Morgunblaðið - 22.11.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.11.2018, Qupperneq 1
LÍKIST KLOVNMEÐ DERHÚFU40TONN AF PLASTI upandi með fingur af stærðinni 5 gæti keypt demantshring. 4 Unnið Nýjar kynslóðir plastkassa gætu í sumum tilvikum leyst frauðplast- öskjur af hólmi í sjávarútvegi. 7 VIÐSKIPTA 4 Ka í samvinnu við Tvöföldun á stærð hugbúnaðarfyrirtækisins Kolibri á tveimur árum hafa fylgt alls kyns áskoranir segir Ólafur Örn Nielsen framkvæmdastjóri. FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík ey.is Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta Veðkall og bréfin hækkuðu Samkvæmt traustum heimildum Við- skiptaMoggans var gert veðkall í hlutabréfum Laugavegar ehf., félags í eigu fjárfestisins Sturlu Sighvats- sonar, í leigufélaginu Heimavöllum á dögunum. Bréfin voru í kjölfarið seld á markaði, í um 140 milljóna króna viðskiptum. Þar með hafi Sturla misst yfirráð yfir langstærstum hluta af bréfum sínum, og öllum sem voru hjá Kviku í gegnum framvirka samninga þar. Veðkall er það kallað þegar fjár- festir þarf að leggja fram viðbótar tryggingar fyrir láni sem liggur til grundvallar skuldsettri fjárfestingu. Nái hann ekki að leggja fram slíkar tryggingar selur viðkomandi fjár- málastofnun bréfin til greiðslu skuld- arinnar. Sturla, sem er einn af stofnendum Heimavalla og fyrsti forstjóri þess, hefur verið í fréttum að undanförnu vegna nauðungarsölu á eignum. Í frétt Stundarinnar frá því fyrr í mán- uðinum er sagt að fjöldi fasteigna í hans eigu hafi verið boðinn upp til nauðungarsölu undanfarna mánuði. Þá er fasteignafélag hans sagt ógjald- fært og sum dótturfélög í mjög alvar- legum vanskilum, eins og það er orð- að í frétt Stundarinnar. Heimildarmenn ViðskiptaMoggans á markaðnum segja að í kjölfar veð- kallsins, og eftir að Kvika hóf sölu á bréfunum í Kauphöllinni á genginu 1,08, eða á lægsta verði sem bréf Heimavalla hafa verið skráð á síðan félagið fór á markað síðastliðið vor, hafi verð bréfanna hækkað mikið. Telja menn að lengi hafi verið vitað af fjárhagsörðugleikum þeim sem tíund- aðir eru í frétt Stundarinnar, og mögulega hafi gengið tekið kipp eftir að ljóst var að Laugavegur ehf. hyrfi úr hluthafahópnum. Miðað við eldri hluthafalista Heimavalla má gera ráð fyrir að nafn- virði bréfa Laugavegar ehf. í Heima- völlum hafi numið á bilinu 200 – 250 milljónir króna, sem er um 2 – 2,5% af heildarvirði Heimavalla. Flutti sig til Arion banka Sturla Sighvatsson hafnar því hins- vegar í samtali við ViðskiptaMogg- annn að um veðkall hafi verið að ræða, og segir að framvirkur samn- ingur um ákveðin bréf hafi ekki verið framlengdur, eins og vaninn hefur verið á 30 daga fresti til þessa. Hann segist einfaldlega hafa skipt um banka, og hyggst kaupa öll bréfin aft- ur með framvirkum samningi hjá Ar- ion banka. „Þeir eru að kaupa bréf fyrir mig núna og út þessa viku. Ég mun á endanum eiga sama magn bréfa og ég átti áður, og jafnvel meira. Ég hef mikla trú á Heimavöllum til framtíðar,“ útskýrir Sturla. Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Hluti af ástæðu mikilla verðhækkana á bréfum Heimavalla í vikunni er sagður vera vegna sölu á bréfum stórs hluthafa. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Gengi Heimavalla hefur hækkað mikið í vikunni, en lokagengi félagsins í Kaup- höll í gær var 1,17 og hafði hækkað um 5,41% í 46 milljóna króna viðskiptum. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 1.400 22.5.‘18 22.5.‘18 21.11.‘18 21.11.‘18 1.756,21 1.679,44 140 135 130 125 120 123,45 141,05 Sveinn Björnsson, framkvæmda- stjóri Íslenskra fasteigna, sem hefur umsjón með byggingu lúxusíbúð- anna í Austurhöfn við hlið Hörpu, segir að þær mörgu stóru íbúðir sem boðnar verða til sölu séu hluti af sér- stöðu verkefnisins. Sala íbúðanna hefst eftir áramót að sögn Sveins. „Við munum bjóða nokkrar stærðir af íbúðum. Um 20% íbúðanna eru á bilinu 50-100 fermetrar, 34% íbúð- anna eru á bilinu 100-150 fermetrar og svo eru hin 46% sem eftir standa á bilinu 170-360 fermetrar.“ Sveinn segir að fjórar stærstu íbúðirnar verði á bilinu 300-360 fer- metrar. „Þetta eru þakíbúðirnar. Um 30% íbúðanna eru annars á bilinu 170-210 fermetrar.“ Þá segir Sveinn að nálægðin við Marriot Edition-hótelið sem er í byggingu við hliðina sé mikill kostur. Íbúar geti nýtt sér þjón- ustu hótelsins. 360 fm þakíbúð í Austurhöfn Morgunblaðið/Hari Sveinn Björnsson segist spenntur að sjá viðtökurnar við nýju íbúðunum. Sala lúxusíbúða Austur- hafnar hefst í byrjun 2019. Stærð íbúðanna er ein helsta sérstaðan. 8 Leiðtogar atvinnulífsins hafa, því miður, ekki endi- lega mikið fram að færa á vettvangi stjórn- málanna. Forstjórar haldi sig fjarri pólitík 10 Rekstur Victoria‘s Secret gengur ekki vel um þessar mundir og gæti fyrirtækið þurft að losa sig við verslanir. LEX: Brátt í blúndunærbrók 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.