Morgunblaðið - 22.11.2018, Side 12

Morgunblaðið - 22.11.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2018SJÓNARHÓLL Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds KRISTINN MAGNÚSSON Góður félagi minn segir að val á lífeyrissjóði séein af stóru ákvörðunum sem fólk stendurframmi fyrir í lífinu. Ekki geta allir valið sér lífeyrissjóð því aðild að þeim er oft bundin í kjarasamn- ingi en þeir sem hafa val ættu að vanda vel til verka og taka vel upplýsta ákvörðun. Vegna mismunandi upp- byggingar og sjóðfélagasamsetningar lífeyrissjóða get- ur munað verulega hvaða eftirlaun fólk fær, hve mikill sveigjanleikinn er við útgreiðslur og hvað fellur til erf- ingja við fráfall. Ákvörðun um lífeyrissjóð getur því haft veruleg áhrif á lífskjör að lok- inni starfsævi. Mismunandi eftirlaun úr lífeyrissjóðum Flestir lífeyrissjóðir ráð- stafa öllu skylduiðgjaldinu, sem er 12%-15,5% af launum, í samtryggingu sem veitir mikilvæg tryggingaréttindi eins og mánaðarleg verðtryggð eftirlaun út ævina, ör- orkulífeyri og fjölskyldulífeyri við fráfall. Iðgjöldum í samtryggingu má líkja við greiðslu iðgjalds til trygg- ingafélags; bætur eru greiddar þegar ákveðnir atburðir í lífi sjóðfélaga eiga sér stað. Við fráfall erfast hins veg- ar hvorki iðgjöld í samtryggingu né ávöxtun þeirra, ólíkt því sem gildir um iðgjöld í séreignarsjóði. Ef við ímyndum okkur að sama iðgjald væri greitt í alla sjóði og ávöxtun þeirra væri sú sama, þá myndu sjóðirnir engu að síður greiða mismunandi eftirlaun, m.a. vegna mismunandi sjóðfélagasamsetningar og ör- orkubyrði. Lausleg athugun á niðurstöðum reiknivéla á vefsíðum lífeyrissjóða sýnir að eftirlaun úr samtrygg- ingu frá 67 ára aldri geta verið frá 69% til 89% af með- allaunum sem greitt er af m.v. 15,5% iðgjald í 40 ár. Þannig að þó að iðgjöld og langtímaávöxtun lífeyr- issjóða hafi vissulega mikil áhrif á þau eftirlaun sem fólk fær úr samtryggingu skiptir mismunandi sjóð- félagasamsetning og uppbygging sjóðanna ekki síður máli. Allt að 78% skylduiðgjalds í séreignarsjóð Nokkrir lífeyrissjóðir, eins og Frjálsi lífeyrissjóð- urinn, skipta skylduiðgjaldinu milli samtryggingar og séreignar og sjóðfélagar þeirra njóta kosta beggja kerfa. Gantast hefur verið með að um sé að ræða eitt best geymda leyndarmál lífeyriskerfisins því vitneskja almennings um þennan valkost virðist vera takmörkuð. Séreignin erfist, býður upp á sveigjanlega útgreiðslu- möguleika og hægt er að ráðstafa henni í fjölbreyttar ávöxtunarleiðir skv. vali sjóðfélaga. Af opnum lífeyrissjóðum getur hlutfall séreignar af 15,5% skylduiðgjaldi verið frá allt að 23%-78%, eða 3,5%-12,1% af launum, og er Frjálsi lífeyrissjóðurinn sá sjóður sem býður upp á hæsta hlutfall séreignar. Sveigjanleikinn felst meðal annars í því að sjóðfélagar geta ákveðið að fá greidd hærri eft- irlaun á fyrri hluta eftirlauna- áranna, á meðan heilsan er góð, með því að fá greitt samtímis úr samtryggingu og séreign, en lægri eftirlaun seinni hlutann eftir að gengið hefur á séreignina. Almennt má segja að þörfin fyrir eftirlaun minnki eftir því sem árin færast yfir og því líklegt að slíkt fyrirkomulag henti betur en að fá sama verð- tryggða lífeyrinn frá starfslokum til æviloka. Mikilvægt er fyrir sjóðfélaga að kynna sér vel kosti og galla þess að blanda saman iðgjaldi í samtryggingu og séreign sem og útborgunarreglur séreignar. Samanburður á lífeyrissjóðum Á vef Landssamtaka lífeyrissjóða er að finna grunn- upplýsingar um lífeyrissjóði landsins og þar kemur fram að 10 sjóðir eru opnir öllum. Á vefsíðum lífeyr- issjóðanna er jafnframt hægt að kynna sér réttindaupp- byggingu sjóðanna og nýta reiknivélar á vefsíðum þeirra til að meta áætlaðan lífeyri og uppsafnaða sér- eign við starfslok. Aðrir þættir sem geta haft áhrif á ákvarðanir um val á lífeyrissjóði eru m.a. söguleg ávöxt- un, gæði þjónustu og upplýsingagjöf lífeyrissjóðanna. Þeir sem greiða í lífeyrissjóð með ábyrgð launagreið- anda ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir gera til- raun til að skipta um lífeyrissjóð. Launagreiðandi, sem er ríkið eða sveitarfélög, ábyrgjast lífeyrisréttindi sjóð- félaga og í því felst verðmæt trygging fyrir sjóðfélaga. Einnig er ráðlegt fyrir þá sem íhuga að skipta um sjóð að bera saman mismunandi lífeyrisréttindi, sem þeir eiga von á að ávinna sér fyrir framtíðariðgjöldin, og uppbyggingu sjóðanna. Það þarf jú að vanda sig við að taka eina af stóru ákvörðunum lífsins. LÍFEYRISMÁL Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins. Ein af stóru ákvörðununum ” Ákvörðun um lífeyris- sjóð getur því haft veruleg áhrif á lífskjör að lokinni starfsævi. FORRITIÐ Síminn er afskaplega persónulegt tæki og hefur stundum að geyma viðkvæmar upplýsingar. Á sama tíma er síminn eitt af þeim verkfær- um sem fólk notar við vinnu sína; til að senda viðskiptavinum gögn eða skiptast á skilaboðum við vinnu- félagana. Er því eins gott að draga skýra línu svo að einkahluti símans bland- isti ekki óvart saman við vinnuhlut- ann. Forritið SafeScan kemur þar í góðar þarfir, og bæði greinir og fel- ur ljósmyndir á símanum sem óheppilegt væri að rötuðu óvart í skeyti til kollega, ellegar sæjust fyr- ir slysni á símaskjánum á meðan verið væri að grúska í myndamöpp- unni til að sýna yfirmanninum myndir frá vel heppnaðri ráð- stefnuferð. SafeScan notar gervigreind til að sigta út myndir sem sýna efni sem öðrum gæti þótt dónalegt, og færir yfir í lokaða möppu. Forritið skann- ar og flokkar bæði þær myndir sem fyrir eru í símanum og nýjar myndir sem berast t.d. í gegnum spjall- og stefnumótaforrit. SafeScan er enn á prófunarstigi og aðeins fáanlegt fyrir síma með iOS stýrikerfið, í gegnum TestFlight forrit Apple. ai@mbl.is Vafasömu myndirnar á öruggum stað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.