Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.11.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 Huldar lögreglumaður ogFreyja sálfræðingur eruí aðalhlutverki í nýjustubók Yrsu Sigurðardótt- ur, Brúðunni. Bókin er sú fjórtánda eftir Yrsu en fyrsta spennusagan eftir hana, Þriðja táknið, kom út árið 2005. Líkt og í fyrri bókum Yrsu þar sem Huldar og Freyja eru í aðal- hlutverki segir í lýsingu að sagan tali beint inn í samtímann. Það pass- ar ágætlega því auðvelt er að hugsa sér að sagan hafi gerst á nýliðnu sumri. Það getur bæði verið já- kvætt og nei- kvætt en sögu- persónum varð til að mynda nokkuð tíðrætt um skíta sumarveður; líkt og síðasta sumar var á höfuðborgarsvæðinu. Ein- hverjir Reykvíkingar gætu orðið þreyttir á upprifjuninni á sólarlausa sumrinu en erlendum aðdáendum Yrsu þykir þetta kannski skemmti- legt. Atburðir bókarinnar gætu vel gerst á Íslandi í nútímanum; ferða- menn sem hverfa sporlaust, úti- gangsmaður myrtur og for- stöðumaður vistheimilis sakaður um alvarlegan glæp. Auk þess virðist illa farin, dularfull og gömul brúða skipta einhverju máli. Persónur bókarinnar eru mis- spennandi en aðdáendur Yrsu kann- ast vel við Huldar og Freyju. Hann virkar ekki spennandi pappír en meira er spunnið í hana. Eins og áð- ur er eitthvert neistaflug þeirra á milli en meirihluti neistanna virðist koma frá honum. Bestu hlutar bók- arinnar eru þegar sagan er sögð frá sjónarhóli Freyju. Af öðrum er vert að nefna ung- lingana sem dvöldu á vistheimilinu; þau Rósu og Tristan. Bæði virðast þau mjög klár þrátt fyrir að líf þeirra hafi alls ekki verið neinn dans á rósum. Bókin skröltir af stað eins og gam- all Rússajeppi á leið í ferðalag sem hann hefur engan áhuga á að fara. Það reyndist erfitt að halda aug- unum opnum framan af en þegar líða tók á bókina, sérstaklega þegar svona ¾ hlutar hennar voru búnir, reyndist erfitt að leggja hana frá sér. Fléttan sjálf dansar á mörkum þess að vera einum of ótrúverðug en nær þó að halda sig réttum megin við mörkin. Þegar lesandi er kominn að hápunkti spennunnar tekur við nokkuð furðulegur kafli. Í staðinn fyrir kafla með yfirheyrslum á brotafólki, þar sem upp kemst hvað gerðist og af hverju, kemur mestur hluti atburðanna í ljós í frásögn frá Huldari lögregluþjóni. Mér fannst það heldur furðulegur endir en komst svo fljótt að því að enn voru nokkrar blaðsíður ólesnar. Endirinn er algjör bomba og fær mann til að velta fyrir sér lífinu og sorglegum og oft á tíðum ótrúlegum tilviljunum. Yrsa hefur eignast marga aðdá- endur síðan Þriðja táknið kom út fyrir 13 árum og þeir munu ekki verða fyrir vonbrigðum með Brúð- una. Fjórtánda bókin „Endirinn er algjör bomba og fær mann til að velta fyrir sér lífinu,“ segir rýnir um nýja spennusögu Yrsu Sigurðardóttur. Dansað á mörkum Glæpasaga Brúðan bbbnn Eftir Yrsu Sigurðardóttur Veröld 2018. 359 bls. innb. JÓHANN ÓLAFSSON BÆKUR Er til ein kjarnamerking hugtaksins full- veldi eða eru skoðanir skiptar um inntak þess? Hefur fullveld- ishugtakið breyst síðan 1918? Er skiln- ingur Íslendinga á fullveldis- hugtakinu frábrugðinn því sem gerist í nágrannalöndum? Leitað verður svara við þessum spurn- ingum á fundi í Norræna húsinu í dag kl. 17. Framsögumenn verða Guð- mundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, Ragnhildur Helgadóttir prófessor í lögum, Birgir Ár- mannsson alþingismaður og Magnús K. Hannesson lögfræð- ingur en fundarstjóri er Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði. Hvað er fullveldi? Ragnhildur Helgadóttir Tríó píanóleikarans Tómasar Jóns- sonar kemur fram í tónleikaröð Jazzklúbbsins Múlans í kvöld kl. 21 á Björtuloftum sem eru á 5. hæð Hörpu. „Tómas hefur getið sér gott orð á undanförnum árum sem einn af mest spennandi píanóleikurum sinnar kynslóðar og hefur leikið með helstu tónlistarmönnum þjóð- arinnar frá unga aldri. Hann hefur m.a. leikið með hljómsveit Ásgeirs Trausta á tónlistarhátíðum víðs vegar um heiminn ásamt hljóm- sveitinni ADHD á tónleikum í Evr- ópu. Tómas gaf út sinn fyrsta geisladisk í lok árs 2016,“ segir í til- kynningu. Með Tómasi koma fram gítarleik- arinn Rögnvaldur Borgþórsson og Magnús Trygvason Elíassen sem leikur á trommur. Tríóið spilar tón- list eftir Tómas í opnum útsetn- ingum. Tríó Tómasar í Múlanum Á stuttbuxum Tómas Jónsson pí- anóleikari verður í Hörpu í kvöld. Fyrstu nemendatónleikar Söng- skólans í Reykjavík á þessu náms- ári verða haldnir í Sturluhöllum Söngskólans í Reykjavík í dag kl. 18. Nemendur grunndeildar skól- ans munu stíga á svið og flytja ís- lensk og erlend þjóðlög. Skólinn er kominn í nýtt húsnæði við Laufásveg 49-51 og eru tónleik- arnir þeir fyrstu sem haldnir eru þar. Hálftíma áður, kl. 17.30, verða haldnir örstuttir garðtónleikar undir hlyni sem er ljósum prýdd- ur og verður boðið upp á heitt súkkulaði. Öllum heimill aðgangur og að- gangur er ókeypis. Nemendatónleikar í nýju húsnæði Marilyn Monroe vann Golden Globe-verðlaun þrisvar sinnum og ein þeirra árið 1962 en það voru svokölluð Henriette-verðlaun, heið- ursverðlaun sem veitt voru vinsæl- ustu leikkonum hvers tíma en þau eru ekki lengur afhent. Nú hefur ónefndur evrópskur kaupandi keypt á uppboði þennan verðlauna- grip, sem Monroe átti dauðadags, og greiddi fyrir hann 250 þúsund dali, nær 31 milljón króna. Hlutir úr eigu Monroe hafa lengi verið vinsælir safngripir. Annar Golden Globe-verðlaunagripur úr hennar eigu var seldur fyrir 19 ár- um fyrir 140 þúsund dali. Sama ár greiddi safnari 1,26 milljónir dala fyrir kjól sem Monroe klæddist er hún söng afmælissönginn fyrir John F. Kennedy Bandaríkja- forseta. Kjóllinn var seldur aftur fyrir tveimur árum, fyrir 4,8 millj- ónir dala, 592 milljónir króna. Dýr verðlaun Monroe Verðmæti Marilyn Monroe með verð- launagripinn dýra eftir afhendinguna. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Mið 26/12 kl. 19:30 Frums Fös 11/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Fly Me To The Moon (Kassinn) Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 21.sýn Fös 23/11 kl. 19:30 22.sýn Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Insomnia (Kassinn) Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 172. s Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Sun 9/12 kl. 20:00 180. s Fös 23/11 kl. 20:00 173. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Fim 13/12 kl. 20:00 181. s Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas. Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas. Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 23/11 kl. 20:00 21. s Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Fös 14/12 kl. 20:00 24. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 16/12 kl. 13:00 8. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar! BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.