Morgunblaðið - 22.11.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 22.11.2018, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018FRÉTTASKÝRING bílakjallaranum 1.127 að tölu. „Bílastæðin undir Hörpu, Landsbankanum, Austurhöfn og Mar- riot Edition verða öll tengd saman. Þetta er flóknasti bílakjallari sem við hjá Íslenskum fast- eignum höfum haft aðkomu að,“ segir Sveinn og brosir. Hægt verður að keyra ofan í kjallarann frá nokkrum stöðum. „Þetta er umtalsverð fjölgun bílastæða í miðbænum. Hægt verður að aka eft- ir Pósthússtræti til að mynda, og beint ofan í bílakjallarann og einnig verður hægt að keyra beint niður af Hafnarbakkanum, og svo auðvitað áfram niður hjá Hörpu. Kjallarinn verður opinn Mikil uppbygging hefur staðið yfir um skeið í Austurhöfn í Reykjavík, á byggingareitunum á hafnarbakkanum á milli Hörpu og Hafnartorgs. Þrjár byggingar munu á endanum standa þar og eru þær smátt og smátt farnar að taka á sig mynd. Fyrst ber að telja Marriot Edition- lúxushótelið sem standa mun næst Hörpu. Þá kemur sex hæða íbúðabygging með 71 íbúð af ýmsum stærðum, og í þriðja lagi nýjar og glæsi- legar höfuðstöðvar Landsbankans. Þær eru enn á hönnunarstigi, en vonast er til að bygging- arframkvæmdir geti farið að hefjast bráðlega. Undir öllu saman er svo bílakjallari á einni til tveimur hæðum sem tengist bílakjallara Hörpu og Hafnartorgs, og verður sá stærsti á landinu. Umsjón með uppbyggingu hótelsins og íbúð- anna hefur fasteignaþróunarfélagið Íslenskar fasteignir ehf., en eigandi hótelsins sjálfs er fasteignafélagið Cambridge Plaza Hotel Comp- any ehf. Eigendur Austurhafnar, sem reisir íbúðabyggingarnar, eru hinsvegar Hreggviður Jónsson og Eggert Dagbjartsson ásamt Arion banka með 20%. Flóknasti bílakjallarinn Blaðamaður fékk kost á því á dögunum að kynna sér framkvæmdirnar í fylgd Sveins Björnssonar, framkvæmdastjóra og eins eig- enda Íslenskra fasteigna, og tók því boði fegins hendi, enda um sögulega og spennandi upp- byggingu að ræða, og eina mestu breytingu á miðbæ Reykjavíkur sem um getur í seinni tíð. Eftir viðkomu í vinnuskúr þar sem menn settu upp hjálma og fóru í skærlit öryggisvesti, var haldið af stað inn á byggingarsvæðið. Við stöldruðum fyrst við fyrir framan hótelið, þar sem Sveinn benti blaðamanni á miklar fram- kvæmdir sem ná langt niður fyrir sjávarmál, þar sem m.a. bílakjallarinn kemur til með að vera. Nýju stæðin sem þarna eru í smíðum eru samtals 582 talsins og teygja sig frá Tryggva- götu í suðri og upp að Hörpu í norðri. Þar af eru 100 einkastæði beint undir íbúðunum í Austur- höfn og tilheyra þeim, hvert og eitt með mögu- leika á rafhleðslu fyrir bílinn. Í Hörpu eru stæð- in 545 og allt í allt verða því stæðin í 24 tíma á sólarhring alla daga ársins og verður hann vaktaður með öryggisgæslu. Allur frá- gangur tekur mið af frágangi í bílakjallara Hörpu ásamt fullkomnu leiðsagnakerfi.“ 37 þúsund fermetrar Sveinn segir að um töluvert heildar bygging- armagn sé að ræða ofan og neðan jarðar. „Hót- elið og íbúðirnar ásamt bílakjallara eru í heild- ina um 37.000 fermetrar. Með því eru eins og fyrr sagði þessi einkastæði í bílakjallara, sem okkur fannst mjög mikilvægt að geta boðið upp á.“ Sveinn segir að uppsteypa íbúðanna klárist fyrir árslok, og uppsteypa hótelsins í janúar – febrúar nk. Þegar komið er inn í íbúðirnar má sjá að út- sýnið er einstakt. Horft er beint út á höfnina og Faxaflóann úr stofuglugga, en hinum megin er útsýni í átt að Hafnartorgi og miðbænum. Sveinn bendir á að íveruherbergin snúi út að þakgarði sem verður með glæsilegra móti. Sval- ir eru á báðum endum og alrými (stofa og eld- hús) rúmgóð. „Þessi staðsetning hússins hérna megin Geirsgötunnar þýðir að íbúðirnar eru í skjóli frá skarkala miðbæjarins. Þetta er ein- Mest í mun að væntingar ka Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Framkvæmdir í Austurhöfn í Reykjavík, á byggingarreitnum við hlið Hörpu, ganga samkvæmt áætl- un. Ístak er að ljúka við uppsteypu húsanna og stefnt er að því að full- klára fimm stjörnu Marriot Edition- hótelið og sex hæða íbúðarblokk með 71 íbúð fyrir lok árs 2019. Auk þess styttist í að bygging nýrra höf- uðstöðva Landsbankans á reitnum hefjist. Lúxusíbúðirnar í Austurhöfn munu líta svona út í endanlegri mynd. Þær verða fullbúnar í lok árs 2019. Horft niður á þakgarðinn sem tilheyrir íbúum Austurhafnar. Bilið milli húsanna þar sem sést yfir á Hafnartorg er seinni tíma breyting. Upphaflega áttu að vera þar íbúðir. Mikið er lagt upp úr sérsmíði og vönduðum frágangi íbúðanna, hvort sem um er að ræða 50 fer- metra íbúð eða 360 fermetra þakíbúð. Stærð íbúðanna er ein helsta sérstaða verkefnisins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.