Morgunblaðið - 21.11.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 21.11.2018, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018 Bandaríski grínstinn Bill Burr verður með uppistand í Eldborg í Hörpu 29. apríl á næsta ári. Burr er með þekktari grínistum heims og hefur komið fram í sjónvarpsþátt- um, kvikmyndum og á sviði. Þá stýrir hann einnig hlaðvarpsþætt- inum Monday Morning Podcast og talar inn á teiknimyndaþættina F is for Family. Burr er með vinsælan teiknaðan þátt á Netflix, F is for Family, þar sem hann, Laura Dern og Justin Long fara á kostum. Í fyrra frum- sýndi hann fimmta uppistandsþátt sinn, Walk Your Way Out og af kvikmyndum sem hann hefur leikið í má nefna The Front Runner, Dad- dy’s Home og The Heat. Af sjón- varpsþáttum sem hann hefur leikið í má nefna Breaking Bad. Burr hefur áður verið með uppi- stand á Íslandi, fyrir fimm árum í Silfurbergi í Hörpu. Bill Burr með uppistand í Eldborg AFP Vinsæll Grínistinn Bill Burr. Gunnar Gränz listmálari hefur opnað myndlistarsýningu í hús- næði Tryggingamiðstöðvarinnar á Austurvegi 6 á Selfossi en þar má einnig sjá verk annarra lista- manna. Gunnar segir flest verka sinna máluð þannig að pensillinn fái að ráða. Hann segir einnig koma upp í hugann myndir sem birst hafi um hugsaða framtíð í Árborgarmálum. „Málun hefst og hið ótrúlega birtist á fletinum,“ skrifar Gunnar. Sýningin er opin á sama tíma og TM, frá kl. 9 til 16 virka daga. Gunnar Gränz sýnir hjá TM Abstrakt Hluti af verki eftir Gunnar. Hvaða barn á Íslandi hefurekki efast um tilvist jóla-sveinanna þrettán semgleðja börnin með því að setja eitthvað handa þeim í skóinn? Jólasveinarannsóknin er barnabók þar sem þrír uppátækjasamir og hug- myndaríkir drengir leggjast í það stóra rannsóknarverkefni að finna út hvort foreldrar eða jólasveinar setji í skóinn. Jólasveinarannsóknin er fyrsta barnabók Bennýjar Sifjar Ísleifs- dóttur. Áður hafið Benný gefið út skáldsöguna Grímu sem hlaut Ný- ræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2018. Haft er eftir Benný að tilurð bókarinnar hafi kviknað þeg- ar níu ára sonur hennar nýtti sér spjaldtölvu til þess að reyna að kom- ast að því hver það væri raunverulega sem setti í skóinn. Í Jólasveinarannsókninni ákveða vinirnir Baldur, Hjörtur og Elías að komast að því hvort jólasveinar séu virkilega til. Eins og oft vill verða eru einhverjir krakk- ar í bekknum farnir að efast og gera lítið úr þeim sem enn trúa á jólasveina. Vin- irnir þrír eru hug- myndaríkir og út- sjónarsamir og framkvæma rann- sóknina af mikilli fagmennsku. Þeir nota aðallega spjaldtölvur sem þeir fengu úthlutað í skólanum í rannsókn- ina. Þegar þeir fá órækar sannanir um tilvist eða ekki tilvist jólasveinanna setja þeir upplýsingar á netið sem á eftir að draga dilk á eftir sér. Höfundi bókarinnar tekst vel að nýta söguna til þess að koma góðum gildum til skila í umræðunni um netið, umgengni á því og spjaldtölvuvæð- ingu skólanna. Íslenskunni er gert hátt undir höfði í sögunni, persónu- vernd fær góða umfjöllun og einnig hvernig það er að viðurkenna mistök og biðjast afsökunar. Söguþráður bókarinnar er skemmtilegur og persónusköpun öll trúverðug. Feluleikur jólasveinanna eða fulltrúa þeirra og þörf barnanna fyrir sönnun þess að jólasveinarnir séu raunverulegir hefur ekkert breyst í tímans rás. Skiptir þá engu hvað allri tækni líður, síðustu þrettán dagarnir fyrir jól eru þrungnir spennu. Jóla- sveinarannsóknin er skemmtileg lesn- ing fyrir börn og foreldra. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Benný Sif „Söguþráður bókarinnar er skemmtilegur og persónusköpun öll trúverðug,“ segir rýnir um nýja sögu hennar, Jólasveinarannsóknin. Feluleikur jólasveinanna Barnabók Jólasveinarannsóknin bbbmn Eftir Benný Sif Ísleifsdóttur Bókabeitan, 2018. Innb., 140 bls. GUÐRÚN ERLINGSDÓTTIR BÆKUR The Guilty Morgunblaðið bbbbn Metacritic 82/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 18.00 Juliusz IMDb 6,5/10 Bíó Paradís 17.45 Litla Moskva Morgunblaðið bbbbn Bíó Paradís 20.00 Cold War Metacritic 90/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 18.00 Mæri Metacritic 78/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 22.00 Blindspotting Metacritic 76/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 22.00 Fashion Film Festival 2018 Bíó Paradís 20.00 Bohemian Rhapsody 12 Morgunblaðið bbbbn Laugarásbíó 19.50, 22.30 Sambíóin Kringlunni 19.30, 22.15 Smárabíó 16.50, 19.50, 22.20 Háskólabíó 18.10, 20.30 Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30, 21.50 The Girl in the Spider’s Web 16 Metacritic 48/100 IMDb 5,7/10 Smárabíó 20.00, 22.45 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 22.00 Hunter Killer 12 Metacritic 39/100 IMDb 6,6/10 Sambíóin Egilshöll 22.40 Halloween 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 68/100 IMDb 7,5/10 Laugarásbíó 22.00 Sambíóin Álfabakka 22.30 Lof mér að falla 14 Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur al- varlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,8/10 Háskólabíó 17.50, 20.40 Undir halastjörnu 16 Morgunblaðið bbbmn IMDb 6,8/10 Háskólabíó 18.20, 20.50 Bíó Paradís 22.15 Johnny English Strikes Again Metacritic 36/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 17.45, 20.00 Venom 16 Morgunblaðið bbnnn Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 22.40 The Grinch Trölli lætur það fara í taug- arnar á sér þegar fyrrverandi nágrannar hans byrja að skreyta fyrir jólin, kaupa gjafir og gleðjast. Laugarásbíó 17.45 Sambíóin Álfabakka 16.00, 18.10, 20.20 Sambíóin Egilshöll 17.50 Smárabíó 15.00, 17.15 Háskólabíó 18.00 Borgarbíó Akureyri 17.30, 20.00 The Nutcracker and the Four Realms Metacritic 39/100 IMDb 5,6/10 Sambíóin Álfabakka 16.00, 18.10 Sambíóin Egilshöll 17.40 Sambíóin Kringlunni 17.20 Sambíóin Akureyri 17.20 Grami göldrótti IMDb 5,5/10 Smárabíó 15.10 Smáfótur Snjómaðurinn Migo segir sögur af kynnum sínum af áður óþekktri goðsagna- kenndri dýrategund, mann- inum Percy. Metacritic 60/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 16.00 Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Metacritic 57/100 IMDb 7,7/10 Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.30 Sambíóin Álfabakka 16.00, 16.45, 17.40, 19.30, 20.30, 22.15, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.00, 20.00, 22.00 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Akureyri 16.45, 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.20 Smárabíó 16.00, 16.20, 19.00, 19.30, 22.00, 22.30 Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald 12 A Star Is Born 12 Kvikmyndastjarna hjálpar ungri söngkonu og leikkonu að slá í gegn. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Álfabakka 18.10, 20.20, 21.00 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Akureyri 19.30 Sambíóin Keflavík 19.30 Overlord 16 Bandarískir fallhlífahermenn fara á bakvið víglínuna til að styrkja innrás bandamanna í Normandí. Metacritic 52/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 22.20 Sambíóin Keflavík 22.20 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.