Morgunblaðið - 21.11.2018, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2018
--- ALLT A EINUM STAD �
HÓT E L R E K S T U R
Komdu og skoðaðu úrvalið í
glæsilegri verslun að Hátúni 6a
Hágæða rúmföt,
handklæði
og fallegar
hönnunarvörur
fyrir heimilið
Eigum úr
val af
sængurve
rasettum
Percale ofin –
Micro bómul
l,
egypskri og
indverskri bó
mull
Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is
ICQC 2018-20
Það gengur mikið á og svomargt og margir koma viðsögu í öðrum hluta hinsnýja sagnabálks breska
höfundarins JK Rowling að sumum
áhorfendum þykir nóg um – og vissu-
lega höktir frásögnin á stundum þeg-
ar sífellt nýjar persónur (og sumar
gamlar úr sagnaheimi Rowling) eru
kynntar til leiks og tengsl þeirra
skýrð á skjánum. Kannski myndi það
hjálpa einhverjum við upplifunina ef
ættartré fylgdi aðgöngumiðanum.
En þótt jaðri við ofhlæði í frásögn-
inni, og hún líði að vissu leyti fyrir, þá
er annar hluti Fantastic Beasts-
kvikmyndabálksins, Glæpir Grindel-
walds, að mestu leyti glæsileg, ævin-
týraleg og einstaklega hugvitsamleg
kvikmyndaveisla. Nýjasta tölvu-
tækni við kvikmyndagerð er hér nýtt
til fullnustu við sköpun ævin-
týraheims sem gleður sjálfsagt ekki
síst þá ótal aðdáendur Harry
Potters-sagnabálksins sem finna má
úti um heimsbyggðina.
JK Rowling er ekki einhamur höf-
undur, afköst hennar síðustu tvo ára-
tugi eru með ólíkindum. Á árunum
1997 til 2007 kom einstaklega vel
lukkaður bálkur hennar um galdra-
piltinn Harry Potter og Hogwarts-
skólann út í sjö bindum; engin bóka-
röð hefur selst jafn vel – 500 milljónir
eintaka. Átta kvikmyndir voru síðan
gerðar eftir sögunum og frumsýndar
á árabilinu 2001 til 2011, einnig við fá-
dæma vinsældir. Óteljandi börn og
ungmenni ólust að vissu leyti upp
með þessum sögum og kvikmyndum,
biðu spennt eftir næsta skammti, og
fullorðna fólkið oft með þeim, enda er
þessi sagnaheimur heillandi, fjallar
um klassísk átök góðs og ills, og er
vel mótaður og byggður með tilvís-
unum í allrahanda ævintýri og skrif
annarra höfunda gegnum tíðina.
Eftir að hafa lokið Potter-bálknum
sneri Rowling sér að ritun saka-
málasagna, og stendur sig einnig vel
á því sviði, en unnendur eldri sagna
hennar voru að vissu leyti skildir eft-
ir í tómarúmi, þeir söknuðu ævintýr-
anna, persónanna og spennunnar í
galdraheiminum – þótt þeir geti allt-
af lesið bækurnar og horft á mynd-
irnar aftur. Rétt eins og gerðist með
Stjörnustríðsævintýrið kallaði þessi
þörf á fleiri kvikmyndir; markaður-
inn var til staðar – og góð hagn-
aðarvon fyrir framleiðendur, þeir
sem höfðu ánetjast ævintýrinu vildu
meira. Og Rowling brást við, ekki
með því að skrifa bækur, heldur hef-
ur hún farið beint í kvikmyndamið-
ilinn að þessu sinni og skapað heim-
inn sem hefur yfirskriftina Fantastic
Beasts, eða Furðuskepnur. Rowling
skrifar sjálf handritið og gagnrýni á
fyrstu tvær kvikmyndirnar hefur
ekki síst beinst að þeirri ákvörðun
hennar. Hún er vitaskuld frábær æv-
intýrahöfundur en fékk sérfræðing á
því sviði, Steve Kloves, til að skrifa
handrit Potter-kvikmyndanna. Per-
sónufjöldinn og það hvernig athygli
og áherslan dreifist í þessari nýju
mynd, svo gangurinn er nokkuð
rykkjóttur og þá sérstaklega framan
af, má skrifa á handritið. En það er
augljóst að kvikmyndirnar verða
mun fleiri og í þessari er sagan tengd
sífellt betur við Harry Potter-
heiminn; þetta er forsaga atburða
sem við kynntumst þar og tengingin
er ekki síst í ungum Dumbledore,
skólastjóra í Hogwarts, sem Jude
Law leikur með stæl, óaðfinnanlega
klæddur í tweed.
Skrautlegt persónugallerí
Persónur sem áhorfendur kynntust í
fyrstu kvikmyndinni mæta annars
margar til leiks að nýju. Sagan hefst í
New York ári eftir að hinni lauk,
1927. Það hittum við fyrir hinn illa
galdrakarl Grindelvald (Johnny
Depp), sem er æðstiprestur myrku
aflanna en hvítur ásýndum sem ásinn
Baldur. Bandaríska galdramálaráðu-
neytið hefur haft hann undir lás og
slá síðan fyrstu kvikmyndinni lauk en
í æsilegri og glæsilega mótaðri upp-
hafssenu tekst honum að sleppa.
Aðalpersónan, furðudýrahirðirinn
Newt Scamander (Eddie Redmayne)
er á sama tíma upptekinn í London
við umhirðu og gæslu ævintýralegra
skepnanna sem hann gætir og geym-
ir sum í vösum sínum og tösku. Eftir
ævintýri sín í New York í fyrri mynd-
inni treystir galdramálaráðuneytið í
Bretlandi honum illa og meinar hon-
um að ferðast til annarra landa, þar
sem hann vill ekki ganga í þeirra rað-
ir sem skyggnir, eins og bróðir hans
er. Fleiri kunnuglegar persónur tín-
ast inn í meginsögurnar tvær, af
Grindelwald og Scamander; syst-
urnar Tina (Katerina Waterston),
sem Scamander er hrifinn af, Quee-
nie (Alison Sudol), sem mætir til leiks
með unnustann Kowalski (Dan Fog-
ler) sem er „muggi“ eða óbreyttur
maður sem ekki kann að galdra, og
skyggnirinn Leta Lestrange (Zoë
Kravitz), fyrrverandi skólasystir
Scamander í Hogwarts. Grindelwald
leitast eftir að vinna traust unga
mannsins Credence (Ezra Miller),
þar sem draumar hans um völd og
heimsyfirráð byggjast á samstarfi
þeirra en Grindelwald vill rifta alda-
gömlum samningi um frið við mugga
og leggja heim þeirra undir heim
galdramanna. Og hinn máttugi
Dumbledore getur ekki beitt sér, þar
sem þeir Grindelwald sórust ungir í
fóstbræðralag og gott betur; gefið er
í skyn að þeir hafi líka verið elsk-
endur en Rowling hefur sjálf sagt
skólastjórann vera samkynhneigðan.
Hinn bjarti söguþáttur Scamand-
ers, vina hans og stórkostlega vel
heppnaðra og skemmtilegra furðu-
skepnanna, blandast í Parísarborg
við hinn myrka og illa þátt Grindel-
walds og þeir tvinnast saman í ævin-
týralegum og myrkum – en þó með
hressilegum eldglæringum og
sprengingum – hætti í Père
Lachaise-kirkugarðinum í París.
Á vegferðinni að lokauppgjörinu –
að sinni, sagan er alls ekki öll – þá er
víða komið við og miklu fleiri persón-
ur en ofantaldar koma við sögu. Og
það er vel valið í mörg þessara hlut-
verka, sem bera sumar uppi mis-
langar örsögur sem lifna á skjánum.
Ein aukapersónan er ófyrirleitinn og
harðleitur skyggnir, Grimmson, sem
leikur skjöldum tveim en með hlut-
verk hans fer Ingvar E. Sigurðsson.
Við eigum eflaust eftir að sjá meira af
honum. Þá fer Ólafur Darri Ólafsson
skemmtilega með hlutverk sirkus-
stjórans Skender sem stendur á götu
í París fyrir sýningum á konu sem
breytir sér í nöðru – þar er komin
Nagini sú er mikið kom við sögu í
fylgdarliði myrku aflanna í Harry
Potter-ævintýrinu.
Sjónræn veisla
Sviðsmyndir Glæpa Grindelwalds
eru margar hverjar stórglæsilegar
og áhrifamiklar, og tölvutækni er
meistaralega beitt við að stefna
þekkjanlegum heimum borganna á
þriðja áratug liðinnar aldar saman
við furðuheimana sem Rowling hefur
skapað. Einu sinni er þó skotið yfir
markið, er galdrakarlinn illi bregður
upp myndum á áróðursfundi með
fylgjendum sínum og þar birtast sen-
ur úr seinni heimsstyrjöldinni og af
kjarnorkusprengju. Það þarf ekki að
tyggja ofan í áhorfendur hvað það
hefur í för með sér ef allt það góða,
sem Scamander, vinir hans og furðu-
dýrin standa fyrir, lýtur í lægra haldi
fyrir Grindelwald; hann vill heims-
yfirráð og um það snýst baráttan í
þessu skrautlega ævintýri. Ævintýri
þar sem ekki er alltaf farin bein leið,
og frásagnagleðin leiðir áhorfendur
stundum inn í öngstræti, en sjónrænt
og í hljóðrás er þetta veisla frá upp-
hafi til enda – og við getum hlakkað
til framhaldsins og þess fyrir-
sjáanlega uppgjörs góðs og ills sem
haldið er áfram að undirbyggja.
Að lokum: Textavélin hefur ekki
verið í lagi þegar íslenskan var lögð
við sýningareintökin hér, því nokkra
stafi vantaði alveg í orðin. Credence
hét þannig „redene“ í textalínunni,
því c vantaði, auk fleiri stafa. Von-
andi hefur verið bætt úr því.
Og enn er barist við myrku öflin
Galdrameistari Johnny Depp mjallhvítur í hlutverki Grindelwald sem svífst einskis í leit að heimsyfirráðum.
Sambíóin, Laugarásbíó
og Smárabíó
Fantastic Beasts: Glæpir
Grindelwalds bbbbn
Leikstjórn: David Yates. Handrit: JK
Rowling. Aðalhlutverk: Eddie Red-
mayne, Katherine Waterston, Dan Fog-
ler, Johnny Depp, Jude Law, Alison Su-
dol, Ezra Miller, Zoë Kravitz og Callum
Turner. Bandaríkin og Bretland, 2018.
134 mínútur.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
KVIKMYNDIR
Anders Olsson, starfandi ritari
Sænsku akademíunnar (SA) sendi í
vikubyrjun frá sér tilkynningu þar
sem fram kemur að SA hafi í sam-
ráði við Nóbelsstofnunina (NS)
ákveðið að stofna sérstaka Nóbels-
nefnd skipaða tíu
meðlimum sem
hafi það hlutverk
að velja Nóbels-
verðlaunahafa í
bókmenntum
fyrir árin 2019
og 2020. Fulltrú-
ar SA í nýju
nefndinni eru
Per Wästberg,
sem verður for-
maður, Horace Engdahl, Kristina
Lugn, Anders Olsson og Jesper
Svenbro. Þess utan taka fimm með-
limir utan SA sæti í nefndinni, en
það eru rithöfundarnir Kristoffer
Leandoer og Gun-Britt Sundström,
bókmenntagagnrýnendurnir
Mikaela Blomqvist og Rebecka
Kärde og þýðandinn og útgefand-
inn Henrik Petersen.
Í yfirlýsingu segir Lars Heiken-
sten, stjórnandi NS, þátttöku með-
limanna fimm sem ekki tilheyra SA
mikilvægt skref í rétta átt að því að
endurheimta traust SA. Líkt og
greint var frá fyrr í haust setti NS
það sem skilyrði fyrir því að SA
mætti útdeila Nóbelsverðlaunum í
bókmenntum að SA breytti vinnu-
lagi sínu í vali á Nóbelsverðlauna-
höfum og komið yrði upp nýrri val-
nefnd sem væri algjörlega óháð
þeim meðlimum SA sem gegnt hafa
lykilhlutverki í krísu SA sem rekja
má til ásakana um að Jean-Claude
Arnault, eiginmaður Katarinu
Frostenson sem setið hefur í SA frá
1992, hafi árum saman beitt konur
kynferðislegu ofbeldi og þau hjón
átt óeðlileg fjárhagsleg tengsl við
SA gegnum bókmenntaklúbbinn
Forum. Í því ljósi vekur seta Eng-
dahl í nefndinni athygli, enda var
hann ritari SA þegar Forum var
sett á föst fjárframlög hjá SA á sín-
um tíma og hefur lengi talað máli
Arnault og Frostenson.
Olsson tók í fyrstu fálega í kröfu
NS, en fór fljótlega að tala fyrir
þeirri málamiðlun sem nú hefur
orðið reyndin. „Við neyddumst til
að endurnýja okkur. Þetta er ekki
einfalt ferli. Við eigum langa ferð
fyrir höndum, þó að við séum kom-
in yfir erfiðasta hjallann,“ segir
Olsson við SVT þegar hann er
spurður hvernig gangi að endur-
heimta traust SA. Segir hann
nefndina hefja störf 1. febrúar 2019
og að hann hlakki til. „Það hleypir
nýju lífi í starfið hversu fjöl-
breyttur hópurinn er, jafnt m.t.t.
kynjaskiptingar og aldurs.“
silja@mbl.is
Ný Nóbelsnefnd tekur
til starfa 1. febrúar
Anders Olsson