Hold“ sem fjallar, eins og titillinn gefur til kynna, um bið. „Að bíða eftir því að eitthvað breytist eða gerist í þínum starfsferli eða hverju sem þú ert að bíða eftir,“ útskýrir Salka og Þura bætir við að þetta geti líka verið bið eftir hversdagslegum hlutum eins og að fá afgreiðslu í banka. – Þið eruð ekki að bíða eftir þjón- ustufulltrúa? „Líka en svo er það líka bara þessi hversdagslega bið eftir hinu og þessu sem maður skilur ekki endi- lega af hverju maður er að bíða eft- ir,“ segir Salka. „Það eru nokkrar raðir í þessu myndbandi og banki, við erum að smíða banka í þessu stúdíói og erum líka að búa til útópíu sem er í einhvers konar garðhúss- teboði sem er þá meira eins og himnaríki í þessum heimi. Að vera í núinu að njóta án þess að vera að bíða eftir einhverju.“ Cyber bregður sér líka inn í skjalatösku í myndbandinu sem verður án efa ansi skrautlegt. „Við megum eiginlega ekki segja of mik- ið,“ segir Þura. Ekki rekið af ástríðu – Þetta er konseptplata og sagan gerist á einum degi í fyrirtæki sem seldur gardínur og demanta, ekki satt? „Jú, á skrifstofunni hjá Cyber In- corporated,“ svarar Þura og ber fram nafn fyrirtækisins með miklum bandarískum hreim. – Hvers vegna urðu þessar vörur, gardínur og demantar, fyrir valinu? „Það er bara það sem fólk þarf í líf sitt,“ svarar Þura stutt og laggott og Salka bætir við: „Þetta gerðist eig- inlega bara óvart, það hefur bara verið gat í markaðnum þegar fyrir- tækið var stofnað. Þetta er ekki fyr- irtæki sem rekið er af ástríðu.“ – Hvaðan kom þessi hugmynd eða konsept? „Það þróaðist bara yfir svolítinn tíma, við vinnum með fagurfræðilegt konsept á hverju ári sem við endur- nýjum alltaf. Í fyrra vorum við að vinna með hrylling, gáfum þá út plötuna Horror,“ segir Salka og Þura segir að þeirri hugmynd hafi fylgt latex- og leðurheimur. „Sviðs- fatnaðurinn okkar var alltaf þann- ig,“ segir hún. Salka segir að í kjöl- farið hafi komið bissness-konsept en þá meira fagurfræðilegt, „að fara yf- ir í öðruvísi „powerplay“ sem er þá meira að vera í jakkafötum eða í svo- lítið karllægum heimi.“ Konur í bransanum – Eru konur að taka völdin á þess- ari plötu, af körlunum? „Já, svona meðal annars. Ég myndi segja að þessi plata væri blanda af því að vera um þessar per- sónur og þessa framvindu sem á sér stað á skrifstofunni,“ segir Salka og Þura bætir við að þær vinni allar á skrifstofunni og að yfirmaðurinn sé ekki til staðar en sonur hans, leikinn af rapparanum Króla, stýri fyrir- tækinu í hans stað. Salka segir plötuna líka að hluta til fjalla um þær Cyber-konur innan tónlistarbransans, reynslu þeirra af honum. Þær séu að segja frá reynslu sinni en þó ekki með línulegri frá- sögn. „Undirtónarnir á plötunni eru líka mjög mikið okkar reynsla af þeim bisness sem við erum í. Hverju er maður að bíða eftir innan hans, hvað er maður að gera, hvenær er maður ánægður, hvenær líður manni illa? Ég hugsa stundum um hvernig væri að vera ekki í þessum bisness og finnst það setja mjög mikið tóninn fyrir vangavelturnar á þessari plötu,“ segir Salka og Þura tekur undir þetta. – Hafið þið fundið fyrir miklu and- streymi? „Auðvitað hefur maður gert það í gegnum tíðina, við byrjum í Reykja- víkurdætrum sem fengu gífurlega mikið mótlæti til að byrja með,“ svarar Salka og Þura segir dæt- urnar enn mæta miklu mótlæti. „Það var og er ekki enn eitthvað brjálað pláss fyrir konur í þessum bisness, þessum tónlistargeira,“ segir Þura. Salka kinkar kolli og segir þetta þó ekki það eina sem liggi þeim á hjarta. Tónlistarmenn þurfi almennt að leggja mikið undir og hægara sagt en gert að lifa af listinni. Spaugilegri en Horror – Horror var dálítið drungaleg en Bizness er miklu léttari, það er kannski meiri húmor á henni, eða hvað? Eða virkar hún þannig á mann af því tónlistin er léttari? „Kannski. Á Horror vorum við að vinna með svolítið persónuleg þemu og m.a.s. að vinna markvisst að því að gera þau drungalegri. Taka hluti sem eru í raun ekkert svo drama- tískir eða drungalegir,“ svarar Salka og Þura tekur í sama streng. „Við vorum ekki að vinna með eins mikla sögu þá og karaktersköpun, leit- uðum meira inn á við,“ segir hún. Salka segir að á Bizness sé ekki endilega verið að taka á léttari mál- um en hins vegar unnið úr þeim á ákveðnum ímynduðum stað, skrif- stofu, sem skapi meiri spennu og keyrslu. Þura bætir við að persónu- sköpunin hafi skilað spaugilegri plötu en þeirri á undan og að á Biz- ness megi finna hreina frásögn frá upphafi til enda. „Við höfum alltaf séð þessa skrif- stofu fyrir okkur sem eitthvert öm- urlegt, bandarískt fyrirtæki. Þú gætir aldrei selt demanta og gard- ínur á Íslandi,“ segir Salka kímin og Þura segist einmitt hafa séð mörg álíka undarleg fyrirtæki á dögunum þegar sveitin Cyber var stödd í Kan- ada. „Þú myndir aldrei sjá svona starfsemi á Íslandi,“ bendir hún á og ef slíkt fyrirtæki myndi skjóta upp kollinum hér á landi væri líklega eitthvað vafasamt á ferð þar innan- dyra. Morgunblaðið/Eggert Hugsi Kolfinna leikstjóri klórar sér í kollinum við tökur í liðinni viku. Fólk þarf gardínur og demanta  Cyber gefur út Bizness  Einn dagur á skrifstofu Cyber Incorporated  „Ég hugsa stundum um hvernig væri að vera ekki í þessum bisness,“ segir ein Cyber-kvenna um tónlistarbransann Bizness-konur Vinkonurnar í Cyber komnar í skrifstofufötin og tilbúnar í tökur á myndbandi við lagið „Hold“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.